Fréttablaðið - 25.05.2008, Page 2
2 25. maí 2008 SUNNUDAGUR
ÞRÍR DAGAR Í
GARÐARSHÓLMA
TUTLAÐU
MIG!
MENNTUN Hátt í tvö þúsund fram-
haldsskólanemar útskrifast með
stúdentspróf um þessar mundir.
Flestir þeirra útskrifast nú um
helgina, til dæmis nemendur í
Kvennaskólanum og Verslunar-
skólanum, og svo útskrifast stór
hópur um næstu helgi, til dæmis
úr Menntaskólanum í Reykjavík.
Síðustu nemendurnir til að
útskrifast með stúdentspróf þetta
vorið eru nemendur Menntaskól-
ans á Akureyri, sem útskrifast 17.
júní, og langsíðastir eru svo nem-
endur Menntaskólans Hrað-
brautar sem útskrifast 12. júlí.
„Við erum töluvert seinni en
aðrir,“ segir Ólafur Johnson,
skólameistari Hraðbrautar.
Ólafur segir að stúdentsprófið
hafi staðist tímans tönn. „Stúd-
entsprófið er feikilega mikil-
vægt,“ segir hann og bendir á að
stúdentspróf opni dyr að öðrum
skólum. „Það er enginn enda-
punktur fyrir þá sem ætla að vera
með menntun.“ Ólafur telur að
langflestir nýstúdentar haldi upp
á útskriftina með veislu og margir
fari jafnframt í myndatöku.
Búast má við að veltan við stúd-
entsútskriftir þetta vorið nemi
minnst 140 milljónum króna og er
þá miðað við að tvö þúsund nem-
endur útskrifist og haldi allir
útskriftarveislu fyrir um 50 þús-
und krónur, hver og einn fái minnst
eina gjöf að verðmæti 5.000 krónur
í tilefni útskriftarinnar og að helm-
ingur nemenda fari í stúdents-
myndatöku sem kosti 25 þúsund
krónur á manninn. Ekki er tekið
tillit til annars kostnaðar, til dæmis
fatnaðar eða stúdentshúfu.
Heiðrún Hreiðarsdóttir, versl-
unarstjóri í Eymundsson, segir að
mikið sé að gera vegna útskrift-
anna. „Það er búið að vera mjög
líflegt hjá okkur alla þessa viku,“
segir hún. „Fólk er greinilega að
kaupa útskriftargjafir, ýmist
ljóðabækur, bókmenntir, orða-
bækur eða ljósmyndabækur.
Sumir stíla líka inn á það sem
stúdent inn ætlar að læra, til
dæmis lögfræði eða læknisfræði,“
segir hún.
Nemendur MA og Hraðbrautar
dimmitteruðu í gær og skrýddust
búningum í tilefni þess. Í Hrað-
braut hittust bekkirnir árla morg-
uns og borðuðu morgunverð, fóru
síðan í skólann rétt undir hádegi
til að snæða hádegisverð með
starfsfólkinu og slá á létta
strengi.
MA-ingar hittust líka í gær og
kvöddu svo starfsfólk skólans
eftir hádegi. Þeir byrja í prófum
eftir helgina. ghs@frettabladid.is
Stúdentsútskriftin
kostar 140 milljónir
Um tvö þúsund framhaldsskólanemar útskrifast með stúdentspróf um helgina
og næstu helgi. Kostnaður fjölskyldnanna vegna útskriftarinnar nemur minnst
140 milljónum króna. „Mjög líflegt hjá okkur,“ segir verslunarstjóri.
TOMMI OG JENNI Í HRAÐBRAUT Nemendur í Menntaskólanum Hraðbraut mættu
í skólann í fyrradag í líki Tomma og Jenna, snæddu pitsur og slógu á létta strengi
með starfsfólki skólans. Nemendur Hraðbrautar eru þeir síðustu til að útskrifast með
stúdentspróf í sumar en þeirra útskrift er ekki fyrr en 12. júlí. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Eyfi, er þetta stormur
í vatnsglasi?
