Fréttablaðið - 25.05.2008, Page 14
25. maí 2008 SUNNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
ANNE HECHE LEIKKONA ER 39
ÁRA.
„Þegar þú kemur út úr
skápnum er það aðeins fyrir
sjálfan þig. Síðan þegar
aðrir fara að velta sér upp
úr því fer allt að snúast um
sögusagnir, það olli mér
vonbrigðum.“
Anne Heche olli fjaðrafoki í
Hollywood þegar hún opin-
beraði samband sitt við Ellen
DeGeneres árið 1997. Þær
skildu þremur árum síðar.
Á dögunum var haldinn stofnfundur Íslenska Rotaract-
klúbbsins, en klúbburinn er hluti af Rotary-fjölskyldunni
og er ætlaður fólki á aldrinum átján til þrjátíu ára.
Esther Ösp Valdimarsdóttir er forseti klúbbsins og átti
frumkvæðið að stofnun hans. „Ég var skiptinemi í Mexíkó
fyrir fjórum árum og kynntist Rotary-starfinu þar,“ útskýrir
hún. „Starfið var skemmtilegt og gefandi og félagsskapur-
inn frábær. Við héldum meðal annars tónleika og söfnuðum
fyrir fórnarlömb tsunami-flóðanna og ýmislegt fleira.“
Esther var gerð að meðlimi í Rotaractklúbbnum í Mexíkó
og þurfti þá að lofa að stofna klúbb á Íslandi þegar hún færi
aftur heim. Hugsunin bak við Rotary-fjölskylduna segir hún
vera að stuðla að friði með því að búa til tengslanet fólks um
allan heim. „Markmiðið er að byggja upp samfélagið með
því að tengja fólk milli svæða, stétta og borga og heimsálfa.
Þá áttu vini alls staðar og stuðlar að friði í heiminum með
því að þekkja til og þykja vænt um einhvern sem er staddur
annars staðar en þú sjálfur.“
Verkefnaskrá Rotaract-klúbbsins er óráðin enn þá enda
klúbburinn nýstofnaður. Esther segir verkefnin fara að
mestu í gang í ágúst, en næstu helgi ætlar hópurinn þó að
fara til Akureyrar í vinnuferð og kynnast Rotary-starfinu
þar. „Við munum reglulega hafa vinnuhelgar til að þétta
hópinn því stór hluti af þessu er auðvitað félagsskapurinn.
Við munum funda aðra hverja viku, en allt starf er unnið í
sjálfboðavinnu. Við erum fimmtán talsins núna og þetta er
góður hópur. Það verður skylda hjá okkur á hverju starfsári
að taka þátt í einhverju verkefni sem hefur með okkar nær-
samfélag að gera og einnig að taka þátt í alþjóðaverkefni.
Svo ætlum við líka að gera eitthvað til að byggja okkur sjálf
upp með því að halda stjórnendanámskeið og fleira.“
Esther hefur í mörgu að snúast en auk þess að vera for-
seti Rotaract-klúbbsins stundar hún nám í mannfræði við
Háskóla Íslands og vinnur sem aðstoðarforstöðumaður í
félagsmiðstöð. Mannúðarmál eru henni hugleikin og öðru
hvoru starfar hún innan Stígamóta. Þess á milli vinnur hún í
verslun. „Já, ég geri svolítið mikið. Í framtíðinni langar mig
að sækja um friðarstyrkinn sem Rotary veitir til náms. Þá
gæti ég unnið á vegum Sameinuðu þjóðanna á stríðshrjáð-
um svæðum við að stilla til friðar. Ég gæti líka alveg hugs-
að mér að fara út í pólitík eihhvern tímann en nú er ég með
unglingaveikina og elska að vinna með unglingum. Ef ég
gæti sameinað það að vinna með ungu fólki og látið gott
af mér leiða þá væri ég búin að ná langt,“ segir Esther að
lokum. Áhugasamir geta sent netpóst á rotaract@rotary.is
heida@frettabladid.is
ROTARACT: NÝSTOFNAÐUR Á ÍSLANDI
Vilja gera gott
NÝTT Á ÍSLANDI Esther Ösp Valdimarsdóttir stóð fyrir stofnun Rotaract.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ástkær faðir minn
Ingólfur Majasson
Mjóuhlíð 14, Reykjavík,
lést á líknardeild Landakotsspítala mánudaginn
19. maí. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 26. maí kl. 15.00.
Júlía Guðrún Ingólfsdóttir.
Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu sem
með bænum, blómum, gjöfum, fallegum
orðum, faðmlögum, innlögn í minningar-
sjóð, samúðarkveðjum eða á annan hátt
hafa stutt okkur við andlát og útför elsku-
legs föður, sonar, bróður og mágs okkar,
Sigurjóns Daða
Óskarssonar
Kambaseli 85, Reykjavík.
