Fréttablaðið - 25.05.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 25.05.2008, Blaðsíða 6
6 25. maí 2008 SUNNUDAGUR Ferðaskrifstofa 25. júní í 7 nætur (8 sæti lau s). Innifalið: Flug, fl ugvallaskattar, gistin g og íslensk fararstjórn. LANDBÚNAÐUR Framleiðsla af kjöti var 33,4 prósent meiri í apríl en í sama mánuði í fyrra. Framleidd voru 1.777 tonn af kjöti af öllum gerðum, að því er fram kemur á vef Bændasamtaka Íslands. Sala á kjöti jókst um 14,4 prósent í mánuðinum samanborið við apríl í fyrra. Alls keyptu landsmenn 2.237 tonn af kjöti. Sala á alifuglakjöti jókst mest á síðastliðnu ári, um 12,1 prósent. Sala á nautakjöti jókst um 10,7 prósent og svínakjötssala jókst um 2,7 prósent. Á sama tíma dróst sala á kindakjöti saman um 2,9 prósent og hrossakjötssala dróst saman um 8 prósent. - bj Aukin sala á kjöti í apríl: Þriðjungs aukn- ing í framleiðslu SLÁTRAÐ Sala á kindakjöti hefur dregist saman um 2,7 prósent á síðastliðnu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR FLUGMÁL „Hér er algert ófremdar- ástand,“ segir Jón Baldvin Páls- son, flugvallarstjóri á Reykja- víkur flugvelli, um skort á flugskýlum við völlinn. Jón Baldvin segir nú liggja fyrir fjölmargar umsóknir um lóðir undir flugskýli sem samtals myndu nema á bilinu 30 til 35 þús- und fermetrum að flatarmáli. Þessar umsóknir fáist ekki afgreiddar. „Við höfum unnið núna í eitt og hálft ár með skipulagsstjóra Reykjavíkurborgar og hönnuðum að tillögum um hvernig flugvöllur- inn gæti fallið inn í borgarskipu- lagið en það mál er enn á byrjunar- reit,“ segir Jón. Ástæðan er óvissa innan borgar- stjórnarinnar um framtíð flug- vallarins í Vatnsmýrinni. Jón segir gríðarlega aðkallandi fyrir þá sem eru í flugrekstri að fá við- unandi aðstöðu við flugvöllinn. „Menn eru alls ekki að biðja um meira en þeir þurfa og sætta sig við að fá aðeins bráðabirgðaleyfi en það fást samt engar úrlausnir frá borginni. Starfsemi vallarins er því verulega skert og eiginlega í járnum,“ lýsir Jón, sem kveður aðstöðuleysið hafa mjög neikvæð- ar afleiðingar. „Við hjá Flugstoðum erum til dæmis með rándýr snjóruðnings- tæki og önnur tæki til viðhalds á vellinum sem við komum ekki í hús. Þetta þýðir að líftími þessara tækja er fimm til tíu árum styttri en eðlilegt er,“ útskýrir vallar- stjórinn. Jón nefnir sem dæmi að Flug- félag Íslands sé hverju sinni með þrjár til fjórar flugvélar sem kom- ist ekki í hús. „Í slæmum veðrum þarf alltaf að óttast um vélarnar.“ Annað dæmi er þyrlufyrirtækin Norðurflug og Þyrluþjónustan, sem Jón segir bæði hafa árangurs- laust sótt um lóðir og glíma við algert neyðarástand. „Þau eru hreinlega á gaddinum með sínar vélar.“ Þá segir Jón að Landhelgis- gæsluna vanti sárlega meira hús- næði. Og meðal þeirra sem eru ónefndir eru eigendur einka- þotna. Jón segir meira en tíu slíkar þotur vera gerðar út héðan. Fæstar þeirra hafi húsaskjól. Auk þess sé lítið pláss úti við til að taka á móti öðrum slíkum vélum frá útlöndum því það vanti ein- faldlega stæði. „Hér á vellinum eru milljarða tæki sem velkjast um fyrir veðri og vindum. Vélarnar fara illa á þessu og þurfa því meira viðhald. Þetta