Fréttablaðið - 09.01.2008, Síða 2

Fréttablaðið - 09.01.2008, Síða 2
2 9. janúar 2008 MIÐVIKUDAGUR SAMGÖNGUR Framhalds- og háskólanemar í Reykjavík sem byrjuðu í skóla eftir áramót hafa margir lent í erfiðleikum með að nálgast strætókort. Hætt hefur verið við að dreifa kortunum í gegnum nemendafélög skólanna, og þurfa þeir sem vilja strætókort nú að sækja það hjá Strætó bs. Baldvin Sigurðsson, nemandi við Iðnskólann í Reykjavík sem byrjaði nú eftir áramót, segist hafa lent í sannkallaðri hringekju þegar hann ætlaði að verða sér úti um kort. „Ég fór fyrst til nem- endafélagsins sem sagðist ekki dreifa kortunum lengur og vísaði mér á Strætó. Þeir sögðu nei og vísuðu mér á Reykjavíkurborg, sem vísaði mér aftur á Strætó. Þá fékk ég loksins samband við mann sem ætlaði að redda þessu fyrir mig, en það tekur viku,“ segir hann. „Ég var heilan dag að send- ast á milli staða út af þessu.“ Einar Kristjánsson, sviðsstjóri þjónustusviðs Strætó, segir að hætt hafi verið að dreifa kortun- um í gegnum nemendafélög skól- anna vegna þess að sum félögin hafi ekki ráðið við það. Kort hafi komist í rangar hendur og nokkuð um misnotkun vegna þess. Til þess að fá strætókort þurfi nemendur nú að senda póst á skolakort@straeto.is með nafni, kennitölu og skóla. Síðan sé kortið sótt á skrifstofu Strætó í Mjódd eftir viku bið í mesta lagi. - sþs Hætt við að dreifa strætókortum í gegnum nemendafélög vegna misnotkunar: Dreifing kortanna í höndum Strætó STRÆTISVAGNAR Nemendafélög skóla réðu sum hver ekki við að dreifa strætókortunum á ábyrgan hátt, segir sviðsstjóri þjónustusviðs Strætó. Því var hætt að dreifa kortunum á þann hátt. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Þórarinn, verða menn full Vogaðir um jólin? „Jú mér sýnist það sjálfum og einnig benda upplýsingar bankanna um yfirdrátt landans til þess.“ Mikið annríki er á sjúkrahúsinu Vogi eftir hátíðirnar en nú þegar bíða um þrjú hundruð manns eftir meðferðarplássi þar. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að alltaf séu miklar annir á sjúkrahúsinu eftir jólin. ÞÓRARINN TYRFINGSSON, YFIRLÆKN- IR Á VOGI DÓMSMÁL Fjárfestingabankinn Saga Capital hefur höfðað mál gegn Dögg Pálsdóttur, hæstarétt- arlögmanni og varaþingmanni Sjálfstæðisflokksins, vegna deilna um kaup á hlutabréfum í SPRON hf. Aðalmeðferð í málinu hefst í dag. Auk Daggar hefur bankinn stefnt syni hennar, Páli Ágústi Ólafssyni, og fyrirtækinu Insolidum ehf. Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður Daggar, vildi ekkert tjá sig um málið við Fréttablaðið í gær, frekar en Dögg, en staðfesti þó að um væri að ræða ágreining um hvort samningur sem tengdist hlutabréfakaupum væri gildur. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er um að ræða viðskipti fyrir hundruð milljóna króna. - mh Saga Capital: Í mál gegn varaþingmanni TAÍLAND, AP Eiginkona Thaksin Shinawatra, fyrrverandi forsæt- isráðherra Taílands, var handtek- in í gær vegna spillingarákæra þegar hún sneri aftur til Taí- lands. Thaksin var bolað frá völdum í september 2006 í kjölfar ásakana um víðtæka spillingu. Réttað verður yfir Pojamarn Shinawatra 23. janúar. Verði hjónin bæði sakfelld fyrir allar ákærur gætu þau átt yfir höfði sér allt að 28 ára fangelsi. Flokkar sem styðja Thaksin sigruðu í kosningum í desember og vinna nú að myndun meiri- hluta. - sdg Kona forsætisráðherra Taílands: Handtekin vegna spillingar DÓMSTÓLAR „Rökstuðningurinn endurspeglar bara sjónarmið ráð- herrans,“ segir Pétur Dam Leifs- son lögmaður. Hann var annar þeirra sem óskuðu eftir