Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 24
24 10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS Hringdu í síma ef blaðið berst ekki F östudaginn 18. janúar 1957 lauk í Los Angeles í Banda- ríkjunum fyrsta fluginu umhverfis jörðina sem farið var í einum óslitnum áfanga. Þann sama dag skrifuðu eldri hjón, eins og þau kölluðu sig, til heimilis að Fossvogsbletti 45 við Sléttuveg í Reykjavík sendibréf er síðar var birt og heyrir nú til íslenskra bókmennta. Þetta voru hjónin Steinn Steinarr og Ásthildur Björnsdóttir. Bréf þeirra var stílað til Gunnars Thoroddsen borgarstjóra. Erindið við borgarstjórann þennan janúardag snerist um ásjá fyrir gamla mórauða hundtík sem þau höfðu haldið um nokkurn tíma á móti þágildandi lögum og rétti í borginni. Í bréfi þeirra hjóna sagði: „Þess vegna spyrjum við yður, herra borgarstjóri, hvort þér getið í krafti embættis yðar og þó einkum af yðar snotra hjartalagi veitt okkur nokkra slíka undanþágu frá laganna bókstaf, að við megum herbergja skepnu þessa, svo lengi henni endist aldur og heilsa.“ Einmitt þarna í Fossvoginum þar sem skáldið og kona hans bjuggu hafði starf hugsjónamanna um skógrækt fengið að skjóta rótum. Í fyrsta tölublaði ársins 2008 af Laufblaðinu, fréttabréfi Skógrækt- arfélags Íslands, birtist ný áskorun til borgar yfirvalda. Hún snýst um að þyrma vaxandi trjágróðri á austur heiðum Reykjavíkur. Þar vex nú skógur af mannavöldum á móti gildandi lögum og rétti um skipulag í borgarlandinu. Í fréttabréfið skrifar Einar Gunnarsson: „Ef hugmyndir Reykja- víkurborgar um uppbyggingu á austurheiðum ganga eftir stefnir í einhverja umfangsmestu skógareyðingu á Íslandi frá upphafi skóg- ræktar.“ Hér er kveðið fast að. Ógerningur er að láta slík orð líða hjá án þess að gefa þeim gaum. Skógrækt við Rauðavatn byrjaði á fyrsta ári síðustu aldar. Einar Gunnarsson bendir í grein sinni á að svo virðist sem fallið hafi í gleymsku og dá að árið 1975 hófst svo fyrir alvöru saga ræktunar á Hólmsheiði. Það verkefni var strax í upphafi styrkt myndarlega með fjármunum frá Þjóðargjöfinni sem svo var nefnd. Hún var metnaðarfull gjöf þjóðarinnar til landsins í tilefni ellefu hundruð ára byggðar. Henni fylgdu háleit fyrirheit í mörgum hátíðarræðum. Með þjóðargjöfinni átti að hefja nýtt átak til uppgræðslu í land- inu. Markmiðið var að endurgjalda aldagamla skuld uppblásturs og gróðureyðingar. Hólmsheiðin þótti verðug þess að fá spón úr þess- um hátíðaraski. Síðar hófst skipulagt skógræktarstarf á þessum slóðum með þátttöku mörg þúsund ungmenna ár eftir ár. Greinar- höfundur segir að árangurinn megi sjá í víðáttumiklum ungskógi sem farinn sé að gegna margþættri vistþjónustu. Hvað veldur því að borgaryfirvöld virða þetta mikla ræktunar- starf að vettugi og vinna nú að því að gera að veruleika skipulags- reglur þar sem skógræktin víkur fyrir malbikuðum götum, húsum og væntanlega flugvelli? Hvaða þörf er á því í landi þar sem enginn skortur er á landrými? Hvað kallar á slíka árekstra milli steinsteypu og ræktunarstarfs? Á sínum tíma þótti skáldinu og konu hans sem þá bjuggu í grennd við skógræktina í Fossvoginum fullt