Tíminn - 28.05.1981, Blaðsíða 6

Tíminn - 28.05.1981, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 28i mái 1981 stuttar fréttir Hitaveita Saudárkróks borar eftir heitu vatni SAUDARKRÓKUR ■ Aukin nýbygging á Sauðár- króki kallar á auknar hita- veituframkvæmdir, og þurfa Sauðkræklingar að gera stór- átak i þeim málum á þessu ári. Borað verður eftir heitu vatni i bæjarlandinu, um -2 kilómetra frá bænum, og Mikið um nýbyggingar hjá Sauð- kræklingum SAUDARKRÓKUR ■ Bæjaryfirvöld á Sauðár- króki reikna ekki með að fara út i varanlega gatnagerð á þessu ári, þvi gróskan og út- þenslan f byggð á Sauðáfkróki er svo mikil, að gatnagerðar- menn þar hafa varla undan að undirbúa götur með malarslit- lagi. Til slikra gatnafram- kvæmda ver bærinn á þessu ári 845 þúsundum króna. Megnið af þeirri upphæð fer i gatnagerð viö nýtt bygginga- hverfi sem er kallað Hliða- hverfi, en þaö liggur fyrir sunnan og ofan bæinn. Hliða- hverfi er nú að verða full- byggt. Þá er verið að byrja á nýju hverfi sem liggur sunnan við sjúkrahúsið og kallast það Tungnahverfi. Elli- og hjúkr- unarheimili í undirbúningi SAUDARKRÓKUR ■ Nú er i undirbúningi bygg- ing elli- og hjúkrunarheimilis á Sauðárkróki, i samstarfi við öll sveitarfélög i sýslunni, og er meiningin að reisa heimilið i tengslum við sjúkrahúsiö og heilsugæslustöðina á Sauðár- króki. Þá er á döfinni að reisa ibúðir fyrir aldraða á Hofsósi og i Varmahlið. Hönnun heimilisins er langt komin, og er ætlunin að hefja framkvæmdir nú i haust og reyna að gera heimilið fokhelt á þessu ári. — AB Áætlað að heimavist F.S. hýsi um 80 nemendur SAUDARKRÓKUR ■ Nú er verið að ljúka við uppsetningu innréttinga i heimavist fyrir nemendur Fjölbrautaskólans á Sauðár- króki, og er þar aöstaöa fyrir 22 nemendur. Þá er verið að hanna nýjan áfanga að heima- vistinni, þar sem veröur að- staða fyrir um 70 nemendur. Hönnun á bóknámshúsi er leggur Sauðárkrókskaupstað- ur eina milljón króna i þær framkvæmdir á þessu ári. Aðrar framkvæmdir hjá hita- veitunni veröa upp á 2.5 milljónir króna. Verða það ýmis konar lagnir, dælustöðv- ar o.fl. og verða þær mest- megnis i nýju hverfunum. — AB einnig að byrja, þannig að miklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar i skólamann- virkjum á Sauðárkróki á næst- unni. Auk framkvæmdanna við verknámshúsið, er áætlað að i þessar framkvæmdir fari á þessu ári um 4 milljónir króna. Sauðárkrókskaupstað- ur þarf þar af að leggja fram 15% i framkvæmdirnar við heimavistina, en af öðrum skólamannvirkjum 40%. — AB SAUDARKRÓKUR ■ Þessa dagana er verið að setja upp leikskóla á Sauðár- króki, en framkvæmdir við hann hófust i fyrra. Bærinn keypti einingahús frá Siglu- firði, og er nú verið að reisa þaö á grunninum sem gerður var i fyrra. 1 þetta framtak leggur bær- inn 560 þúsund á þessu ári, og reiknað er með að innanhúss- framkvæmdum við leikskól- ann ljúki á næsta ári, og að skólinn veröi þá tekinn i notk- un. í leikskólanum á Sauðár- króki sem nú starfar eru um 70 hálfsdagspláss og þegar sá nýi verður kominn i gagnið, er áætlað að eftirspurn eftir slik- um plássum verði fullnægt. Hefur það sterklega komið til tals á Sauöárkróki að gera einhvern hluta gamla leik- skólans að dagheimili, sem börn forgangshópa, eins og einstæðra foreldra fengju þá að sækja. — AB HOFSÓS ■ Sveitarstjóri tók til starfa i fyrsta skipti á Hofsósi nú 18. mai sl. Það er Garðar Sveinn Árnason, sem starfaði áður sem framkvæmdastjóri Al- þýðuflokksins. Timinn sló á þráðinn til Garðars og spurði hann hvernig sveitarstjórastarfið legðist i hann. ,,Mér list mjög vel á mig hérna. Það er mikil tilbreyting i að fá svona starf og vænti ég þess að ég muni eiga gott samstarf við heima- menn. Mér finnst einnig mjög gaman að vera kominn út á land og kann mjög vel við mig hérna.” — AB Leikskóli Nýr sveitar- stjóri á Hofsósi ■ Sauðárkrókur. ■ Nils Pcter Markusen (til hægri), fyrir utan Hótel Loftleiöir I gær. Með honum á myndinni er Jóahkim Johansen, annar úr hópi fiskfram- ieiðendanna, sem hér funduöu. ÆTTUM AB VINNA SAMAN — segir norskur fiskframleidandi um fiskiðnað íslands og Noregs ■ „Mér sýnist fiskiðnaöurinn á íslandi að mörgu leiti á svipuðu stigi og sá norski, en þó er ýmis- legt ólikt með þeim, þótt notað sé sama hráefni, samskonar vinnsluaöferðir og framleiðslan veröi sú sama. Ég held að báðir aðilar myndu græða