Fréttablaðið - 31.01.2008, Side 62
38 31. janúar 2008 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Harðjaxlinn Heiðar Helguson er kominn á fullt hjá Bolton í ensku
úrvalsdeildinni eftir að hafa jafnað sig á erfiðum ökklameiðslum
sem hafa haldið honum frá keppni síðan í lok ágúst á síðasta
ári. Heiðar var í leikmannahópi Bolton gegn fyrrum félagi sínu
Fulham í fyrrakvöld og spilaði síðustu sjö mínútur leiksins.
„Það er bara mjög jákvætt að vera kominn aftur á fullt skrið
enda heldur betur kominn tími til,“ sagði Heiðar sem var
aðeins búinn að leika þrjá leiki og skora eitt mark fyrir Bolt-
on þegar meiðslasagan byrjaði.
„Þetta var nú ekki alveg sú byrjun sem ég var að vonast
eftir hjá Bolton, en svona er þetta stundum í fótboltanum.
Þú veist aldrei hvað gerist næst. Aðgerðin átti í sjálfu sér ekki
að vera neitt flókin og læknarnir áttu ekki von á því að ég yrði
lengur frá en í rúman mánuð. Þannig að sá tími umfram það var
óneitanlega mjög pirrandi en það var bara ekkert að gera í stöð-
unni en að halda áfram og gera allt sitt til þess að koma sterkur
til baka.“
Heiðar vonast eftir því að fá tækifæri með liðinu á næstunni.
„Það er eitt að meiðast fljótlega eftir að maður fer að leika með
nýju félagi en annað ef það sé skipt um knattspyrnustjóra einnig.
Ég hef náttúrulega þannig séð
ekki mikla reynslu af Gary Megson sem knattspyrnustjóra enn
sem komið er, en er búinn að vera að æfa 100% með liðinu í
janúar og það er vissulega jákvætt að hafa verið valinn í leikmanna-
hópinn gegn Fulham og fá að spila nokkrar mínútur,“ sagði Heiðar
en breskir fjölmiðlar hafa reyndar sagt Bolton
ætla að kaupa nýjan framherja eftir að Nicolas
Anelka yfirgaf félagið. „Það gæti vissulega haft
einhver áhrif á stöðu mína hjá Bolton ef nýr
framherji kæmi til félagsins á næstu dögum. Því ef
Megson kaupir framherja sem kostar mikinn pening
í janúarglugganum, þá liggur það í augum uppi að
hann mun spila honum til þess að réttláta
kaupin. Hvað sem verður, þá veit
ég það alla vega að það er undir
mér komið að grípa tækifærið
þegar það gefst,“ sagði Heiðar að
lokum.
HEIÐAR HELGUSON, BOLTON: KOMINN Á FULLT EFTIR AÐ HAFA VERIÐ LENGI FRÁ VEGNA MEIÐSLA
Verð að grípa tækifærið er það gefst
> Forföll í landsliðinu
Sex leikmenn íslenska landsliðsins hafa boðað forföll í
æfingamótinu sem hefst um helgina. Ólafur Jóhannesson
landsliðsþjálfari valdi 30 leikmenn í landsliðshópinn en
nú standa aðeins 24 eftir. Veigar Páll Gunnarsson, Kristján
Örn Sigurðsson, Matthías Guðmundsson og Jóhannes Karl
Guðjónsson eru allir meiddir en þeir Grétar Rafn Steinsson
og Ólafur Ingi Skúlason fengu báðir frí
frá þessu verkefni. Fyrsti leikur liðsins
verður á laugardaginn klukkan
14.00 þegar leikið verður við Hvít-
Rússa. Á mánudaginn verður
leikið við heimamenn á Möltu
og Armenar verða mótherjarnir
miðvikudaginn 6. febrúar.
HANDBOLTI Leit HSÍ að arftaka
Alfreðs Gíslasonar er í fullum
gangi þessa dagana. HSÍ er að
skoða sína valmöguleika um þess-
ar mundir og athuga áhuga þjálf-
ara á starfinu. Eins og fram hefur
komið útilokar HSÍ ekki að ráða
erlendan þjálfara og er þegar
byrjað að þreifa fyrir sér á þeim
vettvangi.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er einn af þeim mönnum
sem HSÍ er að athuga um þessar
mundir Svíinn Magnus Anders-
son. Hann er hluti af gullaldarliði
Svía, gríðarlega öflugur og útsjón-
arsamur miðjumaður. Hann þjálf-
ar danska félagið FCK um þessar
mundir en með því leikur lands-
liðsmaðurinn Arnór Atlason.
Fréttablaðið hafði samband við
Andersson í gær vegna málsins og
hann þvertók með öllu að ræða
málið. Vildi hvorki játa því né
neita að hafa rætt við HSÍ.
Fréttablaðið talaði í gær við
fjölda erlendra þjálfara, sem það
taldi koma til greina hjá HSÍ, um
íslenska landsliðið og hvort HSÍ
hefði haft samband við þá.
