Fréttablaðið - 25.05.2008, Side 20
LEYNIVOPNIÐ
4 matur
Gaman er að skreyta fyrir barnaafmæli og þá jafnt umhverfið
sem veitingarnar. Hægt er að fá fullt af skemmtilegu skrauti í
ýmsum búðum bæjarins og má sem dæmi nefna Tiger,
Söstrene Grenes og allnokkrar leikfangabúðir. Tilvalið er að
hengja upp fallega músastiga, en sá sem hér sést með
fiðrildum fæst í leikfangaversluninni Just 4 kids. Hann má
einnig nota til að dansa limbó.
Þá er skemmtilegt að skreyta kökur og annan mat með
sælgæti, glassúr, berjum og öðru matarkyns en einnig má
skreyta með litlum fánum eða öðru skrauti sem auðvelt er að
kippa af. Sjóræningjafáninn sem hér sést er kjörinn fyrir
töffarana og bleiki kórónufáninn fyrir dúllurnar. Þessir fánar
fást í Tiger en annars má víða finna svipað skraut.
Einnig má nota fána sem merkispjöld ef merkja skal sæti og
stinga þeim þá til dæmis í kanilsnúð og skrifa nafnið á fánann.
Gaman er að stinga sleikjó í eitthvert góðgæti og festa lítinn
fána á stöngina
með nafni hvers
og eins.
- hs
Sykur kemur fyrir í ýmsum gerðum en þekktastar eru hvítur sykur, púð-ursykur og hrásykur.
Sykur er bæði unninn úr sykurreyr og
sykurrófum sem og fleiri jurtum. Sykur-
reyr getur orðið margra metra hár og
minnir á bambus. Hann er aðallega rækt-
aður í Suður-Ameríku og á Indlandi en
hann á uppruna sinn að rekja til Suðaustur-
Asíu og sumir telja að hann eigi jafnvel
rætur á Kyrrahafseyjum.
Fyrir líklega um 7.000 árum lærðu menn
á Indlandi að tappa sætum safa af sykur-
reyrnum og þurrka hann þar til hann krist-
allaðist. Evrópubúar notuðust hins vegar
við hunang og ávexti sem sætuefni. Þeir
kynntust fyrst sykurreyr í landvinninga-
ferð Alexanders mikla á fjórðu öld fyrir
Krist og lýstu honum sem „reyr sem gæti
myndað hunang án býflugna“. Þeir fluttu
sykur með sér til Evrópu en hann
gleymdist þó aftur og það var ekki
fyrr en krossfarar kynntust honum
að nýju í Landinu helga að farið var
að flytja hann aftur til Evrópu. Annars
á sykurinn sér langa og athyglisverða
sögu sem tengist mörgum heimsálfum,
lyfjagerð, matargerð og þrælahaldi á
amerískum sykurplantekrum, svo eitt-
hvað sé nefnt, en of langt mál er að rekja
þá sögu hér.
Sykur er hvítleit, kristölluð tvísykra
sem notuð er sem sætuefni í mat og drykki
og til geymslu á matvælum. Sykur er nátt-
úrulega til staðar í sumum matvælum og
má þar sem dæmi nefna mjólkursykur í
mjólkurvörum og
ávaxtasykur í ávöxt-
um og hreinum söfum.
Hins vegar er talað um
viðbættan sykur þegar
honum er bætt í matvörur
í framleiðslu. Það er ekki ein-
ungis hvítur sykur sem telst til
viðbætts sykurs heldur er líka notast við
síróp, hunang, hrásykur, púðursykur, mól-
assa og ávaxtasykur. Almennt er ekki holl-
ara að bæta við einni tegund sykurs frekar
en annarri. Þrátt fyrir að kolvetni séu lík-
amanum nauðsynleg þá er hollustugildi
sykurs ekkert nema ef vera skyldi sú
nautn og vellíðan sem sætt bragðið veitir.
Sykur sem slíkur er ekki hættulegur heil-
brigðu fólki en er góður í hófi. - hs
HRÁEFNIÐ: Sykur
Sykruð sæluvíma
M
YN
D
/G
ET
TY
IM
A
G
ES
Sykur
1 3
4
1. Til eru ýmsar gerðir sykurs og má þar
nefna púðursykur, kanilsykur, hrásykur
og hvítan sykur.
2. Kanilsykur er gómsætur út á grjóna-
grautinn og í kanilsnúða.
3. Hrásykur hefur í sér aðeins minni súkr-
ósa en hreinsaður sykur og er því ekki
alveg eins óhollur. Hann er oft notaður í
drykki, eins og til dæmis mojito.
4. Sykur er unninn úr sykurreyr og sykur-
rófum.
2
SKEMMTILEGT SKRAUT
„Margt getur fallið undir leynivopn í veislum. Til
dæmis góða skapið og ánægjan við að búa til matinn
og svo auðvitað gott hráefni. En íslenska lambið
klikkar aldrei þegar verið er að útbúa veislumat. Það
er pottþétt ásamt íslensku grænmeti,“ segir Jón Sig-
fússon, kokkur hjá Mat og menningu í Þjóðmenningar-
húsinu, sem hefur í yfir tuttugu ár skipulagt opinberar
veislur á Íslandi.
„Lambið er það hráefni sem slær alltaf í gegn,
alveg sama hvaðan fólk kemur. Svo er auðvelt að mat-
reiða það á ýmsa vegu,“ segir hann og bætir við að
gott sé að muna að erlendir matargestir vilji gjarnan
mat sem minni á þeirra þjóðarrétti.
„Þrátt fyrir að við vinnum auðvitað alltaf með
íslenskt hráefni hérlendis, þá er lítið mál að gera
erlenda veislugesti glaða og ánægða með því að hafa
örlítinn keim af þeirra matargerð. Er þá mjög gott að
lauma með ýmsum kryddum og hráefnum sem notast
er við í þeirra heimalandi,“ útskýrir Jón og bætir við:
„Aðalatriðið, og í raun eitt helsta leynivopn þeirra
sem halda veislu fyrir erlenda gesti, er að geta borið
fram mat sem er að hluta til undir áhrifum frá þeirra
matarmenningu.“ - mmr
Íslenska lambið
klikkar aldrei
Jón Sigfússon, kokkur hjá Mat og menningu í Þjóðmenningar-
húsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Tilvalið er að skreyta
kökur svo þær verði
girnilegri.
Skrautlegir músastigar og
fjörlegir fánar í afmælið.
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
S. 440-1800 www.kælitækni.is Okkar þekking nýtist þér ...
Blandarinn sem allir eru
að tala um!
Mylur alla ávexti, grænmeti klaka
og nánast hvað sem er
Hnoðar deig
Býr til heita súpu og ís
Hraðastillir
Lífstíðareign!
y g