Fréttablaðið - 09.01.2008, Page 42
22 9. janúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
IMELDA STAUNTON LEIKKONA
ER 52 ÁRA.
„Þú getur bara gert þitt
besta. Það er það eina sem
þú getur gert og ef það er
ekki nógu gott, þá er það
bara ekki nógu gott.“
Breska leikkonan Imelda
Staunton er í miklu uppáhaldi
hjá leikstjóranum Mike Leigh
og hefur hlotið fjölda verð-
launa fyrir frammistöðu sína.
MERKISATBURÐIR
1788 Connecticut varð fimmta
ríki Bandaríkjanna.
1793 Jean-Pierre Blanchard
fyrstur til að fljúga yfir
Bandaríkin í loftbelg.
1799 Básendaflóðið á Íslandi.
Talið vera einhver dýpsta
lægð sem gengið hefur
yfir landið á sögulegum
tíma.
1935 Lög um aldurshámark op-
inberra starfsmanna og
embættismanna sett.
1982 Hús Íslensku óperunnar
vígt, óperan Sígauna bar-
óninn frumsýnd.
1986 Hafliði Hallgrímsson hlýt-
ur tónskáldaverðlaun
Norðurlandaráðs fyrir verk
sitt Poemi.
Kristinn Óskarsson körfuknattleiks-
dómari hefur sinnt dómgæslu í rúm-
lega tuttugu ár og fyrir skömmu
dæmdi hann þúsundasta leikinn fyrir
Körfuknattleikssamband Íslands.
„Ég hef dæmt um 1.400 leiki á ferl-
inum og hélt upp á þúsundasta leikinn,
þegar á heildina er litið, fyrir um fjór-
um til fimm árum. Þá pantaði ég pítsu
með konunni og var svolítið grand á
því,“ segir Kristinn brosandi, en í síð-
ustu viku var hann heiðraður fyrir að
dæma þúsundasta leikinn fyrir KKÍ.
„Leikurinn var í sjálfu sér eins og
hver annar leikur og þrátt fyrir að ég
hafi þegar dæmt þúsund leiki í heild-
ina var þetta góð tilfinning og gaman
að þessum heiðri. Þetta er löng leið
sem hefur tekið mig rúmlega tvo ára-
tugi að fara og ég hef lagt mikið á mig
og tekið margar beygjur á lífsleiðinni
til að geta staðið í þessu,“ segir Krist-
inn, sem er borinn og barnfæddur
Keflvíkingur og alinn upp við mikla
íþróttaiðkun. Þó var það hálfgerð til-
viljun að hann hóf að sinna dómgæslu.
„Ég var alltaf mikið í íþróttum, fyrst
í fótbolta, handbolta og náttúrulega
í körfu. Síðan gerist það að dómarar
voru þrekprófaðir í fyrsta sinn árið
1988. Þá hættu margir af gömlu dóm-
urunum sem voru ekki í formi og nán-
ast allir sem vildu fengu möguleika á
því að flauta. Ég fékk því óvænt tæki-
færi og var farinn að dæma í efstu
deild kvenna átján ára og í efstu deild
karla nítján ára,“ minnist Kristinn
sem segir þetta mjög sérstakt, því
dómarar sem byrja í dag 24-25 ára
teljist ungir. Til þess að vera góður
dómari þarf brennandi áhuga á íþrótt-
inni og auk þess nefnir Kristinn ýmsa
kosti sem margir íþróttadómarar eiga
sameiginlega. „Ég get nefnt stað-
festu, ákveðni og sanngirni sem mikil-
væga sameiginlega þætti meðal dóm-
ara sem skara fram úr. Síðan finnst
mér körfuboltadómarar sem ég þekki
eiga það sameiginlegt að vera með
mjög góðan húmor, en því miður fæst
ekki alltaf tækifæri til að sýna það í
þessu starfi,“ segir Kristinn hlæjandi
og bætir við: „Það sem hefur hald-
ið mér mest við efnið er félagsskap-
ur starfsfélaganna. Við höldum mikið
hópinn og aðrir körfuboltadómar-
ar eru mínir bestu vinir. Þeir eru um
allan heim og ég get alltaf hringt í ein-
hvern þeirra þegar ég er á ferðalög-
um,“ segir Kristinn, sem lýsir áhugan-
um á starfinu sem brennandi ástríðu.
