Fréttablaðið - 25.05.2008, Blaðsíða 31
ATVINNA
SUNNUDAGUR 25. maí 2008 157
www.marelfoodsystems.com
Tækjaforritari
Tækjaforritara vantar á tækjahugbúnaðarsvið til að vinna við þróun hugbúnaðar fyrir ýmiss
konar tæki og lausnir fyrir matvælaiðnað. Um er að ræða skapandi starf sem krefst færni í
hugbúnaðargerð þar sem meðal annars er fengist við myndgreiningarkerfi, servo-búnað og
rauntímaforritun. Áhugasömum gefst kostur á að vinna með hópi sérfræðinga að hönnun nýrra
tækja, allt frá hugmynd að uppsetningu hjá viðskiptavini og sjá afrakstur í verki. Starfinu fylgja
ferðalög erlendis.
Þú hefur:
• reynslu af forritun, s.s. C/C++
• innsýn í stýriforritun
• góða enskukunnáttu
Við bjóðum:
• þjálfun í forritunarmálum
• afbragðs vinnuaðstöðu og mötuneyti
• fjölskylduvænt vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma
• aðgang að íþróttaaðstöðu og gott félagslíf
• styrki til símenntunar og íþróttaiðkunar
Nánari upplýsingar um starf tækjaforritara veitir Aðalsteinn Víglundsson, vörustjóri,
alliv@marel.is, í síma 563 8000.
Fylla skal út umsóknir á heimasíðu Marel ehf., www.marel.is fyrir 3. júní nk.
Öllum umsóknum verður svarað og fyllsta trúnaði heitið gagnvart umsækjendum.
Marel ehf er dótturfélag Marel Food Systems hf sem er
alþjóðlegt hátæknifyrirtæki í fararbroddi í þróun og
framleiðslu tækja, hugbúnaðar og lausna fyrir matvælaiðnað.
Hjá Marel Food Systems starfa yfir 2100 starfsmenn í 5
heimsálfum, þar af um 380 manns hjá Marel ehf á Íslandi.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og
fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi
og Hringbraut, skrifstofu mannauðsmála Eiríksgötu 5, á heima-
síðu www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við
ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Landspítali er reyklaus vinnustaður.
Skrifstofumaður - Bókhald
Fjármálasvið Landspítala óskar eftir að ráða reyndan
starfsmann í fjárhagsbókhald. Nauðsynlegt er að starfs-
maðurinn geti unnið sjálfstætt við bókhaldsverkefni og
úrlausn ýmissa viðfangsefna við fjárhagsbókhald.
Eftirfarandi kröfur eru gerðar til umsækjenda:
• Stúdentspróf, verslunarpróf eða önnur sambærileg menntun.
• Reynsla af störfum við fjárhagsbókhald
• Sjálfstæði í störfum og framtakssemi í úrvinnslu verkefna
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknir berist fyrir 9. júní 2008 til
Jónínu Birgisdóttur, deildarstjóra, LSH Eiríksgötu 5,
netfang joninabi@landspitali.is, sími 543 1245 og veitir
hún upplýsingar ásamt Bjarka Þór Baldvinssyni,
verkefnastjóra, netfang bjarkiba@lsh.is
V I L T U S T U Ð L A A Ð
F R A M F Ö R U M Á Í S L A N D I ?
Samtök atvinnulífsins (SA) leita að ungu fólki í
námi sem vill leggja sitt af mörkum við að auka
samkeppnishæfni lands og þjóðar.
Ef þú býrð yfi r hugmynd sem getur bætt hag Íslendinga eða
vilt greina sóknarfæri á sviði atvinnumála, efnahagsmála,
vinnumarkaðsmála eða velferðarmála, þá viljum við heyra í þér.
Fyrir réttu verkefnin eru í boði styrkir og hugsanlega vinnu-
aðstaða í Húsi atvinnulífsins ásamt samstarfi við starfsmenn SA.
Framsýnir og áhugasamir skili inn hugmynd ásamt
nánari upplýsingum á einu A4 blaði til SA fyrir 7. júní
næstkomandi.
Samtök atvinnulífsins - Borgartúni 35 - 105 Reykjavík – www.sa.is
Nánari upplýsingar veitir Hörður Vilberg hjá SA í síma 591-0005.
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is
Sérfræðingur
í fjármáladeild
• Kópavogsbær óskar eftir að ráða sér-
fræðing í fjármáladeild á fjármála- og
stjórnsýslusviði.
Sérfræðingur í fjármáladeild mun m.a. vinna
við ýmis fjárhagsuppgjör, gerð fjárhagsáætl-
ana og hafa umsjón með upplýsingamiðlun
úr fjárhagskerfum bæjarins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Viðskiptafræðingur af fjármála- eða
endurskoðunarsviði
• Mjög góð excel kunnátta skilyrði
• Góð þekking á Navision fjárhagskerfi
• Sjálfstæð vinnubrögð og góðir sam-
skiptahæfileikar
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Pálsdóttir, fjár-
mála-og hagsýslustjóri Kópavogsbæjar í síma
5701500. gudrunp@kopavogur.is
Umsóknum með ferilskrá skal skilað á rafrænu
formi á netfangið
starfsmannastjori@kopavogur.is
Umsóknum skal skila
fyrir 31. maí n.k.
Starfsmannastjóri.
Kennarar óskast í
Strandabyggð !
Grunnskólinn á Hólmavík óskar
eftir einum kennara til starfa í
haust. Aðallega er um að ræða
kennslu á miðstigi, en ýmislegt
annað kemur til greina.
Tónskólinn á Hólmavík óskar einnig eftir
píanókennara til starfa skólaárið 2008 - 2009.
Langar þig að fara út á land og vinna í 75 barna
skóla þar sem réttindakennarar eru í hverri stöðu
og aðstaða til íþróttaiðkunar og útivistar er frábær?
Hér er grasið grænna. Hafðu samband!
Umsóknarfrestur um báðar
stöðurnar er til 15. júní 2008.
Nánari upplýsingar gefa:
Victor Örn Victorsson skólastjóri og
Kristján Sigurðsson aðstoðarskólastjóri
Grunnskólans á Hólmavík.
í síma 451 - 3129 eða 862 - 3263.