Fréttablaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 4
4 6. maí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
GENGIÐ 04.05.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
152,6918
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
76,30 76,66
150,36 151,10
118,02 118,68
15,813 15,905
14,891 14,979
12,628 12,702
0,7251 0,7293
123,48 124,22
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
STJÓRNSÝSLA „Íslensk erfðagreining mótmælir harð-
lega ef til stendur að keyra málið í gegn með slíku
offorsi andstætt lögum og góðum stjórnsýsluhátt-
um,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar í bréfi til borgarstjórnar í gær.
Fréttablaðið hefur áður greint frá því að Reykja-
víkurvorg er að selja lóð við hlið byggingar
Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE) til S10 ehf. Það félag
er í eigu sömu aðila og eiga S8 ehf. sem keypti hús
ÍE árið 2001 og leigir það líftæknifyrirtækinu. Við
söluna á lóðinni er vitnað til þess að ÍE seldi S8 fast-
eignina á Sturlugötu 8 og að í gildandi deiliskipulagi
sé gert ráð fyrir að lóð ÍE geti stækkað til suðurs
þar sem nú er hverfisbækistöð frá borginni.
Kári hefur sent borgaryfirvöldum tvö bréf á sex
dögum vegna málsins. Í fyrra bréfinu sem sent er
30. apríl segist hann hafa séð í fjölmiðlum að ráð-
stafa ætti umræddri lóð án samráðs við ÍE.
„Ofangreind lóðaréttindi eru ekki meðal þeirra
réttinda sem framseld voru til S8 ehf. við sölu fast-
eignarinnar Sturlugötu 8 og er því enn að fullu í eigu
Íslenskrar erfðagreiningar. Því telur ÍE fráleitt að
Reykjavíkurborg eigi viðræður við óskylda aðila um
nýtingu lóðarinnar án aðkomu ÍE,“ skrifar Kári og
krefst þess að borgin gangi strax til viðræðna um
skilmála fyrir afhendingu lóðarinnar til ÍE.
Sama dag og Kári ritaði fyrra bréfið samþykkti
borgarráð að lóðin skyldi seld S8 fyrir 260 milljónir
króna. Kári, sem ekki hafði fengið svar við því bréfi
sínu í gær, sendi þá Hönnu Birnu Kristjánsdótt-
ur, forseta borgarstjórnar nýtt bréf merkt „ÁRÍÐ-
ANDI“. Þar krefst forstjórinn þess að afgreiðslu
málsins yrði frestað á fundi borgarstjórnar í dag og
lóðin þess í stað afhent Íslenskri erfðagreiningu.
„Tekið skal fram að ÍE áskilur sér rétt til að grípa
til allra þeirra réttarlegu úrræða sem tiltæk eru til
að gæta hagsmuna fyrirtækisins, verði Reykjavíkur-
borg ekki við ofangreindum kröfum,“ segir í seinna
bréfi Kára sem gaf forseta borgarstjórnar frest til
klukkan fjögur í gær til að bregðast við.
Þá er þess að geta sem fram hefur komið að Krist-
ín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, hefur einnig
gert kröfu í lóðina fyrir hönd skólans.
Í gær náðist ekki í Hönnu Birnu Kristánsdóttur,
Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, formann borgarráðs eða
Ólaf F. Magnússon borgarstjóra. Kári Stefánsson er
erlendis og ekki fengust upplýsingar hjá ÍE varð-
andi hvort svar hefði borist frá borgaryfirvöldum.
gar@frettabladid.is
ÍE krefst umdeildrar
lóðar í Vatnsmýrinni
Kári Stefánsson segir Íslenska erfðagreiningu rétthafa sjö þúsund fermetra lóð-
ar á Sturlugötu og mótmælir að keyra eigi sölu á lóðinni til annars félags í gegn
„með offorsi“ á fundi borgarstjórnar í dag. Ekki næst í talsmenn borgarstjórnar.