„Sverrir hefur steytt á skeri.“
Tónlistarmaðurinn Sverrir Stormsker
hyggst kæra Eyjólf „Eyfa“ Kristjánsson fyrir
að birta ekki rétt höfundarnafn sitt undir
textanum við lagið „Gott“ á heimasíðu
sinni.
TÆKNI Heimasíða Regínu Óskar
Óskarsdóttur Eurovisionfara,
regina.is, hefur verið hökkuð af
óprúttnum
erlendum
tölvuþrjóti. Á
fréttasvæði
síðunnar má nú
sjá skilaboðin
„HacKeD By_
FatiH“ endur-
tekin 37 sinnum.
Þrjóturinn
FatiH hefur
verið mjög
virkur í bransanum og með leit
má finna ógrynni vefsíðna sem
hann hefur hakkað. FatiH er
Tyrki, en Tyrkir stigu einmitt á
svið næstir á eftir Íslendingum í
keppninni í Belgrad í gær. Ekki er
víst að það tengist tölvuárásinni,
enda virðist vefsíða Regínu ekki
hafa verið uppfærð síðan í
febrúar árið 2006 og því ekki
rekinn mikill áróður þar. - sh
Þrjótur ræðst á Júróhetju:
Regína hökkuð
REGÍNA ÓSK
ÓSKARSDÓTTIR
FLUG „Með þessari dagskrá erum
við að leggja áherslu á fólkið sem
er á bak við allt flug í Reykjavík,“
segir Ágúst Guðmundsson, vara-
forseti Flugmálafélags Íslands og
einn af forsvarsmönnum Flug-
dagsins, sem haldinn var hátíð-
legur í gær. Talið er að allt að fimm
þúsund manns hafi safnast saman
í blíðskaparveðri á Reykjavíkur-
flugvelli til að taka þátt í ýmsum
viðburðum tengdum deginum.
Flugmálafélag Íslands stóð
fyrir margs konar flugtengdum
viðburðum í vikunni sem leið.
Hápunktinum var svo náð með
fjölsóttri dagskrá á Reykjavíkur-
flugvelli í gær. Meðal annars
fengu gestir að skoða flugvélar af
öllum stærðum og gerðum í
návígi, boðið var upp á sýningar á
fallhífarstökki, listflugi og svif-
flugi og fyrstu kvartmílu ofur-
sportbíls og flugvélar. Sportbíll-
inn hafði sigur eftir harða
keppni.
Ágúst var ánægður með daginn.
„Þetta er fjölmennasta sýningin
sem við höfum haldið hingað til.
Hingað koma heilu fjölskyldurnar
og skemmta sér saman. Fólkið á
bak við tjöldin vill oft gleymast í
allri umræðu um flug. Til dæmis
lítur flest umræða um Reykjavík-
urflugvöll framhjá þeirri stað-
reynd að hérna vinna 600 manns.
Við viljum vekja athygli á því að
bak við vélarnar er fólk af holdi
og blóði,“ segir Ágúst. - kg
Allt að 5.000 manns sóttu flugsýningu Flugmálafélags Íslands í gær:
Á bak við allt flug er fólk
EINVÍGI ÁRSINS Sportbíllinn hafði sigur
á flugvélinni eftir harða keppni í fyrstu
kvartmílu sinnar tegundar.
MARGMENNI Ungir sem aldnir skemmtu
sér konunglega á flugsýningunni í gær.
Tsvangirai snýr heim
Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar í Simbabve, kom til
heimalands síns í gær eftir sex vikna
ferð erlendis til að vara við yfirvofandi
átökum í landinu. Seinni umferð
forsetakosninga milli Tsvangirais og
Roberts Mugabe er í lok júní.
SIMBABVE
DANMÖRK Jóakim Danaprins og frönsk unnusta
hans, Marie Agathe Odile Cavallier, giftust við
hátíðlega athöfn í Møgeltønder-kirkju á Jótlandi í
gær.
Prins Jóakim gat vart haldið aftur af táraflóðinu
þegar Marie var leidd upp að altarinu í hvítum
brúðarkjól, sem Arasa Morelli-tískuhúsið hannaði.
