Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 6
6 10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR HEILBRIGÐISMÁL „Ég er á móti flöt- um sparnaði. Ég vil heldur að fólkið á gólfinu sé virkjað til að sjá út lausnir sem leiða til meiri nýtingu og minni fjárútláta,“ segir Gunnar Skúli Ármannsson, sérfræðingur á svæfingar- og gjörgæsludeild Landspítalans. Sjálfur hefur Gunn- ar sparað Landspítalanum rúmar sjö milljónir síðustu fimm ár með einföldum breytingum sem sjúkl ingar og starfsmenn kunna vel að meta. „Þegar ég kom frá Svíþjóð árið 1999 var einhverra hluta vegna komin upp sú hefð á spítalanum að tveir parkódin-stílar voru settir upp í endaþarm allra fullorðinna sjúklinga sem skornir voru þar upp,“ segir Gunnar sem velti því fyrir sér hvers vegna þetta væri gert bæði vegna þeirra óþæginda sem stílainngjöfin gat valdið sjúkl ingum og starfsfólki auk þess sem hann taldi mörg önnur lyf heppilegri fyrir sjúklinga. Fyrir fimm árum kom hann því svo til leiðar að nú fá þeir sem fara í aðgerð á spítalanum tvær töflur af panódíl. Bendir hann á að ef miðað sé við að 12.000 sjúklingar fái tvo parkódín-stíla kosti það ríkið yfir árið 1.413.600 krónur á ári en fái þeir allir tvær panódíl sé kostn- aðurinn vegna þess 41.280 krónur á ári. Með breytingunni sparist því 1,3 milljónir króna árlega án nokk- urra óþæginda, þvert á móti. - kdk Læknir bendir á að auðveldar leiðir til sparnaðar leynist víða öllum til hagsbóta: Sparaði sjúkum óþægindi og aura GUNNAR SKÚLI ÁRMANNSSON Telur að hentugustu leiðirnar til sparaðar leynist í að virkja starfsfólkið sjálft til að finna lausnir sem geti nýst öllum vel. ALÞINGI Enn er óljóst hvort stjórnvöld sækist eftir sérstöku íslensku ákvæði í samningaviðræðum um næsta skuldbindingartímabil Kyoto-bókunarinnar. Málið var rætt utan dagskrár á Alþingi í gær og reyndu þingmenn að krefja Þórunni Sveinbjarnar- dóttur umhverfisráðherra svara. Hún lét ekkert uppi um hugsanlegar sérkröfur og sagði ekkert ríki hafa enn lagt fram formlegar tillögur með töluleg- um skuldbindingum. Þórunn sagði Ísland meðal annars vilja skoða endurheimt votlendis sem viðurkennda bindingarleið gróðurhúsalofttegunda og að sértækum aðgerðum verði beitt til að minnka losun frá flugi og siglingum. Höskuldur Þór Þórhallsson, Framsóknarflokki, var málshefjandi og sagði hann afskaplega mikil- vægt að Ísland fái undanþágu frá endanlegum samningi. Það varðaði bæði fjárhagslega og umhverfislega hagsmuni. Flokksbróðir hans, Samúel Örn Erlingsson, gekk lengra og sagði mikilvægt að sótt yrði um eins mikla losunarkvóta og hægt væri. „Ég hvet ráðherrann til að berjast fyrir auknum losunarheimildum með kjafti og klóm,“ sagði Samúel. Sjö samningafundir eru boðaðir í ár og á næsta ári áður en endanlega verður gengið frá samkomulagi um næsta skuldbindingartímabil Kyoto-bókunarinn- ar í Kaupmannahöfn í lok næsa árs. - bþs Framsóknarmenn vilja að stjórnvöld berjist fyrir auknum losunarheimildum: Samningsmarkmið Íslands enn óljós ÞÓRUNN SVEINBJARNARDÓTTIR Enn er óljóst hvort stjórnvöld sækist eftir sérstöku íslensku ákvæði í samningaviðræðum um næsta skuldbindingatímabil Kyoto-bókunarinar. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI KÍNA, AP Kínversk stjórnvöld hyggjast banna reykingar í skólum. Ráðstöfunin er liður í viðleitni Kínastjórnar til að draga úr reykingum í landinu fyrir Ólympíuleikana í Peking í sumar, að því er kínverskir ríkisfjölmiðl- ar greindu frá. Bannið á að taka gildi á alþjóðlega reyklausa deginum 31. maí. Nýlega tilkynnti kínverska heilbrigðisráðuneytið bann við reykingum á flestum opinberum stöðum í Peking. Það bann á að taka gildi 1. maí. Um 350 milljónir Kínverja reykja, sem er þriðjungur allra reykingamanna heims. - aa Þrengt að reykingum í Kína: Reykingabann sett í skólum AFGANISTAN, AP Kjörstjórn í Afganistan hefur ákveðið að sameina ekki forseta- og þingkosn- ingar, heldur halda þær í tvennu lagi á næstu tveimur árum þrátt fyrir að því fylgi mikill kostnaður. Lagt hafði verið til að sameina kosningarnar í sparnaðarskyni. Síðast voru haldnar forsetakosn- ingar í Afganistan árið 2004 og þingkosningar árið 2005, og var alþjóðlegt gjafafé að mestu notað til að standa straum af því. - gb Kosningar í Afganistan: Verða haldnar í tvennu lagi TRYGGINGAMÁL Fjölskyldur sem ætla að fá endurgreiðslur frá Trygg- ingastofnun vegna talþjálfunar