UMFERÐARÖRYGGI „Ég tel að þessi
þrjú slys kalli á að það verði að
lengja vegriðið upp eftir beygj-
unni,“ segir Ólafur Helgi Kjart-
ansson, sýslumaður á Selfossi,
sem hyggst ræða við Vegagerðina
um aðbúnað í Kömbum ofan
Hveragerðis. Karlmaður á sjö-
tugsaldri lést þar á sunnudaginn
þegar bíll hans fór út af rétt ofan
við þar sem vegrið endar.
Tvö slys hafa áður orðið á sama
stað og slysið varð í gær. Það fyrra
varð um miðjan síðasta áratug,
þar sem alvarleg slys urðu á fólki,
og það síðara árið 2002 þegar
ungur maður slapp lítið meiddur.
Ágúst Mogensen, forstöðumað-
ur Rannsóknarnefndar umferðar-
slysa, staðfestir að nefndin hafi
lagt til, eftir síðara slysið, að vegr-
ið yrði lengt á þessum stað. „Við
munum skoða hvort það er ástæða
til að fara með þetta vegrið ennþá
lengra,“ segir Ágúst.
Ólafur Helgi telur eðlilegt að
skoða vandlega hvað gerðist í slys-
inu á sunnudaginn og rifja einnig
upp hvað gerðist í hin skiptin.
Maðurinn sem lést á sunnudag-
inn er sá sjöundi sem lætur lífið í
umferðinni það sem af er árinu.
Lögreglan á Selfossi, sem fer með
rannsókn málsins, hefur rætt við
vitni að slysinu en tildrög þess eru
enn óljós. - ovd
Áður hefur verið lagt til að lengja vegrið í Kömbum þar sem slysið varð:
Vilja lengra vegrið í Kömbum
BÍLLINN NEÐAN HAMARSINS Tvær
bifreiðar hafa áður farið út af á sama
stað og stöðvast rétt við íbúðarhús sem
er undir hamrinum. MYND/KÁRI
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
KÁRI STEFÁNSSON
STURLUGATA 10 Hin umdeilda lóð er um sjö þúsund
fermetrar og á að seljast á 260 milljónir króna með rétti til
að byggja við hús ÍE auk nýbyggingar. FRÉTTABLAÐIÐ/
HEILBRIGÐISMÁL Samninganefnd
heilbrigðisráðherra hefur samið
við fyrirtækin Sjónlag LaserSjón
um hátt á annað þúsund augn-
steinaaðgerðir.
Um 500 manns biðu eftir slíkri
aðgerð fyrir ári og var meðalbið-
tími þá frá hálfu ár upp í níu
mánuði.
Í tilkynningu sem send var frá
heilbrigðisráðuneytinu í gær er
sagt að þessir biðlistar heyri nú
sögunni til með nýjum samning-
um.
Með samningunum er ætlunin
að fjölga aðgerðunum hér á landi
úr 1.800 í 2.600 á ári eða um rúm
44 prósent. - kdk
Löng bið hefur verið í aðgerð:
Samið um augn-
steinaaðgerðir
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
15°
18°
20°
18°
18°
17°
22°
18°
21°
19°
27°
22°
17°
19°
24°
22°
31°
22°
13
Á MORGUN
3-8 m/s en þó stífari
allra syðst.
MIÐVIKUDAGUR
Hæg, breytileg átt.
9
13
13
9
14
12
12
10
12
6
5
1
1
1
5
4
6
15
6
6
8
12 14
13
1012
8 14
13
1110
RÓLEGHEIT Í
VEÐRINU
Veðurhorfurnar
eru einn bestar
fyrir norðanvert
landið, bæði í dag
og næstu daga.
Mér sýnist á öllu
að þar verði víða
bjart veður í dag
en að það þykkni
upp smám saman
síðdegis. Á morgun
verður þar líklega
bjart með köfl um í
hægum vindi. Hiti
verður um 10-16
stig þar um slóðir.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
ÞÝSKALAND, AP 44 ára gömul
húsmóðir í bænum Wenden í
Þýskalandi var í gær handtekin,
grunuð um að hafa komið líkum
þriggja kornabarna fyrir í
frystikistu í húsi sínu.
