Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 12
12 10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR ALÞINGI Á reiki er hversu mikið meira flutningabíll slítur vegum landsins en fólksbíll. Þess vegna hefur Ármann Kr. Ólafsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, óskað eftir að samgönguráðherra upp- lýsi hversu mikill munurinn er. Vill hann að í svarinu verði miðað við að flutningabíllinn hafi 80 prósenta hleðslu, bæði með og án tengivagns, og fólksbíllinn sé 1,8 tonn. „Ég hef lesið um og heyrt að það sé gríðarlegur munur á þessu,“ sagði Ármann í samtali við Fréttablaðið. Hann kveðst hafa heyrt því haldið fram að flutningabílar slíti vegunum mörg þúsund-falt meira en fólks- bílar en tölurnar séu misvísandi og því mikilvægt að fá sannleik- ann upp á borðið. „Það er líka furðulegt þegar trukkabílstjórar segja að hjólför á einstaka vegum sýni að þeir slíti ekki vegunum þar sem förin eru mjórri en eftir trukkana. Yfirborðsslit kostar bara brotabrot af því sem það kostar að byggja upp vegi. Dýr- asta slitið í vegakerfinu sést ekki dagsdaglega,“ segir Ármann og á við að undirlag veganna láti undan þunga trukkanna. Aðspurður segir Ármann fyrir- spurninni ekki beint gegn trukka- bílstjórum vegna aðgerða þeirra í umferðinni síðustu daga, hann vilji aðeins að réttar upplýsingar liggi fyrir. - bþs Ármann Kr. Ólafsson vill fá á hreint hve mikið flutningabílar slíta vegunum: Vill hrekja málflutning trukkabílstjóra ÁRMANN KR. ÓLAFSSON sat fastur í umferðinni á dögunum vegna aðgerða trukkabílstjóra. Hann vill vita hve mikið vegir landsins slitni af umferð flutninga- bíla. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LÖGREGLUMÁL Maður sparkaði í klof annars manns, með þeim afleiðingum að blæddi úr kynfærum, í verslun 10-11 við Barónsstíg á þriðja tímanum aðfaranótt miðvikudags. Árásarmaðurinn, sem fórnar- lambið sagðist ekki þekkja, var horfinn á braut þegar lögregla kom á staðinn. Hann gengur enn laus, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. - sgj Óþekktur árásarmaður: Sparkaði í klof svo úr blæddi SJÁVARÚTVEGUR Um 850 þúsund tonn mældust af íslensku sumargotssíldinni í vetur, þar af 700 þúsund tonn í Kiðeyjarsundi í Breiðafirði og 70 þúsund tonn í Grundarfirði. Þetta kemur fram í nýjustu Fiskifréttum. Einnig mældist síld í Kolluál og í minna mæli á svæðum fyrir austan land, að því er Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofnasviðs Hafrannsóknastofnunar, sagði í samtali við blaðið. Þorsteinn sagði að mælingin sýndi að síldarstofninn væri í góðu ástandi og af svipaðri stærð og kom fram í mælingum árið á undan. Of snemmt er að segja til um stærð veiðistofnsins fyrr en að loknum frekari útreikningum á stofnstærðinni. - shá Íslensk sumargotssíld: 850 þúsund tonn af síld SÍLDVEIÐAR Síldarskipin veiddu kvótann í Grundarfirði að stærstum hluta. MYND/SVERRIR LÖGREGLUMÁL Strætisvagn skall aftan á vöruflutningabíl með tengivagn á Vesturlandsvegi við Kjalarnes klukkan rúmlega sjö í gærmorgun. Vöruflutningabíllinn endaði þversum á veginum og stöðvað- ist umferð um tíma norðan við Grundarhverfi. Komust ein- göngu jeppar og fólksbílar framhjá. Ríflega tuttugu farþegar voru í strætisvagninum og sluppu þeir allir án teljandi meiðsla. Ökumaður strætisvagnsins fótbrotnaði, að sögn lögreglu. Bílstjóri vörubílsins var einn í bílnum en hann sakaði ekki. - sgj Strætisvagn ók á bíl: Umferð tafðist vegna áreksturs Samsung M110 farsíminn er nýjasta verkfærið í verkfærakassann. Honum