Fréttablaðið - 10.04.2008, Side 13

Fréttablaðið - 10.04.2008, Side 13
FIMMTUDAGUR 10. apríl 2008 13 SAMGÖNGUR Hópur Vestmannaey- inga undir forystu Magnúsar Kristinssonar útgerðarmanns hefur skipulagt undirskriftasöfn- un á slóðinni strondumekki.is. Með þessu vill hópurinn mótmæla byggingu ferjulægis í Bakkafjöru og hvetja yfirvöld til að leysa þann vanda sem samgöngur milli lands og Eyja eru í með því að byggja hraðskreiða ferju sem gengi á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. Þetta kemur fram á fréttavefnum glugginn.is. Í tilkynningu frá forsvars- mönnum hópsins kemur fram að hópurinn hafni algjörlega hugmyndum sem uppi eru um að byggja ferjulægi í Bakkafjöru vegna þess að sú útfærsla muni ekki stytta ferðatíma milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja sem nokkru nemi. - shá Vilja ferju til Þorlákshafnar: Mótmæla ferju- lægi í Bakkafjöru HERJÓLFUR Hópur Vestmannaeyinga vill ekki sjá ferjulægi í Bakkafjöru. SJÁVARÚTVEGUR Einar K. Guð- finnsson sjávarútvegsráðherra hefur samþykkt tillögur stjórnar AVS rannsóknasjóðs varðandi úthlutun aflaheimilda til áframeldis á þorski fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Þetta er í sjöunda sinn sem úthlutað er. Níu fyrirtæki sóttu um kvóta að þessu sinni og sóttu þau um tæp 700 tonn, en til ráðstöfunar eru 500 tonn, sem átta fyrirtæki fengu að þessu sinni til þess að vinna með í sínum verkefnum. Fyrirtækin eru: Þorskeldi á Stöðvarfirði, 50 tonn, Síldarvinnslan á Norðfirði, 20 tonn, Einherji á Patreksfirði, 10 tonn, Glaður í Bolungarvík, 15 tonn, Hraðfrystihúsið Gunnvör á Hnífsdal, 125 tonn, Þóroddur á Tálknafirði, 75 tonn, Brim fiskeldi á Akureyri, 80 tonn og Álfsfell á Ísafirði, 125 tonn. - shá Áframeldi á þorski: Átta fyrirtæki fengu kvóta SÚÐAVÍK Vestfirðingar eiga von á um þrjú þúsund þýskum ferðamönnum í sjóstanga- veiði í sumar. Ómar Már Jónsson, sveitar- stjóri í Súðavík, segir að aðsóknin í sjó- stangaveiðina fari ört vaxandi. Um 400 þúsund manns stundi sjóstangaveiði í Þýskalandi og markaðurinn vaxi, ekki bara í Þýskalandi heldur líka í nágrannalöndunum eins og Hollandi. Þjóðverjarnir koma á vegum tveggja fyrirtækja, Sumarbyggðar og Hvíldarkletts. Heildarveltan í kringum komu þeirra hingað til lands nemur um 450 milljónum króna í ár og fá Súðvíkingar hluta af henni. Þjóðverj- arnir greiða 1.300 evrur fyrir að koma í sjóstangaveiðina, ferðir, húsnæði og bát á miðin. Talið er að þeir eyði 20-25 þúsund krónum á mann þá viku sem þeir dvelja hér. Það gefur um 60 milljóna króna veltu sem fer nánast öll til Súðvíkinga. „Það er góð búbót í litlu plássi,“ segir Ómar. „Sjóstangaveiðimaður kemur til Íslands svipað og Íslendingur sem fer til Spánar til að liggja í sólbaði. Þjóðverjarnir koma og veiða alla daga frá morgni og langt fram á kvöld. Allt snýst um að ná í þann stóra. Ef þeir ná stórum fiski þá tekur við myndataka sem þeir geta sýnt þegar heim er komið,“ segir Ómar. Hann bendir á að Þjóðverjarnir komi hingað vegna þess að hér séu „gríðarlega gjöful fiskimið í lítilli fjarlægð frá heima- höfnum. Við bjóðum upp á góða aðstöðu, sérsmíðaða flotta báta sem þeir eru sjálfir skipherrar á.“ - ghs Vestfirðir njóta vaxandi vinsælda meðal erlendra ferðamanna: Þrjú þúsund Þjóðverjar í sjóstangveiði VEIÐA ALLA DAGA Þjóðverjarnir „veiða alla daga frá morgni og langt fram á kvöld“, segir Ómar Már Jóns- son, sveitarstjóri í Súðavík. BANDARÍKIN Aldraður maður í rafmagnshjólastól rændi banka í Palo Alto í Kaliforníu í Bandaríkj- unum á dögunum, vopnaður skammbyssu, og slapp undan lögreglu. Hafði hann peninga á brott með sér. Maðurinn, sem er hvíthærður og á sjötugsaldri, sást síðast þar sem hann brunaði út úr bankan- um á rafmagnshjólastól. Öryggis- myndavélar náðu ekki góðum myndum af manninum þar sem hann var með hettu. Ræningjans er enn leitað. - sgj Aldraður glæpamaður: Rændi banka og komst und- an í hjólastól

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.