er verulega slæmt,“ segir flugvallarstjórinn. gar@frettabladid.is Flugvallarstjóri segir ófremdarástand ríkja Flugvallarstjóri segir umsóknir um 35 þúsund fermetra af flugskýlum á Reykja- víkurflugvelli ekki fást afgreiddar. Skipulagsvinna sé enn á byrjunarreit þrátt fyrir langa yfirlegu. Tæki fyrir milljarða fái ekki skjól fyrir veðri og vindum. GAMALL HÚSAKOSTUR Flugvallarstjórinn segir þau fjögur stóru flugskýli sem eru á Reykjavíkurflugvelli öll vera frá stríðsárunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hert landamæragæsla Vegna Evrópumótsins í knattspyrnu sem fram fer í Austurríki og Sviss í júní í sumar hafa austurrísk yfir- völd tilkynnt að tekið verði upp persónu eftirlit á öllum landamærum landsins frá 2. júní til 1. júlí. Því þurfa Íslendingar sem ferðast til Austurríkis á þessum tíma að framvísa vega- bréfum. AUSTURRÍKI OG SVISS UMHVERFISMÁL „Niðurstaðan er að túlkun okkar á úrskurði ráðherra er rétt,“ segir Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri í Ölfusi, sem á miðviku- daginn átti fund með Þórunni Svein- bjarnardóttur umhverfisráðherra um úrskurð hennar vegna starfs- leyfis fiskþurrkunarverksmiðju Lýsis í Þorlákshöfn. Ólafur segir Lýsi þurfa að setja upp hreinsibúnað sem uppfylli ströngustu skilyrði um hreinsun lyktarmengunar. „Ef fyrirtækið uppfyllir ekki þessi skilyrði þá er það túlkun ráðu- neytisins að heilbrigðiseftirlitið geti ekki veitt því leyfi.“ Á fundinum var farið yfir mál fiskþurrkunar- verksmiðjunnar og samskiptin við sveitarfélagið. Einnig var rætt hvernig túlka bæri úrskurðinn sem ráðherra gaf um starfsleyfið á sínum tíma. Nýtt starfsleyfi var auglýst hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og er það byggt á úrskurði ráðherra. „Ráðherra setti ákveðin skilyrði í þann úrskurð sem er meiningar- munur milli sveitarfélagsins og Heilbrigðiseftirlitsins um hvernig skuli uppfylla,“ segir Ólafur, sem telur að á fundinum hafi því ráð- herra staðfest að skilningur bæjar- stjórnarmanna í Ölfusi sé réttur. „Við trúum því ekki að þetta verði nokkurt vandamál núna eftir að lyktarmengun í Bitruvirkjun getur truflað íbúa í sex kílómetra fjarlægð og vatnsverksmiðjan, sem er nú það heilbrigðasta sem við sjáum hér á landi, þarf að fara í umhverfismat.“ - ovd Starfsleyfi fiskþurrkunarverksmiðju Lýsis ekki endurnýjað: Lýsi þarf nýjan hreinsibúnað FISKÞURRKUN LÝSIS Í ÞORLÁKSHÖFN Frestur til að skila inn athugasemdum vegna starfsleyfis verksmiðjunnar rennur út 29. maí næstkomandi. MYND/GKS BANDARÍKIN, AP Fyrir orrustuflugmenn er vandinn við að svara kalli náttúrunnar jafngamall vélknúnu flugi. Innilokaðir og niðurnjörvaðir í sérsmíðaða flugmannsstóla sína geta þeir ekki staðið upp og farið á salernið þar sem þeir þjóta um háloftin á meira en þúsund kílómetra hraða. Í gegnum tíðina hafa flugmenn því notast við flöskur og poka, eða einfaldlega haldið í sér. Margir forðast að drekka vökva áður en þeir stíga um borð eða sjá til þess að blaðran sé tóm þegar lagt er í hann. Þetta hefur skapað hættu á vökvaskorti í líkamanum, sem er slæmt þar sem orrustuflug- menn þurfa að þola mikla hliðarkrafta. Að minnsta kosti