Meðal þeirra sem hringt var í
eru fyrrum félagar Andersson úr
landsliðinu - þeir Mats Olsson og
Per Carlén - en þeir höfðu ekki
heyrt í HSÍ og vildu lítið tjá sig um
hvort þeir hefðu áhuga á íslenska
landsliðinu ef til þeirra væri leit-
að. Olsson er að þjálfa portúgalska
landsliðið en Carlén þjálfar Malmö
í Svíþjóð.
„Magnus er stórgóður þjálfari.
Hann er meiri sérfræðingur í
sóknarleik en varnarleik líkt og
hann var sem leikmaður. Hann var
frábær leikmaður og er enn góður.
Það er hálfvandræðalegt þegar
hann er með á æfingum. Hann er
með miklar og góðar pælingar,“
sagði Arnór Atlason, lærisveinn
Anderssons hjá FCK, um þjálfar-
ann sinn.
„Hann er ekki mjög harður
þjálfari. Hann er mikill félagi og
ef ég ætti að segja eitthvað nei-
kvætt um hann þá er það að hann
sé helst til of linur. Hann er ekki
mikill harðstjóri en ég hef samt
ekkert nema gott um hann að
segja.“
Hinn 41 árs gamli Andersson á
ákaflega glæstan feril sem leik-
maður. Hann spilaði 307 landsleiki
fyrir Svíþjóð og skoraði í þeim 922
mörk. Hann varð tvisvar heims-
meistari með Svíum, þrisvar Evr-
ópumeistari og fékk þrjú silfur á
Ólympíuleikunum.
Hans fyrsta þjálfarastarf var
hjá sænska liðinu Drott árið 2001
en hann gerði Drott að meisturum
á fyrsta ári sínu með liðið. Hann
var þar til ársins 2005 er hann fór
til FCK í Danmörku og hver veit
nema hann fari næst til Íslands?
henry@frettabladid.is
Andersson á lista HSÍ
Svíinn Magnus Andersson er á meðal þeirra þjálfara sem HSÍ er með á lista í
leit sinni að arftaka Alfreðs Gíslasonar. Andersson er margreyndur sænskur
landsliðsmaður sem þjálfar Arnór Atlason og félaga í FCK um þessar mundir.
Á FERÐINNI MEÐ LANDSLIÐINU Andersson, sem er einn besti miðjumaður síðustu
ára, sést hér í landsleik með Svíum gegn Frökkum árið 2000. Hann glímir þarna við
annan af betri miðjumönnum síðustu áratuga, Jackson Richardson. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Iceland Express-deild kvk:
Keflavík-KR 97-87
Stig Keflavíkur: Kesha Watson 28, Susanne
Biemer 18, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 14 (7
frák.), Birna Valgarðsdóttir 9, Pálína Gunn-
laugsdóttir 9, Margrét Kara Sturludóttir 5 (9
frák. 5 stoðs.), Ástrós Skúladóttir 2, Rannveig
Randversdóttir 2.
Stig KR: Monique Martin 46 (12 frák.), Sigrún
Ámundadóttir 18 (12 frák.), Guðrún Ámunda-
dóttir 5, Hildur Sigurðardóttir 4 (6 stoðs.), Helga
Einarsdóttir 4, Rakel Viggósdóttir 1.
Grindavík-Haukar 80-66
Stig Grindavíkur: Tiffany Roberson 25 (20
frák.), Petrúnella Skúladóttir 14, Ingibjörg
Skúladóttir 11 (öll í 2. leikhluta), Jovana Lilja Stef-
ánsdóttir 9 (5 stoðs.), Joanna Skiba 7 (11 stoðs.),
Íris Sverrisdóttir 6, Helga Rut Hallgrímsdóttir 4,
Ólöf Helga Pálsdóttir 4 (7 stoðs.).
Stig Hauka: Kiera Hardy 22 (10 frák.), Kristrún
Sigurjónsdóttir 12, Ragna Margrét Brynjarsdóttir
11 (13 frák.), Unnur Tara Jónsdóttir 11, Kristín
Fjóla Reynisdóttir 4, Sara Pálmadóttir 2, María
Lind Sigurðardóttir 2, Ösp Jóhannsdóttir 2.
Enska úrvalsdeildin:
Chelsea-Reading 1-0
1-0 Michael Ballack (32.).
Derby-Man. City 1-1
1-0 Sun Jihai, sjm (46.), 1-1 Daniel Sturridge
(63.).
Everton-Tottenham 0-0
Man. Utd.-Portsmouth 2-0
1-0 Cristiano Ronaldo (10.), 2-0 Cristiano
Ronaldo (13.).
West Ham-Liverpool 1-0
1-0 Mark Noble, víti (90+3).
