Fréttablaðið - 25.05.2008, Blaðsíða 72
24 25. maí 2008 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Það dylst engum að andinn í Fjölnisklef-
anum er í hæstu hæðum. Gunnar Már
Guðmundsson, Herra Fjölnir, ljóstrar því upp
að klefinn sé eins og sitt annað heimili. „Það
er allt til alls þarna. Við vorum að fá kaffivél
sem er mjög jákvætt,“ segir Gunnar en liðið
mætir Íslands- meisturum Vals í kvöld.
Gunnar taldi raunar
líklegt að Ólafur
Páll Snorrason,
sem sendur var að
útvega nýja kaffivél,
hafi hreinlega
borgað hana
sjálfur.
„Við
reynum
klárlega að
skemma
veisluna þeirra,“ segir Gunnar en Valsmenn
vígja í kvöld Vodafone-völlinn glæsilega.
„Við eigum góðan möguleika gegn þeim,
þeir hafa verið brothættir
framan af móti. Við
reynum bara að halda
okkar skipulagi og klára
þennan leik eins og aðra“.
Gunnar segir móralinn í klef-
anum vera frábæran. „Það fylgist
kannski með góðu gengi okkar en
reyndar hefur stemmningin í klefanum alltaf
verið góð“. Gunnar segir að meðal annars
hafi Fjölnismenn nokkrum sinnum horft á
margfræga ræðu stórleikarans og hjarta-
knúsarans Al Pacino úr stórmyndinni Any
Given Sunday fyrir leiki. „Ræðan hefur verið
vinsæl enda óhemju góð“.
Viðtalshúmor Fjölnismanna hefur ennig
verið opinberaður. „Þetta byrjaði þannig að
ég var að fara í þáttinn á RÚV og þá datt mér
og Kristó (Kristófer Sigurgeirsson, aðstoðar-
þjálfari) í hug að koma með
eitt orð sem þarf að heyrast
í sjónvarpsviðtali, hver sem
lendir í því. Ég byrjaði og
fékk orðið moldvarpa, sem
ég leysti með því að tala um
vítateiginn á Fjölnisvellinum
og Óli Stefán fékk svo orðið
gormur. Þá talaði hann um að
Grindvíkingar væru stórhættu-
legir inn í teignum því þetta
væru djöfulsins gormar. Orðið
er valið rétt fyrir leik en Kristó
sér um að velja orðið. Hann
segir að þetta þyngist bara
með sumrinu,“ sagði Gunnar.
LANDSBANKADEILD KARLA Í KVÖLD: FERSKIR FJÖLNISMENN MÆTA MEISTURUNUM Á VODAFONE-VELLINUM
Ræða Al Pacino kemur Fjölnismönnum í gírinn
FÓTBOLTI Boltavakt Vísis og
Fréttablaðsins verður sem fyrr í
fullum gangi í kvöld.
Þar er hægt að fylgjast með
gangi mála í öllum leikjum
kvöldsins, fá leiklýsingar og
annað sem skiptir máli.
Hægt er að fylgjast með
Boltavaktinni á slóðinni www.
visir.is/boltavakt.
Boltavaktin:
Boltinn í beinni
FÓTBOLTI Það er stór dagur hjá
Valsmönnum í dag en þá fær
félagið aftur heimavöllinn sinn á
Hlíðarenda eftir að hafa leikið á
Laugardalsvelli síðustu tímabil.
Vodafonevöllurinn glæsilegi
verður tekinn í notkun í kvöld
þegar nýliðar Fjölnis heimsækja
Íslandsmeistarana í Landsbanka-
deild karla.
Valsmenn boða til mikils
fagnaðar þar sem B.SIG treður
upp sem og Ingó Idol. Ólafur F.
Magnússon borgarstjóri verður
heiðursgestur og sr. Vigfús Þór
Árnason mun blessa völlinn.
Grímur Sæmundsen, formaður
Vals, heldur ávarp og Valskórinn
mun hefja upp raust sína. - hbg
Tímamót á Hlíðarenda:
Vodafonevöll-
urinn vígður
VODAFONEVÖLLURINN Tekinn í notkun í
dag.
