Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 50
34 10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR timamot@frettabladid.is MERKISATBURÐIR 1790 Einkaleyfakerfið er tekið í notkun í Bandaríkjunum. 1815 Eldfjallið Tambora í Indón- esíu byrjar að gjósa. 1847 Joseph Pulitzer blaða- maður fæðist. 1886 Magnús Stephensen skip- aður landshöfðingi. 1940 Ríkisstjórninni falið kon- ungsvald frá Alþingi eftir að Þjóðverjar hernámu Danmörku. 1956 Konungur Danmerk- ur, Friðrik IX, og drottn- ing hans koma til Íslands í fjögurra daga opinbera heimsókn. 1970 Paul McCartney gefur út yfirlýsingu þess efnis að Bítlarnir séu hættir. 1998 Belfast-sáttmálinn er und- irritaður. STEVEN SEGAL LEIKARI 57 ÁRA „Ég vona einn daginn að ég verði meira þekktur sem rithöfundur og leik- ari en kyntákn.“ Þekktustu myndirnar sem Segal hefur leikið í eru hasarmyndirnar Under Siege eitt og tvö. Lýsi hf. hefur fylgt íslensku þjóð- inni í sjötíu ár. Í dag starfar fyrir- tækið á sviði rannsókna, vöruþróun- ar, framleiðslu og sölu á fiskiolíu um allan heim. „Vinnan hjá Lýsi er gef- andi og skemmtileg. Að mæta í vinn- una á hverjum morgni til þess að selja og koma á framfæri hollustu Lýsis og auka þannig lífsgæði fólks er frá- bært,“ segir Katrín Pétursdóttir, sem hefur starfað frá árinu 2000 sem fram- kvæmdastjóri Lýsis. Lýsi hóf starfsemi sína árið 1938 og var stofnað af bræðrunum Tryggva og Þórði Ólafssonum. Bræðurnir stofn- uðu Lýsi vegna þess að skortur var á A- og D-vítamínum. Eftirspurn eftir þorskalýsi skap- aðist þegar þörfin á A- og D-vítamín- um jókst og vitað var að þorskalýsið hafði áhrif á náttblindu og beinþynn- ingu. Tólf árum seinna, eða árið 1950, dró mikið úr eftirspurn eftir þorska- lýsi og verðið féll. Næstu þrjátíu ár voru erfið lýsisiðnaðinum í heiminum en þrátt fyrir það skilaði Lýsi hagnaði á tímabilinu. Hjá Lýsi starfa nú hundr- að manns. Framleiðslan fer fram í Reykjavík og í Þorlákshöfn. „Lýsi hefur alla tíð lagt mikla áherslu á gæðamál. Með nýrri verksmiðju fyr- irtækisins jókst framleiðslugetan til muna. Nýja verksmiðjan er sú tækni- legasta í heimi á sínu sviði. Með komu nýju verksmiðjunnar gekk Lýsi í end- urnýjun lífdaga,“ útskýrir Katrín. Níu- tíu prósent af framleiðslu Lýsis fer í útflutning. „Við byggjum hvað mest á útflutn- ingi þó að innanlandsmarkaður sé okkur mikilvægur. Við höfum verið í mikilli sókn á erlendum mörkuðum og fengið góðar viðtökur. Ástæðan er sú að almenn vitneskja fólks á þeim mörkuðum sem við vinnum á hefur eflst og aukist og fólk er meira upplýst um ágæti vörunnar,“ segir Katrín. Þorskalýsi, Omega 3 lýsi, Túnalýsi og Hákarlalýsi hafa verið sterkustu útflutningsvörurnar frá Lýsi. Lýsi flytur út vörur á sextíu og sjö markaði víðs vegar um heiminn, þeir helstu eru Bandaríkin, Bretland, Indland og lönd í Austur-Evrópu. „Markmið Lýsis er að bjóða upp á hágæða vöru í því formi sem fólk á auðvelt með að neyta hennar. Á Íslandi er mikil aukning sem og annars stað- ar,“ segir Katrín og bætir við: „Fram undan hjá Lýsi er sífelld þróun í vöru og framleiðslu. Við erum mjög ánægð með stöðuna eins og hún er nú og framhaldið er áframhaldandi sókn á öllum mörkuðum.