Fréttablaðið - 09.01.2008, Side 30
9. JANÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR8 ● fréttablaðið ● nýir bílar
REYNSLUAKSTUR
Skoda Fabia Combi er smábíll með skott á
við fjölskyldubíl. Bíllinn verður kynntur á
Íslandi í mars.
Bílaframleiðandinn Skoda hefur það sem marga
aðra vantar: hækkandi sölutölur. Skoda Oktavía
selst langmest en þar á eftir kemur hinn snaggara-
legi Skoda Fabia sem fyrst var framleiddur árið
1999. Combi útgáfa Fabia var fyrst kynnt á Íslandi
árið 2001 og tók við af gömlu Felicia útgáfunni og
hefur bæði stutta og langa útgáfa bílsins átt mikl-
um vinsældum að fagna hérlendis.
Í mars verður frumsýnd hér á landi ný útgáfa
Skoda Fabia Combi. Má segja að það hafi löngu
verið tímabært enda hefur bíllinn lítið sem ekk-
ert breyst frá upphafi. Þó nokkrar breytingar hafa
verið gerðar á bílnum. Til dæmis var hann lengd-
ur um 7 cm og hækkaður um 4 cm. Þá hefur skottið
verið lækkað til að auðvelda hleðslu auk þess sem
smærri breytingar hafa verið gerðar í útliti og eig-
inleikum.
Fabia Combi er nú 4,24 metrar að lengd. Þó það
sé ekki langt miðað við marga bíla er nýting rým-
isins hreint ótrúleg. Mottó bílaframleiðandans
virðist vera að „hin sanna stærð komi að innan.“
Rúmar skottið 480 lítra og ef aftursætin eru lögð
niður myndast pláss sem rúmar 1.460 lítra. Þetta er
aukning um 54 eða 235 lítra frá fyrri útgáfu og þess
má geta að rýmið er meira en í mörgum combi út-
gáfum bifreiða í millistærðarflokki en Fabia Combi
fellur í flokk með smábílum. Það er því ekki skrítið
að í markaðssetningu bílsins sé miðað við að hann
muni keppa bæði við bíla í smábílaflokki og milli-
stærðarflokki.
Þrátt fyrir mikið farangursrými er bíllinn þó
annað og meira en flutningsbíll. Farþegar og bíl-
stjóri eru einnig í fyrirrúmi. Innviði bílsins er allt
hið prúðasta. Ekkert óþarfa prjál þó aukahlutir
sem staðalbúnaður séu eins og áður nokkuð áber-
andi í Fabia. Þá hafa nokkrar nýjar og sniðugar
lausnir bæst við, eins og ný og handhæg farangurs-
yfirbreiðsla, hankar fyrir innkaupapoka í skotti og
sérstök hólf í hurðum fyrir landakort.
Vinsældir Skoda Fabia hafa að stórum hluta
byggst á góðum gæðum og fjölda aukahluta en verð-
ið er einnig sanngjarnt miðað við aðra bíla af svipuð-
um gæðastaðli. Þó er Fabia Combi ekki að öllu leyti
sambærilegur öðrum bílum. Combi-útgáfan verð-
ur yfirleitt um 100 þúsund krónum dýrari en minni
gerðin og því hægt að áætla að verðið sé frá um 1,8
milljón króna. Í flestum gerðum annarra combi-bíla
er hægt að fella niður aftursætin með einum takka.
Í Fabia þarf fyrst að setja upp sætin og leggja síðan
bakið niður til að fá nokkuð sléttan flöt. Slík handa-
vinna er lítil borgun miðað við það sem fæst á móti,
smábíll með fjölskyldubílseiginleika sem rúmar
börn, farangur og hunda. solveig@frettabladid.is
Hin sanna stærð kemur að innan
Skottið er aðalmálið í markaðssetningu smábílsins enda
tekur skottið 1.460 lítra þegar aftursætin eru sett niður.
Þá hefur bíllinn einnig verið hannaður þannig að auðvelt
er að hlaða hann.
Skoda Fabia Combi
er 4,24 metrar að
lengd og flokkast
sem smábíll. Hann
er hins vegar í
hörku samkeppni
við fjölskyldubíla í
stærðarflokknum
fyrir ofan.
„Ég sá það fyrst á visir.is“
Hellisheiði ófær vegna illviðris og hálku.
Visir.is er öflug frétta- og upplýsingaveita í stöðugri sókn,
sem leggur metnað sinn í að flytja fréttir líðandi stundar
fljótt og örugglega til notenda. Fréttir, dægurmál, umræða,
blogg og VefTV – allt er þetta aðgengilegt á einum stað í
einfaldri umgjörð og með skýrri framsetningu. Notendur vita
að hverju þeir ganga þegar þeir heimsækja vísi.
...ég sá það á visir.is