tilefni til að höfða ekki aðeins til krafta embættisvalds borgarstjórans í Reykjavík heldur einnig til hans snotra hjartalags í þeim tilgangi að lengja lífdaga hund- tíkur nokkurrar. Fimmtíu árum síðar og einu betur sýnist vera ærin ástæða til þess að kalla aftur fram, ef þess er nokkur kostur, það besta í embættisvaldi og hjartalagi borgarstjórans. Nú til að lengja lífdaga vaxandi skógarsvæðis. Mesta skógareyðing frá upphafi skógræktar: Vald og hjartalag ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR Gengi gjaldmiðla sveiflast upp og niður á gjaldeyrismörkuð- um. Til þess liggja tvær höfuð- ástæður. Önnur ástæðan er sú, að menn braska gjarnan með gjaldeyri líkt og þeir braska með góðmálma og verðbréf, en ekki með ferskan fisk. Munurinn er sá, að gjaldeyrir, góðmálmar og verðbréf hafa geymsluþol langt umfram fisk. Menn geta keypt gjaldeyri, þegar þeir halda, að hann sé ódýr, og geymt hann til að selja hann aftur síðar, þegar hann hefur hækkað í verði. Menn greinir jafnan á um, hvort gjaldmiðill er þessa stundina of hátt metinn eða of lágt. Það er eðlilegt. Ágreiningur um gengi er aflvaki spákaupmennskunnar: þeir selja, sem eiga von á lækkun, hinir kaupa. Spákaupmenn fylgja stundum hverjir öðrum líkt og í blindni. Hjarðhegðun þeirra ýtir undir gengissveiflur. Verðbréf, gull og silfur lúta sama lögmáli, en ekki nýveiddur fiskur, því hann geymist ekki nema í nokkra daga. Hin höfuðástæðan til gengis- sveiflna er sú, að gengi orkar á útflutning og innflutning og áhrifin láta stundum bíða eftir sér. Tafirnar geta leitt til þess, að fljótandi gengi sveiflast ýmist upp eða niður í kringum einhvers konar langtímajafnvægi, sem erfitt getur reynzt að staðsetja einmitt vegna öldugangsins. Þess vegna auk annars fást yfirleitt hvorki bankamenn né varkárir hagfræðingar utan bankanna til að slá neinu föstu um það, hvert gengi gjaldmiðla eigi að réttu lagi að vera. Þetta á við um gengi krónunnar nú ekki síður en um gengi annarra flotmynta á ýmsum tímum. Lággengislönd og hágengislönd Sumum þjóðum tekst langtímum saman að halda gengi gjaldmiðla sinna ýmist undir eða yfir eðlilegu marki. Sum lönd eru lággengis- lönd, til dæmis Kína. Kínverjar festa gengi júansins (ásjóna Maós prýðir alla peningaseðla þar austur frá) undir réttu marki, svo að útflutningur eykst hratt frá ári til árs. Í krafti lágs gengis búa Kínverjar við umtalsverðan afgang á viðskiptum við útlönd, og viðskiptaþjóðir þeirra, svo sem Bandaríkjamenn, búa við samsvar- andi viðskiptahalla. Þegar bandarískir stjórnarerindrekar biðja kínversk yfirvöld að hækka gengi júansins til að örva útflutn- ing á bandarískum varningi til Kína, svara Kínverjar að bragði: Lækkið þið heldur gengi dollarans. Þetta er ein skýringin á lágu gengi dollarans undangengin ár. Önnur lönd eru hágengislönd. Sum þeirra búa við hátt gengi vegna þess, að þau búa svo í haginn handa útflutningsatvinnu- vegum, að innstreymi gjaldeyris- tekna í skiptum fyrir útflutning á vörum og þjónustu viðheldur háu gengi. Önnur lönd eru hágengis- lönd vegna þess, að þau laða til sín erlent fé til framkvæmda og annarra fjárfestinga. Enn önnur lönd