Fréttablaðið - 25.05.2008, Page 4

Fréttablaðið - 25.05.2008, Page 4
4 25. maí 2008 SUNNUDAGUR SKOÐANAKÖNNUN 43,4 prósent segj- ast nú myndu kjósa Samfylkingu, væri gengið til borgarstjórnarkosn- inga, og mælist fylgið nú sextán prósentustigum meira en í síðustu kosningum. Samkvæmt því myndi flokkurinn fá sjö fulltrúa kjörna, en hann hefur fjóra fulltrúa nú. Fylgi Sjálfstæðisflokks er 33,8 prósent og fengi flokkurinn sex borgarfulltrúa kjörna, einum færri en hann hefur nú, en kjörfylgi flokksins er 42,9 prósent. Fylgið hefur því dalað um rúm níu pró- sentustig. Fylgi Vinstri grænna mælist nú 14,1 prósent, 0,6 prósentustigum meira en kjörfylgi flokksins, og myndu Vinstri græn því halda sínum tveimur borgarfulltrúum. Framsóknarflokkur og Frjáls- lyndi flokkurinn myndu hins vegar missa sinn borgarfulltrúa hvor. 4,2 prósent styðja Frjálslynda flokkinn, sem er tæpum sex prósentustigum minna en kjörfylgi flokksins. Fram- sóknarflokkurinn hefur nú 3,9 pró- senta fylgi, sem er 2,4 prósentustig- um minna en kjörfylgi flokksins. Einnig var spurt hvort kjósendur styddu núverandi meirihluta Sjálf- stæðisflokks og Frjálslyndra. 27,7 prósent segjast nú styðja meiri- hluta borgarstjórnar, en 72,3 pró- sent styðja hann ekki. Þetta er lítil breyting frá 23. janúar, þegar 25,9 prósent sögðust styðja þá nýmynd- aðan meirihluta borgarstjórnar. Mestur stuðningur er meðal kjós- enda Sjálfstæðisflokks og Frjáls- lynda flokksins. 77,2 prósent sjálf- stæðismanna styðja meirihlutann og 75,0 prósent kjósenda Frjáls- lynda flokksins. Minnstur stuðn- ingur er meðal kjósenda Samfylk- ingar og Vinstri grænna; 1,3 prósent kjósenda Samfylkingar og 2,0 pró- sent kjósenda Vinstri grænna segj- ast styðja meirihlutann. 14,7 pró- sent þeirra sem ekki gáfu upp stuðning við flokk styðja núverandi meirihluta borgarstjórnar. Hringt var í gær í 600 Reykvík- inga á kosningaaldri. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni. Spurt var; Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til borgarstjórnarkosn- inga nú? 59,2 prósent tóku afstöðu til spurningarinnar. Þá var spurt: Styður þú meirihluta borgar- stjórnar? og tóku 88,3 prósent afstöðu. svanborg@frettabladid.is Þrír flokkar með full- trúa í borgarstjórn Lítil breyting er á fylgi flokkanna í Reykjavík frá því í janúar, stuttu eftir að nýr meirihuti tók við. Samfylking fengi sjö fulltrúa, Sjálfstæðisflokkur sex og Vinstri græn tvo. Tæp 28 prósent styðja núverandi meirihluta í borginni. ÁGENGUR EN BLÍÐUR ÓÐUR TIL ÁSTARINNAR KONA FER TIL LÆKNIS EFTIR RAY KLUUN Metsölubók um sársaukafullt efni „Ógleymanleg saga um hugrekki, vanmátt og ástina.“ – Cosmopolitan Þýðandi: Jóna Dóra Óskarsdóttir SELDIST Í YFIR600.000 EINTÖKUMÍ HOLLANDI Kosningar maí 2006 13. október 2007 9. janúar 2008 23. janúar 2008 24. maí 2008 14,1% 33,8% 43,4% 3,9% 4,2% 42,9% 39,4% 43,7% 34,8% 27,4% 30,7% 35,3% 42,3% 13,4% 19,4% 13,2% 14% 10,1% 3,1% 3% 2,9% 6,3% 5,8% 4,6% 4,9% FYLGI FLOKKANNA Í REYKJAVÍK 40 30 20 10 0 STYÐUR ÞÚ MEIRIHLUTA BORGARSTJÓRNAR? Skv. skoðanakönnun Fréttablaðsins 24. maí 72,3% 27,7% Nei Já VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg Helsinki Eindhofen Amsterdam London Berlín Frankfurt Friedrichshafen París Basel Barcelona Alicante Algarve Tenerife HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 17° 18° 19° 17° 18° 19° 18° 25° 17° 21° 21° 25° 22° 25° 20° 24° 19° 18° Á MORGUN 3-10 m/s, stífastur vestan til. ÞRIÐJUDAGUR 3-8 m/s. 12 20 15 18 14 14 11 13 17 12 10 6 4 2 5 3 5 5 7 5 7 5 20 20 1212 11 20 21 1412 HITI 20 STIG Mikil hlýindi eru í kortum dagsins fyrir norðan- og austanvert landið og raunar víðar. Má reikna með að til landsins fyrir norðan og austan verði hitinn á bilinu 15-20 stig að deg- inum og verður svo fram á miðvikudag. Þá stefnir í hita yfi r 20 stig til landsins vestan og norð- vestan til. 12 Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur SKOÐANAKÖNNUN „Ég undrast þetta mikla fylgi Sjálfstæðisflokks, miðað við þann gríðarlega vandræðagang sem hann stendur frammi fyrir og hefur ekki getað leyst úr,“ segir Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknar- flokksins. Framsóknar- flokkurinn mældist með 3,9 prósenta fylgi í könnun Frétta- blaðsins. Óskar segir það langtíma- verkefni að byggja upp traust á fylgi stjórnmálaflokka. „Þetta er hækkun frá síðasta Þjóðarpúlsi Gallups og ég er bjartsýnn á framhaldið. Þetta er þó engan veginn viðunandi niðurstaða.“ - kg Óskar Bergsson, Framsókn: Ekki viðunandi niðurstaða SKOÐANAKÖNNUN „Það er synd að ekki sé hægt að efna til kosninga í Reykjavík í dag, svo að aftur sé hægt að koma á festu við stjórn borgarinnar,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingar. „Þetta endur- speglar að borgarbúar töldu 100 daga meirihlutann farsælan í sínum störfum og sjá eftir honum. Um leið hefur meirihluta Ólafs F. Magnússonar og Sjálfstæðisflokks ekki tekist að festa sig í sessi,“ segir Dagur. „Sjálfstæðisflokkurinn er ekki lengur tákn fyrir stöðugleika, heldur uppspretta sundrungar og vandræðagangs,“ segir Dagur. - sgj Dagur B. Eggertsson: Synd að ekki megi kjósa á ný DAGUR B. EGGERTSSON SKOÐANAKÖNNUN „Þessi niðurstaða er í samræmi við aðra nýlega könnun og er auðvitað ekki viðunandi staða fyrir flokkinn í Reykjavík,“ segir Hanna Birna Kristjáns- dóttir, forseti borgarstjórnar, um fylgi Sjálfstæðis- flokksins. „Ég er sannfærð um að þetta er einungis tímabundin lægð en engu að síður verðum við að taka þessar vísbendingar alvarlega til að tryggja flokknum það fylgi sem hann á að hafa í Reykajvík.“ - sh Hanna Birna Kristjánsdóttir: Einungis tíma- bundin lægð HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR ÓSKAR BERGSSON SKOÐANAKÖNNUN „Þetta staðfestir það sem við finnum, eins og allir borgarbúar, að þessi meirihluti nýtur ekki vinsælda meðal Reykvíkinga,“ segir Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna. „Meirihlutinn nýi bað um tíma til að sanna sig. Hann hefur fengið þann tíma og Reykvíkingar hafa ekki skipt um skoðun,“ segir Svandís. „Reykjavík vill ekki þennan meirihluta.“ Svandís bendir á að fylgi við flokkanna hafi lítið breyst frá því sem það var dagana eftir að meirihluti Sjálfstæðisflokks og F- lista tók til starfa. - sgj Svandís Svavarsdóttir: Meirihlutinn ekki vinsæll SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR STJÓRNMÁL „Mér finnst það alvar- legt mál ef Ólafur ætlar að hand- raða í kringum sig sínum pólitísku samstarfsmönnum,“ segir Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, um ráðningu Svanlaugar Jóhannsdóttur í sumar- starf sem verkefnisstjóri á skrif- stofu borgarstjóra, Ólafs F. Magnússonar. Svanlaug skipaði annað sætið á lista Íslandshreyfingarinnar í Suð- vesturkjördæmi, en Jakob Frí- mann Magnússon, nýráðinn fram- kvæmdastjóri miðborgar, skipaði það fyrsta. „Hann réð Jakob Frímann og kannaðist ekki við að það væri neitt annað en fagleg ráðning. Það átti ekki að heita pólitísk ráðning, en við höfum sýnt fram á að svo var,“ segir Svandís. „Það er að minnsta kosti merki- leg tilviljun að þeir sem eru ráðnir tímabundið án auglýsingar inn á skrifstofu borgarstjóra séu allir pólitískir stuðningsmenn borgar- stjóra,“ segir Dagur B. Eggerts- son, borgarfulltrúi Samfylkingar. „Þannig er verið að víkja frá þeirri stefnu að ráða embættismenn fag- lega.“ Dagur segir að fyrir örfáum mánuðum hafi verið auglýst eftir verkefnastjórum og að margar sterkar umsóknir hafi borist. „Ég hef ekki séð á skýringum í fjöl- miðlum að til þess öfluga og vel menntaða fólks hafi verið leitað,“ segir Dagur. - sgj Oddvitar í minnihluta borgarstjórnar segja vikið frá faglegum ráðningum: Segja Ólaf raða til sín samherjum ÓLAFUR F. MAGNÚSSON Oddvitar minni- hlutans segja borgarstjóra hafa vikið frá stefnu um faglegar embættisveitingar. SKOÐANAKÖNNUN „Þetta sýnir að við erum að standa okkur mjög vel. Við höfum unnið ötullega að því að gera miðborgina að stað sem við getum verið stolt af og höfum náð sáttum í REI- málinu,“ segir Ásta Þorleifs- dóttir, varafor- maður stjórnar OR. „Það kemur mér mjög á óvart að sjá Vinstri græna með kjörfylgi en Samfylkingu svo háa. Samfylking- in hefur alls ekki unnið fyrir þessu fylgi,“ segir Ásta. - kg Ásta Þorleifsdóttir: Stöndum vörð um málefni ÁSTA ÞORLEIFSDÓTTIR GENGIÐ 23.05.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 145,8501 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 72,06 72,4 142,65 143,35 113,23 113,87 15,175 15,263 14,313 14,397 12,17 12,242 0,6955 0,6995 117,6 118,3 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.