Tíminn - 02.02.1982, Blaðsíða 14
Þriðjudagur 2. febrúar 1982
14____________________________________
heimilistíminn
Umsjón: B.St. og K.L.
■ Þessi litla skipsmynd er ofin með
grófu garni i bómullargarnsuppi-
stöðu á pappaspjaldi.
ina og síðan má ramma
hana inn, ef vill.
Til að gera ,,spýtu-
rammamyndina" leggið
þið greinarnar, þannig að
þær myndi ramma og
bindið þær saman með því
að vinda bast í kross um
hornin, þar sem greinarn-
ar mætast eins og sést á
m y n d i n n i. K I i p p i ð
bómullargarnið í hæfilega
langa þræði sem passa á
rammann, spennið þá á
hann og hnýtið endana
saman. Nú má byrja að
vefa á sama hátt og við
pappavefinn, þ.e.a.s. þrætt
er með stoppunál ýmist
undir þráð eða yfir. út-
koman verður gisinn vef-
ur, sem í er ofið munstrið
með bastþráðum, byrjið í
miðjunni.
Landslagsmyndin er of in
ívenjulegum litlum vefstól
en hann má kaupa í
verslunum sem selja tóm-
stundavörur. Þeim fylgja
notkunarreglur sem auð-
velt er að fylgja.
■ Þossa mynd þarf ekki aö
'aiinna inn að henni lokinni. Bóm-
illargarn myndar uppistöðuna, cn
ijáll't munstriö er oíið i meö basti.
* Pappi, garnafgangar,
stoppunál, skæri og teikni-
bólur. Þetta er allt og
sumt, sem þarf að haf a við
höndina þegar vefa skal
mynd á pappaspjald og að-
ferðin er svo einföld, að
jaf nvel ung börn eiga ekki í.
erfiðleikum með hana.
Það er svo einfalt að
vefa á pappaspjald að sér-
hvert barn er fært um það.
Til að gera skipsmyndina
hér á síðunni, þarf ekki
annað en pappabút, gróft
garn og grófan kamb,
grófa stoppunál, gróft
bómullargarn, skæri og
teiknibólur.
Klippið pappaspjaldið í
æskilega stærð og gerið
siðan víðar skorur í ef ri og
neðri brún þess með 0,7 til 1
cm millibili. Klippið nú
bómullargarnið niður í
jafnmarga þræði og
skorurnar segja til um í 2,5
faldri lengd miðað við hæð
spjaldsins. Þessa þræði
vefjið þið nú um spjaldið
og látið falla í skorurnar.
Bindið endana saman á
bakhliðinni. Áður hafið þið
teiknað þá mynd, sem þið
hyggist vefa, á framhlið
pappaspjaldsins með blý-
anti. Nú hefst sjálfur
vefnaðurinn.
Þræðið stoppunálina
með ullargarni og farið að
eins og þegar þið stoppiðí
sokk, þ.e.a.s. farið með -
nálina ýmist undir eða yf ir
þráð. Umferðin til baka
verður til þess, að vef urinn
litur eins út á réttunni og
röngunni. öðru hverju ýtið
þið þráðunum niður með
kambinum, svo að flötur-
inn verði „fullur" og bóm-
ullargarnsþræðirnir skini
ekki í gegn. Þar sem tveir
litir mætast, vefjið þið
endaþræðina saman. Þess
vegna skuluð þið alltaf
vefa innsta hluta
munstursins fyrst. Að
siðustu leysið þið hnútana
á bakhlið spjaldsins og
hnýtið hnúta á bómullar-
garnsspottana þétt uppi við
vefinn. Pressið nú mynd-
■ Þetta ævintýralandslag
er oliö á litinn velstól. Uppi-
staöan er bómullargarn en
vefurinn sjálfur er unninn
með grófu ullargarni.
■ Þessi aðlerö er
ákaflega einföld, þar
sem fyrst er teiknuö
myndin, sem vel'a skal
á pappaspjaldið og
siðan er vefurinn fyllt-
ur út með venjulegu
stoppi.
ÞAÐER
GAMAN
AÐ VEFA
- og hreint
ekki erfitt