Fréttablaðið - 09.01.2008, Blaðsíða 40
20 9. janúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
UMRÆÐAN
Umferðarmál
Þær gleðilegu fréttir hafa verið sagðar í
fjölmiðlum að dregið
hafi úr slysum á þjóð-
vegunum og á árinu 2007
hafi banaslysum fækkað
verulega. Þessar fregnir
eru vissulega jákvæðar
því ökutækjum hefur
fjölgað mikið, umferðin
hefur aukist hröðum skrefum og
flutningar á vegum einnig.
Það var mat ríkisstjórnarinn-
ar á síðasta kjörtímabili að eðli-
legt væri að tengja saman stjórn-
sýslu umferðaröryggismála og
vegamálin innan samgönguráðu-
neytisins.
Þegar samgönguráðuneytið
tók við umferðaröryggismálum
1. janúar 2004 af ráðuneyti dóms-
mála var ákveðið að breyta um
taktinn í vinnu við umferðar-
öryggisáætlun og tengja hana
samgönguáætlun. Á vettvangi
dómsmálaráðuneytis, Umferð-
arráðs og Umferðarstofu hafði
verið unnið mikið starf árum
saman sem auðveldaði þá breyt-
ingu sem gerð var og skapaði
skilyrði til þess að taka umferð-
armálin nýjum tökum á vett-
vangi samgönguráðuneytisins.
Var þessi breyting gerð í góðu
samstarfi ráðuneytanna og við
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra vorum sammála um þessa
breyttu skipan.
Breytingar mótaðar á nýjum for-
sendum
Ég tók þá ákvörðun að láta móta
breytingarnar á öllum sviðum
sem tengdust umferðaröryggis-
málum. Þar var um að ræða
vinnu Umferðarstofu, Umferð-
arráðs, Vegagerðar, Rannsókn-
arnefndar umferðarslysa og
ráðuneytisins sjálfs. Til þess að
ná þeim markmiðum sem sett
voru var ráðinn verkfræðingur
til starfa í samgönguráðuneyt-
inu sem hafði það verkefni að
móta nýja umferðaröryggis-
áætlun sem væri tengd sam-
gönguáætlun eins og fyrr segir
og hefði tekjur frá henni. Jafn-
framt var lögfræðingum ráðu-
neytisins falið að vinna að breyt-
ingum á reglugerðum og
undirbúa breytingar á löggjöf er
snerti þennan mikilvæga mála-
flokk í samstarfi við Umferðar-
stofu, Vegagerð og lögregluna.
Fræðilegar forsendur vinnu við
nýja umferðaröryggisáætlun
tengdust mati á kostnaði við
slysin og kostnaði við þær
aðgerðir sem nauðsynlegt var að
grípa til svo komið væri í veg
fyrir slys í umferðinni.
Til þess að ná tilgreindum
markmiðum var m.a. unnið að
eftirfarandi aðgerðum er allar
höfðu það markmið að draga úr
slysum í umferðinni:
1. Rannsóknir umferðarslysa
endurskipulagðar og efldar
með nýrri löggjöf um
Rannsóknarnefndina. Voru
hafðar til hliðsjónar þær
miklu breytingar sem
gerðar voru á vettvangi
flugöryggismála og rann-
sóknum flugslysa og höfðu
gefist vel.
2. Umferðarlögum og reglu-
gerðum var breytt til að
auka ábyrgð ökumanna.
3. Umferðaröryggisáætlun
unnin og forgangsröðun
gerð miðað við áætlaðan
ábata hverrar aðgerðar.
4. Umferðaröryggisáætlun
felld inn í samgönguáætlun
og tekjur af umferðinni
nýttar til framkvæmda og
kostnaðar við aukið umferð-
areftirlit.
5. Samningar um stóraukið
umferðareftirlit gerðir milli
Vegagerðar, Umferð-
arstofu og Ríkislög-
reglustjóra. Má segja
að þeir samningar
hafi markað tímamót
og skapað lögreglu og
Vegagerð nýja
viðspyrnu til árang-
ursríkra aðgerða.
6. Settar upp myndavél-
ar við þjóðvegina til
þess að auka eftirlit
með hraðakstri og
margvíslegur
búnaður
lögreglu kostaður af
útgjaldaramma samgöngu-
ráðuneytis.
7. Eftirlit Vegagerðar og
lögreglu aukið með fólks- og
vöruflutningum á þjóðveg-
unum og settar strangar
reglur um meðferð farms
flutningavagna.
8. Lagarammi um eftirlit með
hvíldartíma ökumanna
tryggður í samræmi við
evrópskar reglur sem höfðu
ekki verið að virka vegna
skorts á lagaheimildum.