tvö dæmi eru um að F-16-orrustuþota hafi hrapað vegna ólánsamlegra tilrauna flugmanna til að létta á blöðrunni. Nú hefur fyrirtæki í Vermont hannað búnað sem á að leysa þennan vanda og gera flugmönnum, hvort sem þeir eru karl- eða kvenkyns, kleift að kasta af sér vatni án þess að það trufli þá við vinnu sína þar sem þeir þurfa á allri sinni einbeitingu að halda. Búnaðurinn er saumaður inn í sérsniðnar nærbuxur og leiðir þvagið um slöngu sem er tengd dælu í þar til gert ílát. Búnaðurinn kostar sem svarar um 150.000 kr. á hvern flugmann. - aa FRAMFÖR Nýi búnaðurinn gerir orrustuflugmönnum lífið létt- ara. NORDICPHOTOS/AFP „21. aldar-lausn“ á vanda sem orrustuflugmenn hafa alla tíð átt við að etja: Gert kleift að kasta vatni á flugi KÍNA, AP Kínversk stjórnvöld telja að yfir 80.000 manns hafi farist í jarðskjálftanum sem reið yfir landið fyrir tveimur vikum og hafa leitarmenn nær gefið upp von um að finna fleiri á lífi. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, heimsótti skjálftasvæðið stutt- lega í gær, strax eftir dvöl sína á hamfarasvæðum í Búrma. Hann lofaði aðstoð Sameinuðu þjóðanna og sagðist bíða upplýsinga frá kínverskum stjórnvöldum um hvernig mætti koma til aðstoðar. „Ef við leggjum hart að okkur munum við komast í gegnum þetta,“ sagði Ban við kínversku þjóðina. „Heimurinn stendur með ykkur og styður ykkur.“ - sgj Ban Ki-moon lofar aðstoð: Yfir 80.000 dóu í skjálftanum BAN KI-MOON Sigrar Ísland í Eurovision? Já 27% Nei 73% SPURNING DAGSINS Í DAG Tókst þú þátt í símakosningu Eurovision? Yngri leigja í stað eldri Enginn sótti um tvær lausar leigu- íbúðir fyrir tekju- og eignalága eldri borgara í Álfagerði í Vogum. Þar sem eftirspurn meðal þessa hóps er engin sem stendur samþykkti bæjarráðið að leigja íbúðirnar til annarra en eldri borgara. VOGAR KJARAMÁL „Ef ekki nást samning- ar á morgun [í dag] er komið upp mjög mikið óvissuástand um framtíð þessara viðræðna,“ segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, um yfirstand- andi samningaviðræður við ríkið. „Við höfum spilað út okkar óskum og kröfum. Ríkið hefur komið með tilboð sem við teljum ekki ásættanlegt að öllu leyti en það er spurning hvort menn geti náð niðurstöðu sem er ásættan- leg fyrir báða,“ segir Ögmundur. „Allar staðreyndir eru á borðinu og það er komið að ögurstundu. Ég vona sannarlega að við náum niðurstöðu því það væri mjög bagalegt að fara samningslaus inn í sumarið.“ - gar Formaður BSRB: Ögurstund í kjaraviðræðum DANMÖRK Þrír drengir á unglings- aldri dóu og sá fjórði slasaðist illa þegar þeir veltu herflutningabíl sem þeir keyrðu yfir engi á eyjunni Als í Danmörku í gær. Þetta kom fram á danska frétta- vefnum BT.dk. Drengirnir höfðu fengið bílinn að láni frá eiganda hans til að fara í kappakstur. Kappaksturinn endaði illa, en drengirnir köstuð- ust út úr bílnum þegar hann valt niður í skurð. „Þetta er mjög sorglegt slys,“ sagði vaktstjóri lögreglunnar á Norður-Jótlandi. Á annan klukkutíma tók að losa drengina úr bílnum og koma þeim á sjúkrahús. - sgj Þrír unglingar létust: Veltu hertrukk í kappakstri KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.