Fréttablaðið - 09.01.2008, Síða 12
12 9. janúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
„Össur er alltaf mjög rökfastur í sínu
máli og ég held að ég sé allavega
sammála honum um orkumálagæj-
ann,“ segir Magni R. Magnússon,
fyrrverandi kaupmaður, um umdeild-
ar skipanir Össurar Skarphéðinssonar
iðnaðarráðherra í embætti orku-
málastjóra og ferðamálastjóra. Hann
tekur síður afstöðu til skipunarinnar í
síðarnefnda embættið.
Magni tekur fram að hvorki sé hann
flokks-, skóla- né stúkubróðir Öss-
urar þótt hann kunni oft á tíðum að
meta málflutning hans.
„Það er ljótt ef kona fær embætti
bara af því að hún er kona eða karl
af því að hann er karl. Jafnréttisum-
ræðan er stundum aðeins of hávær,“
segir Magni sem telur rétt og eðlilegt
að deilt sé um veigamikil mál. „Það
má deila um allt, þess vegna eru
margir flokkar og mörg blöð.“
SJÓNARHÓLL
UMDEILDAR SKIPANIR ÖSSURAR
Það má deila
um allt
MAGNI R. MAGNÚSSON, FYRRVERANDI
KAUPMAÐUR.
„Ég er framhaldsskólakennari við Flensborg-
ar skóla í Hafnarfirði þannig að nú er að fara
af stað aftur ný önn og maður hittir nýja og
frábæra nemendur. Ég kenni fjölmiðla-
fræði og fjölmiðlatækni þannig að ég
vinn með nemendum sem eru að
stjórna græjum fyrir sjónvarp og
útvarp. Það er heilmikið að gerast
við að keyra það í gang. Síðan er
stjórnsýslan að vakna aftur eftir
dvala yfir hátíðirnar. Í þessari viku
eru allar nefndir og ráð að fara af
stað og í næstu viku bæjarstjórn.
Þar fyrir utan þá er ég líka
upptekin af því að vera ólétt
þannig að það er verið að
púsla öllu saman með því,
fara á blaðamannafundi,
nefndafundi og í mæðraskoð-
un,“ segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir,
bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.
„Andinn bæði hjá nemendum og starfs-
fólki er mjög góður eftir jólafríið, ég er á
því að fólk hafi verið búið að fá nóg
af fríi. Það var ágætt að fá hlé en svo
er kominn tími til að klára skólaárið
því það er öfugsnúið miðað við árið
annars. En nemendur og kennarar
koma vel undan jólum og eru í góðu
standi til að takast á við það sem
þarf að takast á við. Þetta er tæplega
800 nemenda skóli þannig að starfs-
mennirnir eru um 90 talsins. Þetta er
stór og mikill skóli og mikið fjör.“
Í stjórnkerfinu eru mörg spenn-
andi mál alltaf í gangi, að mati
Guðrúnar Ágústu. „Það síðasta
sem við gerðum áður en við
fórum í jólafrí var að afgreiða fjárhagsáætlun.
Þar voru ýmsar tillögur samþykktar áfram til
meðferðar í nefndum og ráðum sem verður
spennandi að fylgjast með hvað verður
um, til dæmis um gjaldfrjálsan leikskóla
fyrir fimm ára börn og átta stunda viðveru
og gjaldfrjálsan grunnskóla, þar með talinn
heilsdagsskóla og mat. Síðan veit maður ekki
hvað verður úr niðurstöðunni endanlega en
þetta verður sett í ferli í starfshóp. Það er
líka búið að ákveða að fá fagfólk til að skoða
hvort hægt sé að gera sérstakt verkefni um
námserfiðleika stúlkna en það er efni sem
ekki er rætt mikið um,“ segir hún og bætir við
að gjarnan sé talað um námserfiðleika stráka
sem vandamál en „hvað um stelpur sem eiga
í erfiðleikum?“ spyr hún.
Þá er í vinnslu skipulag á umhverfisvænu
hverfi sem á að byggja og verða sjálfbært.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? GUÐRÚN ÁGÚSTA GUÐMUNDSDÓTTIR, BÆJARFULLTRÚI Í HAFNARFIRÐI:
Umhverfisvænt hverfi í bígerð
Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi
Tjáðu þig! 50MB frítt
myndasvæði!
Búðu til myndaalbúm
á síðunni þinni!
