Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 2
2 10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
Kristófer, ertu ekki í stuði?
„Ég er í miklu stuði, en með lágum
straumi.“
Kristófer Helgason, útvarpsmaður á
Bylgjunni, flytur inn rafbyssur fyrir lögregl-
una. Til að læra á rafbyssur fór hann á
námskeið í Bandaríkjunum þar sem hann
var skotinn með rafbyssu til að þekkja
virkni hennar.
DÓMSMÁL Færeyska lögreglan
gerði ítarlega leit í fyrrinótt í
fangaklefa sem Guðbjarni Trausta-
son Pólstjörnufangi dvaldi í í Fær-
eyjum, meðan hann bar vitni í
máli Íslendingsins sem nú er fyrir
dómi vegna sama máls. Einangr-
unarvist yfir íslenska manninum
var aflétt síðdegis í gær, en hann
er enn í gæsluvarðhaldi þar til
dómur hefur gengið í málinu.
Ástæða leitarinnar var sú að
grunur vaknaði um að Guðbjarni
væri með gögn úr Pólstjörnumál-
inu meðferðis, þar á meðal gögn
sem send höfðu verið frá lögregl-
unni í Færeyjum til starfsbræðra
hér á landi vegna rannsóknar
málsins. Í Færeyjum er ekki heim-
ilt að sakborningur né vitni hafi
slík gögn undir höndum, einungis
verjandi sakbornings meðan á
rannsókn og málflutningi stendur.
Lögregla spurði Guðbjarna í fyrra-
kvöld hvort hann væri með
umrædd gögn undir höndum.
Þegar hann gaf ekki út á það var
ákveðið að leita í klefa hans. Hann
var svo kallaður fyrir dóm aftur í
gærmorgun, eftir að gögnin fund-
ust. För hans til Íslands seinkaði
af þeim sökum. Saksóknari ítrek-
aði við Guðbjarna og færeyska
kviðdóminn að hann hefði ekki
aðhafst neitt saknæmt með þessu,
því enginn hefði sagt honum að
varsla skjalanna væri óheimil
ytra.
Í klefa hans fannst einnig tölva,
sem hann hafði ekki fengið leyfi
fyrir. - jss
Tóku málsgögn úr Pólstjörnumálinu og tölvu af íslensku vitni:
Lögregluleit í klefa Guðbjarna
FÆREYJAR Ungi Íslendingurinn var leyst-
ur úr einangrun síðdegis í gær.
LÖGREGLUMÁL Starfsmenn
efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjóra eru nú fjórtán en voru
sautján í byrjun þessa árs.
Guðmundur Guðjónsson hjá
ríkislögreglustjóra staðfesti þetta
við Fréttablaðið í gær.
Hann segir í tölvubréfi til
Fréttablaðsins að starfsemi
embættis ríkislögreglustjóra tæki
breytingum eftir verkefnaþörfum
á hverjum tíma og staðan væri
þessi nú. Starfsmenn greiningar-
deildarinnar eru fjórir nú en voru
sex í byrjun ársins.
Helgi Magnús Gunnarsson,
saksóknari efnahagsbrota, hefur
margsinnis talað fyrir því
opinberlega að brýn þörf væri á
því að fjölga starfsmönnum í
deildinni mikið. Ekki náðist í
hann í gær. - mh
Efnahagsbrotadeild:
Starfsmönnum
fækkað um þrjá
UMFERÐ „Það hefur verið einhver
verndarengill með þeim en hann
hefur því miður ekki verið alltaf
með fólki,“ segir Björgvin Hall-
dórsson, faðir söngkonunnar Svölu
sem slasaðist ásamt fimm öðrum í
hörðum árekstri í gær.
Svala og aðrir meðlimir Steed
Lord enduðu á slysadeild eftir að
bíll rafhljómsveitarinnar lenti í
árekstri við annan fólksbíl á
Reykjanesbraut á móts við afleggj-
arann að Vogum um klukkan hálf-
sjö í gærmorgun. Með í för var
sjónvarpsupptökustjórinn Egill
Eðvarðsson sem er faðir þriggja
bræðra sem eru í hljómsveitinni.
Bíll fimmmenningana lenti
harkalega inn í hlið bíls sem sner-
ist skyndilega á veginum. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni á Suðurnesjum er talið að
ökumaðurinn hafi misst stjórn á
honum vegna hálku og krapa sem
var á veginum. Allir sex sem voru
í bílunum voru fluttir á sjúkrahús.
Þau munu öll hafa verið í bílbelt-
um.
