Fréttablaðið - 22.03.2008, Blaðsíða 77
LAUGARDAGUR 22. mars 2008 61
Chicago-rapparinn Wasalu
Muhammad Jaco eða Lupe Fiasco
eins og hann kallar sig er einn af
efnilegustu nýliðunum í banda-
rísku rappi síðustu ár. Hann á að
baki margar mix-snældur og neð-
anjarðarútgáfur en hann sló ekki í
gegn fyrr en með fyrstu plötunni
sinni fyrir Atlantic-plötufyrirtæk-
ið, Food & Liquor, sem kom út
haustið 2006 og hlaut m.a. þrjár
Grammy-tilnefningar. The Cool er
plata númer tvö. Hún kom út í
Bandaríkjunum um miðjan desem-
ber en í Evrópu fyrir nokkrum
vikum.
Tónlist Lupe er frekar poppuð
og textarnir eru skemmtilegir.
Lupe er góður sögumaður og
eflaust einn af efnilegustu nýju
rímnasmiðunum vestanhafs. Lagið
Superstar sem hann flytur með
aðstoð Matthews Santos hefur
notið mikilla vinsælda enda sér-
lega grípandi. Það eru samt mörg
flottari lög á The Cool, t.d. Hi-
Definition sem Snoop Dogg rapp-
ar í, Hip-Hop Saved My Life og
The Coolest.
The Cool er á heildina litið frísk-
legt innlegg í bandaríska rappið
sem er reyndar í hálfgerðri lægð
þessi misserin. Platan nær samt
engan veginn að halda athyglinni í
þessar sjötíu mínútur sem hún
varir og Lupe verður að gera betur
næst ef hann ætlar halda sig í
framlínunni. Það verður gaman að
fylgjast með honum í framtíðinni
og líka spennandi að sjá hvort
hljómsveitin sem hann stofnaði
með Kanye West og Pharrell Willi-
ams, Child Rebel Soldier, sendir
frá sér plötu. Trausti Júlíusson
Efnilegur rímnasmiður
TÓNLIST
The Cool
Lupe Fiasco
★★★
Ein helsta vonarstajarna bandaríska
rappheimsins fylgir eftir afburðaplöt-
unni Food & Liquor með frísklegri en
nokkuð misjafnri plötu.
Heather Mills fékk 23,4 milljónir
punda út úr skilnaði þeirra Pauls
McCartneys í vikunni. „Þetta er
dágott tímakaup hjá henni, hvað
voru þau lengi saman, 3-4 ár?“
spyr Jón Ólafsson, einn af
fjölmörgum aðdáendum Pauls
McCartney á Íslandi. Það þarf
ekki að spyrja að því með
hverjum hann er í liði. „Þetta er
vel af sér vikið hjá henni
fjárhagslega. Maður spyr sig
hvort þetta hafi verið undirbúið
hjá henni frá byrjun?“ bætir
hann við, þungur á brún.
Jón æfir nú upp stórskotalið
poppara sem ætlar að spila Sgt.
Peppers í heild sinni auk
annarra Bítlalaga með Sinfóní-
unni á tvennum tónleikum í
Háskólabíói í dag. Jón segir
æfingar ganga vel. „Þetta er
farið að hljóma mjög vel enda
hafa menn unnið heimavinnuna
sína. Hljóðheimur Sgt. Peppers
er náttúrulega alveg einstakur
svo stór hluti af vinnunni er að
finna réttu sándin. Í morgun var
til dæmis allt vaðandi í búfénaði
á æfingu, hanagali og geltandi
hundum. Það verða öll smáatriði
á hreinu.“
Tónleikarnir hefjast kl. 17 og
21 og enn eru til miðar.
Hanagal á Bítlaæfingu
DÁGOTT TÍMAKAUP HJÁ HEATHER Jón
Ólafsson er í liði með Paul McCartney.
Á ÞRIÐJUDAGINN
FJÖLGAR ÍSLENSKUM
MILLJÓNAMÆRINGUM
UM 30