Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.01.2008, Qupperneq 112

Fréttablaðið - 13.01.2008, Qupperneq 112
32 13. janúar 2008 SUNNUDAGUR hefst mánudaginn 14. janúar HANDBOLTI Það styttist óðum í Evrópumótið í handbolta í Noregi og enn á ný eru handbolta- spekingar að velta fyrir sér hvort ógnunin vinstra megin sé nægilega mikil. Vinstri vængurinn stóðst prófið með glæsi- brag á æfingamótinu í Danmörku og sló þeim hægri við bæði hvað varðar fjölda marka og skotnýtingu. Leikmenn vinstra megin á vellin- um skoruðu 15 mörkum meira en þeir hægra megin og nýttu auk þess skotin sín 1 prósentu- stigi betur eða 62 prósent á móti 52 prósent- um. Vinstri vængurinn var betri í leikjunum á móti Póllandi (15 mörk á móti 8) og Danmörku (15 mörk á móti 4) en í leiknum gegn Noregi fóru þeir Ólafur Stefánsson og Einar Hólm- geirsson mikinn og skoruðu saman 9 mörk úr 14 skotum og mörkin voru þremur fleiri hægra megin af vellinum (11 mörk á móti 8). Guðjón Valur kom vel út úr LK-Cup Áhyggjur vegna Guðjóns Vals Sigurðssonar heyra nú að mestu sögunni til enda sýndi hann mikinn styrk á mótinu, ekki bara með því að skora flest mörk (19 í þremur leikjum, 3 víti) heldur einnig með því að leysa vel krefjandi verkefni í vörninni. Axlarmeiðslin fengu margan til þess að svitna en Guðjón Valur hefur enn á ný sannað það hversu mikill íþróttamaður hann er með því að vinna sig út úr þeim á góðum tíma. Logi Geirsson gladdi örugglega landsliðs- þjálfarann því hann var eitt af stóru spurning- armerkjunum í liðinu sökum þess að hann hefur glímt við meiðsli stóran hluta af tímabil- inu og lék ekkert með Lemgo í síðustu leikjun- um fyrir EM-fríið. Logi tók upp hanskann þar sem hann skildi við hann á HM í fyrra og skor- aði 13 mörk úr 20 skotum í leikjunum þremur. Logi skoraði úr 8 af 10 skotum sínum í seinni tveimur leikjunum og er greinilega klár í slag- inn í Noregi. Arnór Atlason var annar leikmaður á vinstri vængnum sem kom sterkur inn í Danmörku og þá sérstaklega í síðasta leiknum gegn gest- gjöfunum þar sem hann tók stöðu Loga í seinni hálfleik og skoraði fimm mörk úr átta skotum. Arnór skoraði reyndar sex mörk en sjötta markið hans, snilldarlega útfærð vippa af átta metrunum, var dæmd af á óskiljanlegan hátt. Tók Ólafur meðvitaða ákvörðun um að skjóta ekki? Ólafur Stefánsson spilaði mjög vel í fyrstu tveimur leikjunum og skoraði í þeim 11 mörk úr aðeins 16 skotum utan af velli sem gerir frábæra 69 prósenta nýtingu. Það duldist síðan engum að Ólafur vildi að vinstri vængurinn tæki meiri ábyrgð og í síðasta leiknum gegn Dönum var eins og hann hefði tekið þá meðvit- uðu ákvörðun að skjóta ekki á markið. Ólafur kom inn í leikinn þegar tæpar níu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik og lék síðan allan seinni hálfleik. Ólafur átti á þeim tíma 10 stoðsendingar en skaut aldrei á markið fyrir utan að hann skoraði úr einu vítakasti. Ólafur tapaði fimm boltum, oftar en ekki þegar hann var að þvinga sendingunni í stað þess að ógna sjálfur en fyrir vikið fékk vinstri vængurinn öll þau tækifæri til þess að sanna sig. Þetta var heimspekileg nálgun hjá fyrirlið- anum en hann veit það eins öll þjóðin að það kemur stærri og mikilvægari stund fyrir hann til þess að skjóta á markið. Einar dró skotnýtinguna niður Einar Hólmgeirsson fann sig ekki eins vel og vonir stóðu til en fær nú fjóra leiki á fjórum dögum til þess að skjóta sig í gang. Hann dreg- ur skotnýtinguna niður á hægri vængnum því aðeins 7 af 20 skotum hans, á mótinu í Dan- mörku enduðu í marknetinu. Það vantaði lykilmenn í íslenska liðið á báðum vængjum, því vinstri skyttan Jaliesky Garcia Padron var ekki með vegna fjölskyldu- ástæðna og hægri hornamaðurinn og skytta í hjáverkum, Alexander Petersson, fór meiddur heim og lék ekkert með. Endurkoma þeirra mun auka enn við breidd- ina sem Alfreð Gíslason hefur nú á báðum vængjum vallarins. ooj@frettabladid.is Vinstri