Fréttablaðið - 25.05.2008, Síða 24

Fréttablaðið - 25.05.2008, Síða 24
TVÆR LEIÐIR AÐ GÓÐRI VEISLUBarnaafmæli 8 matur Barnaafmælin hafa alltaf vakið mikla lukku heima hjá Gyðu Thorlacius Guðjónsdóttur. Hún á þrjú börn, tveggja ára dreng og tvær stúlkur, þriggja og níu ára, sem hafa séð endalaus ævintýri streyma úr ofni móður sinnar. „Krakkaafmælin hafa verið þó nokkur hérna síðan ég átti fyrsta barnið mitt, en sem betur fer eru þau hvert á sinni árstíðinni svo ég fæ smá pásu á milli,“ segir Gyða, sem hefur galdrað fram land- könnuðinn Dóru, Bangsímon, risaeðlur, snáka, kanínur, bangsa, hafmeyjur og ljónaköku, sem er alltaf mjög vinsæl, til endalausra prinsessna. „Hello Kitty er meira málið núna hjá eldri dóttur minni því prinsessutímabilið er gengið yfir,“ útskýrir Gyða sem segir undirbúning- inn mislangan og að fyrirmyndirnar komi úr ýmsum áttum. „Myndirnar finn ég mikið á netinu og í upp- skriftabókum. Síðan teikna ég fríhendis á bökunar- pappír ef ég hef ekki form og sting út myndina með tannstönglum áður en ég sker hana út.“ Gyða hefur alltaf haft mikinn áhuga á föndri og köku- skreytingar eru þar engin undantekning. „Metnaðurinn hefur alltaf verið mikill þegar kökurnar eru annars vegar og stundum eru fimm til sex kökur hjá mér auk annarra rétta,“ segir Gyða sem fær stundum aðstoð við bakstur hjá mömmu og tengdamömmu. „Ég hef mjög gaman af því að takast á við nýtt verkefni og hver kaka er áskorun, enda getur þetta tekið marga klukkutíma. Þó hef ég ekki klúðrað neinni köku enn og þetta hefur alltaf reddast. Aðalmálið er bara að skreyta nógu mikið með nammi og dekka þannig yfir misfellur ef einhverjar eru.“ - rh Gyða Thorlacius Guðjónsdóttir leggur alltaf mikinn metnað í barnaafmælin og lítur á hverja köku sem nýja áskorun. Afmælisborðið er fagurlega skreytt og ævintýrin blómstra þegar stóri dagurinn rennur upp. SÚKKULAÐIBOTN 500 g smjör 300 g súkkulaði (Nóa Konsúm suðusúkkulaði) 8 egg 500 g sykur 320 g hveiti 6 msk. kakó Smjör og súkkulaði brætt í potti við lágan hita. Sykur og egg þeytt þar til létt og ljóst. Hveiti og kakó bætt út í sykurinn og eggin. Síðan súkkulaði/smjör blöndunni og allt hrært varlega saman. Hellt í skúffu með smjörpappír eða smyrja og strá með hveiti. Bakað við 175 gráður í miðjum ofni í um það bil 35 mínútur. Stinga prjóni í til að sjá hvenær hún er tilbúin. Passar í stórt skúffuköku- form. SMJÖRKREM 100 g smjör 100 g flórsykur 2 eggjarauður 2 tsk. vanilla Þeyta smjör og flórsykur þar til létt og ljóst. Egg og vanilludropar út í og hræra áfram. Ljónakakan þarf 2- 3 falda uppskrift. Snákurinn 3-4 falda. Matarlitur eftir smekk. Brætt súkkulaði notað fyrir brúnan lit. SKREYTING Myndir koma af netinu eða úr bókum. Teiknið fríhendis, dragið upp á smjörpappír eða notið form. Notið tannstöngla til að stinga út myndina, skerið út. Kremið lagt á með rjómasprautu eða litlum spaða sem er gott að hita í heitu vatni svo kremið renni betur. Spaghettí dýft í súkkulaði, lakkrís eða súkkulaðistangir notað sem veiðihár. Sælgæti eftir smekk sem má klippa til svo það passi betur. ÆVINTÝRATERTUR Í BARNAFMÆLI Dýrleg afmælisveisla FR ÉT TA BL A Ð IÐ /A N TO N Afmæli!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.