Fréttablaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 12
6. maí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
UMHVERFISMÁL Landsvirkjun vill
veita hamfaraflóði vegna goss í
Bárðarbungu úr farvegi Köldu-
kvíslar um Kvíslavötn í Þjórsár-
ver til að skemma ekki stíflu í
Köldukvísl. Til að svo verði ætlar
Landsvirkjun að veikja stíflu í
Þúfuveri í sumar og hefur sótt um
heimild til þess. Útboð hefur þegar
verið auglýst.
Gísli Már Gíslason, formaður
Þjórsárveranefndar og prófessor í
vatnalíffræði, segir að verið sé að
undirbúa viðbrögð við hugsanlegu
hamfaraflóði við gos í Bárðar-
bungu. Hann bendir á að líkurnar á
eldgosi og þar með hamfaraflóði
aukist stöðugt eftir því sem ísfarg-
inu á Vatnajökli léttir. Verði gos í
Bárðarbungu geti vatnið flætt í
Kvíslavötn og nú sé Landsvirkjun
að tryggja það að hugsanlegt ham-
faraflóð „fari örugglega“ yfir
friðlandið í Þjórsárverum.
„Viðbrögð Landsvirkjunar eru
þau að veikja flóðvarnirnar í einni
af stíflunum í hágöngulóninu
þannig að flóðið fari vestur úr í
Kvíslavötn og veikja stíflurnar við
Þúfuver sem er grónasta verið.
Vatnið myndar þar minnst 80 fer-
kílómetra lón í nokkra sólarhringa
með gegnumrennsli um 5.500 rúm-
metra á sekúndu. Í staðinn fyrir að
veikja stífluna sunnan við Syðri-
Hágöngur við Köldukvísl þá er
ákveðið að fórna gróðurlendi Þjórs-
árvera þrátt fyrir að búið sé að
friða svæðið. Þetta myndi valda
óafturkræfum skemmdum,“ segir
hann.
Hann bendir á að hamfaraflóð af
þessu tagi sé 12 til 13-föld stærð
Ölfusár við Selfoss og standi í
minnst fjóra til fimm sólarhringa.
Lónið verði margfalt stærra en það
sem sótt hafi verið um í Þjórsár-
verum og muni eyðileggja allan
gróður. Umrótið sem verður þegar
jökulár flæða yfir land í nokkra sól-
arhringa sé ekki lítið. „Mér finnst
þetta alvarlegt mál,“ segir hann.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir
að stefnt sé að því að gera veik-
leika, svonefnt flóðvar, syðst í
varnargörðunum við Kvíslaveitu
þannig að flóðið fari þar og hlífi því
sem ofar er. Eins og staðan sé í dag
þá myndi hamfaraflóð rjúfa stíflur
við Kvíslaveitu og fara stjórnlaust
yfir Þjórsárver. Þess vegna sé sótt
um að breyta stíflu við Þúfuvar til
að auka öryggi mannvirkja, fólks
og Þjórsárvera í heild og beina
vatninu eins neðarlega og hægt er.
„Eins og staðan er í dag myndi
flóðið fara inn í Kvíslaveitu og stífl-
urnar myndu ekki þola það. Þetta
hefur verið kynnt fyrir sveitar-
félögunum. Útboðið er með fyrir-
vara um að þetta verði heimilað.“
ghs@frettabladid.is
Hamfaraflóði verði
beint yfir Þjórsárver
Landsvirkjun vill beina hamfaraflóði vegna goss í Bárðarbungu í Þjórsárver
til að skemma ekki stíflu í Köldukvísl. Landsvirkjun hefur sótt um heimild til
Umhverfisstofnunar og auglýst útboð. „Alvarlegt mál,“ segir prófessor.
80 FERKÍLÓMETRA LÓN Landsvirkjun áformar að beina hamfaraflóði við gos í Bárðar-
bungu yfir Þjórsárver og ætlar að veikja stíflu í Þúfuveri í sumar. Jökulvatnið mun
eyðileggja allan gróður á svæðinu, að mati Gísla Más Gíslasonar prófessors.
Sæktu um besta kortið fyrir þig á www.americanexpress.is eða í síma 575 5900
er útgefandi American Express® á Íslandi
Kortið sem kemur þér út
Þetta er eina kortið sem gefur þér
félagamiða með flugmiðanum
þínum. Það er besta leiðin til að
komast út í góðum félagsskap.
Ársfundur Sameina›a lífeyrissjó›sins ver›ur haldinn
mi›vikudaginn 14. maí nk., kl. 16.00, á Hilton
Reykjavík Nordica, Su›urlandsbraut 2, Reykjavík.
Árssk‡rslu og dagskrá ársfundarins má nálgast á skrifstofu sjó›sins
og á www.lifeyrir.is
ÁRSFUNDUR 2008
Borgartún 30, 105 Reykjavík
S. 510 5000
mottaka@lifeyrir.is
lifeyrir.is
Auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjó›félagar og rétthafar
séreignarsparna›ar rétt til setu á fundinum.
Reykjavík, 5. maí 2008.
Stjórn Sameina›a lífeyrissjó›sins
Dagskrá
1. Fundarsetning
2. Sk‡rsla stjórnar
Starfsendurhæfing:
Gu›jón Baldursson, trúna›arlæknir fjallar um starf trúna›arlæknis
og helstu endurhæfingarúrræ›i
Kynning á samkomulagi Sameina›a lífeyrissjó›sins og sjúkrasjó›a
3. Erindi Hannesar G. Sigur›ssonar, a›sto›arframkvæmdastjóra SA,
um n‡jan endurhæfingarsjó›, markmi› og næstu skref
Kaffihlé
4. Almenn ársfundarstörf
5. Önnur mál löglega upp borin