er pakkað inn í sterkbyggða umgjörð sem er bæði ryk- og rakavarin (IP54) og hann er fullur af notadrjúgum aukabúnaði. Samsung M110 – er sannkallað hörkutól. VGA myndavél Ryk- og rakavarinn (IP54) Bluetooth Vasaljós Stereó FM-útvarp Innbyggður hátalari Hörkutól – með rykgrímu, hjálm og vinnuvettlinga Heildsöludreifing og þjónusta: Skútuvogi 12c auk viðurkenndra söluaðila um land allt M110 fæst hjá eftirtöldum aðilum: FRUMLEGT FLUGTÆKI Þátttakendur í keppninni „Beans Green Flying Machine“ hendast fram af stökkpalli við höfnina í Sydney í Ástralíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VARNARMÁL Forsendur fyrir sam- starfi Norðurlanda á sviði örygg- is- og varnarmála hafa vissulega batnað mjög síðan kalda stríðinu lauk, en engu að síður eru ýmsar hindranir í vegi fyrir slíku sam- starfi. Norrænt varnarbandalag, eins og hugmyndir voru uppi um á fyrstu árunum eftir lok síðari heimsstyrjaldar, er óraunhæft. Aftur á móti er ekkert því til fyr- irstöðu að efla norrænt samstarf um ýmsa þætti öryggis- og varn- armála sem ekki snerta sjálfan kjarna landvarna. Þetta segir Lars Wedin, fyrrverandi skip- herra í sænska flotanum, sem sinnir kennslu og rannsóknum við sænska Varnarmálaskólann, í samtali við Fréttablaðið. Wedin flutti í gær erindi á hádegismálfundi á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands undir yfirskriftinni „Stefnur og straumar í vörnum Norðurlandanna“. Í erindinu rakti hann hvernig þörfin á hefð- bundnum landvörnum í okkar heimshluta hefði snarminnkað eftir lok kalda stríðsins, enda hafi þróunin á síðustu árum verið öll í þá átt að draga úr slíkum hefðbundnum vörnum og byggja þess í stað upp getu til þátttöku í fjölþjóðlegri átakastjórnun fjarri eigin yfirráðasvæði. Þessi þróun hefur meðal ann- ars haft í för með sér að bæði Svíþjóð og Finnland hafa nálgast NATO mjög, enda hefur mikil umræða farið fram í báðum lönd- um um það hvort þau ættu að ganga í bandalagið. Að sögn Wed- ins er staða þeirrar umræðu þó ólík í grannlöndunum tveimur. Í Finnlandi stjórnist hún af nær hreinni raunsæisstefnu en í Sví- þjóð vegi siðfræðilegir og sögu- legir þættir þungt. Í báðum lönd- um gildi þó, að það sem myndi hreyfa mest við hvoru ríkinu sem er ef annað þeirra tæki ákvörðun um að stefna inn í NATO. Wedin viðurkennir, að væru öll Norðurlöndin í NATO væri auðveldara fyrir þau að efla eiginlegt varnarsamstarf sín í milli. Wedin rakti líka hvernig Svíar og Finnar hefðu tekið virkan þátt í uppbyggingu sameiginlegrar öryggis- og varnarmálastefnu Evrópusambandsins, frá því þau gengu í sambandið árið 1995. Væru öll Norðurlöndin í ESB væri líka hægt að efla samstarf þeirra undir hatti þessa ESB- öryggismálasamstarfs. Gildandi undanþága Dana frá þátttöku í því myndi þó líka flækja viðleitni í þá átt. audunn@frettabladid.is Varnarbandalag óraunhæft Sænski varnarmálafræðingurinn Lars Wedin segir forsendur fyrir varnarsamstarfi Norðurlanda hafa batnað eftir lok kalda stríðsins, en möguleikunum spilli sú staðreynd að sum þeirra eru innan og önnur utan NATO og ESB. LARS WEDIN Brotthvarf frá hefðbundn- um landvörnum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÁTAKASTJÓRNUN Sænskir hermenn sjást hér sem liðsmenn fjölþjóðaliðs NATO á vettvangi í Afganistan. Þátttaka í slíkum „átaka- stjórnunarverkefnum“ fjarri eigin landsteinum hefur tekið að mestu við af hefðbundnum landvörnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐSTEINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.