Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 67
52 10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
sport@frettabla-
Jón Karl Björnsson hefur verið afar
sigursæll á tæplega tíu ára ferli
sínum með Haukum. Hann er nú
á góðri leið með að hampa sínum
sjötta Íslandsmeistaratitli og hefur
þegar orðið tvisvar sinnum bikar-
meistari með Hafnarfjarðarliðinu.
Haukar geta tryggt sér Íslandsmeist-
aratitilinn með sigri gegn Fram að
Ásvöllum annað kvöld en Jón Karl,
sem verður 33 ára á þessu ári og
hefur leikið alla 23 leiki Hauka í
N1-deildinni, telur að tímabært sé
fyrir hann að leggja skóna á hilluna
frægu eftir tímabilið.
„Maður er bara kominn á
aldur og það er vel við hæfi að
enda þetta á titli eftir farsælan
feril með Haukunum. Við erum
ákveðnir að klára dæmið strax á
föstudagskvöld að Ásvöllum,“ sagði
Jón Karl en annar reynslubolti í
Haukaliðinu, Halldór Ásgrímur
Ingólfsson, hafði þegar tilkynnt að
hann myndi hætta eftir tímabilið og
Haukaliðið því að missa tvo reynslu-
mikla menn á einu bretti.
„Haukaliðið í ár hefur einkennst
af góðri blöndu af ungum og
efnilegum leikmönnum og eldri og
reyndari mönnum og ef til vill eru
engar stjörnur í liðinu. Þetta er þéttur
og góður hópur og það koma bara
menn í manns stað þegar við hætt-
um. Ungu leikmennirnir verða ári
eldri og enn betri á næsta tímabili
og aðrir enn yngri leikmenn að taka
skrefið upp í meistaraflokk,“ sagði
Jón Karl sem getur
vel hugsað sér að
starfa í kringum lið
Hauka í framtíð-
inni.
„Ég hef verið að
þjálfa fyrir Haukana í
yngri flokkum áður, en
það fór ekki vel saman
á meðan ég var að
spila. Ég get vel hugsað
mér að reyna fyrir mér í
þjálfun aftur hjá félaginu
þar sem öll umgjörð er til fyrir-
myndar og við sjáum hvað kemur út
úr því. Ég hef unnið með mörgum
hæfum þjálfurum og Aron Kristjáns-
son er einn þeirra og maður reynir
alltaf að læra eitthvað af þeim.“
JÓN KARL BJÖRNSSON, HAUKUM: ÆTLAR AÐ LEGGJA SKÓNA Á HILLUNA Í LOK TÍMABILS OG SNÚA SÉR AÐ ÞJÁLFUN
Vel við hæfi að enda farsælan feril með titli
Iceland Express deild karla
ÍR-Keflavík 94-77 (51-37)
Stig ÍR: Sveinbjörn Claessen 19, Steinar Arason
15, Hreggviður Magnússon 14, Tahirou Sani 14,
Ómar Örn Sævarsson 12, Nate Brown 7, Eiríkur
Önundarson 7, Ólafur J. Sigurðsson 4, Elvar
Guðmundsson 2.
Stig Keflavíkur: Bobby Walker 20, Magnús Þór
Gunnarsson 17, Tommy Johnson 14, Sigurður
Gunnar Þorsteinsson 9, Arnar Freyr Jónsson 6,
Gunnar Einarsson 4, Anthony Susnjara 4, Sigfús
J. Árnarson 2, Jón Norðdal Hafsteinsson 1.
Meistaradeild Evrópu
Man. Utd-Roma 1-0
1-0 Carlos Tévez (70.).
Barcelona-Schalke 1-0
1-0 Yaya Touré (43.).
Sænska úrvalsdeildin
Norrköping-Trelleborg 1-1
1-0 sjálfsmark (31.), 1-1 Eric Sundin (77.). Garðar
Gunnlaugsson lék í 66 mínútur með Norrköping.