rökstuðn- ingi ráðherra vegna ráðningar Þorsteins Davíðssonar í stöðu hér- aðsdómara. Árni Mathiesen, settur dóms- málaráðherra í málinu, skilaði rökstuðningi sínum í gær. Sam- kvæmt rökstuðningnum öðlaðist Þorsteinn reynslu af öllum hliðum lögfræði sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra á árunum 2003 til 2007. Einnig kemur þar fram að hann hafi gegnt veigamiklum nefndarstörfum á vegum hins opinbera, hafi gegnt forystustörf- um í félagsmálum frá unglingsár- um og sitji nú í dómnefnd Bók- menntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar. Þá kemur fram að fjölbreytt reynsla hans og þekk- ing, ekki síst sem aðstoðarmaður ráðherra, geri það að verkum að Þorsteinn sé hæfastur umsækj- enda um embætti héraðsdómara. „Ég tel eftir sem áður mikil- vægt að það reyni á það hvort sú aðferðafræði sem ráðherrann hefur viðhaft í þessu máli geti tal- ist réttmæt með hliðsjón af öllu því sem liggur fyrir í málinu,“ segir Pétur jafnframt. Hann seg- ist reikna með því að taka sér góðan tíma til að íhuga næstu skref. - þeb Umsækjendur um héraðsdómarastöðu fengu rökstuðning í gær: Efast um réttmæti aðferða ÁRNI MATHIESEN Sendi umsækjendun- um tveimur sem þess óskuðu rökstuðn- ing sinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FANGELSISMÁL „Ég kann mjög vel við mig á Litla-Hrauni,“ segir Margrét Frímannsdóttir, fyrrverandi þingmaður, en hún hefur verið ráðin forstöðumaður fangelsins á Litla-Hrauni í leyfi Kristjáns Stefánsson- ar. Margrét tekur formlega við starfinu 1. febrúar en Kristján ráðgerir að vera í leyfi í eitt ár. Margrét er fyrsta konan til að gegna stöðu forstöðumanns í sögu fangelsisins. Sjálf er hún dóttir fangavarðar og hefur hún því lengi haft innsýn í lífið á Litla-Hrauni. Þar að auki hefur hún starfað sem ráðgjafi í fangelsinu frá því í nóvember á nýliðnu ári. - kdk Forstöðumaður Litla-Hrauns: Margrét stýrir Litla-Hrauni MARGRÉT FRÍMANNSDÓTTIR VIÐSKIPTI „Gnúpur er ekki gjaldþrota, ekki að fara í gjald- þrot og við erum ekki að slíta félaginu,“ segir Kristinn Björns- son, stjórnarformaður Gnúps fjárfestingarfé- lags og næst stærsti eigand- inn. Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um stöðu Gnúps, sem sé fjárfestingarfé- lag í einkaeigu. Miklar sögusagnir hafa gengið um að eigið fé félagsins sé uppurið. Um mánaðamótin ágúst og september var eigið fé félagsins um 45 milljarðar króna. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins hefur það fé að miklu leyti tapast vegna þróunar á mörkuðum. Svipað er komið fyrir öðrum fjárfestum, sem voru stórir í FL Group, eins og Hannesi Smárasyni, Þorsteini M. Jónssyni og Magnúsi Ármann. - bg Erfiðleikar vegna lækkana: Gnúpur ekki á leið í gjaldþrot KRISTINN BJÖRNSSON FRAKKLAND, AP Nú er það opinbert. Nicolas Sarkozy Frakklandsfor- seti segir að full alvara sé í sambandi hans við ítölsku fyrirsætuna/söngkonuna Cörlu Bruni. Hann gaf á blaðamanna- fundi í París í skyn að brúðkaups- áform væru í uppsiglingu. „Það gæti vel gerst að þið heyrðuð fyrst af því eftir að það er um garð gengið,“ sagði Sarkozy beðinn að bregðast við fullyrðingu í dagblaði um helgina um að brúðkaup væri fyrirhugað í febrúar. Sarkozy skildi við eiginkonu sína, Ceciliu, fyrir þremur mánuðum og á síðustu vikum hafa þau Bruni sést sæl saman við hin ýmsu tækifæri. - aa Nicolas Sarkozy: Ást forsetans opinberuð LÖGREGLUFRÉTTIR Fékk járn í gegnum lærið Maður slasaðist í fyrradag á Seyð- isfirði er hann hrasaði með þeim afleiðingum að steypustyrktarjárn stakkst í gegnum lærið á honum. Maðurinn