Fréttablaðið - 25.05.2008, Page 18
VERSLUN SÆLKERANS
LÍFIÐ ER VEISLA
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar
matur kemur út mánaðarlega með sunnudagsblaði
Fréttablaðsins. Ritstjórn: Emilía Örlygsdóttir, emilia@fretta-
bladid.is og Roald Eyvindsson, roald@frettabladid.is. Hönnun:
Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Anton Brink Pennar: Gunnþóra
Gunnarsdóttir, Hrefna Sigurjónsdóttir, Klara Kristín Arndal,
Mikael Marínó Rivera, Ragnheiður Tryggvadóttir, Rut Hermanns-
dóttir, Vera Einarsdóttir, Þórdís Lilja Gunnarsdóttir. Ljósmyndir:
Fréttablaðið Auglýsingar: Stefán P. Jones spj@frettabladid.is
MATREIÐSLUBÓKIN
2 matur
Atli Ottesen, yfirkokkur og eigandi Cafe Oliver, lumar á einfaldri uppskrift að heima-lagaðri ístertu. „Ég setti saman uppskrift að
fljótlegri og einfaldri ístertu sem allir geta gert
því þessar stóru gamaldags ístertur með sérríi og
öllu eru óttalegt vesen og tímafrekt að útbúa þær.
Mér finnst að ísterta eigi heldur ekki að vera eitthvað sem fólk
útbýr aðeins fyrir stórar veislur heldur líka sem minni eftir-
rétti,“ segir Atli um kökuna, sem myndi sóma sér vel á hvaða
veisluborði sem er, og bætir við að kjörorð kokksins í sumar ætti
að vera: minni tími í eldhúsinu og meiri úti í sólinni. - rat
HEIMALÖGUÐ
ÍSTERTA
fyrir 4
ÍSTERTAN SJÁLF
4 eggjarauður
4 eggjahvítur
3 dl rjómi
1 dl sykur
Stífþeytið eggjahvíturnar. Þeytið
eggjarauðurnar og sykurinn
saman og stífþeytið svo
rjómann. Blandið eggjarauðu-
blöndunni og rjómanum varlega
saman og blandið síðan
eggjahvítunum varlega saman
við.
Þá er blandan tilbúin til að setja
í passlegt form og þarf að frjósa
í fimm til sex tíma.
SYKURRISTAÐAR MÖNDLUR
100 g möndlur
40 g sykur
Ristið möndlurnar á miðlungs-
heitri pönnu þar til þær eru
gullinbrúnar. Bætið þá
sykrinum við og ristið þar til
sykurinn er bráðnaður og rétt
byrjaður að brúnast.
Hellið þá möndlunum í fat með
bökunarpappír og kælið í 20
mínútur. Saxið þær gróft og
stráið yfir tertuna.
Síðan er hægt að leika sér með
mismunandi bragðtegundir
í ísinn, sem er þá bætt út
í í lokin áður en tertan
fer í frystinn.
MANGÓ- OG
LIMEBRAGÐ
300 g rifið mangó
börkur af 2 lime, rifinn
Bætt út í ísblönduna í lokin.
BERJA- OG MYNTUBRAGÐ
300 g fersk ber, til dæmis blá-
ber eða jarðarber eða bara
þau ber sem kjörbúðin hefur
upp á að bjóða.
1/2 búnt af myntu, fínt söxuð
Bætt út í ísblönduna í lokin.
Einnig er hægt að prófa sig
áfam með hnetur, súkkulaði,
kaffi og líkjöra.
Nammi
namm!
Eldað í dagsins önn er þægileg og handhæg bók fyrir
alla þá sem vilja holla en ljúffenga fæðu án þess að
verja alltof miklum tíma við eldamaskínuna eða ofninn.
Höfundur bókarinnar er Stefanía Valdís Stefánsdóttir,
lektor í heimilisfræðum, og hefur hún hvergi hvikað frá
markmiðum Manneldisráðs og Lýðheilsustöðvar við
gerð uppskriftanna. Efn-
inu er skipt í tíu flokka og
þar er öll flóran, kjötrétt-
ir, fiskur, grænmeti, súpur,
salöt, brauð og kökur. Þar
birtast líka einfaldar
vinnureglur í eldhúsi og
leiðsögn við matargerð-
ina. Myndirnar í bókina
tók Jón Reykdal mynd-
listar maður og JPV útgáfa
gaf hana út í lok síðasta
árs
Í tengslum við bókina
opnaði Stefanía vef með slóðinni www.stefaniavaldis.
com þar sem hægt er að skoða bókina og prenta út inn-
kaupalista með hráefninu í hvern rétt fyrir sig.
