Fréttablaðið - 09.01.2008, Side 39
MIÐVIKUDAGUR 9. janúar 2008 19
UMRÆÐAN
Dómsmál
Tuttugasta desem-ber 2007 féll furðu-
dómur í Héraðsdómi
Reykjavíkur í máli
sem laut að ærumeið-
ingum. Ingveldur Ein-
arsdóttir héraðsdóm-
ari komst að þeirri
merkilegu niðurstöðu
að dæma orð sem
aldrei féllu dauð og
ómerk. Blaðamenn
hafa fengið marga
sérkennilega kveðj-
una frá dómsölum á undanförnum
mánuðum og árum, einkum á þeim
forsendum að dómstólar hafa það
alveg á hreinu hvað á erindi við
almenning og hvað ekki, en líklega
er hámarki vitleysunnar nú náð.
Magnús Ragnarsson fyrrver-
andi sjónvarpsstjóri Skjás eins
höfðaði mál á hendur 365 en mála-
tilbúnaður lögmanna hans, fyrst
Sigríðar Rutar Júlíusdóttur og þá
Finns Þórs Vilhjálmssonar, gekk
út á að sýna fram á að til þess að
gera ótengd fyrirbæri á borð við
markaðssvið 365, DV og Frétta-
blaðið hefðu með sér samantekin
ráð til að rægja Magnús með öllum
tiltækum ráðum. Viðamikið sams-
æri. Því var fjórum ótengdum
fréttum og pistlum dengt saman í
eina körfu. Tvennt sem um Magn-
ús hafði verið skrifað í DV og
tvennt sem að honum sneri í
Fréttablaðinu. Nú er rétt að nefna
að tengsl milli Fréttablaðsins og
DV hafa aldrei verið nein þó eign-
arhald hafi að einhverju leyti
verið á sömu hendi. Liður númer 3
og 4 eru raktir til skrifa minna í
Fréttablaðið. Og þó það þyki ekki
góð latína að málsaðili sem farið
hefur halloka í dómsal tjái sig
frekar – hann hljóti eðli málsins
samkvæmt að vera sorrý, svekkt-
ur og sár – þá fæ ég ekki orða
bundist og hlýt að leitast við að
koma ákveðnum sjónarmiðum á
framfæri. Því þó þetta sé kannski
umfram allt hlálegt þá er niður-
staðan grafalvarleg. Og hreinlega
hrollvekjandi á hvaða leið dóm-
stólar eru þegar blaðamennska er
annars vegar.
Stór munur
Þriðji liður ákæru Magnúsar snýst
um smáfrétt þar sem greint er frá
því að tiltekinn hópur manna á
markaðsdeild 365 nefni Magnús
sín á milli, í stráksskap, „Magga
glæp“. Frá þessu var sagt til að
varpa ljósi á mál sem þá hafði
verið í deiglunni, kenningar sem
uppi voru þess efnis að Stöð 2 og
Skjár einn væru hugsanlega að
sameinast. Og fylgdi með í kaup-
unum að Magnús yrði sjónvarps-
stjóri Stöðvar 2. Með því að greina
frá þessu, í ef til vill full grallara-
legri örfrétt, mátti leiða að líkum
að ólíklegt væri að af því yrði. Nú
getur verið fréttnæmt að tilteknar
sögur eða ummæli séu uppi. Með
því er þó á engan hátt verið að
staðfesta slíkt. Það að segja að ein-
hver hafi sagt eitthvað um ein-
hvern er ekki það sama og að segja
það eða staðfesta. Á því er stór
munur. Svo dæmi sé nefnt: Engum
hefði dottið í hug að telja frétta-
manninn, sem sagði fyrstur frá
því þegar Ólafur Ragnar Gríms-
son þá þingmaður sagði Davíð
Oddsson þá forsætisráðherra
þjakaðan af skítlegu eðli, vera að
halda því fram sjálfur. Né miðil-
inn sem þetta kom fram í. Með
öðrum orðum, hvorki blaðamaður
Fréttablaðsins, né blaðið ef því er
að skipta, hafa nokkru sinni kallað
Magnús Ragnarsson „Magga
glæp“. Meira að segja lá fyrir í
dómsal Ingveldar að heimildir
fyrir örfréttinni sem greindi frá
umtalinu voru sannarlega til stað-
ar. Auðvitað. En ummælin voru
engu að síður eignuð Fréttablað-
inu og það dæmt til að sitja uppi
með dauð og ómerk ummæli blað-
inu óviðkomandi.