Gefle-Djurgården 1-2
1-0 Johan Oremo (12.), 1-1 Sebastian Rajalasko
(24.), 1-2 Jones Kusi-Asare (30.).
Halmstad-Gautaborg 1-1
1-0 Peter Larsson (25.), 1-1 Thomas Olsson (42.).
Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn með Gautab.
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI Friðrik Ragnarsson,
þjálfari Grindavíkur, hefur tapað
níu leikjum í röð gegn Snæfelli á
Íslandsmóti, eða öllum leikjum í
deild eða úrslitakeppni síðan
Njarðvík vann 37 stiga sigur á
Snæfelli 4. desember 2003.
Snæfell sló lið Njarðvíkur
undir stjórn hans (3-0) út úr
undanúrslitum úrslitakeppninnar
2004, hefur unnið alla fjóra
deildarleiki liðanna síðustu tvö
tímabil og vann síðasta deildar-
leikinn við Njarðvík fyrir
úrslitakeppni fyrir fjórum árum.
Sá leikur var aðeins rúmum
mánuði eftir að Njarðvík hafði
slegið Snæfell út úr bikarkeppn-
inni en þar hefur Friðrik haft
betur í bæði skiptin því eini sigur
liða hans á Snæfelli á þessum
tíma var í 32 liða úrslitum í
bikarnum 26. nóvember 2006. - óój
Friðrik Ragnarsson:
Níu töp í röð
gegn Snæfelli
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar töpuðu
heimavallarréttinum í fyrsta leik
undanúrslitaeinvígis síns gegn
Snæfelli þegar Snæfellingar unnu
síðustu sex mínútur leiksins 19-7
og tryggðu sér 94-97 sigur.
Það dugði ekki Grindavíkurlið-
inu að skora 48 stig inni í teig eða
19 fleiri en Snæfell því Hólmarar
skoruðu á móti 41 stig úr þriggja
stiga skotum eða löngum tveggja
stiga skotum.
Það má því segja að hvort liðið
hafi blómstrað á sterkustu
sviðum hins. Grindvíkingurinn
Jamaal Williams skoraði 27 af 32
stigum sínum inni í teig eða
aðeins tveimur stigum minna en
allt Snæfellsliðið. Annar leikur
liðanna er í Stykkishólmi kl. 19:15
í kvöld. - óój
Lið Grindavíkur og Snæfells:
Skiptu um sér-
svið í fyrsta leik
> Ísland hækkar sig á FIFA-listanum
Íslenska fótboltalandsliðið fór upp um þrjú sæti í það 86.
á styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, en
nýr listi var gefinn út í gær. Ísland vann 3-0 sigur á Færeyj-
um í Kórnum í Kópavogi og 2-1 útisigur á Slóvakíu í Zlaté
Moravce á tímabilinu sem skilaði sér í þessari hækkun.
Sigur Íslands í Slóvakíu hafði reyndar enn meiri áhrif á
stöðu Slóvaka, sem fóru fyrir vikið niður
um átta sæti og hafa ekki verið neðar á
listanum í fimmtán ár en þeir eru nú í 66.
sæti. Færeyingar fóru niður um eitt sæti
og eru nú í 194. sæti listans.
FÓTBOLTI Manchester United og
Barcelona tryggðu sér farseðil-
inn í undanúrslit Meistaradeild-
arinnar í gær.
Sir Alex Ferguson gerði nokkr-
ar breytingar á byrjunarliði
Manchester United frá fyrri
leiknum gegn Roma og marka-
skorararnir Cristiano Ronaldo
og Wayne Rooney byrjuðu til að
mynda báðir á bekknum í gær.
Breytingarnar virtust ekki ætla
að hafa mikil áhrif á leik United
en liðið réði ferðinni framan af
og fékk tvö ágæt færi snemma
leiks sem fóru forgörðum.