búa við hátt gengi af því, að þeim hefur mistekizt að halda verðbólgu í skefjum, og verðbólga heima fyrir umfram verðbólgu í helztu viðskiptalöndum hækkar raungengið með tímanum. Aðrar skýringar á landlægri hágengis- bjögun eru innflutningshöft og útflutningsstyrkir, eins og ég hef oft áður lýst á þessum stað og víðar. Allar þessar skýringar liggja að baki háu gengi íslenzku krónunnar aftur í tímann. Hátt gengi fellur að endingu. Gengisfall krónunnar var óhjákvæmilegt og æskilegt, þar eð of hátt gengi kallar á of mikla skuldasöfnun í erlendri mynt og bitnar á útflutn- ingi og varanlegum hagvexti. Skuldir íslenzkra fyrirtækja, heimila og banka eru of miklar og kalla á leiðréttingu, sem getur reynzt sársaukafull. Gengisfallið dregur úr skuldasöfnuninni, en það þyngir jafnframt greiðslubyrðina af eldri skuldum. Samsæri? Nei, varla Ég varaði við því strax vorið 1999 (sjá Framtíðin er annað land, bls. 113-118) og oft eftir það, að gjaldeyrisforði Seðlabankans væri of rýr, en því kalli var ekki sinnt fyrr en 2006 og aftur nú. Digur forði sendir spákaupmönnum og öðrum skýr skilaboð um festu í gengismálum, þótt gengið fljóti. Gjaldeyrisforðann á þó ekki að nota til að halda gengi krónunnar of háu. Forðann á að nota til að draga úr óeðlilegum gengissveifl- um. Gengisfall krónunnar að undanförnu verður ekki helzt rakið til erlendra samsærismanna, svo sem Seðlabankinn gefur í skyn. Samsæriskenningin hljómar ekki vel úr munni seðlabankastjóra, sem reyndi fyrir fáeinum árum sem forsætisráðherra að hrinda af stað áhlaupi á Kaupþing með því að taka þaðan út sparifé sitt í beinni útsendingu (til að mótmæla sjálfteknum launum bankastjór- anna!). Takist ekki að ráða raunhæfa bót á lausafjárkreppu bankanna, getur farið svo, að geng- ið lækki um tíma niður fyrir eðlilegt mark. Slíkt hefur gerzt í öðrum löndum. Þá þyrfti að vera hægt að grípa til gjaldeyrisforð- ans, sem Seðlabankinn vanrækti að byggja upp og leitar nú leiða til að efla. Og þá kæmi sér vel að hafa sýnt árvekni einnig í ríkisfjármál- um og reka ríkisbúskapinn með miklum afgangi í uppsveiflunni. Þá þyrfti ríkið ekki að taka lán nú til að efla gjaldeyrisforðann. Glæpagengiskenningin Í DAG | ÞORVALDUR GYLFASON ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA: Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björgvin Guðmundsson og Björn Ingi Hrafnson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 UMRÆÐAN Lífeyrisréttindi Lífeyrisréttindi alþingismanna hafa verið talsvert til umfjöllunar síðan ný lög um réttindi forseta Íslands, ráðherra, þing- manna og hæstaréttardómara tóku gildi í desember 2003. Upphaflega lagafrumvarpið var lagt fram af fulltrúum allra flokka. Var í því kveðið á um breytingar á lífeyrisrétt- indunum og voru þau í sumum tilfellum skert en í öðrum tilfellum aukin, einkum hjá þeim sem gegnt höfðu ráðherraembættum. Þá var greiðslubyrði þingmanna í eftirlaunasjóð aukin samhliða þessu. Ekki var fellt á brott gamalt ákvæði þess efnis að ef einstaklingar úr fyrrgreindum hópum hyrfu til annarra starfa gætu þeir jafnframt, í einhverjum tilfellum, þegið greiðslur úr lífeyrissjóðum. Þetta