Þegar biskupinn Erik Normann-Svendsen hafði
gefið þau saman og nýju brúðhjónin höfðu hneigt
sig fyrir drottningunni gengu þau saman út úr
kirkjunni við húrrahróp fólks sem safnast hafði
saman fyrir utan. Brúðhjónin voru svo keyrð burt í
Bugatti-glæsibifreið.
Hin 32 ára Marie er nú orðin prinsessa af
Danmörku og greifynja af Montpezat. Parið
trúlofaðist í október í fyrra eftir nokkurra ára
samband. - sgj
Jóakim prins í Danmörku gekk að eiga hina frönsku Marie Cavallier í gær:
Jóakim og Marie í það heilaga
GEFIN SAMAN Jóakim og Marie geisluðu af gleði í Møgeltønder-
kirkju í gær. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNMÁL Kristinn H. Gunnars-
son, formaður þingflokks
Frjálslynda flokksins, var ekki
einn þeirra sem stóðu að sam-
þykkt miðstjórnar á stuðningsyf-
irlýsingu við Magnús Þór
Hafsteinsson í störfum hans sem
varabæjarfulltrúi flokksins á
Akranesi.
„Yfirlýsingin er persónubundin
og á við störf á sveitarstjórnar-
stiginu og ég studdi hana ekki af
því að ég tel það nú ekki merki
um góðan árangur í störfum að
missa út úr höndunum á sér
góðan meirihluta og láta brjóta á
málefnum flóttamanna. Ég er líka
ósammála málflutningi Magnúsar
í því máli,“ segir Kristinn H.
Gunnarsson. - gar
Kristinn H. Gunnarsson:
Styður ekki
Magnús Þór
KRISTINN H. GUNNARSSON Segir ekki
gott að missa meirihluta úr höndum sér.
ÞÝSKALAND, AP Yfirvöld í Þýska-
landi hafa tekið forræði yfir sjö
mánaða gömlum dreng af móður
hans og föður eftir að þau
auglýstu drenginn til sölu á
uppboðsvefsíðunni eBay fyrir
eina evru, andvirði 114 króna.
„Ég býð næstum glænýtt barn
mitt til sölu, þar sem það er orðið
of hávært. Þetta er karlkyns
barn, næstum sjötíu sentímetra
hátt, og má geyma í burðarrúmi
eða barnakerru,“ stóð í auglýsing-
unni, að sögn lögreglu.
Móðirin segir auglýsinguna
einungis hafa verið brandara.
Engin tilboð bárust í barnið, þrátt
fyrir lágt verð. - sgj
Lögregla stöðvar uppboð:
Barn til sölu,
kostar eina evru
UMFERÐ Fjörutíu ár verða á
morgun liðin frá því að Íslending-
ar skiptu úr vinstri yfir í hægri
umferð. Af því tilefni mun
Umferðarráð standa fyrir margs
konar umfjöllunum og viðburðum
í vikunni.
Atburðurinn þegar hægri
umferð tók gildi hér á landi verður
settur á svið klukkan 13 á morgun.
Þá mun sami maður og fyrstur ók
yfir á hægri akrein fyrir fjörutíu
árum, Valgarð Briem, formaður H-
nefndarinnar svokölluðu, endur-
taka leikinn fyrir framan Sjávar-
útvegshúsið á Skúlagötu 4. Á
miðvikudag verður þeirra sem
látið hafa lífið í umferðinni minnst
með gjörningi við Dómkirkjuna, og
fleiri viðburðir munu fylgja í
kjölfarið. Umfjöllun um H-daginn
1968 verður í Fréttablaðinu á
morgun. - kg
H-dagsins minnst:
Hægri umferð
í fjörutíu ár
Dagur barnsins
Fjölbreytt hátíðardagskrá hefst í Ráð-
húsi Reykjavíkur klukkan 14 í dag í
tengslum við Dag barnsins. Dagurinn
er haldinn hátíðlegur um land allt.
FJÖLSKYLDUMÁL
SPURNING DAGSINS