Rómverjar spiluðu með vörn
sína hátt uppi á vellinum en virk-
uðu fyrir vikið stressaðir og ber-
skjaldaðir og leikmenn United
náðu hvað eftir annað að opna
hana upp á gátt. Roma skapaði
sér þó líka sín færi og þegar hálf-
tími var liðinn af leiknum fékk
liðið dæmda vítaspyrnu þegar
Mancini féll í teignum eftir ákaf-
lega litla snertingu frá Wes
Brown. Daniele De Rossi fór á
vítapunktinn og skaut hátt yfir
markið og ef til vill má segja að
réttlætinu hafi þar verið full-
nægt. Staðan var markalaus í
hálfleik.
Rómverjar reyndu hvað þeir
gátu til að sækja til sigurs í seinni
hálfleik en það voru hins vegar
heimamenn sem opnuðu marka-
reikninginn á 70. mínútu. Owen
Hargreaves átti þá einu sinni
sem oftar í leiknum frábæra
sendingu fyrir markið á Carlos
Tévez sem var vel staðsettur á
milli varnarmanna Roma og
skallaði boltann í fjærhornið,
óverjandi fyrir Doni í markinu.
Vonir Roma um að komast áfram
voru vitanlega litlar sem engar
eftir það og leikurinn fjaraði út
og 1-0 niðurstaðan.
Ferguson hafði yfir mörgu að
gleðjast í leikslok því Gary
Neville kom inn á seint í leiknum
eftir að hafa átt við erfið meiðsli
að etja meira og minna frá 17.
mars árið 2007.
„Ég er náttúrulega í skýjunum
með sigurinn og heimavallarmet-
ið er eitthvað sem við getum
verið mjög stoltir af,“ sagði
Ferguson sem bíður spenntur
eftir leikjunum gegn Barcelona.
„Ef allir verða heilir þá eigum
við möguleika. Þetta eru tvö góð
lið en annað liðið verður að tapa
einvíginu og ég hlakka til leikj-
anna,“ sagði Ferguson
Draumaeinvígi í undanúrslitum
Yaya Touré skoraði eina mark
leiksins á Nývangi í gær í lok fyrri
hálfleiks þegar varnarmönnum
Schalke hafði mistekist að hreinsa
boltann úr teignum eftir fyrirgjöf
Bojan Krkic. Þrátt fyrir mikla
baráttu gestanna, sem réðu ferð-
inni í fyrri hálfleik í gær, náðu
þeir ekki að skora í leiknum og
gátu í raun sjálfum sér um kennt
eftir að hafa misnotað góð færi í
báðum leikjum sínum gegn Barce-
lona. Heimamenn í Barcelona réðu
hins vegar ferðinni í síðari hálf-
leik og sigur þeirra var aldrei í
hættu. Eiður Smári Guðjohnsen
kom inn á fyrir Barcelona í upp-
bótartíma.
Það er því ljóst að þrjú ensk lið
verða í undanúrslitum Meistara-
deildarinnar og United og Barce-
lona mætast í sannkölluðum risa-
slag. omar@frettabladid.is
United setti met í Meistaradeildinni
Manchester United og Barcelona áttu ekki í miklum erfiðleikum með að tryggja sig áfram í undanúrslit
Meistaradeildarinnar í gær og mætast í draumaeinvígi margra knattspyrnuáhugamanna. United setti met
með ellefta sigurleiknum í röð á heimavelli í Meistaradeildinni. Roma og Schalke sátu eftir með sárt ennið.
SIGURMARKIÐ Argentínumaðurinn Carlos Tévez kastar sér hér fram og skallar boltann í markið með glæsilegum tilþrifum fram
hjá Doni í marki Roma. Rómverjar reyndu hvað þeir gátu í gærkvöld en United-liðið reyndist of sterkt og mætir Barcelona í risa-
slag í undanúrslitum. NORDIC PHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI ÍR-ingar fóru illa með
deildarmeistara Keflavíkur í
öðrum leik liðanna í undanúrslita-
einvígi þeirra í Iceland Express
deild karla í gær. ÍR vann auð-
veldan og sannfærandi 17 stiga
sigur, 94-77 og fer í lokaúrslitin
með einum sigri í viðbót. Keflvík-
ingar héldu aðeins í við ÍR-inga í
byrjun en eftir 30-15 sigur ÍR í
öðrum leikhluta var aldrei spurn-
ing hvernig færi. ÍR skoraði síðan
9 fyrstu stig seinni hálfleiks og
náði 23 stiga forskoti og Keflvík-
ingar náðu muninum aldrei niður
fyrir 14 stig eftir það.
