Tíminn - 02.02.1982, Blaðsíða 3
ÞriOjudagur 2. febrúar 1982.
3
fréttir
Um 60% eignarhluti íVídeósón til sölu:
SAMTÖKUM KVIKMYNDAHIjSA-
EIGENDA BOÐIB AÐ KAUPA!
■ „Það er rétt að við erum aö
reyna að selja hiutabréf I Video-
són, a.m.k. Iieiming þeirra og
jafnvel meira,” sagði Kári Fann-
dal, sölumaður hjá Fasteigna-
þjónustunni Austurstræti 17, þeg-
ar Timinn innti liann eftir þvi
hvort rétt væri að Fasteignaþjón-
ustan væri með fyrirtækið Video-
són til sölu.
„Það er svo stutt siðan að við
byrjuðum að leita eftir kaupend-
um að allt tal um væntanlegt
söluverð er meira og minna út i
bláinn, ég reikna með að verðið
ráðist af þeim tilboðum sem
fást.”
— Eru samtök kvikmyndahúsa-
eigenda væntaniegir kaupendur?
,,Ja, það hefur verið rætt við
þá, en á þessu stigi málsins er
ómögulegt að segja hvort þeir
verða með.”
„ Já þetta hefur verið orðað við
mig”, sagði Grétar Hjartarson,
formaður félags kvikmyndahúsa-
eigenda, i samtali viö Timann i
gær.
„A þessu stigi er ómögulegt að
segjahvort við tökum þáttí kaup-
unum á fyrirtækinu, það er enn
ekki farið að ræða um verðið en
við höldum félagsfund á miðviku-
daginn og þá verður þetta rætt,”
sagði hann.
— Var talað um einhvern
ákveðinn hluta hlutabréfanna?
, ,Já ,*mér skildist að þeir ætluðu
að reyna að selja 60% sem er
eignarhluti Njáls Harðarsonar.”
Njáll Harðarson, annar eigandi
Vídeósón kvað það rétt vera að
hann væri aö kanna möguleikana
á sölu sins hluta i fyrirtækinu,
hann sagði, „það sem er til um-
ræðu núna erað ég selji minn hlut
en að Sigurður haldi sinum, en
um verðerekkert farið aðræða.”
— Sjó.
Kvennaframboðið ákveðið
■ ,,í sveitarstjórnum eru nú 71
kona á móti 1.076 körlum” sögðu
aðstandendur samtaka um
kvennaframboð sem samþykkt
var að stofna á fundi er haldinn
var á Hótel Borg um helgina. A
þeim fundi gerðust 150 stofnfélag-
ar að samtökunum.
Kvennaframboðiö er til húsa að
Hótel Vik við Hallærisplanið, ,,i
góöu sambýli við unglingana fyrir
utan og húsdrauginn á 2. hæð-
inni” eins og hópurinn segir.
Fyrsti félagsfundur samtak-
anna-verður haldinn n.k. laugar-
dag. Þá verður kosið i nefndir:
Framkvæmdanefnd, fjáröflunar-
nefnd, kynningarnefnd, upp-
stiilingarnefnd, stefnuskrár-
nefnd, ritstjórn og hússtjórn.
Þegar eru starfandi málefnahóp-
ar um: Atvinnumái, valddreif-
ingu i borginni, uppeldismál,
■ Nokkrar fyrirsvarskonur kvennaframboðsins fyrir utan Hótel Vlk f
gær. Timamynd: Ella
æskulýðsmál, húsnæðismál, innar, athvarf fyrir konur,
skipuiagsmál, fjármál borgar- öldrunarmál, menningarmál og
fyrirbyggjandi heilsugæslu.-HEI
Sjálfstæðismenn sakadir um
ad hafa beitt sér mjög í próf-
kjöri krata í Vestmannaeyjum:
Ottast nú
hefndir!