barna sinna þurfa að framfylgja svo ströngum formkröfum um umsókn að nær ómögulegt virðist fyrir þær og talmeinafræðinga að uppfylla þær. Þetta segir Andrés Ævar Grétarsson, faðir drengs á fimmta ári sem fæddist með skarð í vör og góm og hefur því þurft á tal- þjálfun að halda. Að sögn Friðriks Rúnars Guð- mundssonar, formanns Félags tal- kennara og talmeinafræðinga, sögðu flestir talmeinafræðingar sig frá gildandi samningi milli samn- inganefndar heilbrigðisráðherra fyrir áramót en aðalástæður þess voru óánægja með samskipti við Tryggingastofnun. Heilbrigðisráðherra lét því útbúa reglugerð um styrki Trygginga- stofnunar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga. Andr- és segir að Tryggingastofnun geri hins vegar svo strangar kröfur til umsókna að fjölskyldan hafi engar endurgreiðslur fengið eftir að tal- meinafræðingur þeirra sagði sig frá samningnum, þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir. „Við verðum því að greiða um það bil 25 til 30 þúsund krónur á mánuði fyrir talþjálfun sonar okkar. Hann þarf mikið á þessari þjónustu að halda en svo er komið að tilraunir okkar til að barn- ið okkar eigi sömu möguleika og önnur börn eru að sliga peningamál fjölskyldunnar,“ segir Andrés. Hann útskýrir því næst að meðal þeirra krafna sem gerðar eru til styrkumsókna séu að bæði foreldr- ar og talmeinafræðingur verði að útfylla plagg sem sýnir fram á komu barnsins í tíma og hvenær það fer út. Ekki megi skeika mínútu í útfyllingunum og því treysti tal- meinafræðingur þeirra sér ekki til að skrifa undir þessar tímalengdir eða fara eftir bókunartímum þar sem oft séu börn kölluð aðeins á undan inn í bókaðan tíma eða aðeins á eftir. Þá segir Friðrik Rúnar að þessar ströngu kröfur hafi gert það að verkum að mörgum talmeinafræð- ingum finnist sem þeim sé sýnt það mikið vantraust að þeir hafi ekki vilja til að ganga að þessum skilyrð- um Tryggingastofnunar. Eyrún Ísfold Gísladóttir tal- meinafræðingur segir að hennar reynsla sé sú að nægilegt sé að skrifa undir bókunartíma barnsins til að foreldrar fái endurgreiðslu að hluta fyrir meðferð barnsins, séu öll önnur atriði sem kveðið er á um innan reglugerðarinnar í lagi. „Fólki er samt gert ótrúlega erfitt fyrir og ég dáist að þeim foreldrum sem ná að halda sínu striki í þessu erfiða kerfi,“ segir hún. karen@frettabladid.is Fá ekki endurgreiðslu vegna talþjálfunar Faðir fjögurra ára drengs segir nær ómögulegt að uppfylla formkröfur vegna endurgreiðslna fyrir talþjálfun sonar þeirra. Þjálfunin sé drengnum algjör nauðsyn en greiðslur vegna hennar séu að sliga fjármál fjölskyldunnar. TRYGGINGASTOFNUN „Fólki er samt gert ótrúlega erfitt fyrir og ég dáist að þeim foreldrum sem ná að halda sínu striki í þessu erfiða kerfi,“ segir Eyrún Ísfold Gísladóttir talmeinafræðingur um þá erfiðleika sem hún segir mæta foreldrum hjá Tryggingastofnun. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR NÖKKVI PÁLL Nökkvi fæddist með skarð í vör og góm. Hann hefur gengist undir fjölda aðgerða vegna þessa en þarf á meðferð talmeinafræðings að halda. Faðir Nökkva segir fjölskylduna ekki hafa fengið endurgreiðslur frá Tryggingarstofnun og nú sé svo komið að greiðslunar séu að sliga peninga- mál fjölskyldunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Skoða kræklinga í Kanada Bergsveinn G. Reynisson hefur fengið 25 þúsund króna styrk frá Dalabyggð vegna ferðar til Kanada á ráðstefnu um kræklingarækt. Bergsveinn hyggur á kræklingarækt við innanverðan Breiðafjörð. DALABYGGÐ SVEITARSTJÓRNIR Miklar áhyggjur eru hjá mönnum í Hrunamanna- hreppi vegna lokunar útibús Kaupþings á Flúðum og óvissu með póstþjónustu. „Það er gríðarleg eftirsjá í bankanum og fólk almennt mjög ósátt við framvindu málsins,“ segir á heimasíðu Hrunamanna- hrepps þar sem kemur fram að sveitarstjórinn og oddvitinn hafi rætt við alla útibússtjóra bankanna á Selfossi. „Við sættum okkur illa við að missa þessar þjónustustofnanir,“ segir á heimasíðunni og lesendum bent á mótmælalista í versluninni Strax og á skrifstofu hreppsins. - gar Kaupþing lokar á Flúðum: Íbúar mótmæla lokun bankans ÍSÓLFUR GYLFI PÁLMASON Munu pálmatré skjóta rótum á Íslandi á okkar tímum? JÁ 15,7% NEI 84,3% SPURNING DAGSINS Í DAG Eiga Íslendingar að sniðganga Ólympíuleikana í Peking? Segðu skoðun þína á vísir.is KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.