Viltu sýn’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg
Menn leita ýmissa ráða
þegar verkir og meiðsl gera
vart við sig. Á nuddstofu Jia
Chang Wen er fólk fótum
troðið og stungið. Einn
nuddþeginn segir þetta hafa
reynst allra meina bót.
„Það er alveg óviðjafnanlegt að
koma hingað,“ segir Guðmundur
Helgi Þorsteinsson þegar blaða-
maður hitti á hann á Kínversku
nuddstofunni á Skólavörðustíg.
Guðmundur var þó ekki í sérlega
góðri aðstöðu til að ræða málin
þar sem hann lá á bekk með andlit-
ið ofan í gati meðan Liu Zhang Dou
traðkaði á baki hans. „Það er alveg
með ólíkindum, ég hef komið hing-
að með mikinn verk í mjóhrygg en
þá hafa þeir nuddað hann niður í
rasskinnar og svo burt.“ Að því
kveðnu segir Liu Zhang honum að
snúa sér við. „Ég hef nýtt mér
þetta frá því 1992,“ segir Guð-
mundur þegar hann er kominn á
bakið. „Ég kynntist eigandanum
Jia Chang Wen í gegnum blakið
þegar hann var að þjálfa og þegar
upp komu meiðsl sá ég eins og
aðrir hvernig hann lappaði upp á
menn. Og ég hef alltaf verið afar
neikvæður gagnvart öllum mögu-
legum pillum sem settar eru í
menn þegar eitthvað kemur upp á.
Þær lina kannski sársauka en
vinna ekki á sjálfu vandamálinu
en hér hef ég komið inn með bakið
í klemmu en farið út eins og
nýsleginn túskildingur.“
Jia Chang kom hingað til lands
árið 1986 til að þjálfa kvenna-
landsliðið í blaki sem og karlalið
Víkings. Fljótlega fóru fjölmargir
íþróttamenn að leita til hans þegar
meiðsl og verkir komu upp enda
spurðist fljótt út að hann hefði
komið köppum í lag með undra-
verðum hætti. „Mér var því eigin-
lega ýtt út í þetta,“ segir nuddar-
inn.
Hann beitir ekki aðeins höndum
og fótum því einn-
ig notar hann
nálarstungu-
aðferð og
fljótlega
kom blaða-
maður auga
á stóra
flösku sem
ekki sést á
hverjum
bæ. „Þetta
er snákur,
ginseng-rót
og fleiri
jurtir í hvít-
víni,“ segir
hann og
tekur flösk-
una af hill-
unni. „Þetta er gott til að setja á
bólgur því þetta slær á spennuna í
vöðvum.“ Jia Chang hefur numið
þessi fræði frá unga aldri enda
störfuðu foreldrar hans við nátt-
úrulækningar svo blaðamaður
ákveður að malda ekki í móinn þó
að læknirinn í hans sveit væri ekki
vanur að bregðast við bólgum með
snáki eða hvítvíni. jse@frettabladid.is
Troðið á og stungið í kvillana
TROÐIÐ Á GUÐMUNDI Guðmundur leitaði í nuddið vegna verkja í mjóhrygg sem
voru nuddaðir í burtu.
JIA CHANG WEN Kom hingað til lands til að þjálfa kvennalandsliðið í blaki og karlalið Víkings. FRÉTTABLAÐIÐ / AUÐUNN
SNÁKUR OG GINSENG-
RÓT Gott við bólgum
segir Jia Chang.
Engin sannfæring
„Í Samfylkingunni er sann-
færing ekki til, bara sjónar-
spil, hvort sem það fer fram
í Egyptalandi eða annars
staðar.“
STYRMIR GUNNARSSON, RITSTJÓRI
MORGUNBLAÐSINS, ÚTSKÝRIR
RITSTJÓRNARSTEFNU BLAÐSINS Í
LEIÐARA.
Morgunblaðið, 8. janúar
Það er spurning
„Þetta er allt meira og minna
rangt. Ég veit ekki af hverju
fólk hefur svona mikinn
áhuga á mér og mínum stað.“
ÁSGEIR ÞÓR DAVÍÐSSON, EIGANDI
NEKTARDANSSTAÐARINS GOLD-
FINGER, UM UMMÆLI FYRRVERANDI
NEKTARDANSARA Í VIKUNNI.
Fréttablaðið, 8. janúar