9. Heimildir settar í lög til þess
að auðvelda lögreglu eftirlit
með ólöglegri fíkniefnanotk-
un ökumanna.
10. Hertar reglur um gerð og
búnað ökutækja.
11. Lögum og reglugerðum
breytt og viðurlög aukin
vegna ofsaaksturs á þjóð-
vegum og vegna endurtek-
inna brota á umferðarlögum.
12. Tekið upp samstarf við FÍB
um skoðun á gerð og ástandi
vega frá sjónarhorni
öryggisþátta svo sem
frágangi vegriða og
umhverfi vega.
13. Auknir fjármunir veittir til
vegagerðar, jarðgangagerð-
ar, vetrarþjónustu, upplýs-
inga um færð og ástand vega
og almennrar þjónustu á
vegakerfinu í þágu umferð-
aröryggis.
Aðgerðir skila árangri
Allar þessar aðgerðir á vett-
vangi lögreglu, Umferðarstofu,
Vegagerðar og samgönguráðu-
neytis eru að skila árangri. Það
bendir allt til þess að breytt
skipulag umferðaröryggismála
og skipuleg vinnubrögð við eft-
irlit sé að skila sér. Ástæða þess
að ég skrifa þessa grein er að ég
taldi nauðsynlegt að minna á það
hversu umferðaröryggismálin
eru mikilvæg og einnig vil ég
minna á að ekki voru þessar
aðgerðir allar sem nú eru að
skila árangri taldar nauðsynleg-
ar eða skynsamlegar þegar til
þeirra var stofnað. Varð undir-
ritaður að verjast harkalega
bæði á Alþingi og í fjölmiðlum
til þess að ná fram þessum nauð-
synlegu breytingum. Það er
ástæða til þess að þakka öllum
sem koma að umferðaröryggis-
málum fyrir árangurinn. Það
hefur tekist að hægja á umferð-
inni og ökumenn sýna aukna
ábyrgð í umferðinni. Með skipu-
legu starfi og samstilltum
aðgerðum hefur tekist að fækka
slysum sem engu að síður eru of
mörg. Auknu öryggi í umferð-
inni ber að fagna og við eigum
að sameinast um allar þær
aðgerðir sem geta leitt til færri
slysa. Til þess að frekari árang-
ur náist þarf þjóðarátak. Þess
er vert að geta að Suðurnesja-
menn með Steinþór Jónsson,
athafnamann og bæjarfulltrúa, í
broddi fylkingar hafa sýnt mikið
og þakkarvert frumkvæði í
umferðaröryggismálum. Ég
hvet áhugafólk um aukið
umferðaröryggi í öllum lands-
hlutum til að kynna sér starf
þeirra undir merkjum „Sam-
stöðu“.
Höfundur er forseti Alþingis.
STURLA
BÖÐVARSSON
Aukið öryggi í
umferðinni
þjóðarnauðsyn
Vegið að íslensku lýðræði
UMRÆÐAN
Forsetakosningar
Stöð2 segist hafa átt viðtal við mig um komandi forsetakosningar. Ég hef
ekki rætt um forsetakosningar við
fréttamenn undanfarið ár og vísa slíkum
uppspuna til föðurhúsanna!
Ég vil ítreka fyrri athugasemdir um
lágkúrulega aðför að íslensku lýðræði
sem aftur er hafin hjá stuðningsmönnum
Ólafs Ragnars Grímssonar með svipuð-
um hætti og 2004. Hræðsluáróður um
stórýktan kostnað við forsetakosningar er aftur í
fréttum. Reynt er að hræða gegn mótframboð-
um.
2004 skoruðu stuðningsmenn Ólafs á mig í fjöl-
miðlum að hætta við framboð, annars yrði,
vegna kostnaðar sveitarfélagsins, að hætta við
ferðalag grunnskólabarna á Ísafirði, fæðingar-
bæ Ólafs Ragnars. Nú er fyrrum oddviti
yfirkjörstjórnar Reykjavíkur Norður dreginn
fram á skjáinn til að hræða þjóðina með að slíkt
mótframboð væri misnotkun á lýðræðinu.
Áður en ég ræði komandi forsetakosningar
óska ég eftir svörum Þórunnar Guðmundsdóttur
oddvita yfirkjörstjórnar í Reykjavík við eftirfar-
andi spurningum:
1. Er það lýðræði að einstaklingur setjist í
forsetastól með stuðningi minnihluta þjóðar og
sitji þar í áskrift án kosninga til eilífðarnóns? Í
flestum lýðræðisríkjum er tekið fyrir svona
misnotkun á lýðræðinu.