■ „Ég hef viða heyrt þetta og
hef verið hundskammaður,
aðallega af öðrum krataarm-
inum, enþettaer tóm lygi. Ég
veit að það var einn sjálf-
stæðismaður sem vann fyrir
Þorbjörn, en um aðra veit ég
ekki”, svaraði Georg
Kristjánsson, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins i Vest-
mannaeyjum er Timinn bar
undir hann þau tiðindi er nú
ganga fjöllunum hærra i Eyj-
um, að hann hafi verið hvað
ötulastur sjálfstæðismanna
þar að vinna að sigri Þor-
björns Pálssonar i prófkjöri
Alþýðuflokksins sem fór þar
fram s.l. laugardag. En þá
náði Þorbjörn 1. sætinu með
174 atkvæðum en Guömundur
Þ.B. ölafsson, sem nú er
bæjarfulltrúi, hlaut 144 at-
kvæði i' 1. sæti og 127 i annað
sæti.
Þorbjörn Pálsson kvaðst
hafa krafist þess að farið yrði
yfirnöfn þeirra sem kusu. ,,Og
það voru aðeins 12 atkvæði eða
innan við 2%, sem eitthvað
var athugavert við”, sagði
Þorbjörn. Hann kvaðst hafa
afsalað sér 1. sætinu, enda að-
eins farið i það til að ekki yrði
sjálfkjörið i sætið. „En það
kom siðan i ljós að fólk vildi
mig fremur en Guðmund”.
Þetta prófkjör Alþýðu-
flokksins hefur einnig vakið
nokkurn ugg innan Sjálf-
stæðisflokksins i Eyjum. ,,Að
minu áliti eru þessi prófkjör
búin að syngja sitt siðasta i
þeirri mynd sem þau eru”,
sagði Magnús Kristinsson,
form. Eyverja félags sjálf-
stæðismanna. „Þegar það
sýnir sig, eins og hjá krðtum,
að vissir hópar i einu bæjarfé-
lagi geta ráðið niðurstöðunni,
tel ég þetta ekki nógu gott”,
sagði Magnús, sem kvaðst
hafa varað sjálfstæöismenn
við einhverri svipaðri uppá-
komu. Sá ótti var auðheyrður
á fleiri sjálfstæðismönnum i
Eyjum, en þeirra prófkjör er
sfðustu heigina i febrúar.
Timinn hafði einnig i gær
samband við Sólveigu Adolfs-
dóttur, formann kjörnefndar
Alþýöuflokksins, en hún vildi
ekki tjá sig um málið.
— HEI
Loönuveidarnar:
Bætir aflatrygginga-
sjódur upp veiðitap?
■ Steingrimur Hermannsson
sjávarútvegsráöherra, sagði á
Alþingi igær, að hugmyndir væru
uppi um að bæta þeim útgerðum,
sem ekki hafa veitt loðnu upp i
þann kvóta er þeim var Uthlutað,
úr aflartryggingarsjóði. Þá er
rætt um að fleiri loðnuveiðiskip,
einkum hin minni, fái ný leyfi til
þorskveiða. Þá myndu færri skip
veiða loðnu þegar leyfi verða
veitt til þeirra veiða.
Ámi Gunnarsson lagði fram
fyrirspurn um hvort veiða ætti
meiri loðnu en orðið er og sagði
stofninn vera nær hruni og fráleitt
að fiska meira úr honum og lagði
Tvö ungmenni
fórust
í snjóflóði
■ Tvöungmenni, þau Bogi Pétur
Thorarensen, fæddur 24. mars
1956, til heimilis að Túngötu 48 á
Eyrarbakka, og Sigrún AgUsts-
dóttir, fædd 29. des. 1958, frá
Birtingarholti i Hrunamanna-
hreppi, fórust mjög sviplega i
snjóflóði i Ingólfsfjalli á laugar-
daginn.
Ungmennin voru á göngu um
fjallið austanvert þegar slysið
átti sér stað. Um tvöleytið fóru
þau með bil frá Selfossi og þegar
þau höfðu ekki skilað sér að sex
timum liðnum tók fólk að lengja
eftir þeim. Björgunarsveitin
Tryggvi frá Selfossi var kölluð út
og eftir að leitarmenn höfðu leitað
skamma stund i austanverðu
Ingólfsf jalli fundu þeir spor sem
þeir siðan röktu að stað þar sem
snjóflóð hafði fallið fyrr um dag-
inn. Þar fundust ungmennin ör-
end.
fast að sjávarútvegsráðherra aö
stöðva þegar allar loðnuveiðar.
