Fréttablaðið - 09.01.2008, Side 20
[ ]Skutbílar hafa löngum þótt góðir fjölskyldubílar og henta barnafólki vel þar sem mikið pláss er í skottinu.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda, kann ýmis ráð
til að spara eldsneyti.
Bensínverð hækkaði um tuttugu
prósent á síðasta ári og er bensín-
lítrinn nú kominn í um 134 krónur
í sjálfsafgreiðslu og 140 krónur
með þjónustu. Það getur því kost-
að sitt að fylla tankinn og eflaust
velta margir því fyrir sér hvernig
megi spara dropana.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, kann nokkur
góð ráð til að draga úr eldsneytis-
notkun.
„Aðalatriðið er að skipuleggja
aksturinn. Þannig má koma í veg
fyrir að verið sé að fara margar
ferðir þegar ein nægir. Þá er
mikilvægt að fylgja flæði umferð-
arinnar og halda sig á eins jöfnum
hraða og kostur er. Það fer mikið
eldsneyti til spillis ef verið er að
taka hratt af stað og snögghemla,“
segir Runólfur.
Á höfuðborgarsvæðinu segir
hann gott að miða við að fylgja
grænu ljósunum. „Ef keyrt er á
löglegum hraða ætti maður sem
oftast að lenda á grænu ljósi,“
útskýrir Runólfur. Þá segir hann
gott að fylgjast með vinnslu bíls-
ins en í flestum bílum er snúnings-
hraðamælir sem gefur til kynna
hver snúningurinn á vélinni er.
Gott er að miða við um 2.000 snún-
inga. „Ef bíllinn er beinskiptur er
mælt með því að fara fljótt upp í
háa gíra því þá er vélin ekki að
erfiða eins mikið,“ segir Runólfur.
Hann segir mikilvægt að fylgjast
reglulega með þrýstingi í hjól-
börðum og hafa hann í samræmi
við ábendingar framleiðanda. Þá
bendir hann fólki á að vera ekki
með toppgrind að óþörfu því hún
eykur loftmótstöðu.
Runólfur segir nýrri bíla oft
eyðslugrennri en eldri enda þurfi
bílaframleiðendur í dag að fylgja
ákveðnum reglum Evrópusam-
bandsins um útblástur gróður-
húsalofttegunda. „Ef fólk hefur
tök á því að kaupa slíka bíla er það
auðvitað af hinu góða,“ segir Run-
ólfur.
Þá hvetur hann fólk til að nýta
sér sjálfsafgreiðslu og önnur
afsláttarkjör olíufélaganna. „Ég
mæli þó kannski ekki með því að
fólk sé að fara í önnur byggðarlög
til að ná sér í ódýrari dropa. Í
gegnum tíðina höfum við svo hvatt
fólk til að hjóla og ganga styttri
vegalengdir.“
vera@frettabladid.is
Ódýrara að skipuleggja sig
RUNÓLFUR ÓLAFSSON Framkvæmdastjóri FÍB ráðleggur fólki að keyra á löglegum
hraða til þess að spara bensín. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
KERRUÖXLAR
Í ÚRVALI
og hlutir
til kerru-
smíða
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
UPPLÝSINGAR O
is
ing Mjódd
Staðsetning í Mjódd
www.ovs.is
upplýsingar og innritun í síma 588-1414
Vinnuvélanámskeið
Næsta námskeið hefst
11. janúar n.k.
A u k i n ö k u r é t t i n d i - M e i r a p r ó f
Upplýsingar og innri tun í s íma 567 0300
N æ s t a n á m s k e i ð
h e f s t 9 . j a n ú a r
...ég sá það á visir.is
„Ég sá það fyrst á visir.is“
Hellisheiði ófær vegna illviðris og hálku.*
*1. des. 2007
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki