Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 8
8 10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
1. Fyrir hvaða fræga leikskáld
léku þau Unnur Ösp og Björn
Thors í Bretlandi á dögunum?
2. Framkvæmdir við hvaða
jarðgöng hefjast í sumar?
3. Hvaða tónlistarmaður fékk
nýverið Pulitzer-verðlaunin?
SVÖR Á SÍÐU 58
STJÓRNMÁL Efnahagsvandinn og
fjármálakreppa bankakerfisins
verða ekki leyst með aðildarum-
sókn að Evrópusambandinu. Tal
um slíkt er ábyrgðarlaust.
Upptaka annars gjaldmiðils
leysi heldur ekki vandann.
Þetta segir í ályktun þing-
flokks Frjálslynda flokksins um
efnahagsvandann og Evrópu-
sambandið. Jafnframt segir að
flokkurinn hafi allan vara á um
hugsanlega Evrópusambands-
aðild enda ófrávíkjanleg afstaða
flokksins að Íslendingar fari
með forræði fiskistofnanna og
fiskveiðilögsögunnar og annarra
sameiginlegra auðlinda. - bþs
Frjálslyndi flokkurinn:
Engin lausn í
evru eða ESB
Fíkniefnafundur í austurbæ
Meint fíkniefni fundust í heimahúsi
í austurborg Reykjavíkur klukkan
hálf fimm aðfaranótt miðvikudags.
Lögregla var kölluð að húsinu til
að aðstoða leigubílstjóra vegna
farþega. Þegar inn var komið fannst
nokkurt magn stera og ótilgreint
hvítt efni.
LÖGREGLUFRÉTTIR
DÓMSMÁL Karlmaður á fertugs-
aldri var í gær dæmdur í níu mán-
aða fangelsi í Héraðsdómi Reykja-
víkur fyrir að hafa ítrekað verið
tekinn með fíkniefni í vörslu sinni.
Hálfu ári af refsingunni er frestað,
haldi hann skilorð í þrjú ár. Hann
var einnig sviptur ökuleyfi í tvö
ár.
Maðurinn var fyrst gripinn 10.
október síðastliðinn, þá með lítil-
ræði af hassi og amfetamíni í
fórum sínum. Daginn eftir var
hann aftur tekinn, þá með tæp 250
grömm af hassi, 19 grömm af amf-
etamíni, tæpt gramm af kókaíni,
tæp 10 grömm af kannabislaufum
og tíu kannabisplöntur.
Þremur dögum síðar var maður-
inn tekinn á bifreiðastæði í
Reykjavík með hass, amfetamín
og kannabisefni, grunaður um að
hafa ekið bifreið þangað og var
sviptur ökurétti. Þremur dögum
síðar var hann aftur tekinn, grun-
aður um akstur undir áhrifum
eiturlyfja.
Loks var hann tekinn 18. febrúar
síðastliðinn með tæp fjögur
grömm af hassi í fórum sínum.
Maðurinn á langan sakaferil að
baki síðustu tólf ár. - sgj
31 árs karlmaður hlaut í gær níu mánaða dóm fyrir vörslu ýmissa eiturlyfja:
Ítrekað gripinn með fíkniefni
EITURLYF Hinn dæmdi hafði hlotið fjór-
tán refsingar frá 1995 til 2005, aðallega
fyrir hegningarlaga- og fíkniefnalagabrot.
STJÓRNMÁL „Við ræddum stöðu
mála í Tíbet vegna hugmynda um
hvort það væri tilefni til að utan-
ríkismálanefnd ályktaði eða
beindi frá sér tilmælum vegna
ástandsins í Tíbet en það hefur
ekki verið tekin nein ákvörðun
um slíkt,“ segir Bjarni Benedikts-
son, formaður utanríkismála-
nefndar, en nefndin fundaði í gær.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra sat fund nefndar-
innar.