„Ég hef svo gríðarlegan áhuga á þess-
ari íþrótt að ég get eiginlega ekki
alveg útskýrt það. Þegar maður er
dómari tekur maður það mjög alvar-
lega og í mínu samfélagi er ég fyrst
og fremst körfuboltadómari og ég
held að margir skilji ekki hvað maður
leggur mikið á sig fyrir þetta,“ útskýr-
ir Kristinn, sem fær mikinn stuðning
heima fyrir. „Ég á náttúrulega stór-
kostlega konu sem hefur sýnt mér
bæði mikinn skilning og stuðning því
tilfinningasveiflurnar í þessu starfi
eru rosalegar. Ég er mjög heppinn því
ég hef notið mikillar velgengni og það
er gaman að gleðjast yfir því, en eðli
starfsins er samt þannig að stundum
lendir maður í miklu mótlæti og er að
berjast við erfiðar og þungar tilfinn-
ingar og þá er mjög mikilvægt að eiga
góða að sem klappa manni og strjúka,“
segir Kristinn, sem er íþróttakennari
að aðalstarfi.
„Enginn körfuboltadómari á Íslandi
sinnir því starfi eingöngu og þó við
fáum greitt er þetta að mínu mati
áhugamennska. Hins vegar mennt-
aði ég mig sem íþróttakennara, meðal
annars til að geta skilið íþróttamenn
betur, og verið betri dómari,“ segir
Kristinn, sem hefur einnig dæmt fjöl-
marga leiki erlendis, ýmist í Evrópu-
keppni félagsliða og landsliða sem
alþjóðlegur FIBA-dómari og á Spáni
þar sem hann var einn vetur við dóm-
gæslu.
„Ég hef dæmt erlendis í ellefu ár
og þrátt fyrir að leikirnir séu alltaf
skemmtilegir er þetta hætt að vera
spennandi og er bara hörkuvinna.
Margir sem dæma finnst störfin er-
lendis vera ákveðin gulrót en það er
öfugt hjá mér. Samskiptin sem ég á við
fólkið hérna heima eru svo skemmti-
leg að ég vil helst geta gefið erlendu
gæsluna upp á bátinn og verið bara
sem mest hérna heima,“ segir Krist-
inn. rh@frettabladid.is
KRISTINN ÓSKARSSON KÖRFUKNATTLEIKSDÓMARI: ÞÚSUNDASTI LEIKUR FYRIR KKÍ
Brennandi áhugi nauðsynlegur
BRENNANDI ÁSTRÍÐA Kristinn Óskarsson hefur sinnt dómgæslu í körfuknattleik í tuttugu ár,
bæði hérlendis og um alla Evrópu. VÍKURFRÉTTIR/ÞORGILS JÓNSSON
Jóhanna af Örk sem útleggst á
frönsku: Jeanne d’Arc og hefur
einnig verið kölluð mærin frá
Orléans. Jóhanna var frönsk
sveitastúlka sem skyndilega
hélt því fram að hún hefði
fengið sýnir frá guði sem skip-
uðu henni að vinna Frakkland
undan enskum yfirráðum seint
í Hundrað ára stríðinu. Henni
tókst að sannfæra hinn ókrýnda
Karl 7 um sannfæringu sína og
því varð úr að hann sendi hana
til borgarinnar Orléans þar sem
hún aflétti umsátri englendinga
á aðeins níu dögum.
Þetta var aðeins upphaf-
ið af sigurgöngu Jóhönnu sem var aðeins sautj-
án ára þegar hún hóf þessa sigurgöngu. Fleiri
sigrar á her Englendinga fylgdu
í kjölfarið og að lokum leiddu
þeir til þess að Karl 7 var krýnd-
ur í Reims og Frakkar fengu
endurnýjað sjálfstraust. Hún
var tekin höndum af Englend-
ingum nærri Compiègne og
var dæmd fyrir villutrú af dómi
undir enska landstjóranum Jó-
hanni hertoga af Bedford sem
lét brenna hana í Rúðuborg að-
eins nítján ára. Tuttugu og fjór-
um árum síðar veitti Kallixtus 3.
páfi henni uppreisn æru og hún
var tekin í dýrlinga tölu af Bene-
dikt 15. þann 16. maí 1920.
Hún vék aldrei frá trúarsannfær-
ingu sinni sem hún hélt fast í fram til hinnar síð-
ustu stundu.
ÞETTA GERÐIST: 9.JANÚAR 1431
Réttarhöld yfir Jóhönnu af Örk
timamot@frettabladid.is
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Elfa Vilborg Björnsdóttir
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju
föstudaginn 11. janúar kl. 13.00.
Björn Birgir Ingimundarsson
Bjarnheiður Margrét Ingimundardóttir Björgvin Sigurðsson
Þorgils Björn Björgvinsson og Margrét Björgvinsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og
bróðir, og mágur,
Gísli Þór Agnarsson
Skarðshlíð 23a, 603 Akureyri,
andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 2. janúar.
Jarðarförin fer fram í Möðruvallaklausturskirkju
föstudaginn 11. janúar kl. 13.30. Starfsfólki
Heimahlynningar er sérstaklega þökkuð hjúkrun
og stuðningur í veikindum hans.
Hrefna Þorbergsdóttir
Eyrún Huld Gísladóttir og Bergvin Þór Gíslason
Aðalsteinn Rúnar Agnarsson Ragnheiður Brynjólfsdóttir
Þórir Páll Agnarsson J. Nicoleta Lacramiora
Jórunn Kolbrún Agnarsdóttir Sigurgeir Pálsson
Þórey Agnarsdóttir Árni Björnsson
Ingi Stein Agnarsson
Gissur Agnar Agnarsson Sigrún Sigfúsdóttir
Elskuleg móðir mín, systir okkar og mág-
kona,
Guðríður Bjarney
Ágústsdóttir
frá Stíghúsi, Stokkseyri,
lést laugardaginn 5. janúar.
Útförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn
19. janúar kl. 14.00
Valborg Sonya Guðríðard. Hassan
Guðbrandur Stígur Ágústsson Brynhildur Arthúrsdóttir
Sigríður Inga Ágústsdóttir
Dagrún Mjöll Ágústsdóttir Aron Hauksson
Hólmfríður Hlíf Steinþórsdóttir Einar Páll Bjarnason
Ragnheiður Drífa Steinþórsdóttir Logi Hjartarson
Kristín Steinþórsdóttir
Jason Steinþórsson Hrönn Sturlaugsdóttir
Bróðir okkar,
Sigurgeir Pétursson
frá Gautlöndum,
lést 4. janúar á líknardeildinni á Landakoti.
Jarðað verður í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorgerður Pétursdóttir
Ásta Pétursdóttir
Rótarýklúbbur Borgarness
hefur tekið upp þann sið að
styrkja félagasamtök á jóla-
fundum sínum.
Að þessu sinni var það
FSMA sem fékk peningagjöf.
FSMA er félag aðstandenda
og einstaklinga sem haldnir
eru SMA sjúkdómnum á Ís-
landi.
Inga Björk Bjarnadóttir tók
við styrknum fyrir skömmu
fyrir hönd félagsins.
www.skessuhorn.is
Rótarý styrkir
aðstandendur
BORGARNES Rótarýklúbbur Borgarness styrkti FSMA, félag aðstand-
enda og þeirra sem haldnir eru SMA-sjúkdómnum á Íslandi.