ákvæði er þó líklega það umdeildasta við eftirlauna- rétt umræddra hópa. Í forsætisráðherratíð Halldórs Ásgrímssonar leitaði hann til formanna þáverandi stjórnarand- stöðuflokka um samstarf við að fella þennan rétt niður. Lítill áhugi var fyrir slíku samstarfi. Lögunum var ekki því breytt á þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Halldórs. Nýlega leitaði fréttastofa Stöðvar 2 eftir viðbrögðum þingmanna við frumvarpi Valgerðar Bjarnadóttur um breytingar á þessum lögum. Þótt mér finnist óeðlilegt að fréttamenn ætlist til þess að þingmenn „greiði atkvæði“ um þingmál utan Alþingis vil ég þó geta þess að í umræðum um frumvarpið sagðist varaformaður Fram- sóknarflokksins vel geta stutt frumvarp í þessum anda. Undir það tek ég og vek jafnframt athygli á því að á síðasta flokks- þingi Framsóknarflokksins samþykktum við ályktun þess efnis að afnema ætti sérréttindi alþingismanna og tryggja að allir landsmenn búi við sambærileg lífeyrisréttindi. Hitt er svo annað mál að það er sérkennilegt að annar stjórnarflokkurinn kjósi að taka út ákvæði í stjórnarsáttmálanum og flytja um það mál í eigin nafni, án samstarfs við samstarfs- flokkinn. Það eru nýjungar í stjórnarsamstarfi en segir meira en mörg orð um stöðuna þar á bæ. Höfundur er alþingismaður. Sameiginleg lífeyrisréttindi HÖSKULDUR ÞÓR ÞÓRHALLSSON Sviptingar í efnahags- lífinu Neytendur Þriðjungur neytenda telur mótmæli bílstjóra ekki í þágu neytenda, að sögn talsmanns neytenda á blogg- síðu sinni, www.neytendatalsmadur. blog.is. „Samkvæmt óvísindalegri könnun minni hér á blogginu í gær og fyrradag, þar sem um 330 greiddu atkvæði, er réttur þriðjungur neytenda á því að nóg sé komið af mótmælum bílstjóra gegn háu bens- ínverði – enda hafi þau ekki verið í þágu neytenda,“ skrifar talsmaður neytenda. Það er gott að tals- maður neytenda vinnur óvísinda- legar kannanir í þágu neytenda á neytendabloggi sínu. Því er ekki að neita. Og hvað eru margir neytendur í því? Helgari Hjörvari Höskuldi Þór Þórhallssyni, þingmanni Framsóknarflokks, var mikið niðri fyrir í utandagskrárumræðu um lofts- lagsmál á Alþingi í gær. Sérstaklega var hann óánægður þegar Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, sagði Framsóknarflokkinn hafa gleymst á síðustu öld í umhverfis- málum. „Það var holur málflutningur sem kom frá háttvirtum þingmanni, Helgari Hjörvari,“ mismælti Höskuldur sig. Og þá hló þingheimur. Gegnsær ráðherra Bandalag háskólamanna sættir sig víst ekki við svör Kristj- áns L. Möller samgönguráðherra vegna auglýsingar á embætti vegamálastjóra. Hefur bandalagið ítrekað kröfu sína um að ráðherra dragi auglýsinguna til baka og að staðan verði auglýst aftur þannig að gegnsæi sé tryggt. Ráðherra segist einmitt hafa verið að tryggja gegnsæi með því að krefjast háskólamenntunar í verkfræði eða sambærilegrar menntunar. Þar hafi hann átt við háskólamenntun á öðrum sviðum en verkfræði, þó þannig að umsækjandi hafi lokið meistaraprófi eða kandídatsprófi samkvæmt eldra skipulagi háskólanáms. Er þetta ekki alveg gegnsætt? steindor@frettabladid.is / olav@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.