> Enn óvissa með Eið Smára
Ekki fékkst staðfest í gær hvort Eiður Smári Guðjohnsen
yrði með í landsleiknum gegn Wales á miðvikudaginn.
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari sagðist ekkert vita
um málið, það væri ekki á hans könnu
og hann hefði ekki heyrt frá þeim
sem hefðu með málið að gera. Það
er Gunnar Gylfason sem sér um það
mál en hann svaraði ekki síma í gær. Á
heimasíðu Barcelona stendur skýrum
stöfum að Eiður Smári hafi fengið
leyfi frá félaginu til þess að sinna
öðrum skyldum og standist þær
upplýsingar verður að teljast lík-
legt að Eiður spili á miðvikudag.
FÓTBOLTI Fjórða umferð Lands-
bankadeildar karla hefst í kvöld
með fjórum leikjum. Valur tekur
þá á móti toppliði Fjölnis, Laugar-
dalsliðin Fram og Þróttur mætast
á Þjóðarleikvanginum, ÍA sækir
Keflavík heim og Fylkir tekur á
móti HK í Árbænum. Stórleikur
umferðarinnar er aftur á móti í
Kaplakrika þar sem FH tekur á
móti KR.
KR hefur ekki sótt gull í greipar
Gaflara síðan árið 2003 er KR varð
meistari. Þá endaði KR meistara-
tímabil sitt með því að tapa 7-0 í
Krikanum. Það tap svíður enn hjá
KR-ingum enda varpaði tapið
óneitanlega skugga á Íslands-
meistaratímabilið.
Síðan þá hefur FH haft algjört
tak á KR-liðinu, sem hefur aðeins
fengið eitt stig í rimmum sínum
við FH í deildinni frá árinu 2004.
Síðustu þrjú tímabil hefur FH
unnið alla leiki liðanna og KR
hefur ekki einu sinni skorað á
heimavelli gegn FH í fjögur ár.
Við stjórnvölinn hjá KR núna er
FH-ingurinn Logi Ólafsson, maður
sem þekkir öll innviði félagsins og
spurning hvort hann geti leyst
KR-liðið úr þeim álögum sem FH-
ingar virðast hafa lagt á þá.
„Við gerum okkur fyllilega
grein fyrir því að við þurfum topp-
leik til þess að ná góðum úrslitum
í Krikanum. FH er með frábært
lið, skipað góðum einstaklingum
sem þekkja sitt hlutverk vel,“
sagði Logi en mun þekking hans
og kunnátta á FH-liðinu hjálpa KR
í þessum leik?
„Ég þekki nú ekkert betur til hjá
FH en ég gerði í fyrra og þá töpuð-
um við 5-1 þannig að ég veit það
ekki,“ sagði Logi léttur. Hann vildi
lítið tjá sig um liðsuppstillingu en
Logi hefur stillt eins upp í öllum
þrem leikjum KR til þessa og gert
nákvæmlega sömu breytingarnar.
Heimir Guðjónsson, þjálfari
FH, er ekkert að spá í úrslitum
síðustu ára. „Við eigum reyndar
harma að hefna eftir tap gegn KR
í deildarbikarnum. Þetta verður
klárlega mjög erfiður leikur gegn
liði sem hefur tapað tveim leikjum
og mun því mæta dýrvitlaust til
leiks. Við verðum því að vera til-
búnir,“ sagði Heimir, sem er upp-
alinn KR-ingur.
henry@frettabladid.is
Tekst KR loksins að vinna
bug á FH-grýlunni?
KR heimsækir FH í stórleik kvöldsins í Landsbankadeild karla. KR hefur gengið
hræðilega í leikjum liðanna síðustu ár og FH hefur haft mikið tak á KR síðan 2003.
FH-INGURINN OG KR-INGURINN Það er skemmtileg staðreynd að Logi Ólafsson,
þjálfari KR, er FH-ingur og Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, er KR-ingur.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL & VILHELM
DEILDARLEIKIR KR OG FH
2007:
KR-völlur: 0-2
Kaplakriki: 5-1
2006:
KR-völlur: 0-3
Kaplakriki: 2-0
2005:
KR-völlur: 0-1
Kaplakriki: 2-0
2004:
KR-völlur: 0-1
Kaplakriki: 1-1
2003:
KR-völlur: 2-1*
Kaplakriki: 7-0
Samtals:
Leikir: 10
Sigrar FH: 8
Sigrar KR: 1
Jafntefli: 1
Mörk FH: 25
Mörk KR: 4
* Síðasti sigur KR gegn FH í deildarleik
var 8. júlí árið 2003.