Fljótlegt og gott
Þegar mikið stendur til höldum við veislu. Oft krefst hún mánaða undirbúnings. Eins og þegar ást vefur hjörtum saman, manneskja
þakkar skapara sínum fyrir enn einn áratug meðal
lifenda, þegar nýtt líf kviknar, ævidagar enda, og
öllum hinum stóru viðburðum tilverunnar er
fagnað. Stundum er slegið upp veislu með fárra
mínútna fyrirvara. Hrint upp skápahurðum í
sælkerabúrinu, skellt í vanilluangandi pönnsur og
stífþeyttur rjómi úr kúm sumarsins, af því bara.
Lífið er nefnilega allsherjar veisla. Hver einasti
dagur þéttskrifaður óuppgötvuðum ævintýrum.
Líka þótt dimmi mestan part dagsins, því alltaf má
finna hið örsmáa, fallega tilefni.
Þess vegna eiga veislur að vera af því bara.
Hvort sem það er í vinnunni með látlausum
bláberjabakka milli vinnufélaga; heima á stofugólfi
með kitlandi súkkulaðifondú fyrir börnin; á
sjúkrabeði, með því helsta sem frískar og nærir
þann sjúka og gerir veislu úr andartakinu með þeim
sem elska, sakna og syrgja.
Veislur eru alls staðar vinsælar og allir elska
veisluhöld. Hver á sinn hátt. Sumum hentar best að
blanda geði við ný andlit í fjölmennu kokkteilboði;
einhverjir missa aldrei úr afmælisveislu og aðrir
fara helst ekki úr húsi nema með veislu í fartesk-
inu.
Í nútímanum gefast mínútur til að gleðjast og
vera saman. Þrátt fyrir almennan skilning á þeim
dýrmæta sannleika hefur óvæntum heimsóknum og
óskipulögðum veisluhöldum við matarborð Íslend-
inga fækkað frá þeim tíma þegar gesti bar óvænt
og oft að garði við mikinn fögnuð heimilisfólks. Nú
þarf helst formlegt heimboð á undan og dónaskapur
að birtast í dyrum án þess að hafa hringt á undan
sér. Landsbyggðarfólk kemur og fer í höfuðstaðinn,
án þess að hitta þá sem mestu skipta. Enginn hafði
tíma og fyrirhöfnin var of mikil.
Þessu ættum við Íslendingar að snúa við. Lífið er
of stutt til að minnka eitthvað við sig í veisluhöld-
um hversdagsins. Við erum enn svo fá og náin,
maður þekkir mann og annan, allir tengjast
tryggðar- og ættarböndum, eru samhuga og
umfram allt afbragðs veisluhaldarar af yngri
kynslóðum þeirra sem vita best, og gleyma ekki, að
maður er manns gaman og lífið aðeins að láni, bara
í smástund.
Missum ekki af hvert öðru.
Te og kaffi rekur fjórar sérverslanir á höfuð-
borgarsvæðinu og þar á meðal eina á Laugavegi
27. Þar er boðið upp á allt að 30 tegundir af kaffi
í lausu og mun fleiri tegundir af tei. Auk þess má
þar finna ýmsar sælkeravörur og fylgihluti.
„Við reynum að tengja vöruvalið í búðinni við
þá drykki sem við bjóðum upp á og erum með
mikið úrval af tekötlum, tebollum, baukum,
espresso-bollum og espresso-vélum,“ segir
Guðmundur Halldórsson sölu- og verkefnastjóri
hjá Te og kaffi. Hann segir höfuðáherslu lagða á
úrvalsgæði hvort sem um er að ræða drykki eða
aðrar vörur.
Meðal þess sem má finna í litskrúðugum
hillum búðarinnar eru súkkulaðiöskjur frá
Frakklandi og Belgíu, handgert íslenskt konfekt
og handgerður danskur brjóstsykur, svo fátt eitt
sé nefnt.
Fremst í búðinni er svo kaffibar þar sem er
hægt að tylla sér og panta kaffi, te eða kakó til að taka með. Þar trónir flaggskip búðarinnar í öllu sínu veldi, Victoria
Arduino-espressovél sem var smíðuð í tilefni af 100 ára afmæli framleiðandans. Einungis 100 slíkar vélar voru
framleiddar. Vélin á Laugavegi er númer 50 en eintak númer eitt er staðsett í Vatíkaninu. - ve
Te og kaffi á Laugavegi
Fljótleg og ljúffeng
Atli Ottesen segir að mottó kokksins í
sumar ætti að vera minni tími í
eldhúsinu og meiri úti í sólinni.
ÍSTERTA
Ístertur eru fallegar og gera mikið fyrir veisluborðið. Atli Ottesen kann
uppskrift að einni slíkri sem er einnig mjög einfalt að útbúa.
Heimalöguð ísterta er
ljúffeng á veisluborðið .
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Sykur-
laust
SKÝRINGAR Á UPPSKRIFTATÁKNUM:
Til hátíða-
brigða
Hvunndags og
til hátíðabrigða Smáréttir
Drykkir Kökur Ávextir
S
D