Fréttablaðið - 10.04.2008, Side 52
36 10. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Eldhús helvítis
Að baka vandræði
Þetta er sjúkur heimur
þarna á internetinu! Ég
leita í sakleysi mínu að
uppskriftum að feitum
mat, og hvað sé ég?
Sódómu og
Gómorru!
Obbobbobb!
Að hverju
leitaðirðu?
Heitum
gellum í
olíu!
Og fékkst
þetta?
Sjúkur, sjúk-
ur heimur!
Já, svona er
þetta sem sagt
orðið! Æ, æ, æ...
Námsefni sum-
arsins virðist
leggjast þungt
á Palla.
Þetta er nú
einu sinni bara
Moby Dick!
Lestu og hættu
þessu væli!
OHHH!
Það er virkilega heitt.
Það er kominn
matur, Hannes, taktu
grímuna nú af þér.
Ókei.
Hannes snýr
aftur eftir stutt
auglýsingahlé.
Ekki fara langt,
við komum
fljótt aftur!
Láttu mig bara
fá mat fyrir 30
sekúndur.
Í þessu upplýsinga-
þjóðfélagi sem við
búum í hérna á
Íslandi er alltaf hægt
að komast að ein-
hverju nýju. Ég hef
alla tíð verið hálfur
Spánverji og tel mig
verða það áfram um
ókomna tíð. Faðir minn er frá
Spáni, nánar tiltekið frá Galisíu,
og er því Galisíubúi. Ég hef hingað
til kallað hann sveitalubba. Faðir
minn kemur úr sveit eins og sveit
gerist best. Hægt er að líkja henni
við íslenska sveit um aldamótin
þarsíðustu. Amma og afi ganga
um í tréklossum og nota orf og ljá
við slátt. Rafmagn er takmarkað
og símar eru enn nýjung fyrir
fólkið í sveitinni. Það er alltaf
svaka fjör að sjá þegar síminn
hringir því það er barist um að
svara. Enda svo mikið tækniundur
að geta spjallað við fólk á öðrum
bæjum, hvað þá í öðru landi. En
eins og í hverju öðru krummaskuði
á Spáni má finna þarna bar sem
uppfyllir allt sem þarf á góðum
bar. En nóg um sveitina, hún er
fögur og flott og alltaf gaman að
koma þangað.
Sveitin fékk hins vegar nýja
vídd hjá mér þegar ég komst að
því að einræðisherrarnir Fidel
Castro og Francisco Franco eiga
báðir rætur að rekja þangað. Það
er skemmtilegt að hugsa til þess
að þeir eru að öllum líkindum
skyldir mér að einhverju leyti.
Hugsanlega gæti það útskýrt hina
frábæru einræðisherratakta sem
faðir minn hefur sýnt í gegnum
tíðina. Faðir minn hefur klárlega
sama blóð og þeir Castro og
Franco. Hann hefur sínar skoðan-
ir og segir allt sem hann vill segja
og er ekki mikið fyrir að hlusta á
skoðanir sem eru andstæðar hans.
Nú er mál að skella Kára Stef-
áns ofan í tösku og fljúga með
hann til Kúbu, fá þar blóð úr
Castro. Frá Kúbu skal halda til
Spánar og grafa upp bein Francos
og taka úr þeim sýni. Með þessu
ætti ég að geta gengið úr skugga
um að þessir tveir einræðisherrar
séu skyldir mér. Ef svo er þá get
ég fyrst montað mig af því að eiga
tvo fræga frændur.
STUÐ MILLI STRÍÐA Frægir frændur
MIKAEL MARINÓ RIVERA GÆTI ÁTT TVO FRÆGA FRÆNDUR