Utanríkismálanefnd fjallaði
um stöðu mála í Tíbet en ekki var
rædd sú afstaða Ingibjargar Sól-
rúnar að til greina kæmi að end-
urskoða að íslenskir ráðamenn
mæti til Ólympíuleikanna í Pek-
ing í sumar. „Þetta var vinnufund-
ur þar sem farið var yfir þær
upplýsingar sem ráðuneytið
hefur aflað sér um ástandið í
Tíbet.“
Nefndin fjallaði um þingsálykt-
unartillögu um meint mannrétt-
indabrot í fangabúðum Banda-
ríkjanna í Guantánamo á Kúbu.
Þar er lagt til að íslensk stjórn-
völd fordæmi þau og að banda-
rísk stjórnvöld verði hvött til að
fangabúðunum verði lokað. „Í
fyrstu umræðu á þinginu um
málið komu fram jákvæðar und-
irtektir frá þingmönnum úr öllum
flokkum og í ljósi þess tókum við
málið á dagskrá.“
Hatton Rockall-deilan var einn-
ig á dagskrá fundarins þar sem
Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræð-
ingur í utanríkisráðuneytinu,
kynnti nefndarmönnum áherslur
stjórnvalda í áframhaldandi
samningaviðræðum. - shá
Utanríkismálanefnd fjallaði um málefni Tíbet og um fangabúðir í Guantanamo:
Ræddu um mannréttindabrot
UTANRÍKISMÁLANEFND Mannréttindabrot í Tíbet og Bandaríkjunum voru til umræðu
í nefndinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
GÓÐGERÐAMÁL Landsbankinn
styrkir landssöfnun Lionshreyf-
ingarinnar á Íslandi, Rauðu
fjöðrina, um eina milljón króna.
Markmiðið með söfnuninni í ár
var að safna fé til að kaupa og
þjálfa leiðsöguhunda fyrir
blinda og sjónskerta.
Söfnunin stóð yfir dagana 3. til
6. apríl um land allt og var þetta
í níunda sinn sem hún var
haldin. Fyrsta söfnunin fór fram
árið 1972, en þá rann söfnunar-
féð til stofnunar augnlækninga-
deildar Landakots. Síðasta
söfnun var árið 2004 til styrktar
langveikum börnum.
- sgj
Landsbankinn styrkir:
Lionssöfnun
fær milljón
MÓTMÆLI Lögregla tók skýrslu af
Sturlu Jónssyni, talsmanni
atvinnubílstjóra, í gærmorgun.
Kristján Óli Guðmundsson
yfirlögregluþjónn staðfestir að það
hafi verið vegna meintra brota á
almennum hegningarlögum um
almannahættu. Það hafi bæði
snúist að aðgerðum undafarinna
vikna og mögulegum aðgerðum í
framtíðinni.
Sturla segist hafa verið tekinn
fyrir sem skipuleggjandi mót-
mæla, en í raun sé ekkert skipulag
á þeim. Hann segir menn vera að
íhuga áframhaldandi mótmæli og
hvetur fólk til að hengja eitthvað
rautt á bílspeglana til að sýna
bílstjórum samstöðu. - kóp
Bílstjóri hjá lögreglu:
Í skýrslutöku
vegna mótmæla
MÆTTUR TIL SKÝRSLUTÖKU Sturla mætti
snemma á lögreglustöðina.
UMM er spennandi nýjung í matarflóru Íslendinga sem hentar öllum sem hugsa um líkama
sinn og vilja b orða vel. UMM er bragðsterk veisla frá öllum heimshornum; salöt, tortillur,
veá xtir, kús kú s, orkustykki og ... umm, hvað þetta er gott.
UMM ER GLÆNÝR HEILSUBITI ÚR SPENNANDI HRÁEFNI
BORÐAÐU
VEL
–
BORÐAUVEL-B
O
L -
RÐ
AÐ
U
VE
VEISTU SVARIÐ?