Guð blessi ykkur.
Viktoría Von Sigurjónsdóttir
Margrét Árdís Sigvaldadóttir Óskar Eyberg Aðalsteinsson
Þórða Berg Óskarsdóttir Gunnar Örn Arnarson
Ásta Kristín Óskarsdóttir.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við and-
lát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Auðar Guðjónsdóttur
Lyngholti 14e, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heimahlynn-
ingar á Akureyri og starfsfólki Sjúkrahússins á
Akureyri.
Valborg María Stefánsdóttir Gunnlaugur Konráðsson
Guðrún Stefánsdóttir Anton Pétursson
Sigrún Svava Stefánsdóttir Hjörtur Sigurðsson
Guðjón Stefánsson Hugrún Stefánsdóttir
Hugrún Stefánsdóttir Evert Sveinbjörn Magnússon
Garðar Hólm Stefánsson Guðrún Ágústa Ágústsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, fóstur-
faðir, sonur, tengdafaðir og bróðir,
Jónas Pétur Erlingsson
andaðist aðfaranótt sunnudags 18. maí á krabbameins-
deild Landspítalans. Útför fer fram frá Vídalínskirkju
í Garðabæ þriðjudaginn 27. maí og hefst athöfnin
klukkan 15.00. Þeim sem vilja minnast hins látna er
vinsamlegast bent á Krabbameinsfélagið Framför,
sími 540 1900, kt. 620207-2330, bankareikningur
styrktarsjóðs: 0101-15-380028 eða minningarsjóð
Krabbameinsfélagsins, sími 5401990.
Edda Jóna Jónasdóttir
Ásta Dögg Jónasdóttir Sigurlaug Mjöll Jónasdóttir
Hjálmar Örn Elísson Hinz
Ásta Tryggvadóttir Erlingur Hallsson
Þórður Örn Arnarson
Einar Erlingsson og fjölskylda
Guðrún Erlingsdóttir og fjölskylda
Tryggvi Erlingsson og fjölskylda
Erlingur Erlingsson
og aðrir aðstandendur.
Steinsmiðja
• Viðarhöfða 1
• 110 Reykjavík
• 566 7878
• Netfang: rein@rein.is
• Vönduð vinna
REIN
Legsteinar
í miklu úrvali
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
Báru Valdísar Pálsdóttur
lengst af til heimilis að Sunnubraut 16,
Akranesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Dvalarheimilsins Höfða á Akranesi, fyrir góða
umönnun.
Margrét Valtýsdóttir Arnar Halldórsson
Ármann Sigurðsson
Díana Bergmann Valtýsdóttir Viktor Björnsson
Benedikt Valtýsson Jóna Sigurðardóttir
Kristrún Valtýsdóttir Erlingur Þ. Guðmundsson
og ömmubörnin.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Bryndís Stefánsdóttir
Álfaskeiði 91, Hafnarfirði,
sem lést 15. maí sl., verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði þriðjudaginn 27. maí nk. kl. 15.00.
Guðmundur Gunnarsson Guðrún Jónasdóttir
Þórunn Gunnarsdóttir Kristinn Ágústsson
Daníel Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur,
bróðir, tengdasonur og mágur,
Björgvin Björgvinsson
bifvélavirki frá Tálknafirði, Tröllaborgum
17, Reykjavík,
lést á Líknardeild LHS fimmtudaginn 22. maí. Hann
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn
30. maí kl. 13.00.
Telma Magnúsdóttir
Aldís Jóna Björgvinsdóttir
Sölvi Leó Björgvinsson
Björgvin Sigurjónsson Sædís Magnúsdóttir
Guðlaug A. Björgvinsdóttir Sigurður Jónsson
Sigurjón Björgvinsson Rakel Magnúsdóttir
Magnús Matthíasson Ragna Jóna Sigurjónsdóttir
Sigurjón Magnússon Borghildur Kristjánsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, systir og dóttir,
Rannveig Erna
Rögnvaldsdóttir
lést á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar fimmtudaginn
22. maí. Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bára Denný Ívarsdóttir
Sigurlín Huld Ívarsdóttir
Guðlaug Anna Ívarsdóttir
Valdís Ösp Ívarsdóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og dóttir,
Ingveldur Hafdís Aðalsteinsdóttir
framhaldsskólakennari, Sjafnargötu 1, Reykjavík,
lést á krabbameinslækningadeild Landspítalans
að kvöldi þriðjudagsins 20. maí.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju,
þriðjudaginn 27. maí kl. 15.
Óskar Jónsson
Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir Jakob Már Ásmundsson
Styrmir Óskarsson Anna Kristrún Gunnarsdóttir
Halla Þórlaug Óskarsdóttir
barnabörn
Guðríður Guðlaugsdóttir
Aðalsteinn Kristjánsson Anna Hjartardóttir