Fréttablaðið - 14.04.2008, Síða 47
MÁNUDAGUR 14. apríl 2008 23
Gran Turismo 5: Prologue er fors-
mekkurinn á GT 5 sem á að koma
út á næsta ári fyrir Playstation 3.
Leikurinn er dálítið sérstakur fyrir
þær sakir að hann stígur línuna á
milli þess að vera sýnishorn eða
full útgáfa. Hann er einhvers stað-
ar mitt á milli og þess vegna erfitt
að vita hvernig á að eiga við hann.
Leikurinn inniheldur sex brautir
sem er hægt að spila bæði venju-
lega eða speglaðar. Í leiknum eru
síðan um sjötíu bílar sem er hægt
að keppa á. Leikurinn, sem skartar
fullri háskerpuupplausn og sextíu
römmum á sekúndu, lítur meiri-
háttar vel út og nýtur sín vel í
stóru háskerpu sjónvarpstæki. Í
hljóðdeildinni svíkur leikurinn
ekki heldur; skartar 7.1 hljóðrás-
um og hæfir vel í heimabíóið.
GT-leikirnir hafa ávallt gengið
út á raunveruleika og að þér finn-
ist þú upplifa raunveruleikann
þegar þú keyrir um brautir leiks-
ins. Stór munur er á milli þess að
keyra um á WV Golf GT eða Ford
Mustang, hver bíll hefur sína eigin
tilfinningu í akstri. Fyrir gírhaus-
ana er hægt að eyða talsverðum
tíma í að fínstilla bílinn, fjöðrun-
ina og annað, og fyrir hina er hægt
að leyfa leiknum að velja fyrir
sig.
Þegar þú ert búinn að eyða
góðum tíma í að klára allar keppn-
ir og ná öllum prófum sem er hægt
að ná bíður eftir þér netspilun og
er það í fyrsta sinn sem GT-serían
skartar því. Sextán leikmenn geta
spilað í einu saman í keppnum á
netinu. Leikurinn er með skemmti-
legan hlut sem kallast GT TV og er
þar hægt að horfa á háskerpu
myndbrot um bíla og annað því
tengt og síðar verður hægt að
horfa á bresku Top Gear-þættina í
gegnum þetta. Hönnuðir leiksins
hafa lofað viðbótum sem verða
gefnar út á næstu mánuðum, eins
og fleiri brautum og bílum, og mun
það líklega auka endingu leiksins.
Spurningin er, er leikurinn þess
virði að kaupa? Er verið að kaupa
sýnishorn eða eitthvað meira?
Svarið er að leikurinn fer línuna
mitt á milli og er vel þess virði að
kíkja á fyrir bílaáhugamenn og
mun stytta þeim stundirnar þang-
að til Gran Turismo 5 kemur út að
ári. Ekki sakar að leikurinn er á
lægra verði. Sveinn A. Gunnarsson
Frábær upphitun
TÖLVULEIKIR
Gran Turismo 5: Prologue
Playstation 3
Pegi: 3+
★★★★
Forsmekkur að því sem koma skal.
Þegar Eurobandið stígur á svið í
Belgrad 22. maí næstkomandi
verður enskan áberandi vinsælasta
tungumálið hjá flytjendum í okkar
hópi. Af þeim nítján þjóðum sem
þar etja kappi hafa þrettán valið að
flytja lag sitt á ensku, en sex ætla
að halda í þjóðareinkennin.
Tyrkneska lagið verður flutt á
þeirra ástkæra og ylhýra, þegar
rokksveitin Mor ve Ötesi (Fjólu-
blár og meira) hristir upp í áhorf-
endum með laginu Deli. Albanía
heldur sig einnig við eigið tungu-
mál í laginu Zemren e lame peng,
þar sem það þótti of erfitt að snara
textanum yfir á ensku. Frá Sviss
kemur Paolo Meneguzzi, sem er af
ítölsku ætterni þó að hann sé fædd-
ur í landi osts og vasahnífa. Hann
syngur lagið Era Stupendo og það á
ítölsku. Lagið Romanca, frá Króa-
tíu, verður að öllum líkindum flutt
á króatísku, þó að fjölmargar aðrar
útgáfur af því hafi hingað til verið
teknar upp, þar á meðal á ensku og
rússnesku. Fulltrúi Kýpur syngur
um Femme Fatale á grísku, og hin
portúgalska Vania syngur Senhora
do mar á sinni tungu, eins og Portú-
galir hafa gjarnan gert.
Enskan efst á vinsældalista
SVISS Á ÍTÖLSKU Paolo Meneguzzi er af
ítölskum ættum og mun flytja framlag
Sviss, Era Stupendo, á ítölsku í Belgrad
í maí.
Lightspeed Champion er einmenn-
ingsverkefni Devonte Hynes úr
hinni sálugu indí-pönksveit Test
Icicle en með þessu nýja verkefni
stígur Hynes stórt og mikið hlið-
arspor frá tónlist hennar. Best er
að lýsa tónlist Lightspeed Champ-
ion sem bresku útgáfunni af
Bright Eyes. Það er svo sem ekki
leiðum að líkjast, enda flaug
Hynes alla leið til Omaha í
Nebraska, heimabæ Conors
Oberst í Bright Eyes, til að taka
upp plötuna sem hér er til umfjöll-
unar. Um upptökustjórn sá Mike
Mogis, einnig meðlimur í Bright
Eyes, og þess vegna er ekki að
ósekju að nafn Bright Eyes skjóti
fljótt upp kollinum þegar Falling
off the Lavender Bridge snýst um
geislann.
Að eigin sögn er umfjöllunar-
efni Hynes á plötunni tvískipt,
annars vegar fáum við að heyra
sögur úr draumum hans og hins
vegar sannar sögur úr lífshlaupi
hans. Reyndar er erfitt að átta sig
á því hvort textar Hynes séu ein-
lægir ástartextar, háðsglósur til
samtímans eða einfaldlega klúð-
urslegt þvaður. Af þeim sökum
verður Hynes oft kjánalegur í frá-
sögn sinni og ótrúverðugur. I feel
the nigga eyes staring/Makes me
want to rip off my skin/Sketchy
motherfuckers/Take me to the
great heights...
En Hynes á sína spretti og nýtur
sín oft fullkomlega. I Could Have
Done This Myself er til dæmis
brosleg og kaldhæðnisleg saga um
aðra kynlífsreynslu Hynes (hann
man víst ekki eftir fyrsta skipt-
inu). Ekki má heldur líta framhjá
tíu mínútna sagnabálkinum Mid-
night Surprise sem er með besta
alternative-country sem nokkur
Breti hefur sent frá sér. Hynes
hefur þetta greinilega í sér en
hann þarf einfaldlega að móta list-
sköpun sína betur.
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Í tilfinningatjóni
TÓNLIST
Falling off the Lavender Bridge
Lightspeed Champion
★★★
Fyrrverandi meðlimur hinnar háværu
Test Icicles skellir sér í sveitatónlist-
argalla, leitar á slóðir Bright Eyes og
endar með prýðilegan grip um raun-
veruleikann í draumunum sínum.
39 DAGAR TIL STEFNU
Hópur afrískra tónlistarmanna
hefur ákveðið að heiðra írsku
rokkgoðin í U2 með því að gefa
út þeirra helstu lög á safnplötu,
en Bono og félagar hafa verið
fremstir í flokki poppara sem
hafa barist fyrir bættum hag
Afríku.
Lögin verða að sjálfsögðu í
afrískri umgjörð og mun platan
heita In the Name of Love: Afri-
ca Celebrates U2. Upptökustjór-
arnir Shaun Amos og Paul Heck
segja að þeir vonist til að platan
eigi eftir vekja enn frekari
athygli á afrískri tónlist á Vest-
urlöndum. „Við vonumst til að
diskurinn veki fólk til umhugs-
unar um afríska menningu og
verði til þess að alþjóðasamfé-
lagið kynni sér málefni heims-
álfunnar betur.“
U2 heiðraðir í Afríku
FÁ HEIÐURSPLÖTU Afrískir tónlistar-
menn ætla að heiðra U2 með plötu en
þar verða þeirra helstu lög í afrískum
búningum.