Fréttablaðið - 09.03.2008, Page 14
14 9. mars 2008 SUNNUDAGUR
Þorskeldi getur bjargað mörkuðum
Íslendingar veiða aðeins 130 þúsund tonn af þorski á þessu fiskveiðiári. Dýrmætir markaðir geta tapast ef útflutningur á þorsk afurðum
eykst ekki. Aðrar hvítfisktegundir fylla skarð þorsksins á mörkuðum. Norðmenn ætla að ná markaðsráðandi stöðu með þorskeldi upp á
hundruð þúsunda tonna. Kína, Chile og Víetnam taka risaskref í fiskeldi og selja afurðir sínar að hluta á mörkuðum í Evrópu. Íslenskir
eldismenn og sjávarútvegsráðherra telja að þorskeldi á Íslandi verði að auka strax ef Íslendingar ætla ekki að missa af lestinni.
FJÓRÐA GREIN AF FIMM
Á morgun:
Þorskeldi með augum sjávarút-
vegsráðherra Noregs og Íslands
FRÉTTASKÝRING
SVAVAR HÁVARÐSSON
svavar@frettabladid.is
Santiago
CHILE
Heimsviðskipti með sjávarafurðir og
eldisfisk námu alls 71,5 milljörðum
Bandaríkjadala árið 2006. Hefur
veltan aldrei verið meiri og aukningin
frá árinu 2000 er 23 prósent.
Gríðarlegur vöxtur hefur verið í fiskeldi
í heiminum hin síðari ár og er áætlað
að 60 milljónir tonna af eldisfiski og
sjávardýrum úr eldi séu nú framleidd
árlega. Á árinu 1990 stóð fiskeldið fyrir
níu prósentum af þeim afurðum sem
fóru til manneldis en nú er hlutfallið
komið upp í 43 prósent. Heildarmagn
af sjávarafurðum og afurðum úr eldi
í fyrra er talið hafa numið um 150
milljónum tonna. Þetta svarar til þess
að um þriðjungur alls sjávarfangs og
fiskmetis komi frá fiskeldi.
Flestir helstu nytjastofnar heims eru
fullnýttir eða ofveiddir og því ljóst
að veiði mun ekki aukast meira en
komið er. Fólksfjöldi í heiminum
hefur á síðustu árum aukist hraðar
en framboð á fiski og hefur meðal-
fiskneysla í heiminum því heldur
minnkað á heimsvísu. FAO, Matvæla-
og landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna, spáir því að eftirspurn
eftir matfiski muni aukast um 20-30
milljónir tonna á næstu 10 árum og
telur einnig að sú neysla muni að öllu
óbreyttu koma úr fiskeldi svo og betri
nýtingu á þeim sjávarafla sem nú er
veiddur. Árið 2030 verði eldisfiskur
meirihlutinn af fiskneyslu jarðarbúa.
Fiskeldi í heiminum Villtir fiskstofnar
Frakkland
Danmörk
Spánn
Belgía
Bretland
Holland
Önnur ríki
Markaðir fyrir íslenskan
ferskan þorsk:
85%
7%
5%
3%
31%
18%15%
11%
8%
6%
11%
Markaðir fyrir norskan
eldisþorsk:
KANADA
Nýfundnaland
St. John´s
Markmið Kanadamanna í þorskeldi er
að ná 33 þúsund tonna framleiðslu
á árinu 2013 og framleiðslu á 9,5
milljónum seiða árlega. Horft er til
Bandaríkjamarkaðar þar sem meiri
kaupgeta er en annars staðar í heim-
inum. Neysla þorsks þar er um 150
þúsund tonn á ári og fer minnkandi.
Beitarfiskur hefur tekið yfir hluta
markaðarins þess vegna.
Engin þjóð getur afgreitt eldisfisk
hraðar inn á markaðinn og tryggt
þannig gæði.
Bandaríkin
Sex milljónir tonna
af sjávarfangi eru
seldar í USA á ári.
27% fleiri borða fisk
en fyrir fimm árum
59% borða fisk 1-2
í viku
74% líta á fisk sem
heilsufæði
Fréttaskýring: Þorskurinn er næsta eldisævintýri 4. hluti
Kína
Ef spár ganga eftir munu
Kínverjar framleiða um 70
milljónir tonna af eldisfiski árið
2030.
Fiskneysla í heiminum óx
um 21 prósent á tímabilinu
1992-2002, eða úr 13,1 kg á ári
á hvern íbúa árið 1992 í 16,2
kg á árið 2002. Þessi aukning
kemur nánast öll frá Kína.
Ef Kína er undanskilið þá
stendur fiskneysla í heiminum í
stað þessi ár og er að meðaltali
13,2 kg/ári árið 2002.