Ummæli sem aldrei féllu
Fjórði liður ákærunnar er jafnvel
enn fráleitari en sá fyrri. Snýst
um fjölmiðlapistil sem ég skrifaði
undir fyrirsögninni „Geðþekkur
geðsjúklingur“ sem
Magnús kaus að taka
til sín. Pistillinn var
fremur jákvæður og
fjallaði um dagskrá
Skjás eins. Ég greip til
persónugervingar
sem er elsta stílbragð
í bókinni og má rekja
allt til þess að Hómer
fann upp epíkina í Ilí-
onskviðu þegar hann
skrifaði um hina rós-
fingruðu morgung-
yðju. Að mínu viti var
þá að finna allt hið
besta og jafnframt
það versta sem finna
má í sjónvarpi á dagskrá Skjás
eins. Nefndi, að mig minnir, House
og The Batchelor í því sambandi.
Sagði þá eitthvað á þá leið að ef
dagskráin væri einstaklingur væri
sá, með fullri virðingu, líklega
sjúkdómsgreindur geðklofa. En
þetta væri geðþekkur geðsjúk-
lingur því enginn er neyddur til að
kaupa áskrift. Umbrotið gerir ráð
fyrir myndskreytingu við hvern
slíkan pistil og þarna var gripið til
þess að hafa mynd af andliti Skjás
eins – téðum Magnúsi sjónvarps-
stjóra í staðinn fyrir lógó stöðvar-
innar eða húsi. Rétt eins og ef
blaðamaður skrifar um hugbúnað
frá Microsoft mun hann líklega
kjósa að birta með mynd af Bill
Gates. Án þess að það hvarfli að
nokkrum manni að greinin fjalli
um persónuleika Gates. Í dómi
sínum tekur Ingveldur sérstak-
lega til þess hve myndin er stór.
Nú er það einfaldlega þannig að
eftir því sem pistillinn er knapp-
ari í fyrirframgefið rýmið þeim
mun stækkar myndin. Pistillinn
kom persónu Magnúsar ekki hið
minnsta við enda hann hvergi
nefndur til sögunnar. Með öðrum
orðum, hvorki ég, né blaðið ef því
er að skipta, höfum nokkru sinni
kallað Magnús „geðþekkan geð-
sjúkling“. Það myndi einfaldlega
aldrei hvarfla að mér. En ...
ummæli sem aldrei féllu þóttu í
dómsal Ingveldar móðgandi og
meiðandi fyrir Magnús og dæmd
dauð og ómerk.
Mál þetta sýnir í raun að nú
dugir hreinlega að menn sem til
umfjöllunar eru móðgist svo dóm-
arar dæmi fjölmiðla seka. Skiptir
engu máli hvort rétt er með farið,
það skiptir ekki máli þó merking
sé slitin úr samhengi, menn eru
dæmdir ekki samkvæmt merk-
ingu orða heldur hvernig má hugs-
anlega túlka þau, það skiptir ekki
einu sinni máli þó móðgunin byggi
á misskilningi – þeir hinir móðg uðu
sem leggja mál sín í dóm munu
njóta ítrasta skilnings dómara.
Óútfylltur tékki. Þetta mál er ekki
til að auka á virðingu fyrir dóm-
stólum og ég bara trúi því ekki að
almenningur vilji sjá fjölmiðla
sem lúta forskrift frá dómstólum
sem þessum.
Höfundur er blaðamaður.
JAKOB BJARNAR
GRÉTARSSON
Ég áfrýja
Söng- leik- og
dansnámskeið fyrir börn
og unglinga!
VORNÁMSKEIÐIN HEFJAST Í FEBRÚAR
Námskeiðin hefjast í febrúar.
Kennt verður í Kópavogi og Grafarvogi í
Snælands- og Foldaskóla eftir að venjulegum
skólatíma líkur.
Nú verður einnig kennt í Lækjarskóla í Hafnarfirði.
Skráningar á heimasíðunni www.tonvinnsluskoli.is
eða í síma 534 9090 Sponsored Digidesign School
Barna- og
unglinganámskeið
sem er undirbúningur
að skemmtiþætti
fyrir sjónvarp
Þetta námskeið vakti mikla lukku
hjá okkur á síðustu önn og
verður afraksturinn í sjónvarpinu
fljótlega á þessu ári.
Nú hafa Tónvinnsluskóli
Þorvaldar Bjarna og Dansskóli
Birnu Björnsdóttur tekið
höndum saman um framhald á
þessu stórskemmtilega
námskeiði.
Nemendur fá að syngja, dansa
og leika í mörgum mismunandi
atriðum undir handleiðslu
krafmikilla leiðbeinanda í
10 vikur.
Þegar atriðin eru fullæfð er farið
í myndver og gerður sjónvarps-
þáttur upp úr afrakstrinum og
allir fá að vera með.
Birgitta Haukdal verður
umsjónarmaður þáttarins.
Birgitta Haukdal
ATH: Nú er hægt að nota Frístundakortin til að greiða
niður námskeið hjá Tónvinnsluskólanum*
*Nánari upplýsingar á
www.itr.is um möguleika
Frístundakortsins
25.000 kr.
niðurgreiðsla
fyrir þá sem
geta notað
Frístundakort ÍTR*