Fréttablaðið - 22.03.2008, Blaðsíða 74
58 22. mars 2008 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Eftir páska verður verkið Engi-
spretturnar frumsýnt í Þjóðleik-
húsinu en það er Þórhildur Þor-
leifsdóttir sem leikstýrir. Pálmi
Gestsson leikari þarf að ganga í
gegnum mikið umbreytingarferli
en í verkinu er hann hommi sem
gengst undir lýtaaðgerð.
„Nei, það má til sanns vegar færa,“
segir Pálmi Gestsson stórleikari en
hann á ekki sjö dagana sæla í sminku-
herbergi Þjóðleikhússins. Þar fara
fagmenn um hann höndum og afmynda
í þágu listarinnar.
„Þetta er eina lýtaaðgerðin sem ég
hef farið í. Í Engisprettunum leik ég
lækni sem jafnframt er hommi. Hann
er kominn þetta um fertugt og finnst
hann ekki eiga glæsta daga fram undan.
Og fer því í lýtaaðgerð. Sem þýðir að
nota þarf á mig, vestfirska tröllið og hið
veðurbarða nautshúðarandlit, slípur-
okk, grófan sandpappír og teppalím-
band,“ segir Pálmi. Og dregur ekki úr
því nema síður sé að þetta sé töluvert
álag. Er þá mikið sagt því Pálmi, sem
leikari bæði á sviði, í kvikmyndum og
sjónvarpi á áratuga reynslu að baki
sitjandi í stól sminkunnar þar sem
honum hefur verið breytt í allra
kvikinda líki.
En hvað segir Dillý um þessi ósköp?
(Sigurlaug Halldórsdóttir, eiginkona
Pálma.)
„Jahh, hún ætlar ekki til sama læknis
og ég. Það er ábyggilegt. Skurðlæknir
sem Guðrún Gísladóttir leikur er
vinkona þessa manns. Hún hefur lofað
að gera þetta ókeypis fyrir hann í
sumarfríinu. Og hann Freddy, en það
heitir persónan, segir að hún sé ljót og
leiðinleg kerling á breytingaskeiðinu.
En mjög flink. Ég held að hún sé nú
ekki mjög flink þegar allt kemur til alls.
Það verður engin sérstök hamingja með
afraksturinn.“
Pálmi segir verkið sérdeilis frábært
en það er eftir Biljana Srbljanovic. „Já,
serbneska konu á miðjum aldri. Og kom
mér svona líka skemmtilega á óvart.
Ekki að serbneskar konur á miðjum
aldri geti ekki verið skemmtilegar. Ég
er ekki að segja það. En... hvar var ég?
Já, þetta er „all-star cast“ og verður
frábær sýning,“ segir Pálmi.
jakob@frettabladid.is
Pálmi Gests afmyndast í lýtaaðgerð
PÁLMI GESTSSON SEM AFMYNDAÐUR HOMMI
Eftir að sminkurnar hafa farið um hann höndum er Pálmi Gestsson ófélegur að sjá.
Pálmi hefur aldrei upplifað annað eins og er þó ýmsu vanur eftir að hafa verið breytt í
allra kvikinda líki í gegnum tíðina.
Fyrsta plata trúbadorsins Gústa
Hraundal, Sýn, er komin út.
Á plötunni nýtur Gústi aðstoðar
þeirra Mána Hraundal, Jóns Kr.
Guðjónssonar og Ágeirs Óskars-
sonar.
Gústi hefur grúskað í tónlist
lengi og spilað með fjölda
hljómsveita. Frægust þeirra er
vafalítið pönksveitin goðsagnar-
kennda Sjálfsfróun. Textar
plötunnar er einlægir þar sem
Gústi segir frá ýmsu sem á daga
hans hefur drifið.
Fyrsta platan
frá Gústa
GÚSTI HRAUNDAL Gústi Hraundal hefur
gefið út sína fyrsta sólóplötu.
Fjöldi listamanna kemur fram á
hátíðinni Electric Ethics (Red
Symphony-Live) sem verður
haldin á skemmtistaðnum Organ í
dag á vegum Nýju samvinnu-
hreyfingarinnar.
Hljómsveitirnar Gjöll, Klive,
Bacon, Inferno 5, Digital Mad-
ness og Stereo Hypnosis stíga þar
á svið ásamt Snorra Ásmunds-
syni, Peter Mlakar frá Slóveníu
og Dj Magga Lego. Nýja sam-
vinnuhreyfingin stóð síðast fyrir
tónleikum hljómsveitarinnar
Laibach sem voru haldnir
hérlendis sama mánaðardag. 22.
mars, fyrir tveimur árum. Organ
verður opnað klukkan 20 í kvöld
og er miðaverð 1.500 krónur.
Rafræn hátíð
STEREO HYPNOSIS Hljómsveitin Stereo
Hypnosis spilar á Organ í kvöld ásamt
fleirum.
Frumsýningardegi Quantum Solace, nýjustu
myndarinnar um njósnara hennar hátignar, James
Bond, hefur verið flýtt um eina viku. Myndina átti
upphaflega að sýna sjöunda nóvember en verður nú
á hvíta tjaldinu 31. október.
Upptökur á myndinni hafa staðið yfir í Panama og
í eyðimörk í Kaliforníu. Breska Bond-stúlkan Gemma
Arterton segist hafa skemmt sér vel við tökurnar.
„Það var frábært að starfa á götum Panama vegna
þess að maður fann hvernig það er að búa þarna í
raun og veru,“ sagði hún.
Flýtt um eina viku
> DÆMIR Í FEGURÐAR-
SAMKEPPNI
Heather Mills verður dómari
í keppni um Ungfrú Bandarík-
in. Keppnin fer fram í Las Vegas
11. apríl. Heather fékk fyrr í
vikunni tæpa fjóra milljarða
vegna skilnaðar síns og Pauls
McCartney.