mikið á þvi að koma á gagnkvæmu upp- lýsingastreymi sin á milli, aö báðir gætu lært af hinum og skoð- un min er sú að við ættum að vinna meir saman en gert er i dag”, sagði Nils Peter Markusen, einn þátttakenda á aðalfundi Tromsfisk, samtaka fiskfram- leiðenda i Troms-fylki i Noregi, en aðalfundurinn var haldinn á Islandi nú i vikunni. „Viö höfum skoðað nokkur fisk- iðnaðarfyrirtæki hér á landi”, sagði Markusen ennfremur, „og séð margt áhugavert. Þið hafið hér til dæmis þróaðar tölvuvogir, sem okkur vantar og sem ég get vel imyndað mér að við eigum eftir að kaupa frá tslandi. Svo hafið þið sérstakt bónuskerfi, sem er stærri hluti launa en hjá okkur. Hins vegar sáum við ýmislegt sem okkur þótti athugavert, svo sem það hversu margir eru .bundnir i flutningum hráefnisins frá einum punkti til annars innan fyrirtækjanna. Við viljum hafa þetta meir á færibandi, svo ekki skapist flöskuhálsar eins og hér, þvi þá eru of margir að biða eftir hver öðrum. Ég held að viö gætum, eins og ég sagði, báðir grætt mikið á þvi að starfa saman, fremur en standa i einhverri samkeppni, sem ef til vill er ekki raunveru- leg.” Aðspurður sagði Markusen að þetta væri i fyrsta sinn sem Tromsfisk héldi aðalfund sinn ut- an Noregs. Hefði Island orðið fyr- ir valinu, þar sem fáir þeirra hefðu komið hingaö áður, flestir haft áhuga á þvi að eyða hér nokkrum dögum og svo væri landið hæfilega langt i burtu frá Noregi. Tilboð langt yfir kostnaðar áætlunum: „Verk- takar reikna með yfir- borg- unum” ■ „Hugsanlega er það þensla á vinnumarkaðinum nú með vorinu sem hönnuðir okkar taka ekki nægiiegt tillit til i sinum kostnaðaráætlunum, en þær eru byggðar á þeim launatöxtum sem vitað er um. En e.t.v. verða verktakarnir hinsvegar að reikna með ákveðnum yfirborgunum”, svaraði Thorben Friðriksson hjá Innkaupastofnun borgar- innar. Athygli hefur vakið að t.d. við stórútboð hjá Hitaveitu Reykjavikur voru 8 af 9 tilboö- um nokkuðog allt að 150% yfir kostnaðaráætlun. Viö útboö á aðalholræsi i Elliðavog var munurinn ennþá meiri og lægsta tilboð 30-40% yfir kostnaðaráætlun. t þvi tilfelli taldi Thorben spurningu um hvort i kostnaðaráætlun hafi verið tekið nægjanlegt tillit til ýmissa aðstæðna á staðnum t.d. eins og flóðs og fjöru. I þvi tilviki yrði að vinna alveg út i sjó og þvi spurning hvort tekið hafi verið tillit til þess að við slikar aöstæður er ekki alltaf hægt að vinna samfellt á dag- vinnutima, heldur verði oft að haga vinnutimanum eftir sjávarföllum. Torben telur að þetta séu frekar um sérstök tilfelli að ræða heldur en að þarna sé um ákveðna þróun að ræða i þá átt að tilboð séu yfirleitt yfir kostnaðaráætlun. A.m.k. sé of fljótt að spá um það, að svo sé. — HEI Langtíma- áætlun um vegagerð til 12 ára ■ Alþingi samþykkti á mánudag þingsályktun um gerð langtima- áætlunar um vegagerð. Vegagerð rikisins skal, samkvæmt ályktun- inni, i samráði við fulltrúa þing- flokkanna gera áætlun er nái til 12 ára um framkvæmdir i nýbygg- ingum vega og brúa á stofnbraut- um og þjóðvegum. Skal áætlunin lögð fyrir Alþingi eigi siðar en vorið 1982. Fjárhagslegar forsendur áætlunarinnar verða þær að 2,2% af þjóðarframleiðslu verði að meðaltali varið til vegafram- kvæmda. Þetta hlutfall skal skoð- að sem lágmark, og það aukið i 2,4% innan þriggja ára. Þá var á mánudag samþykkt þingsályktun um bætta nýtingu silungastofna. Þingsályktunartil- lögu um samgöngur við Hvalfjörð var visað til rikisstjórnarinnar. — JSG. KAUPGLEÐIN EYKST ■ Innflutningur til landsins i april var tæpum 8% meiri en I aprilmánuði 1980, en útfiutn- ingurinn rúmum 8% minni, þegar tekið cr mið af þvi að meðaigengi erlends gjaldeyris hefur hækkað uin rúm 50% á timabilinu. Samkvæmt frétt frá Hagstof- unni nam innflutningur i april s.l. 484,6 milljónum kr. á móti 295,8 millj. i april 1980. Útflutningur nam nú 530,4 millj. á móti 384 millj. i fyrra. Innflutningur fyrstu fjóra mán- uði ársins, jan./april nam nú 1.845,4millj. á móti 1.209,1 millj. á sama tima i fyrra, sem er um 1,5% meira en i fyrra miðað við hækkun meðalgengis á timabil- inu. Útflutningurinn nam 1.640,7 millj. á móti 1.119,6 millj. á sama tima i fyrra, eða um 2,5% minna miðað við gengishækkun á tima- bilinu. Vöruskiptajöfnuðurinn fyrstu fjóra mánuði ársins var neikvæð- ur um 204,7 milljónir króna. — HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.