2. Er yfirhöfuð þörf á forsetakosningum á
Íslandi? Mætti nota rafrænar kosningar til að
draga úr kostnaði eða eftirlátum við tækniþróun-
ina og lýðræðið háværum skellinöðrum bloggs
og ljósvakamiðla?
3. Er eðlilegt í lýðræðisríki að starfsmenn
yfirkjörstjórnar sem hafa með höndum opinbert
eftirlit og framkvæmd kosninga beri á torg
persónulegar skoðanir sínar á einstökum
framboðum? Samræmist slíkt lögum og reglum
um óhlutdrægar kosningar?
4. Var eðlilegt af dómsmálaráðuneytinu að
hafna beiðni Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu um að fylgjast með forseta-
kosningum á Íslandi eftir að fram
voru komnar alvarlegar kvartanir um
aðdraganda kosninganna árið 2004?
5. Var eðlilegt af dómsmálaráðu-
neytinu að halda framboði Ástþórs
Magnússonar í fjársvelti fleiri
mánuði með því að neita afgreiðslu
happdrættisleyfis fyrr en nokkrum
dögum fyrir kosningar, en slík synjun
eða tafir á afgreiðslu fjáröflunarleyf-
is til stjórnmálasamtaka eða forseta-
framboða var einsdæmi í sögu
ráðuneytisins og gerði fjáröflunar-
verkefnið að engu.
6. Var það eðlilegt 2004 að RÚV, fjölmiðill í
opinberri eigu, lokaði fyrir málefnalega umræðu
þar til kvöldið fyrir kjördag?
7. Var eðlilegt 2004 af yfirstjórn RÚV að
ritskoða viðtal við heimsfrægan fræðimann Dr.
Dietrich Fischer og klippa burt allar tilvitnanir
þessa merka fræðimanns um að Ástþór sem
forseti Íslands gæti valdið straumhvörfum í
friðarmálum heims. Prófessorinn var svo
hneykslaður er hann frétti þetta að hann skrifaði
RÚV og líkti við það sem gerðist í Júgóslavíu
undir einræðisherranum Slobodan Milosevic.
Eru slík vinnubrögð eðlileg í íslensku lýðræði?
8. Var það eðlilegt 2004 að Baugsmiðlarnir
Stöð2 og fleiri neituðu algerlega að ræða við
einn virtasta sérfræðing heims í friðarmálum,
Dr. Johan Galtung, höfund handbóka Sameinuðu
þjóðanna um friðarsamninga, er hann kom
sérstaklega til Íslands að kynna hugmyndir um
hlutverk smáríkja í friðarumleitunum og
hvernig forseti Íslands gæti orðið leiðandi afl á
þessum vettvangi?
9. Var það eðlilegt 2004 að umboðsmaður
framboðs sitjandi forseta væri jafnframt
framkvæmdastjóri stærstu fjölmiðla landsins og
þeir væru notaðir til að birta ítrekaðar ærumeið-
ingar, svívirðingar og ósannindi um mótfram-
bjóðanda en á sama tíma lokað að mestu fyrir
birtingu málefnalegs efnis um baráttumál
framboðsins?
Höfundur er formaður samtakanna Friður 2000.
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON
Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar
2008 og 2009
FERÐAÞJÓNUSTA
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 160 milljónum króna til eflingar ferðaþjónustu
á þeim svæðum sem verða fyrir aflasamdrætti vegna skerðingar á veiðiheimildum.
Auglýst er eftir umsóknum um stuðning við verkefni til atvinnusköpunar
í ferðaþjónustu á viðkomandi svæðum. Umsækjendur geta verið
sveitarfélög, einstaklingar og fyrirtæki og er hámarksstyrkur til hvers
verkefnis 8 milljónir kr.
Verkefnin verði unnin á árunum 2008-2009 og verður styrkurinn greiddur í tvennu lagi,
helmingur hvort ár. Seinni greiðslan er háð árangursmælingu í samræmi við ákvæði
í umsókn, en hver umsækjandi gerir tillögu að árangursmælikvarða fyrir viðkomandi
verkefni.
Við afgreiðslu umsókna verður sérstaklega litið til langtímaáhrifa verkefna á sköpun
nýrra starfa á svæðunum og hversu hratt störfin geta orðið til. Ekki er um að ræða styrki
til menntunar eða rannsókna.
Umsóknum skal skila á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem hægt er að nálgast
á vefsíðum Byggðastofnunar (www.byggdastofnun.is) og Ferðamálastofu (www.
ferdamalastofa.is)
Umsóknum skal skila til Byggðastofnunar, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki
eða Ferðamálastofu, Lækjargötu 3, 101 Reykjavík fyrir 5. febrúar 2008.
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