Svala og unnusti hennar, Einar
Egilsson, voru enn í gærkvöld á
gjörgæsludeild Landspítalans auk
ökumanns hins bílsins. Svala mun
vera með marða lifur og brotin
rifbein. Einar gekkst undir aðgerð-
ir í gær vegna innvortis blæð-
inga.
„Það eru æðislegir fagmenn
sem annast þau,“ segir Björgvin
um þá umönnun sem Svölu og
félögum var veitt á Landspítalan-
um í gær. Steed Lord var að fara
til Keflavíkurflugvallar á leið til
tónleikahalds á erlendri grundu.
Truflanir hafa verið um langa
hríð á umferð vegna framkvæmda
á Reykjanesbraut. Eftir slysið í
gær tilkynnti Vegagerðin um að
þar yrði aukið við merkingar sem
aðskilja akreinar í gagnstæðar
áttir. Björgvin segir ekki nóg að
hlaupið sé til núna til að bæta
merkingar.
„Það fór betur en á horfðist í
þetta skipti en þeir þurfa að fá að
finna til tevatnsins þessir menn
sem bera ábyrgð á þessu. Ástand-
ið er búið að vera svona í allan
vetur − eins og hann er nú búinn
að vera − og hvert slysið hefur
rekið annað,“ segir Björgvin sem
vill að strax verði brugðist við:
„Ég veit ekki hvað þarf að gera
en það þarf að drífa í þessu. Sjálf-
ur hef ég keyrt þetta oft og veit
stundum ekki hvort ég er úti í
hrauni eða á veginum.“
gar@frettabladid.is
Björgvin segir engil
hafa verndað Svölu
Svala Björgvinsdóttir og Einar Egilsson unnusti hennar úr hljómsveitinni Steed
Lord fengu innvortis áverka í bílslysi í gær. Ökumaður annars bíls slasaðist tölu-
vert. Björgvin Halldórsson, faðir Svölu, gagnrýnir frágang Reykjanesbrautar.
BJÖRGVIN, SVALA OG EINAR Svala Björgvinsdóttir ásamt unnusta sínum Einari Egils-
syni og föður sínum Björgvini Halldórssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Á SLYSSTAÐ Eins og sést var áreksturinn
harður og aðstæður slæmar.
MYND/VÍKURFRÉTTIR
Páll Lýðsson, sagnfræðingur
og bóndi, lést í fyrradag af
slysförum. Hann var 71 árs að
aldri.
Páll fæddist
í Litlu-Sandvík
í Flóa 7.
október 1936.
Hann lauk
stúdentsprófi
frá Mennta-
skólanum að
Laugarvatni
árið 1956 og BA-prófi í
íslenskum fræðum frá Háskóla
Íslands 1959. Hann var
afkastamikill sagnfræðingur
og skrifaði fjölda bóka.
Páll lætur eftir sig eigin-
konu, Elínborgu Guðmunds-
dóttur. Þau eignuðust fjögur
börn.
Páll Lýðsson
látinn
KÓPAVOGUR Engin tillaga sem
barst inn í samkeppni um hönnun
óperuhúss í Kópavogi uppfyllti
markmið keppninnar nægjanlega
vel, að mati dómnefndar. Tvær
tillögur af þremur þóttu bjóða
upp á áhugaverðar lausnir sem
með áframhaldandi vinnu gætu
fullnægt kröfum keppninnar, og
verður því haldin framhalds-
keppni sem mun ljúka innan
tveggja mánaða.
Arkitektastofurnar tvær sem
taka þátt í framhaldskeppninni
eru ALARK arkitektar og
Arkþingi ehf. Formaður dóm-
nefndar er Gunnar I. Birgisson
bæjarstjóri. - kg
Óperuhús í Kópavogi:
Engin tillaga
þótti nógu góð
KÁRAHNJÚKAR Síðasti risaborinn,
sem notaður hefur verið við
heilborun aðrennnslisganga við
Kárahnjúkavirkjun, var stöðvaður
í gær eftir að hann braust í
gegnum síðasta haftið.