„Þetta var ekki okkar dagur og
við vorum bara skelfilegir og
ömurlegir. Þeir hittu á hrikalega
góðan leik og það fór allt ofan í
hjá þeim,“ sagði Magnús Þór
Gunnarsson, fyrirliði Keflavíkur
en það er enginn efi í hans huga
hvernig einvígið fer. „Við erum
bara búnir að tapa tveimur leikj-
um og vinnum þetta 3-2. Það er
enginn efi í mínum huga, við
eigum eftir tvo leiki á heimavelli
og ÍR vinnur aldrei aftur í Kefla-
vík,“ sagði Magnús sem skoraði
17 stig á þeim 25 mínútum sem
hann lék í gær.
Líkt og áður stóðu margir sig
vel í ÍR-liðsins, fimm skoruðu 12
stig eða meira og Nate Brown og
Eiríkur Önundarson stjórnuðu
leik liðsins og skoruðu að auki
báðir 7 stig. Þeir Sveinbjörn Cla-
essen og Ómar Sævarsson eiga
sérstakt hrós skilið fyrir mjög
góðan leik, Sveinbjörn var með 19
stig og 70 prósent skotnýtingu og
Ómar kom með 12 stig, 10 fráköst
og 3 varin skot af bekknum.
„Ef Keflvíkingar eru ekki vakn-
aðir eftir þetta þá veit ég ekki
hvenær þeir vakna,“ sagði Eirík-
ur Önundarson, fyrirliði ÍR eftir
leikinn. „Þetta var frábær leikur
hjá okkur og hægt og sígandi
brotnuðu þeir. Mér fannst þeir
ekki eiga nein svör í dag en þetta
er fjarri því að vera búið,“ sagði
Eiríkur.
Eiríkur hefur upplifað tímanna
tvenna hjá ÍR og er nú aðeins
einum sigri frá því að spila um
Íslandsmeistaratitilinn.
„Ég hafði lengst komist á
Íslandsmóti að vinna einn leik í
undanúrslitum og það er búið að
bæta það. Þetta eru líka flestir
áhorfendur sem hafa komið í
Hellinn síðan ég byrjaði að spila
og ég vona að það verði framhald
á þessu. Við höfum sýnt að við
getum unnið hverja sem er og
hvar sem er en við þurfum að ein-
beita okkur að okkur sjálfum því
þegar við erum rétt stilltir þá
erum við illviðráðanlegir,“ segir
Eiríkur.
Nate Brown átti frábæran dag
og fær líka hrós frá fyrirliðanum.
„Þeir sem hafa verið að fylgjast
með okkur sjá hvað Nate er mikill
leiðtogi. Hreggviður vill kalla
hann hertogann og hann er það
því hann gerir alla helmingi betri.
Hann er alveg ómetanlegur fyrir
okkur,“ sagði Eiríkur um Nate
sem skaut aðeins fjórum sinnum
á körfuna í leiknum en spilaði
hins vegar félaga sína ítrekað
upp og endaði með 18 stoðsend-
ingar, eða einni fleiri en allt
Keflavíkurliðið til samans. - óój
Eiríkur Önundarson, fyrirliði ÍR, man ekki eftir fleirum á leik í Hellinum en á 17 stiga sigri á Keflavík í gær:
Rétt stilltir þá erum við illviðráðanlegir
FRÁBÆRIR Ómar Sævarsson (6) og
Sveinbjörn Claessen áttu báðir góðan
dag í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI