Fréttablaðið - 09.01.2008, Blaðsíða 43
MIÐVIKUDAGUR 9. janúar 2008 23
Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og
frændi,
Jón Gíslason
Hraunbæ 42, Reykjavík,
andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 1. janúar.
Útförin fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi,
föstudaginn 11. janúar, kl. 13.00.
Ingunn Jónsdóttir Eggert Bergsson
Bergdís I. Eggertsdóttir Grettir Sigurðarson
Pálína S. Eggertsdóttir Nikulás K. Jónsson
Sonja Eggertsdóttir
Hlynur Eggertsson
systkinabörn og aðrir aðstandendur.
Okkar ástkæri,
Helgi S. Jóhannsson
skipstjóri,
sem lést 25. desember af slysförum, verður jarðsunginn
frá Víðistaðakirkju fimmtudaginn 10. janúar kl. 13.00.
Kristín S. Þórhallsdóttir
Soffía Helgadóttir Reynir Kristjánsson
Þórhallur Helgason Pálína Hildur Ísaksdóttir
Elva Rut Helgadóttir
Sunna Björg Helgadóttir Geir Birgisson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Magnús Ásmundsson
Hjúkrunarheimilinu Sóltúni,
áður að Bústaðavegi 83,
lést á heimili sínu, Sóltúni, föstudaginn 4. janúar.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn
11. janúar kl. 13.00.
Ásmundur Magnússon
Auður Magnúsdóttir Halldór Kristiansen
Stefanía Júlíusdóttir
Sigurður Jónsson
Magnús Ásmundsson
Hrefna Ásmundsdóttir
Einar Halldórsson
Davíð Einarsson
Gabríel Aron og Mikael Máni Sigurðarsynir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Friðþjófur Hraundal
fv. rafmagnseftirlitsmaður, Gljúfraseli 13,
áður Kársnesbraut 78, Kópavogi,
sem lést 1. janúar sl. verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 10. janúar nk. kl. 11.00.
Guðmundur Antonsson Sigríður Kristjánsdóttir
Ómar Friðþjófsson Sigurbjörg Þórmundsdóttir
Friðþjófur Friðþjófsson Hrafnhildur I. Halldórsdóttir
Berglind Friðþjófsdóttir Stefán Högnason
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Þökkum samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegrar móður, ömmu og lang-
ömmu okkar,
Ingibjargar Svövu
Guðjónsdóttur
Skálagerði 9.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðný G. Kristjánsdóttir
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við veikindi, and-
lát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Lárusar Gunnólfssonar
skipstjóra, Tröllateigi 20, Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir færum við Heimahlynningu LSH fyrir
einstaka nærgætni og fagmennsku í sínu starfi.
Guðríður Bjarnadóttir
Gunnólfur Lárusson Unnur Lilja Elíasdóttir
Örnólfur Lárusson Linda S. Aðalbjörnsdóttir
Bjarnólfur Lárusson Þóra Björg Clausen
afabörn og langafabarn.
Ástkæra mamma, tengdamamma, amma
og langamma,
Jóhanna Eiríksdóttir
Sólvallagötu 72, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
fimmtudaginn 10. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Minningarsjóð Sjómannadagsins, Hrafnistu í
Reykjavík.
Jón Boði Björnsson
Hrefna Ragnarsdóttir Sigurður Gíslason
Sif Ólafsdóttir
börn og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Guðmundur Gíslason
frá Seyðisfirði, Fífuhjalla 11, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð miðvikudaginn
2. janúar. Útförin fer fram frá Hjallakirkju fimmtudag-
inn 10. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar eru
vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast
hans er bent á að láta Alzheimerfélagið njóta þess.
Jónhildur Friðriksdóttir
Guðrún Valdís Guðmundsdóttir Valdimar Örn Karlsson
Friðrik Guðmundsson Guðný Árnadóttir
Valur Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri,
Eyjólfur Jónsson
Rauðagerði 22, Reykjavík,
lést á heimili sínu í Adelaide í Ástralíu þann 29. nóv-
ember sl. Minningarathöfn verður í Bústaðakirkju
föstudaginn 11. janúar nk. kl. 13.00. Blóm vinsamleg-
ast afþökkuð en þeir sem vilja minnast hans er bent á
Líknar- og hjálparsjóð Landssambands lögreglumanna.
Mary Pilgrim
Berglind Eyjólfsdóttir Kolbeinn R. Kristjánsson
Katrín Dagmar Jónsdóttir
Eyjólfur Jónsson
AFMÆLI
Joey
Lauren
Adams
leikkona
40 ára.
Joely Ri-
chardson
leikkona
er 43 ára.
Baltasar
Samper
listmálari
70 ára.
Sean
Lennon
tónlistar-
maður 33
ára.
Nýtt björgunarskip var vígt í
Grindavík síðastliðinn sunnudag
og var það séra Elínborg Gísla-
dóttir sem vígði nýja skipið sem
fékk nafnið Oddur V. Gíslason.
Þetta er því fjórða skipið sem
ber nafn sr. Odds V. Gíslasonar.
Nýja skipið er af sömu gerð og
það gamla en þó nokkuð öðruvísi,
tíu árum yngra og smíðað úr stáli.
Ákveðið var að velja þennan bát
vegna þess að hann gegndi áður
hlutverki æfingabáts hjá konung-
legu bresku sjóbjörgunarsamtök-
unum RNLI og var því einstak-
lega vel við haldið.
Nýi Oddur er útbúinn með nýj-
ustu og fullkomnustu siglinga-
tækjum og sjúkrabúnaði sem
völ er á og er hann í raun eins og
fljótandi sjúkrabíll að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá
Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Báturinn er meðal annars útbúinn
súrefnisþjöppu sem gerir súrefn-
iskúta óþarfa við súrefnisgjafir
í sjúkraflutningum, en súrefnis-
þjappan var gjöf frá K-MATT ehf.
í Reykjanesbæ. Einnig er í bátn-
um Flir-hitamyndavél sem gerir
leit og siglingu mun auðveldari
við erfiðar aðstæður.
Fjöldi fólks var viðstatt vígsl-
una og fagnaði þessum tímamót-
um hjá björgunarsveitinni Þor-
birni sem fram fór á flotbryggj-
unni þar sem Oddur V. Gíslason
liggur vanalega. Björgunarsveit-
in Þorbjörn í Grindavík fagnaði
einnig á dögunum öðrum merk-
um áfanga þegar sveitin fagnaði
sextíu ára afmæli en frá upphafi
hefur sveitin bjargað 232 mönn-
um úr sjávarháska. Sjá nánari
upplýsingar. www.grindavik.is
Nýtt björgunarskip vígt í Grindavík
VÍGSLA VIÐ FLOTBRYGGJUNA
Björgunarskipið Oddur V. Gíslason
er það fjórða sem ber þetta nafn.
Báturinn er í raun fljótandi sjúkra-
bíll og er meðal annars útbúinn
súrefnisþjöppu
Sjóvá og FÍB hafa gert með
sér samkomulag um að FÍB-
Aðstoð veiti þeim viðskipta-
vinum Sjóvár sem eru í
Stofni, aðstoð ef bifreið-
ar þeirra bila eða hefta för
þeirra á einhvern hátt. Í til-
efni 90 ára afmælis Sjóvár í
ár verður þjónustan ókeypis
út árið 2008. Með þessu sam-
komulagi bætast enn fleiri
viðskiptavinir við þjónustu
FÍB-Aðstoðar og stefnt er
að því að stækka þjónustu-
svæðið enn frekar að því er
fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá félaginu. Reykja-
nesbær mun bætast við í
upphafi árs en þjónustan er
nú þegar í boði á öllu höfuð-
borgarsvæðinu, Akureyri
og Selfossi.
Samkvæmt athugunum
Sjóvár hafa viðskiptavin-
ir félagsins mikinn áhuga á
því að félagið bjóði þeim að-
stoð ef bifreiðar þeirra bila
í umferðinni. Með þessari
nýju þjónustu fetar Sjóvá í
svipaða átt og erlend trygg-
ingafélög sem hafa í aukn-
um mæli boðið þessa þjón-
ustu fyrir sína viðskipta-
vini. Eftirfarandi aðstoð
fæst: Rafmagn, ef bíllinn er
straumlaus; bensín, ef bíll-
inn er bensínlaus, þá fæst
aðstoð og brúsi með fimm
lítrum af bensíni eða olíu
til að komast á næstu bens-
ínstöð; dekk, ef springur
og dekkjaskipti eru vanda-
mál, til dæmis ef vantar
tjakk eða felgulykil kemur
Aðstoðin til hjálpar við að
skipta; verkstæði og ef eitt-
hvað er að sem ekki er hægt
að kippa í lag á staðnum, er
hringt á dráttarbíl eða verk-
stæði að ósk viðskiptavinar.
FÍB stækkar
þjónustusvæði
AÐSTOÐ Í NEYÐ Sjóvá býður nú
viðskiptavinum upp á vegþjón-
ustu í samstarfi við FÍB og er hún
ókeypis út árið 2008 vegna 90
ára afmæli Sjóvár.