Fréttablaðið - 09.01.2008, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 09.01.2008, Blaðsíða 32
 9. JANÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR10 ● fréttablaðið ● nýir bílar Ford Motor Company hóf í sumar samstarf við bandaríska orkufyr- irtækið Southern California Edison um þróun tengiltvinnbíla, til að skoða möguleika á að gera þá raunhæfari kost fyrir almenning en nú þekkist. Forsvarsmenn Ford telja markað fyrir þess konar bíla, með hlið- sjón af hækkandi orkuverði. Með tengiltvinnbílum telja þeir jafn- framt að auka megi nýtingu á bandaríska raforkukerfinu til muna. Ford hefur þegar afhent Southern California Edison slíkan bíl til notkunar en hann verður í prófunum næstu mánuði. Bílnum er stungið í samband við hefðbundna heimilisinnstungu til að hlaða rafhlöðu hans, sem tekur rétt um sex klukkustundir. Að sögn Sue Cischke, aðstoðarframkvæmdastjóra Sustain ability, Environment and Safety Engineering hjá Ford, er þróun tengil- tvinnbíla þáttur í ráðagerð fyrirtækisins um sjálfbærni, sem felur í sér aðgerðir til að þróa vetni sem orkugjafa við hlið hefðbundins eldsneytis. Cischke sagði jafnframt við það að tækifæri að áhugi á tengil- tvinnbílum hefði aukist mikið í Bandaríkjunum undanfarna mán- uði. Afhending Ford á þessum fyrsta Ford Escape tengiltvinnbíl bæri vitni um nýtt skref í þróun Ford Motor Company á þessari tækni. Tækni sem væri enn fremur viðbót við núverandi orkumöguleika í samgöngukerfinu í Bandaríkjunum. Hinn nýi tengiltvinnbíll frá Ford Motor Company verður fyrst eingöngu fáanlegur í Bandaríkjunum. Nánari upplýsingar um bifreiðina má fá hjá Brimborg sem er með umboð fyrir Ford á Íslandi. Sjá heimasíðuna www.brimborg.is - rve Tengiltvinnbíll frá Ford Ford sendir frá sér tengiltvinnbíl, sem verður fyrst um sinn eingöngu fáanleg- ur í Bandaríkjunum. Brimborg er með umboð fyrir Ford á Íslandi. Nýr Subaru Forester verður kynntur á árinu, en með tilkomu nýja bílsins hefur Subaru Forester fyrir alvöru blandað sér í sam- keppni við jepplinga. Subaru Forester hefur notið nokkurra vinsælda um árin, meðal annars fyrir aksturseiginleika, gott aðgengi fyrir ökumann og far- þega og góða veghæð, sem mörgum þykir taka öðru fram í sínum flokki. Með tilteknum breytingum á bílnum er verið að höfða til þeirra sem rennt hafa hýru auga til jeppl inga, en hingað til þykir Subaru Forester ekki hafa blandað sér að ráði í samkeppni við þess konar bíla. Nú hefur orðið breyting þar á og verður nýja bifreiðin til að mynda stærri og rúmbetri en eldri gerðir. Nýjum Subaru Forester er að sögn talsmanna fyrirtækisins ætlað að standa öðrum fremur í gæðum og frágangi og því hefur mikil áhersla verði lögð á það við hönnun hans að allir þættir bíls- ins endurspegli þessar kröfur. Er þá ekki einungis átt við lága bil- anatíðni og góða endingu heldur einnig að öll umgengni við bílinn, stjórntæki og takka sé með besta móti. Nánari upplýsingar um Subaru Forester hjá Ingvari Helgasyni, sjá www.ih.is. -rve Blandar sér í slaginn Nýr Subaru Forester er stærri og rúmbetri en eldri gerðir. REYNSLUAKSTUR Þeim sem standa frammi fyrir vali á nýjum smábíl er vandi á höndum. Framboðið er mikið og þróunin hröð. Smábílar