Fréttablaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er þriðjudagur 6. maí, 127.
dagur ársins
4.42 13.24 22.09
4.12 13.29 22.09
Í æsku minni á Akranesi var mér sagt að íþróttafélagið ÍA væri
besta lið í heimi. Skagamaðurinn
amma Lóa sagði mér stolt frá því
að faðir hennar hann Ingólfur hefði
verið einn af stofnendum þessa
liðs. Því má í raun segja að mér
renni blóðið til skyldunnar þegar
kemur að því að styðja ÍA til dáða
og einnig að leggja fæð á erkifjend-
urna í KR eins og framast er unnt.
ÖRLÖGIN og búseta mín í Vest-
urbænum hafa þó gert mér erfitt
fyrir. Til að mynda er mér nauðug-
ur kostur einn að mæta með son
minn litla á íþróttaæfingar félags-
ins. Risavaxið KR-merkið í salnum
skein í augu mín í fyrsta tímanum
og hjarta mínu blæddi þegar sonur-
inn var farinn að öskra áfram KR
yfir öllum íþróttaviðburðum. Ég
gleðst yfir því að langafa mínum,
verkstjóranum úr Akranessókn,
Skagamanninum sem aldrei talaði
við fólk úr Borgarnesi nema til að
tala niður til þess og eins af stofn-
endum ÍA, entist ekki aldur til að
sjá hvaða örlög afkomendur hans
hlutu. Reyndar hugga ég mig stund-
um við þá staðreynd að maðurinn
minn greip fyrir andlit sér í skelf-
ingu þegar hann sá son minn leika
sér með bolta fyrir skömmu og
sagði: „Ó, nei! Hann hefur erft
boltafærni móður sinnar.“
NÚ iðar drengurinn í skinninu yfir
því að íslenski boltinn fari aftur af
stað. Segir faðirinn spenntur að um
hinn eina sanna vorboða sé að ræða.
Af reynslu síðasta sumars tel ég
líklegt að fótboltaleikirnir munu
hafa í för með sér fleiri tár en bros.
Minnist ég martraðakenndra leikja
þar sem fjögurra ára drengurinn
minn litli grét í faðmi mér eftir
hvern tapleikinn á fætur öðrum.
Öll hans köll um Reykjavíkurstolt-
ið, sanna stórveldið, dugðu rétt svo
til þess að halda liðinu í úrvalsdeild.
Man ég jafnvel eftir því að hafa
horft til Gunnlaugs Jónssonar, fyr-
irliða KR og svikara af Skaganum, í
reiði og angist vegna þess tilfinn-
ingaróts sem hann og félagar hans
bökuðu syni mínum með knatt-
spyrnulegum umrenningshætti síð-
asta sumar.
SEM Skagamanni sem gengist
hefur undir siðaskipti til að koma
til móts við þarfir sonarins er ég þó
reiðubúin til að leggja allt mitt
traust á KR í sumar. Í hverfinu
mínu ómar alltaf söngrödd Bubba
fyrir leiki í lagi sem segir að áhang-
endur Knattspyrnufélags Reykja-
víkur beri höfðið hátt. Ég sæi enga
ástæðu til þess ef ekki væri fyrir
þá miklu þolinmæði og æðruleysi
sem KR-ingar hafa sýnt í gegnum
tíðina.
Æðruleysi og
þolinmæði
SIMPLY CLEVER
AUKABÚNAÐUR
MEÐ FULLT AF BÍL.
Skoda Fabia - frábært verð
Skoda Fabia hefur slegið í gegn í Evrópu enda er staðalbúnaður hans sérlega ríkulegur: handhæg tenging
fyrir iPod, hiti í sætum, ESB stöðugleikakerfi, sex loftpúðar o.fl. Hér er á ferðinni vandaður smábíll á afar
hagstæðu verði. Og við þurfum auðvitað ekki að tala um eyðsluna.
Eldra verð kr. 2.050.000
Nýtt verð kr. 1.890.000
Mánaðarleg afborgun kr. 24.490*
*Útborgun kr. 378.000 (20%). Gengistryggður bílasamningur til 84 mánaða. Árleg hlutfallstala kostnaðar: 9.81%