Fréttablaðið - 09.01.2008, Side 26
9. JANÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● nýir bílar
REYNSLUAKSTUR
Hyundai i30 er smábíll með
góða nærveru, fallegar evr-
ópskar línur en aðeins of lítinn
kraft.
Hyundai i30 er fyrsti bíllinn frá
kóreska bílaframleiðandanum sem
er sérstaklega stílaður inn á Evr-
ópumarkað. Þetta má vel merkja á
útliti hans og eiginleikum. Að aftan
minnir hann marga á BMW, hliðar-
svipurinn er dæmigerður evrópsk-
ur með hallandi skálínum, fram-
ljósin eru sportleg og heildarsvip-
urinn hinn prýðilegasti.
Bíllinn markar einnig upphaf
annars konar nafnakerfis hjá fram-
leiðandanum sem fór áður hefð-
bundnar leiðir með nöfn á borð
við Getz, Sonata og Santa Fe. Nú
er ætlunin að styðjast við tegund-
arheiti, þar sem bókstafur vísar
til framleiðslulínu viðkomandi bíls
og tölustafir til ólíkra útgáfa innan
hverrar línu, ekki ósvipað því og
sjá má hjá framleiðendum á borð
við BMW og Mercedes-Benz. Hy-
undai hefur enda verið í töluverðri
sókn undanfarið; hefur vaxið að
gæðum og aukið hróður sinn frá
því sem áður var.
Reynsluekinn var Hyundai
i30 Comfort með 1600 bensínvél
og sjálfskiptingu. Á blaði hljóm-
ar þetta nokkuð vel, 122 hestöfl
og 154 Nm tog. Þrátt fyrir þetta
urðu nokkkur vonbrigði með kraft-
inn. Bíllinn tók frekar illa við sér
og virtist kraftlaus í brekkum. Þó
má búast við að díselvélin sé eitt-
hvað sprækari enda togið þar um
255 Nm.
Innra rými i30 minnir við fyrstu
sýn á VW Polo og Golf. Mælaborðið
er settlegt og stílhreint með LED-
lýsingu og öllu nokkuð haganlega
fyrir komið. Comfort-útgáfa i30
er ágætlega búin aukahlutum. Til
viðbótar við það sem er í Class-
ic-útgáfunni fylgir Comfort ESP-
stöðugleikastýring, loftkæling,
aðgerðastýri, kæliblástur í hanska-
hólfi, aksturstölva, regnskynjari í
framrúðu og hiti í framrúðu undir
þurrkublöðum sem reynist afar vel
í rysjóttu veðurfari. Hér er margt
óupptalið en þó má ekki gleyma
iPod-tenginu í boxinu milli fram-
sætanna. Margir bílar eru farnir að
hafa slíkt tengi en ekki beintengja
allir spilarann í útvarpið þannig
að stjórna megi tónlistarvalinu úr
mælaborðinu. Plús fyrir það.
Einnig er hægt að fara einu
skrefi lengra og festa kaup á Style-
útgáfunni þar sem lúxus á borð
við sóllúgu, leðuráklæði og margt
fleira fylgir með í kaupunum.
Í heildina má líta á Hyundai i30
sem samkeppnishæfan bíl sem
hefur þó fátt fram yfir aðra bíla í
sama flokki. solveig@frettabladid.is
Hyundai fyrir Evrópumarkað
Innréttingin er settleg með LED-lýsingu.
Þá fær bíllinn plús fyrir iPod-tengi í boxinu
milli framsætanna.
Hyundai i30 er bíll með góða nærveru.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HYUNDAI I30 COMFORT
Vél: 1,6 CVVT bensín, 122 hestö-
fl 154 Nm.
Sjálfskipting.
Eyðsla, bl. akstur: 6,9
Þyngd: 1.264 kg
Farangursrými: 340 til 1.250 lítrar.
PLÚS: Sniðugt iPod-tengi sem
beintengist við útvarpið í bílnum,
fallegt útlit.
MÍNUS: Krafturinn mætti vera
meiri.
Verð: 2.180.000 kr.
Umboð: B&L.
Sportleg ljós og evrópskt útlit
einkenna Hyundai i30.