Líkin fundust er uppvaxin börn
konunnar voru að leita að pitsu í
frystikistunni á sunnudaginn.
Lögregla staðfesti líkfundinn í
gær. Konan hefði sjálf gefið sig
fram. Grunur leikur á að hún hafi
fætt börnin lifandi en dánarorsök
þeirra verður rannsökuð með
krufningu. - aa
Hryllingur í þýskum smábæ:
Þrjú ungbarna-
lík í frystikistu
Maðurinn gaf sig fram
Unga stúlkan sem ekið var á á
Selfossi á laugardagskvöldið reyndist
ekki alvarlega slösuð. Maðurinn sem
ók á stúlkuna gaf sig fram við lög-
reglu á sunnudagsmorguninn.
LÖGREGLUFRÉTTIR
DÓMSTÓLAR Rúmenskur karlmaður
hefur verið úrskurðaður í gæslu-
varðhald til miðvikudags vegna
gruns um þjófnað úr stöðumælum
hér á landi. Félagi mannsins er
grunaður um þátttöku í athæfinu.
Í gæsluvarðhaldsúrskurðin-
um kemur fram að tollgæslan á
Keflavíkurflugvelli hafi gefið lög-
reglu upplýsingar um að menn-
irnir hefðu haft meðferðis ýmis
verkfæri við komuna til landsins.
Lögreglan fylgdist með ferðum
þeirra og voru þeir handteknir við
þjófnað úr stöðumæli við Garða-
stræti á miðvikudag. -jss
Gæsluvarðhald framlengt:
Þjófnaðir úr
stöðumælum
BÚRMA, AP Herforingjastjórnin í
Búrma, sem í áratugi hefur
sniðgengið alþjóðasamfélagið,
birti í gær ákall til umheimsins
um að veita landinu neyðaraðstoð í
kjölfar hamfaranna sem fellibyl-
urinn Nargis olli um helgina.
Ríkisútvarp herforingjastjórn-
arinnar greindi frá því að
staðfestur fjöldi látinna væri
kominn í 3.939 manns. En utanrík-
isráðherrann, Nyan Win, tjáði
erlendum sendierindrekum í
Rangún að fjöldi fórnarlamba
fellibylsins kynni að vaxa í yfir
10.000 manns. - aa
Búrma vill neyðaraðstoð:
10.000 kynnu
að vera látnir
FJÖLMIÐLAR Úrskurðarnefnd um
upplýsingamál hefur vísað frá
beiðni þeirra Sigrúnar Stefánsdótt-
ur og Þórhalls Gunnarssonar um að
nefndin taki á ný fyrir synjun
Ríkisútvarpsins um birtingu
ráðningasamninga þeirra. Þetta
kemur fram á fréttavefnum visir.is.
Óskar Hrafn Þorvaldsson,
ritstjóri Vísis, fór þess á leit í
september síðastliðnum að Vísi
yrðu veittar upplýsingar um laun
dagskrárstjóra hjá Ríkisútvarpinu
en RÚV neitaði að láta upplýsing-
arnar af hendi. Ritstjóri Vísis
kærði þá synjun til úrskurðar-
nefndar um upplýsingarmál.
Lögmaður Sigrúnar og Þórhalls
bað um endurupptöku á málinu
sem Úrskurðarnefnd hefur nú
hafnað. - shá
Laun dagskrárstjóra Rúv:
Beiðni um upp-
töku hafnað
Bílbruni á Reykjanesbraut
Ökumann og farþega sakaði ekki
þegar eldur kom upp í pallbíl á
Reykjanesbrautinni í gærkvöldi.
Bíllinn skemmdist mikið.
Bruni á leiksvæði barna
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var
kallað að leikskólanum Steinahlíð
í Reykjavík upp úr klukkan níu í
gærkvöldi. Þar logaði eldur í kofa á
leiksvæði utan við skólann.
LÖGREGLUFRÉTTIR