var við störf í stöðvarhúsinu við Fjarðarsel þegar slysið varð. Hann var fluttur á sjúkrahúsið í bænum þar sem gert var að sáum hans. VIÐSKIPTI Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,18 prósent í gær, fjórða daginn í röð en það jafngildir því að vísitalan hafi fallið um 10,5 prósent frá áramótum. Vísitalan stendur í 5.653 stigum og hefur ekki verið lægri síðan um miðjan ágúst í hittifyrra. Gengi bréfa í öllum bönkum og fjármálafyrirtækjum hér hefur lækkað um 13 til 53 prósent í yfirstandandi dýfu síðastliðna tólf mánuði. Gengi bréfa Lands- bankans hafa hækkað um tæp fjórtán prósent á sama tíma. Athygli vekur að heildarvið- skipti dagsins námu rétt rúmum 4,9 milljörðum króna, sem er rúmlega helmingi minni velta en á meðaldegi. - jab Enn lækkar Úrvalsvísitalan: Engin hækkun í rúmt ár LÖGREGLUMÁL Eldur kviknaði í stigagangi í Jórufelli 4 í Breiðholti um hádegisbil í gær. Að sögn rann- sóknarlögreglu virðist sem kveikt hafi verið í rusli á jarðhæð húss- ins. Jórufell 4 er í eigu Félagsbú- staða hf. Öryggismyndavélar eru í stigaganginum þar sem eldurinn kom upp, en klippt var á snúrur þeirra fyrir þremur dögum. Starfsmaður Félagsbústaða kom myndavélunum aftur í gang í fyrradag en þegar bruninn kom upp í gær hafði á nýjan leik verið klippt á snúrurnar. Fjöldi íbúa var í húsinu þegar eldurinn kviknaði en vel gekk að koma þeim út. „Við tókum nokkra niður af svölum með stiga og aðra með körfubíl. Svo voru fjórir tekn- ir í gegnum stigaganginn með þar til gerðum björgunarmaska,“ segir Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri. Slökkviliðið aðstoðaði alls tólf manns við að komast út úr húsinu. Tvær konur voru fluttar á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. Jón Viðar segir það hafa hjálpað slökkviliðsmönnum að íbúarnir hafi verið yfirvegaðir og inni í íbúðum sínum. „Það er grundvall- arregla þegar eldur kemur upp í fjölbýlishúsum að fólk haldi sig í íbúðunum og geri vart við sig á einhvern máta.“ Eldurinn var kveiktur í rusla- hrúgu á jarðhæð, en íbúi í húsinu hafði hringt í félagsþjónustuna í Breiðholti og kvartað undan ruslinu stuttu áður en eldsins varð vart. Að sögn íbúa hafa deilur staðið yfir vegna ruslsins, sem allt er frá einni íbúð, um nokkurt skeið. Íbúar í húsum Félagsbústaða hafa ekki aðgang að ruslageymsl- um, heldur sér starfsmaður frá Félagsbústöðum um að tæma geymslur. Nokkur óánægja hefur verið meðal íbúa vegna þessa. Að sögn Sigurðar Kr. Friðrikssonar, framkvæmdastjóra Félagsbú- staða, var geymslunum meðal annars læst til þess að koma í veg fyrir íkveikjur. Þar hafi áður verið komið fyrir miklu magni af rusli sem ekki hafi átt heima í geymsl- unni. Hann segist þó telja útilokað að íbúar hússins hafi haft nokkuð með brunann að gera, annað en það að þeir hafi ekki átt að setja rusl sitt í stigaganginn. thorunn@frettabladid.is Klippt á myndavélar áður en kveikt var í Kveikt var í rusli í stigagangi í Breiðholti í gærdag. Tólf manns voru aðstoðaðir við að komast út úr íbúðum sínum vegna mikils reyks. Öryggismyndavélar eru í húsinu en klippt hafði verið á snúrur þeirra í tvígang fyrir íkveikjuna. ÍBÚUM BJARGAÐ ÚT Slökkviliðsmenn hjálpuðu tólf manns út úr húsinu. Íbúum á fjórðu hæð var komið niður með hjálp körfubíls, en íbúar á þriðju hæð fylgdust með gangi mála á meðan þeir biðu eftir því að komast út. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ÚR KAUPHÖLLINNI Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 10,5 prósent frá áramótum. SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.