Steingrimur svaraði að aðeins
10 þús. tonn væru óveidd miðað
við kvótann sem gefinn var. Mun-
aði ekki öllu hvort þau yrðu veidd
eða ekki af þeim 150 þús. tn. sem
nýlega voru mæld. Enhann kvað
oft hafa komið öfluga árganga úr
litlum stofnum. Fiskifræðingar
segja að aldrei hafi verið jafn-
mikið af þorski umhverfis loðnu-
göngu og nú. Þorskurinn heggur
stórskörð iloðnutorfurnar, og við
höfum engin ráð til að banna hon-
um það, sagöi Steingrimur.
Skúli Alexandersson sagði nú
vera mikla þorskgengd um-
hverfis allt land og væri friðun
farin að skila góðum árangri.
Kvað hann sjávarútvegsráðherra
hafa tekið þaú mál öll föstum tök-
um og aðgerðir hans verið réttar.
OÓ
Mæðgur
fyrir bíl
■ Mæðgur voru fluttar á sjúkra-
húsiðá Akureyri eftirað þær urðu
fyrirbil á gangbrautinni á gatna-
mótum Kaupvangsstrætis og
Hafnarstrætis á Akureyri siö-
degis i gær.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri vildi slysið til með þeim hætti
að fólksbill stöðvaði fyrir
mæðgunum meöan þær gengu yf-
irgangbrautina, en ekki vildi bet-
ur tO en svo að vörubill sem var á
eftir fólksbflnum náði ekki að
stöðva og fór þvi aftan á hann
með þeim afleiðingum að bi'Dinn
kastaðist á mæðgurnar.
Þær eru ekki taldar alvarlega
slasaðar.
— Sjó.
_Til viÓskiptamanna_
banka og sparisjóða
I. Afsagnirvíxla:
II. Breyting á vaxtareglum:
Frá og meö 1. febrúar n.k. munu bankar og sparisjóöir stefna aö þvi aö kaupa aðeins þá víxla af
viöskiptamönnum sínum þar sem útgefendur og ábekingar lýsi því yfir aö fallið sé frá afsögn. Er
þetta m.a. gert til aö létta meðferð víxla í bónkum og sparisjóðum og ekki síst til aö spara
viðskiptamönnum oft óþarfa kostnað vegna afsagnar víxla. Þessi tilhöfun hefur i för meö sér,
aö nú þarf banki eðasparisjóðurekki lengurða láta afsegja víxli til aö tryggja rétt sinn gagnvart
útgefanda og ábekingum. Af þessu tilefni mun ný gerö af víxileyðublöðum liggja frammi í
afgreiðslum banka og sparisjóða, þar sem orðin ,,án afsagnar" eru prentuð fyrir ofan væntan-
legar undirskriftir útgefenda og ábekinga. Eru viðskiptamenn banka og sparisjóða hvattir til að
eyðilegga ónotuð gömul vixileyðublöð, sem þeir kunna að eiga og fá sér í staðinn hin nýju
víxileyðublöð.
Bankar og sparisjóðir munu hins vegar áfram taka við víxlum viðskiptamanna sinna til inn-
heimtu, þótt útgefendur og ábekingar slíkra víxla hafi ekki fallið frá afsögn og yrðu þeir víxlar
því afsagðir með hefðbundnum hætti, ef á þyrfti að halda.
Þá er rétt að vekja athygli á þeirri breytingu á vaxtareglum vegna innlánsreikninga, að við-
skiptamenn banka og sparisjóða geta nú áfram flutt innstæður sínar úr sparisjóðsbókum
bundnum í 6 mán., 12 mán. eða 10 ár, vísitölubókum barna og reikningum með 12 mánaða
uppsögn, á innlánsreikninga með verðtryggingu, enda bindist innstæða á ný í 6 mánuði.
Samvinnunefnd banka og sparisjóóa
— Sjó.