eru í sókn af ýmsum ástæðum. Þróun þeirra hefur verið hröð og aksturseiginleikar þessara bíla hafa aukist mikið og einnig öryggi þeirra sem er ekki síður mikilvægt. Fólk vill stöðugt neyslugrennri bíla af umhverfis- ástæðum og vegna hækkandi bensínverðs. Smábíll er því ljóm- andi valkostur fyrir þá sem hyggj- ast nota bílinn að mestu innanbæj- ar og leggja upp úr lipru og með- færilegu ökutæki. Nýr Mazda2 er endurhann- aður frá grunni. Útlitið ger- breytt og bíllinn er bæði léttari og örlítið styttri en fyrirrennar- inn sem er skemmtilega á skjön við þá tilhneigingu bílaframleið- enda að stækka alltaf bílana. Allt yfirbragð Mazda2 er líka léttleik- andi og sportlegt, bæði að utan og innan. Þau tæplega hundrað kíló sem bíllinn missti milli kynslóða skila sér vel í aksturseiginleikum. Óhætt er að segja að 1,3 lítra vélin í bílnum sem reynsluekið var hafi nýst vel. Hún reyndist snörp og svara ökumanni vel. Bíllinn er líka vel þéttur þannig að veghljóð og gnauð er í lágmarki. Útblástur þessa bíls er 22 pró- sentum minni en hjá fyrirrennar- anum sem er í takti við vaxandi kröfur neytenda um lágmarks- mengun af völdum bíla. Mazda2 er snaggaralegur og um leið lipur bíll. Hann hefur alla þá kosti sem smábíl má prýða; með- færilegur með afbrigðum í borg- arumferð, rúmbetri að innan en ytra útlit gefur vísbendingu um og tengi fyrir iPod er dæmi um þann þægindabúnað sem er að finna í bílnum. Bíllinn fær góða einkunn hjá Euro NCAP. Hann er með DSC- stöðugleikakerfi og sex loftpúða, svo dæmi séu tekin af öryggisbún- aði. Bílstjórasætið er vel stillanlegt og hiti er í báðum framsætum. Í þessum bíll er hitahnappurinn staðsettur á hlið sætisins sjálfs, hurðarmegin, sem kemur vel út og dregur úr hnappafári í miðju bílsins. Innréttingin er að öðru leyti skemmtileg. Útlitið hefur karakt- er og allt yfirbragð bílsins vandað. Mazda2 hefur enda hlotið heilmik- ið lof erlendra bílablaðamanna og var til dæmis valinn bíll ársins 2008 í Danmörku. Miðað við allt hlýtur verðið á Mazda2 að teljast nokkuð gott. Þessi bíll ætti því að koma vel til álita hjá þeim sem standa frammi fyrir vali á smábíl. Litavalið er ágætt og nú er kom- inn tími til að gefa silfurgráu bíl- unum smá frí og hressa upp á götumyndina með litskúðugum og fallegum bílum. Mazda2 verður formlega frum- sýndur hjá Brimborg um aðra helgi. Bílinn má þó þegar sjá í sal umboðsins. steinunn@frettabladid.is Snaggaralegur smábíll Mazda2 er sportlegur útlits. Framrúðan er stór og mikið hallandi og hliðarlínan upp á við gefur bílnum sterkt svipmót og renni- legt yfirbragð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hönnun bílsins að innan er skemmtileg. Staðsetning gírstangarinnar er bæði þægileg og kemur vel út útlitslega. MAZDA2 Vél: 1,3 l, 86 hestöfl . Skipting: Beinskiptur, 5 gíra. Eyðsla bl. akstur: 5,4 l. Útblástur: 129 g/km. 0-100 km/klst.: 12,9 sek. (?). Þyngd: 1030. Farangursrými: 250 l (787 séu aftursæti felld). PLÚS Lipur og snarpur Góð fj öðrun Rúmgott farangursrými MÍNUS Útsýni um hliðarrúður að aftan Skortur á geymsluhólfum Verð: 1.690.000. Umboð: Brimborg. Farangursrýmið er býsna rúmgott og opnast vel.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.