vængurinn skilaði meiru Íslenska landsliðið aflaði 38 marka með leikmönnum á vinstri vængnum á æfingamótinu í Danmörku. Logi Geirsson og Arnór Atlason áttu stóran þátt í því og Guðjón Valur er að nálgast sitt besta form. LYKILSKYTTUR LANDSLIÐSINS Þeir Logi Geirsson og Ólafur Stefánsson eru byrjunarliðsskyttur landsliðsins og stóðu sig báðir vel í Danmörku. Vonandi verður framhald á því í leikjunum gegn Tékkum á morgun og á mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VINSTRI VÆNGURINN Guðjón Valur Sigurðsson 16 mörk 64 prósent skotnýting Logi Geirsson 13 mörk 65 prósent skotnýting Arnór Atlason 8 mörk 53 prósent skotnýting Hannes Jón Jónsson 1 mark 100 prósent skotnýting Samtals: 38 mörk - 62 prósent nýting HÆGRI VÆNGURINN Ólafur Stefánsson 11 mörk 69 prósent skotnýting Einar Hólmgeirsson 7 mörk 35 prósent skotnýting Ásgeir Örn Hallgrímsson 4 mörk 57 prósent skotnýting Bjarni Fritzson 1 mark 100 prósent skotnýting Samtals: 23 mörk - 52 prósent nýting FÓTBOLTI Sænski markvarðahrell- irinn Henrik Larsson hefur ákveðið að gera nýjan eins árs samning við sænska úrvalsdeild- arliðið Helsingborg. Larsson sem er 36 ára hefur í gegnum tíðina getið sér orð sem einn allra eitraðasti framherji Evrópu og hefur gert garðinn frægann hjá Feyenoord, Celtic, Barcelona og Manchester United ásamt því að spila reglulega með sænska landsliðinu. Larsson fékk þó ekki almenni- lega uppreisn æru fyrr en hann fór að spila í sterkustu deildum í heimi og var lengi gagnrýndur fyrir að láta sér nægja að spila í Skotlandi þar sem tvö lið voru langsterkust. Larsson fór sem lánsmaður til Manchester United frá Helsing- borg á síðustu leiktíð og átti sinn þátt í að tryggja liðinu enska titilinn á tímabilinu og Sir Alex Ferguson, stjóri United, fór jafnan fögrum orðum um frammi- stöðu framherjans knáa. Einn Íslendingur leikur með Helsingborg en það er fyrrum Fylkismaðurinn Ólafur Ingi Skúlason. - óþ Sænska úrvalsdeildin: Henke áfram hjá Helsingborg MARKVARÐAHRELLIR Markverðir í Sví- þjóð fá engan frið fyrir Henrik Larsson sem er ekki tilbúinn til að leggja skóna á hillina strax. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona og skoraði eitt marka liðsins í stór- sigri gegn Real Murcia á Nývangi í gærkvöld. Eiður Smári skoraði eina mark fyrri hálfleiks í gærkvöldi. Mark- ið kom á 26. mínútu leiksins þegar hinn ítalski Gianluca Zambrotta braut sér leið upp hægri kantinn og sendi boltann fyrir markið þar sem Eiður Smári mætti, réttur maður á réttum stað, á fjærstöng- inni og skoraði. Hinn ungi og efnilegi Bojan Krkic bætti svo öðru marki við eftir góðan undirbúning Thierry Henry. Eiður Smári átti fína spretti í leiknum en var skipt út af á 66. mínútu fyrir spænska landsliðs- manninn Andrés Iniesta. Frakkinn Thierry Henry var ekki hættur að leggja upp mörk og á 77. mínútu fékk Kamerúninn Samuel Eto‘o að finna fyrir gjaf- mildi Henrys. Silvinho sendi bolt- ann þá upp vinstri kantinn á Henry sem kom boltanum fyrir markið á Eto‘o sem átti ekki í erfiðleikum með að skora. Eto‘o skoraði svo fjórða markið undir lok leiksins og innsiglaði glæsilegan sigur Barcelona. Að þessu sinni var það varamaðurinn Giovanni dos Sant- os sem sá um sendinguna eftir að hafa unnið varnarmann Real Murcia í návígi. Eto‘o var svo skipt út af þegar lítið var eftir að leiknum til þess að áhorfendur á Nývangi gætu hyllt hann fyrir góða frammistöðu í leiknum sem og hvatt hann að sinni. Eto‘o mun ekki spila með Barcelona liðinu á næstunni þar sem hann mun sinna landsliðs- skyldu með Kamerún í Afríku- keppninni sem hefst síðar í mán- uðinum. - óþ Barcelona átti ekki í erfiðleikum gegn Real Murcia í spænsku úrvalsdeildinni á nývangi í gærkvöldi: Eiður Smári skoraði í sigri Barcelona FÖGNUÐUR Eiður Smári og fyrirliðinn Carles Puyol fagna hér marki Íslendingsins á Nývangi í gærkvöldi. NORDIC PHOTOS/GETTY
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.