Fréttablaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 38
10. APRÍL 2008 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● suðurland
Á bænum Efri-Vík við Kirkju-
bæjarklaustur er rekið heilsu-
hótelið Laki, þar sem verið er
að byggja heilsulind.
Hjónin Hörður Davíðsson og Sal-
óme Ragnarsdóttir höfðu rekið
bændagistingu í þrjátíu ár áður en
þau réðust í byggingu Hótels Laka.
Þau reka nú hótelið í samstarfi við
Evu Björk Harðardóttur og Þor-
stein M. Kristinsson.
Á hótelinu er lögð áhersla á
heilsu og boðið upp á hollan mat
og hreyfingu. Annar áfangi hótels-
ins af þremur er nú í byggingu en
þegar er búið að taka í gagnið sex-
tán gistiherbergi, matsal, bar og
nýtt eldhús. Arkitektastofan Yrki
hf. teiknaði húsið.
„Við erum að byggja upp heljar-
innar heilsulind hérna í Efri-Vík,“
segir Eva Björk, sem er stafgöngu-
þjálfari. „Áætlað er að taka þá
álmu í notkun í haust, svo að næsta
vetur getum við boðið upp á ýmiss
konar heilsumeðferðir, meðal ann-
ars leirböð. Núna erum við með
hefðbundna starfsemi en hér eru
heitur pottur og sauna. Hjá okkur
starfar nuddari og við bjóðum upp
á heilsunudd. Svo eru á skrá hjá
okkur meðferðaraðilar sem bíða
bara eftir nýju aðstöðunni.“
Að sögn Evu er margt annað í
boði á hótelinu. „Við tökum á móti
hópum og hér eru haldnar árshá-
tíðir. Þá bjóðum við upp á sælkera
matseðil og fundaraðstöðu líka.
Svo höfum farið með hópana okkar
í stafgöngu hér í kring.“
Eva telur að Íslendingar gætu
markaðssett heilsulindina Ísland
betur og þeir ættu því ekki að þurfa
að leita á heilsuhótel erlendis. „Við
eigum þetta allt hér heima, heita
vatnið, hreina loftið og náttúruna.
Þannig að við ættum að líta okkur
nær og beina okkar ferðaþjónustu
meira í þessa átt. Þetta er okkar
fyrsta skref hér á Hótel Laka.“ - rat
Heilsulind á Hótel Laka
Hönnunin á Hótel Laka var í höndum
arkitektastofunnar Yrki hf.
Fyrsta áfanga í hótelbyggingunni er þegar búið að taka í notkun.
Gullfoss er ein af vinsælli náttúruperlum Íslands. En auk þess að njóta
einstakrar náttúrufegurðar er einnig hægt að verða sér úti um hefðbund-
inn íslenskan mat á kaffihúsinu Gullfosskaffi, sem er þekkt fyrir ljúf-
fenga kjötsúpu.
„Við bjóðum upp á ekta íslenska kjötsúpu sem allir eru ánægðir með.
Við erum einnig með súpu dagsins, sem er alltaf grænmetissúpa, og ýmis
brauð, til dæmis beyglur, samlokur og tertur. Allur matur og brauð sem
við bjóðum upp á er búið til á staðnum og því er allt nýtt og ferskt hjá
okkur,“ segir Elfa Björk Magnúsdóttir.
Staðurinn hefur verið í eigu og rekinn af Elfu og Svavari Njarðarsyni
frá árinu 1994. Frá þeim tíma hefur staðurinn tekið ýmsum breytingum.
„Í fyrstu vorum við í tjaldi og gerðum okkar besta til að veita þá þjón-
ustu sem við gátum og var þá um árstíðarbundinn rekstur að ræða yfir
sumartímann,“ rifjar Elfa upp. Hundrað og fimmtíu fermetra veitinga-
skáli var síðan byggður árið 2000. Þremur árum síðar varð skálinn orð-
inn þrjú hundruð og tíu fermetrar sem tekur tvö hundruð og fimmtíu
manns í sæti.
Þess má einnig geta að í húsnæðinu er rekin minjagripaverslun, með
hvers kyns minjagripum og hlífðarfatnaði.
Gullfosskaffi er opið allt árið alla daga og því er tilvalið að kíkja við
eftir að hafa skoðað Gullfoss sjálfan. - mmr
Íslensk kjötsúpa á Gullfossi
Hjá Gullfosskaffi geta allt að tvöhundruð og fimmtíu manns setið og borðað
Á Suðurlandi eru fjölmargir ferðamöguleikar og getur verið gaman að
fara í stuttar dagsferðir á mismunandi staði. Í Þjórsárdal er til að mynda
ýmislegt áhugavert að sjá og margt hægt að gera sér til skemmtunar.
Skammt frá Búrfellsvirkjun er Hjálparfoss og Þjóðveldisbærinn, sem
er eftirlíking af þjóðveldisbæ og var gerður í tilefni af ellefu hundruð ára
afmæli Íslandsbyggðar.
Skammt frá er sundlaug í Reykholti eða svokölluð Þjórsárdalslaug. Upp-
haf hennar má rekja til þess að menn fundu og nýttu sér heitt vatn stað-
arins á virkjunartímabili Búrfells og grófu laug. Landsvirkjun lét síðan
stækka hana og hafa miklar endurbætur verið gerðar á vatnskerfi hennar
síðastliðið ár. Þá hefur búningsaðstaða verið endurnýjuð. Vatnið í lauginni
er afar súrefnisríkt og þykir gott fyrir viðkvæma húð. Laugin er höfð opin
miðvikudaga til sunnudaga á sumrin.
Eftir heilnæman sundsprett er hægt að fara upp að Stöng sem eru
rústir af þjóðveldisbæ frá tólftu öld sem fundust við uppgröft árið 1939.
Rústirnar voru notaðar sem fyrirmynd við gerð Þjóðveldisbæjarins.
Frá Stöng er stuttur göngutúr inn að Gjá sem er sérstætt og fallegt
gljúfur. Gjárfoss sem rennur niður gljúfrið er einstök náttúruperla. Þar
í kring eru einnig spennandi hellar þar sem fjalla- og ferðamenn höfðu
náttstað á árum áður.
Þá er hægt að aka inn að Háafossi sem er aðeins innar í landinu og fara
í Hólaskóg þar sem boðið er upp á fjórhjólaferðir. - ve
Náttúrufegurð í Þjórsárdal
Hjálparfoss er skammt frá Búrfellsvirkjun. MYND/JKBS