Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 62
46 10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR folk@frettabladid.is > BANNAÐUR BÖRNUM Þættirnir um Simpson-fjölskylduna hafa verið bannaðar í Venesúela, þar sem þeir voru sýndir á sjónvarpsstöðinni Tel- even klukkan ellefu á morgnana. Rík- isstjórninni fannst þættirnir ekki boð- legir börnum, og hefur skorið úr um að þeir verði bannaðir. Í þeirra stað koma gæðaþættirnir Bay watch, sem þykja greinilega hafa meira uppeldis- og fræðslugildi fyrir börn þar í landi. Babyshambles-rokkarinn Pete Doherty, sem er hvað frægastur fyrir samband sitt við Kate Moss og eiturlyfja- neyslu, hefur verið dæmdur í fjórtán vikna fangelsi fyrir brot á skilorði. Eftir að Doherty játaði að hafa haft krakk, heróín, ketamín og kannabisefni í fórum sínum í október síðastliðnum var honum gert að gangast undir regluleg lyfjapróf í fjóra mánuði. Doherty stóð ekki við þá skilmála. Hann missti af tveimur slíkum tímum, var of seinn og var dónalegur við starfsfólk. Doherty var dreginn fyrir rétt á þriðjudag, þar sem dómarinn Davinder Lachar fór ófögrum orðum um fram- komu hans og úrskurðaði hann í fjórtán vikna fangelsi. „Pete verður niðurbrotinn. Hann á eftir að gráta úr sér augun. Hann er skíthræddur við fangelsi,“ sagði einn vina rokkarans í viðtali við The Sun í gær. Lögmaður Dohert- ys, Sean Curran, sagði hann hins vegar sætta sig við úrskurðinn, þó að hann vildi auðvitað ekki fara í fangelsi. „Hann er enginn engill. Hann sættir sig við úrskurð dómar- ans. Hann mun snúa aftur,“ sagði lögmaðurinn. Doherty gæti verið sleppt eftir sjö vikur, en þó svo fari mun hann missa af fyrirhug- uðum tónleikum sínum í Royal Albert Hall í London 26. apríl næstkomandi. Útgáfufyrirtækið lofar þó að tónleikarnir verði færðir, og keyptir miðar munu gilda á þá. Ef svo fer að Doherty afpláni allar fjórtán vikurnar mun hann hins vegar líka missa af fyrirhuguðum tón- leikum á Glastonbury-tónlist- arhátíðinni í júní. Pete Doherty í steininn ENGINN ENGILL Lögmaður Petes Doherty segir tónlistarmann- inn engan engil, en að hann muni sætta sig við fjórtán vikna fangelsisdóm sem hann hlaut á þriðjudag. NORDICPHOTOS/GETTY Kylie Minogue, sem greindist með brjósta- krabbamein árið 2005, hefur greint frá því að hún hafi fengið ranga sjúkdómsgreiningu þegar hún leitaði sér fyrst læknishjálpar. Heilsu söngkonunnar hrakaði á meðan hún var á tónleikaferðalagi um Ástralíu, en eftir að hafa leitað sér læknishjálpar og fengið þann úrskurð að hún væri fullkomlega heilbrigð hélt söngkonan ótrauð áfram. Nokkrum vikum síðar fann hún æxli í brjósti sínu sem annar læknir greindi sem brjóstakrabbamein. Minogue hefur nú náð sér af sjúkdómnum, en hvetur konur, í ljósi eigin reynslu, til að fá annað álit ef þær grunar að þær séu haldnar krabbameini. „Það að einhver sé í hvítum sloppi og noti stór læknatæki þarf ekki að þýða að hann hafi rétt fyrir sér. Ég vil ekki hræða fólk, en þetta er staðreynd. Ég var nýbúin í myndatöku þar sem þeir fundu ekkert, og nokkrum vikum síðar fann ég ber. Maður verður að fylgja innsæi sínu, og fara aftur ef maður er efins,“ segir söngkonan. Fékk ranga sjúk- dómsgreiningu SÖGÐ HEILBRIGÐ Þegar Kylie Minogue leitaði sér fyrst læknishjálpar vegna brjóstakrabba- meins fékk hún ranga sjúkdómsgreiningu og var sögð heilbrigð. Ritstjóraskipti verða á tímaritinu Mónitor um mánaðamótin. Atli Fannar Bjarkason tekur við af Birgi Erni Steinarssyni. Nýi