FÓTBOLTI Chelsea staðfesti á
heimasíðu sinni í gær að félagið
hefði sagt upp samningnum við
Avram Grant knattspyrnustjóra.
Í tilkynningu félagsins segir að
nú standi yfir leit að nýjum stjóra
og ætlar félagið ekki að tjá sig
frekar fyrr en hann finnst.
Grant tók við Chelsea í
september á síðasta ári þegar
José Mourinho yfirgaf félagið.
Hann stóð sig talsvert betur með
liðið en almennt var búist við og
stýrði því í úrslit Meistaradeildar
og var svo ekki fjarri því að landa
enska meistaratitlinum með
Chelsea en þurfti í staðinn að
sætta sig við annað silfur.
Nú þegar er byrjað að orða þá
Frank Rijkaard, Sven-Göran
Eriksson, Michael Laudrup og
Roberto Mancini við starfið. - hbg
Chelsea í stjóraleit:
Grant rekinn
frá Chelsea
AVRAM GRANT Ísraelinn stóð sig vel
með Chelsea en það dugði ekki til að
halda starfinu. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Hull leikur á meðal bestu
knattspyrnuliða Englands næsta
vetur. Hull vann frækinn sigur
á Bristol City í hreinum
úrslitaleik um síðasta lausa
sætið í ensku úrvalsdeild-
inni á næstu leiktíð.
Það var gamla brýnið
Dean Windass, 39
ára, sem skoraði
eina mark leiksins
með glæsilegu
skoti frá vítateig
sjö mínútum
fyrir hlé. Phil
Brown, stjóri
Hull, sagði
það örlög að Windass hefði tryggt
sigurinn en Windass er fæddur
og alinn upp í Hull.
„Þetta er lyginni líkast.
Ég finn til með leikmönn-
um Bristol City en það var
mjög vel við hæfi að Dean
Windass skyldi skora
sigur markið í þessu leik.
Ég tel að það hafi verið
skrifað í skýin að
annað hvort
Dean eða
Nicky Barm-
by myndi
skora sigur-
markið í þess-
um leik,“ sagði Brown himinlif-
andi í leikslok en Barmby er
einnig frá Hull.
Hinn 39 ára gamli Dean Wind-
ass brast í grát í leikslok. „Til
finningin er engu lík. Ef maður
horfir upp í stúkuna þá fær maður
á tilfinninguna að það sé enginn
eftir í Hull. Það eru allir hér á
leiknum.
Að skora sigurmarkið er stór-
kostlegt. Ég hef aldrei komið á
Wembley áður og skora sigur-
markið hér er einstök tilfinning.
Ég trúði varla mínum eigin augum
þegar boltinn söng í netinu,“ sagði
Windass kátur. - hbg
Hull komið í ensku úrvalsdeildina í fyrsta skipti eftir sigur á Bristol City í umspilsleik á Wembley:
Windass skaut Hull upp í úrvalsdeild
GRÉT AF GLEÐI Tilfinningarnar báru
hinn 39 ára gamla Dean Windass
ofurliði eftir leikinn í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Landsbankadeild kvenna
HK/Víkingur-Þór/KA 0-2
- Arna Sif Ásgrímsdóttir, Rakel Hönnudóttir.
1. deild karla:
Leiknir-Þór 2-3
Einar Pétursson, Jakob Spangsberg - Ibra Jagne,
Ármann Pétur Ævarsson, Hreinn Hringsson.
Njarðvík-Fjarðabyggð 1-5
Jón Haukur Haraldsson - Sveinbjörn Jónasson
2, Haukur Ingvar Sigurbergsson, Vilberg Marinó
Jónasson, Sigurður Víðisson.
KS/Leiftur-Víkingur Ó. 0-0
ÚRSLIT