“ mikael@frettabladid.is FYRIRTÆKIÐ LÝSI HF: FAGNAR 70 ÁRA AFMÆLI SÍNU Byggja mest á útflutningi BYGGJA MEST Á ÚTFLUTNINGI Almenn vitneskja um ágæti fiskiolíu fyrir líkamann er hluti af velgengni á erlendum mörkuðum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Skipið Titanic var gufu- knúið farþegaskip og stærsta skip sem byggt hafði verið fram að því. Um 17.000 verkamenn unnu að byggingu skipsins á árunum 1909-1911. Skipið var yfir tvö hundruð og fimmtíu metra langt og þyngd þess var 46.328 þús- und tonn. Skipið var talið vera ósökkvanlegt en svo varð raunin ekki. Tit- anic sigldi úr höfn í Southhampton í Englandi og var áfangastaðurinn New York, þó með við- komu í Frakklandi. Þegar skipið var búið að sigla í fjóra daga, eða 14. apríl, var það statt sex hundr- uð kílómetra frá Ný- fundnalandi og sigldi þá á ísjaka. Þrátt fyrir að áhöfn skipsins hefði reynt allt til þess að forða árekstri rakst skip- ið utan í ísjakann og við það rifnaði skrokkur skipsins og vatn flæddi inn. Sjö hundruð manns komust lífs af en um fimmtán hundruð létust. Jómfrúarferð Titan- ic er eitt þekktasta og mannskæðasta sjóslys allra tíma. ÞETTA GERÐIST: 10. APRÍL 1912 Titanic heldur í jómfrúarferð sína Systir okkar, María Indriðadóttir Dvalarheimilinu Dalbraut, áður til heimilis að Hátúni 8, Reykjavík, lést þriðjudaginn 8. apríl á Landspítalanum Fossvogi. Jarðarförin fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 15. apríl kl. 13.00. Sigurlaug Indriðadóttir Páll Indriðason Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Gísli Gunnarsson, áður til heimilis að Bárustíg 4, Sauðárkróki, lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks þriðjudaginn 1. apríl. Jarðarförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 12. apríl kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Gísladóttir Björn Ottósson Sveinn Gíslason Jónína Þorvaldsdóttir Pálmey Gísladóttir Rúnar Ingólfsson Haraldur Gíslason Björg Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum af alhug öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Unnar Þorgeirsdóttur Bogahlíð 9, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans, Landakoti. Þorgeir Sigurðsson Þórunn J. Gunnarsdóttir Sigurður Ingi Sigurðsson Guðfinna Thordarson Rósa Karlsdóttir Fenger John Fenger barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, Gunnar Ragnar Sveinbjörnsson frá Kothúsum, Garði, Eyrarholti 20, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 3. apríl. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtu- daginn 10. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsam- legast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Ágústa Sigríður Gunnarsdóttir Halldór A. Þórarinsson Valdís Þóra Gunnarsdóttir Vignir Már Guðjónsson Sara Lind Gunnarsdóttir Páll Þórir Jónsson barnabörn og systkini. 50 ára afmæli Jón Eiður Jónsson Markaðsfulltrúi Europro er fi mmtugur í dag. Hann verður að heiman. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, Inga Hjartardóttir Gnoðarvogi 22, sem lést þann 2. apríl sl. verður jarðsungin frá Langholtskirkju í dag, fimmtudaginn 10. apríl, kl. 13.00. Jens Gíslason Ingveldur Gísladóttir Ragna B. Gísladóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Bjarni Sigurðsson Dvalarheimilinu Hlíð, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar laugardaginn 5. apríl. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 11. apríl kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Dvalarheimilið Hlíð njóta þess. Sigríður Egilsdóttir Sigþór Bjarnason Guðríður Bergvinsdóttir Ingibjörg Bjarnadóttir Sveinn Eðvaldsson Egill Bjarnason Erna Jóhannsdóttir Þórdís Bjarnadóttir Hreiðar Hreiðarsson Sigurður Bjarnason Friðrika Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sigurbjargar Sigurjónsdóttur frá Flatey á Skjálfanda, Garðarsbraut 55, Húsavík. Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Hvammi, heimili aldraðra á Húsavík. Vigdís Helga Guðmundsdóttir Pálmi Sigfússon Sigurjón Guðmundsson Ása Grímsdóttir Jóhanna Guðmundsdóttir ömmubörn og langömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.