ÚRSLITIN Í GÆR
FÓTBOLTI KSÍ hefur mikinn áhuga
á að fjölga konum í dómgæslu og
hefur af því tilefni ákveðið að
halda dómaranámskeið eingöngu
fyrir konur. Það er stefna hjá
FIFA að konur dæmi alla kvenna-
leiki á vegum þess
Námskeiðið verður sunnudag-
inn 24. febrúar. Á heimasíðu KSÍ
kemur fram áskorun þar sem
allar konur sem hafa áhuga á
þessum málaflokki eru hvattar til
að mæta. Þær sem hafa áhuga á
að taka þátt í námskeiðinu geta
sent póst á magnus@ksi.is. - óój
KSÍ flautar á konurnar:
Komið að dæma
FÓTBOLTI Fimm leikir fóru fram í ensku úrvals-
deildinni í gærkvöldi. Gott gengi Man. Utd og
Chelsea hélt áfram en Liverpool missteig sig
enn og aftur gegn West Ham.
Það tók Man. Utd ekki langan tíma að afgreiða
Portsmouth. Portúgalska undrabarnið Cristi-
ano Ronaldo kom United yfir eftir aðeins
tíu mínútna leik er hann slapp í
gegnum vörn Portsmouth
og
lagði
bolt-
ann
lag- lega á
nær- stöngina, framhjá David
James, markverði Portsmouth. Aðeins
þrem mínútum síðar skoraði Ronaldo
eitt af mörkum ársins er hann klíndi bolt-
ann í samskeytin beint úr aukaspyrnu.
James gat ekkert annað en fylgst með
og dáðst að skoti Portúgalans.
Hermann Hreiðarsson byrjaði á
bekknum hjá Portsmouth en kom inn í
hálfleik fyrir Sylvain Distin. Ívar Ingimarsson
var í liði Reading sem tapaði fyrir Chelsea en
Brynjar Björn gat ekki spilað vegna meiðsla.
Vonbrigðatímabil Liverpool hélt síðan
áfram en liðið tapaði fyrir West Ham á Upton
Park. Mark Noble skoraði sigurmarkið úr víta-
spyrnu í uppbótartíma eftir að Jamie
Carragher hafði brotið klaufalega á
Freddie Ljungberg - hbg
Fimm leikir í ensku úrvalsdeildinni - Man. Utd og Chelsea gefa ekkert eftir:
Ronaldo sá um Portsmouth
MARK Michael Ballack skorar hér
fyrir Chelsea. Ívar Ingimarsson á
enga möguleika á að stöðva Þjóð-
verjann. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
ÓTRÚLEGUR
Cristiano Ronaldo
afgreiddi Port-
smouth í gær
með tveim lag-
legum mörkum á
þriggja mínútna
kafla. NORDIC PHOT-
OS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Keflavík og Grindavík
unnu bæði örugga sigra í leikjum
sínum í Iceland Express-deild
kvenna í gær og sitja þar með hlið
við hlið á toppi deildarinnar þegar
þau mætast í undanúrslitum
Lýsingarbikars kvenna á sunnu-
dagskvöldið.
Grindavík vann 14 stiga sigur á
Haukum, 80-66, þar sem Grinda-
víkurstúlkur lögðu grunninn að
sigrinum með góðum endakafla á
fyrri hálfleik (enduðu hann 12-3)
og frábærri byrjun á fjórða
leikhluta þar sem Grindavík
breytti stöðunni úr 55-50 í 74-54 á
þremur og hálfri mínútu. Bestar
hjá Grindavíkur voru: Tiffany
Roberson sem fór hamförum í
fyrri hálfleik þar sem hún var
með 17 stig og 15 fráköst (af 25
stigum og 20 fráköstum).
Ingibjörg Jakobsdóttir sem
skoraði 11 stig í öðrum leikhluta
en spilaði aðeins í tvær mínútur
utan hans og Petrúnella Skúladótt-
ir sem skoraði 8 stig á kaflanum í
upphafi lokaleikhlutans.
Haukaliðið virkaði bensínlaust,
Kiera Hardy byrjaði vel og
skoraði 14 stig í 1. leikhluta en
hitti síðan aðeins 4 af síðustu 18
skotum sínum þar sem hún hékk á
boltanum og stoppaði allt flæði í
Haukasókninni sem komst lítið
áfram gegn Grindavík í seinni
hálfleik.
Keflavík vann tíu stiga sigur,
97-87, á KR en Keflavíkurliðið var
með frumkvæðið eftir góðan
sprett í lok fyrsta leikhluta þar
sem liðið skoraði 17 stig gegn 8 og
komst 27-21 yfir. Keflavík var 53-
42 yfir í hálfleik og var komið 22
stigum yfir um miðjan fjórða
leikhluta, 93-71, en KR-liðið lagaði
stöðuna í lokin. Monique Martin
sem setti stigamet þegar hún
skoraði 65 stig í síðasta leik
liðanna skoraði „aðeins“ 46 að
þessu sinni. - óój
Iceland Express-deild kvenna:
Öruggir sigrar
KEYRT AÐ KÖRFU Ólöf Helga Pálsdóttir
sækir hér að körfu Haukastúlkna í gær.
MYND/VÍKURFRÉTTIR