Fréttablaðið - 25.05.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 25.05.2008, Blaðsíða 16
16 25. maí 2008 SUNNUDAGUR Þ að var greinilegt að aðdáendur Gwyneth Paltrow höfðu raðað sér upp við rauða dregilinn þegar Two Lovers var frum- sýnd. Gwyneth mætti í sínu fínasta Hollywood-pússi með Valentino upp á arminn og pósaði fyrir ljós- myndara milli þess sem hún gaf eiginhandaráritanir. Gwyneth Paltrow þarf varla að kynna fyrir lesendum en hún skaust fljótt upp á stjörnuhimininn í Hollywood og hlaut Óskarsverðlaun fyrir Shake- speare in Love ung að aldri. Í kjöl- farið fylgdi hver stórmyndin á fætur annarri. Gwyneth tók sér síðan nokkurra ára hlé frá leik þegar hún giftist rokkaranum Chris Martin úr Coldplay og eign- aðist með honum dótturina Apple og soninn Moses. Gwyneth mætti í viðtalið upp- stríluð á hæstu hælum sem sést hafa, lék á als oddi og leið greini- lega vel með sjálfa sig og að vera komin aftur í bransann. Leikstjór- inn Jon Favreau fékk hana til að snúa aftur á hvíta tjaldið og leika í Iron Man sem var nýlega frum- sýnd og næstur var James Gray en Gwyneth leikur eitt aðalhlut- verkið í mynd hans, Two Lovers, sem frumsýnd var í Cannes. Eins og titillinn gefur til kynna fjallar myndin um Leonard, leikinn af Joaquin Phoenix, sem á tvær ást- konur, annars vegar Michelle, leikin af Gwyneth Paltrow, og Söndru, leikin af Vinessu Shaw. Til að flækja málin enn frekar á Michelle einnig í langvarandi ástar sambandi við giftan mann. „Þetta er í rauninni saga um þrá- hyggju. Mín persóna er haldin þrá- hyggju yfir kvæntum manni sem kemur í veg fyrir hennar persónu- lega þroska og hamingju. Hún er ekki á þeim stað í lífinu andlega að hún geti séð heildarmyndina og komið sér út úr þessum vítahring og endar þess vegna á slæmum stað,“ segir Gwyneth um Michelle. „Ég hef sjálf lent í svipuðum aðstæðum og skil hvað Michelle er að ganga í gegnum. Þegar ég var miklu yngri var ég í sambandi með manni sem var í eiturlyfjum og drykkju og gat þess vegna ekki verið til staðar. Ég skildi aldrei hvers vegna hann var alltaf að bregðast mér og þótt ég sé alin upp af fólki sem þótti mjög vænt um mig og lét mér líða vel með sjálfa mig þá er mjög auðvelt að byrja að hugsa, hvað er að mér?“ Ferskari og þroskaðri en áður Eftir að hafa tekið þennan tíma til að hvíla þig og eignast fjölskyldu, finnst þér þú koma öflugri og ferskari til baka? „Ó já, takk fyrir,“ svarar Gwyn- eth og hlær. „Ég vann allt of mikið á bilinu tvítugs til þrítugs. Ég var ekki búin að uppgötva að ég gæti sagt nei og hélt stöðugt áfram, tók að mér hvert hlutverkið á Pabbi minn dó og þremur vikum síðar kynnt- ist ég manninum mínum og við eign- uðumst tvö börn. Þá skildi ég að ég átti líf sem hafði ekkert með Hollywood að gera. Aftur á hvíta tjaldið Nýjasta mynd James Gray, Two Lovers, tekur þátt í keppninni um Gullpálmann í Cannes. Leikkonurnar Gwyneth Paltrow og Vinessa Shaw voru mættar til að kynna myndina en mótleikari þeirra, Joaquin Phoenix, komst ekki. Hanna Björk Valsdóttir hitti Gwyneth á Martinez-hótelinu í Cannes daginn eftir frumsýningu. STJARNA FRAM Í FINGURGÓMA Gwyneth Paltrow á rauða dreglinum í Cannes í síðustu viku en þar var sýnd myndin Two Lovers eftir James Gray. „Mín persóna er haldin þráhyggju yfir kvæntum manni sem kemur í veg fyrir hennar persónulega þroska og hamingju,“ segir Paltrow um hlutverk sitt. NORDICPHOTOS/AFP ➜ GWYNETH PALTROW Í HNOTSKURN Leikkonan Gwyneth Paltrow er fædd árið 1972 í Los Angeles, en foreldrar hennar voru vel þekktir innan Hollywood- bransans. Faðir hennar var leikstjórinn Bruce Paltrow en móðir hennar er verðlaunaleik- konan Blythe Danner. Paltrow flutti til Massachusetts ellefu ára gömul og byrjaði þá að fara í leiklistartíma. Árið 1991 hætti hún í námi í Háskólan- um í Kaliforníu til þess að snúa sér alfarið að leiklist. Fyrsta hlutverk hennar í kvikmynd var í Flesh and Bone árið 1993. Hún vakti athygli í kvikmynd- inni Seven árið 1995 en við gerð myndarinnar kynntist hún leikaranum Brad Pitt og þau voru kærustupar í nokkur ár. Hlutverkin sem komu henni verulega á kortið voru í kvikmyndum þar sem hún lék breskar meyjar: i Emma árið 1996 og Shakespeare in Love árið 1998 en hún fékk Óskars- verðlaun fyrir þá síðarnefndu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.