Rétt ár er frá því borinn tók að
snúast í Jökulsárgöngum, þrettán
kílómetra hliðargöngum sem
tengja Jökulsá á Fljótsdal við
aðalgöngin frá Hálslóni og Jökulsá
á Dal. V Að sögn Sigurðar
Arnalds, talsmanns Landsvirkjun-
ar vegna Kárahnjúkavirkjunar
kom borinn í gegn á nákvæmlega
réttum stað rétt fyrir tólf á hádegi
í gær. „Síðan verður borinn tekinn
í sundur, fluttur á Reyðarfjörð og
ekki annað vitað en hann fari úr
landi,“ segir Sigurður. Gert er ráð
fyrir að vatni verði hleypt á
göngin um mitt sumar. - ovd
Í gegn í Jökulsárgöngum:
Síðasti risabor-
inn stöðvaður
ÁHÖFN BORSINS Borstjórinn Li Er Bao er
hér þriðji frá vinstri ásamt áhöfn sinni á
risabornum. MYND/ATLI RÚNAR HALLDÓRSSON
SUÐUR-KÓREA, AP Hægrimenn í Suður-Kóreu lýstu
yfir sigri í þingkosningum sem fram fóru í landinu
í gær. Forsvarsmenn Stóra þjóðarflokksins, flokks
Lees Myung-bak forseta, sögðu flokkinn hafa náð
hreinum þingmeirihluta og þar með fengið ótvírætt
umboð til að hrinda umbótastefnu sinni í fram-
kvæmd.
Lee, sem er fyrrverandi borgarstjóri Seúl og
forstjóri hjá Hyundai, var kjörinn í embætti með
miklum meirihluta atkvæða í febrúar síðastliðinn,
en bæði sigur hans í forsetakosningunum og flokks
hans nú í þingkosningum er álitið endurspegla hve
miklar vonir kjósendur binda við að Lee sé fær um
að snúa gangi efnahagslífsins til betri vegar og að
bjóða kommúnistastjórninni í Norður-Kóreu
birginn.
Samkvæmt spá ríkissjónvarpsstöðvarinnar KBS
byggðri á útgöngukönnunum og tölum úr talningu á
drjúgum hluta atkvæða fær flokkur Lees 152 af 299
þingsætum, en það mun gera honum auðveldara um
vik að koma í gegn lögum sem ætlað er að gera
stjórnsýsluna skilvirkari og fækka reglum og
álögum sem íþyngja viðskiptalífinu. - aa
Þingkosningar fóru fram í Suður-Kóreu í gær:
Hægrimenn lýsa yfir sigri
FYLGST MEÐ Vegfarendur í jarðlest í Seúl fylgjast með kosn-
ingasjónvarpi í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÉLAGSMÁL Velferðarráð Reykja-
víkurborgar samþykkti á fundi
sínum í dag að bæta við fjórum
gistiplássum í Gistiskýlinu.
Gistiskýlið er ætlað heimilis-
lausu fólki sem hvergi á höfði
sínu að halla. Í skýlinu er nú
pláss fyrir sextán einstaklinga.
Undanfarið hefur þurft að vísa
einstaklingum frá vegna
plássleysis og hefur því verið
ákveðið að fjölga gistiplássum
um fjögur til að leysa brýnasta
vandann. - shá
Gistiskýli fyrir heimilislausa:
Plássum fjölgað
um fjögur
STJÓRNMÁL Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálráðherra
stefnir að því að nýtt frumvarp um
fjölmiðla verði fullbúið á Alþingi í
haust. Þetta kemur fram í máli
Karls Axelssonar hæstaréttarlög-
manns sem flytur í dag erindi á
málþingi um nýja sjónvarpstilskip-
un frá EES.
Karl mun þar skýra frá því að
við vinnslu frumvarpsins „verði
eftir föngum tryggt að nægilegt
samráð verði haft við hagsmunaað-
ila í greininni sem og aðra þá sem
um fjölmiðlamál véla,“ eins og
segir í kynningu Karls. Segir hann
að velja eigi „það besta“ úr
tillögum þverpólitískrar nefndar
sem skilaði skýrslu í apríl 2005. - gar
Stefna menntamálaráðherra:
Haustfrumvarp
um fjölmiðlana
TÓNLIST Tónlistarmyndband við
nýjasta lag hljómsveitarinnar
Merzedes Club komst alla leið
upp í áttunda sæti yfir mest
skoðuðu tónlistarmyndböndin á
hinni vinsælu netsíðu YouTube í
gærkvöldi.
Myndbandið, sem er við lagið
Meira frelsi, sýnir meðlimi
Merzedes Club setja sig í
stellingar úti á lífinu. Það var
frumsýnt með pompi og pragt í
Laugarásbíói síðastliðið mánu-
dagskvöld og rataði inn á
YouTube í fyrradag. Í gærkvöldi
höfðu hátt í 35.000 manns horft á
myndbandið á YouTube.com. - kg
Merzedes Club á YouTube:
Meira frelsi í
áttunda sæti
VINSÆL Myndband Merzedes Club
komst í áttunda sæti á YouTube.
SPURNING DAGSINS