Fréttablaðið - 22.03.2008, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 22.03.2008, Blaðsíða 72
56 22. mars 2008 LAUGARDAGUR utlit@frettabladid.is DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA Anna Margrét Björnsson > TÍSKUFRÉTTIR VIKUNNAR Fimmta lína Kate Moss fyrir Top Shop Fyrirsætan Kate Moss hefur hann- að sína fimmtu fatalínu fyrir bresku tískukeðjuna Top Shop. Nýja línan er innblásin af ferðum Moss til Indlands, Ibiza og Miami og er eins konar blanda af hippatísku og lúxus. Meðal fatnaðarins má finna silkikjóla og blússur með Astekamynstri, blúnduskokka og kjóla í „twent- ies“ stíl og síð fín pils fyrir kvöldið. LOMO myndavél til að fanga öll augnablik páskanna á meira „ avant-garde“ hátt en með digital-vélinni. Fæst í Hans Petersen. Glanskremið „Ombre Glacé“ frá Lancome sem lífgar upp á kinn- bein, enni og augnlok. Miuccia Prada segist alltaf hafa hatað blúndur en ákvað að storka sjálfri sér og byggja alla línu næsta veturs á þessu kvenlega efni. „Þetta er jú efnið sem allar konur nota á mikilvægustu augnablikum ævi sinnar,“ sagði hún að lokinni sýningu fyrir veturinn 2008 í Mílanó. „Konur klæðast blúndum þegar þær eru skírðar, giftar og í jarðarförum.“ Fleiri ítalskir hönnuðir léku sér með blúndur, þar á meðal Dolce & Gabbana, Etro, Allessandro dell Aqua og La Perla og útkoman var hreint unaðsleg - kvenlegt, sexý og klassískt. -amb ÍTALSKIR HÖNNUÐIR SÆKJA Í ÍTALSKAR HEFÐIR Dásamlegar blúndur EINFALT Fallegur blúnduskokkur með skærappelsínugulum klút í hálsinn hjá Prada fyrir vetur 2008. KÁPA Dásamlega falleg síð kápa með belti í mitt- ið frá Dolce et Gabbana fyrir haust/vetur 2008. KVENLEGT Svartur blúndukjóll með mjaðmastykki frá Prada. GAMALDAGS Klassískur blúndukjóll með stuttum ermum frá Prada. FJAÐRIR Kvenleg blóm, fjaðrir, silki og svört blúnda hjá Etro fyrir vetur 2008. Eins og mörgum öðrum krökkum leiddist mér föstudagurinn langi alltaf óskaplega mikið. Þá var lítið hægt að hafa fyrir stafni og foreldrarnir gerðu mann þunglyndan með sorglegum sálumessum á fóninum. Á páskunum fékk ég oft marsípangrís að þýskum sið (bjó þar í nokkur ár) og tímdi aldrei að borða hann. Ég vorkenndi honum alltaf svo mikið eftir að hafa bitið af honum rófuna að grísinn fékk bara að dúsa inni í skáp þar til næstu páskar komu og mamma fann hann uppþornaðan og henti honum í ruslið. Páskar hafa alltaf verið tengdir einhvers konar annarlegu hugar- ástandi hjá mér. Svona ofgnótt af fríi, sorg, nammi, leiðinlegum fermingar- veislum og gulum lit, allt í einum graut. Gulur litur hefur nefnilega alltaf farið í taugarnar á mér. Meira að segja þegar ég var lítil stelpa fannst mér þetta gula ungaflóð á vorin ekkert sérstaklega smart og hreinlega fara verulega illa með flestu. Ég hef aldrei keypt það þegar tískuhúsin æpa „ Gult, gult“ annað slagið. „Neu rave“-tískan og neongult síðasta sumar fór alveg með mig. Ég verð hreinlega að viðurkenna að mér hefur alltaf þótt gulur litur alveg viðurstyggilegur. Mér finnst hann vemmilegur og óklæðilegur. Samt get ég auðvitað dáðst að honum á öðrum konum sem bera hann. Gulur á jú að vera litur hamingjunnar, hann er hlýr og sérlega áberandi. Áberandi já. Svona dálítið eins og viðvörunarskilti. Og það er einmitt kannski punkturinn í þessu hjá mér, sumar konur vilja kannski líta út eins og viðvörunarskilti en aðrar ekki. Samt er gulur litur sólarinnar og vorsins og á að færa manni innri hlýju og vellíðan. Krakkar eru sætir í gulu. Í sumar verður gult áberandi hjá mörgum tískuhúsum þar sem hippalúkkið er allsráðandi en gulur er auðvitað einn af þessum skynörv- andi litum ásamt bláum, grænum og brúnum. Ég gerðist af einhverjum ástæðum svo frökk að kaupa heiðgulan stuttan batik-kjól úti í Tógó í febrúar þegar Afríkusólin brenglaði allt mitt innra litaskyn. Kjóllinn er dásamlegur en ég á örugglega aldrei eftir að fara í hann. Því meira að segja páskaliljur fara í taugarnar á mér. Þær gera nákvæmlega ekkert fyrir heimili mitt nema að vera algerlega út úr sétteringu við innbúið og svo er líka vond lykt af þeim. Nú kann einhverjum að þykja þetta einstaklega ópáskalegt og geðvonskulegt en ég hef bara sætt mig við það að gulur hefur aldrei og mun aldrei verða minn litur. Við nánari athugun er þessi neikvæðni mín út í gula litinn kannski ekkert svo klikkuð. Á miðöldum var guli liturinn litur dauðans, og í Egyptalandi ber fólk ennþá gul klæði til að votta hinum látnu virðingu sína. Tengingin við dauðann er ef til vill önnur augljós ástæða þess að við berum þennan lit á páskum auk þess að fagna hækkandi sól. Gulur litur hefur nefnilega neikvæða merkingu í vissum löndum og táknar stundum meira að segja bleyðuhátt. Svo hefur til dæmis hugtakið „gula pressan“ ekkert sérlega jákvæða merkingu. Á páskum skreyti ég mitt heimili með krókusum og vott af uppáhaldslitnum mínum, grænum. (Að undan- teknu páskaskrauti búnu til af ungviðinu sem er auðvitað bara krúttlegt). Ég veit að þessi fýla mín út í gula litinn er bara einhver meinloka í mér. Get því mælt eindregið með því að smekkvíst fólk noti gula litinn óspart ásamt til dæmis fjólubláum, ólífugrænum, brúnum eða appelsínugulum. Næsta haust eru til dæmis karrígular sokkabuxur aðalmálið og þá við einhvern af ofangreindum litum. Eins er ég fullviss um að karrígulir púðar myndu poppa upp hvaða heimili sem er. Bara ekki mitt. Með ofnæmi fyrir gulu Dásamlega vorlegt og gam- aldags nærfatasett í „pinup“ stíl frá Systrum, Laugavegi. BLÁTT Skemmtileg blanda af settlegri karlmannlegri bómull- arskyrtu og svörtum blúndum frá Prada. OKKUR LANGAR Í …
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.