325 tegundir fiska eru aldar í
heiminum. Yfir milljón tonna er
framleidd af 14 tegundum. Innan
við 1.000 tonn eru framleidd af
helmingi þessara tegunda.
Víetnam
Vatnasteinbítur er eldisfiskur
sem aðallega berst inn á evr-
ópska markaðinn frá Víetnam.
Víetnam er talinn stærsti
innflytjandinn á hvítfiski á Evr-
ópumarkaðinn með um 600
þúsund tonn á ári. Framboð af
þorskflökum frá öllum þjóðum
á sama markaði er um 400
þúsund tonn.
350
300
250
200
150
100
50
0
2003 2004 2005 2006 2007
Útflutningur frá Víetnam til Evrópu
x
10
00
to
nn
Vatnasteinbítur
Brasilía
Mikil uppbygging á sér
stað í fiskeldi í Brasilíu og
þar í landi veðja stjórn-
völd á að beitarfiskurinn
geti orðið þeirra helsta
útflutningsafurð á sviði
sjávarútvegs.
Bretland
Í Bretlandi eru þrjár seiðaeldis-
stöðvar sem framleiða seiði fyrir
matfiskaeldi.
Framleiðslan var um tvær millj-
ónir seiða árið 2005.
Stærsta fyrirtækið, Johnsons
Seafarms á Hjaltlandseyjum, sem
hefur verið leiðandi í matfiskaeldi á
þorski, er nú í miklum erfiðleikum
sem hefur áhrif á áætlanir Breta.
Í Bretlandi öllu voru uppi
áætlanir um að framleiðslan yrði
innan 20 ára komin upp í 30
þúsund tonn.
Noregur
Ísland
1
9
8
6
1
9
8
7
1
9
8
8
1
9
8
9
1
9
9
0
1
9
9
1
1
9
9
2
1
9
9
3
1
9
9
4
1
9
9
5
1
9
9
6
1
9
9
7
1
9
9
8
1
9
9
9
2
0
0
0
2
0
0
1
2
0
0
2
2
0
0
3
2
0
0
4
2
0
0
5
2
0
0
6
*
2
0
0
7
*
* Estimat * Estimate
Noregur Rússland ESB Ísland N-Ameríka Aðrir
x 1000 tonn
Þorskafli i N-Atlantshafi 1986 - 2007
2000
1600
1200
800
400
0
Beitarfiskur
Beitarfiskur gæti í framtíðinni reynst skeinuhættur keppi-
nautur eldisfisks á Evrópumarkaðnum og víðar. Nú
er farið að tala um beitarfiskinn sem ,,kjúkling
hafsins”.
Beitarfiskur er sú fisktegund sem mest er
framleidd af í fiskeldi í heiminum í dag. Mest
er framleitt í Kína og Egyptalandi.
Beitarfiskur borðar gras en ekki aðra
fiska. Á meðan það þarf fjögur kíló af
uppsjávarfiskum til þess að framleiða hvert
kíló af eldislaxi þá þarf átta kíló af grasi til
þess að framleiða hvert kíló af beitarfiski.
Fiskurinn er hlýsjávarfiskur og hann vex
mjög hratt við rétt skilyrði. Hann þolir vel
súrefnissnautt vatn. Það opnar möguleikana
fyrir gríðarlegt eldi við skilyrði sem ekki væri
hægt að bjóða nokkurri annarri fisktegund í eldi.
Til marks um aðlögunarhæfni beitarfisksins má
nefna að hann hefur verið sendur út í geiminn og
þreifst þar vel þrátt fyrir þröngan kost.
G
R
A
FÍK / JÓ
N
A
S U
N
N
A
R
SSO
N
Chile
Í Chile sé verið að athuga með möguleika eldis á Atlantshafs-
þorski en þar eru taldar hinar ákjósanlegustu aðstæður fyrir
þorskeldi í sjókvíum.
Eftir mikinn vöxt í laxeldi í Chile stóðu framleiðendur þar í
landi fyrir 38 prósentum af heimsframboðinu af eldislaxi og
eldissilungi árið 2006. Aðeins Norðmenn stóðu þeim þá framar.
Heildarframleiðsla af Atlantshafslaxi í Chile er rúmlega 400
þúsund tonn. Í Chile standa eldislax og -silungur fyrir 25 prósent-
um af útflutningsverðmætum allra matvæla.
(H
EIM
ILD
: FISH
STAT PLU
S, FA
O
)
Heimsafli og heildar-
framleiðsla úr fiskeldi
í milljónum tonna á
tímabilinu 1950-2005
160
140
120
100
80
60
40
20
0
Fiskeldi
Veiðar
1950 1960 1970 1980 1990 2000