ritstjórinn lofar beittara blaði. „Nei, ég er ekki að fara í neitt leti- djobb þótt ég hætti á dagblaði og fari að vinna á tímariti. Ég stefni að því að fara með vefinn í mikla sókn og hann á að verða fjölbreytt- ur fréttavefur. Þetta verða ekki bara einhverjar Amy Winehouse- fréttir heldur öflugur dægur- fréttavefur,“ segir Atli Fannar Bjarkason, nýráðinn ritstjóri tíma- ritsins Mónitors. Atli tekur við starfinu af Birgi Erni Steinarssyni sem stýrt hefur blaðinu frá upp- hafi. Í tilkynningu á heimasíðu Mónitors segir Birgir frá ritstjóra- skiptunum og segir þau tilkomin vegna þess að eigendur blaðsins vilji gera víðtækar breytingar á efnistökum þess. Það hafi hann ekki sætt sig við og því skildi leið- ir. Atli Fannar hefur undanfarið starfað sem blaðamaður á 24 stund- um. Hann segir það draumi líkast að fá þetta tækifæri: „Ég hef verið að stýra kafla í blaði fyrir ungt fólk og hef alltaf dreymt um að stýra tímariti fyrir ungt fólk. Það er sér- staklega gaman að fá að gera það meðan maður er enn ungur sjálf- ur,“ segir Atli, sem verður 24 ára á sunnudaginn. Hann segir Mónitor akkúrat rétta vettvanginn fyrir sig. „Mónitor er ótrúlega flott blað, sérstaklega ljósmyndirnar, umbrot- ið og grafíkin. Ekki það að efnið hafi verið slæmt, ég vil bara hafa það beittara. Mér hefur ekki fund- ist vera nóg af efni sem fólk getur bæði hneykslast á og hrósað. Ég vil gera blað sem skapar umræðu, að fólk tali um það og finni þörf til að tjá skoðanir sínar á því á bloggi. Það er það sama og ég hef verið að reyna að gera á 24 stundum, að reyna að hreyfa við fólki.“ Það hefur jafnan einkennt blöð eins og Mónitor að umfjöllunarefni þeirra miðast að mestu við það sem gerist í 101 Reykjavík. Því skýtur það nokkuð skökku við að Atli Fannar, landsbyggðarmaður sem er tiltölulega nýkominn á mölina, skuli ráðinn til starfans. „Ég er fæddur á Sauðárkróki og bjó lengst af á Selfossi. Þú finnur eiginlega ekki meiri dreifbýlisdrjóla en mig. Nú bý ég aftur á móti í vesturbæn- um og tel mig því hafa orðið hald- bæra þekkingu bæði á landsbyggð- inni og 101. Eigum við ekki bara að segja að ég muni tengja saman landsbyggðina og Reykjavík í blað- inu? Mér finnst allavega alger óþarfi að einblína á miðbæinn. Það þurfa ekki að vera nein landa- mæri.“ hdm@frettabladid.is Landsbyggðin fær rödd á Mónitor Öllum að óvörum virðist samband Parísar Hilton og rokkarans Benji Madden ætla að endast. Hótelerfinginn alræmdi er nú á tónleikaferðalagi með hljómsveit Benjis, Good Charlotte. Hún bloggaði um ferðina í fyrradag þar sem hún tjáði sig um ást sína á rokkaranum. „Ég hef aldrei verið svona hamingjusöm og ástfangin. Benji er svo frábær strákur og lífið hefur aldrei verið betra.“ París er meira að segja svo hrifin af Benji að hún lýsir því yfir að tónlist hljóm- sveitarinnar sé góð. „Það er svo gaman að fara á tónleika þeirra á hverju kvöldi. Ég kann núna öll lögin utan að. Ég elska Good Charlotte.“ Einmitt það, París. Ástfangin uppfyrir haus vorútsala 50-70% afsláttur af völdum vörum Smáralind og Kringlunni Í kvöld 9. apríl kl. 20 – Uppselt Föstudaginn 11. apríl kl. 20 – Uppselt LOKASÝNING: Sunnudaginn 13. apríl kl. 20 – Örfá sæti laus MIÐAVERÐ: 1.000 KR. www.opera.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A R N ÞÓ R RITSTÝRIR MÓNITOR Atli Fannar Bjarkason tekur við ritstjórastarfi á Mónitor um mánaðamótin. Hann ætlar að gera blaðið beittara. PARÍS HILTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.