Fréttablaðið - 25.05.2008, Qupperneq 27
www.alcoa.is
Framtíðartækifæri í áliðnaði
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
L
C
4
24
39
0
5.
20
08
Ef þú hefur áhuga á starfi hjá Fjarðaáli hafðu þá samband
við Sigurlaugu Þorsteinsdóttur eða Tómas Odd Hrafnsson
hjá Capacent, í síma 540 1000 eða á netföngin
sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is /
tomas.hrafnsson@capacent.is eða skráðu umsókn þína
á www.capacent.is og haft verður samband við þig.Kynntu þér kosti þess að búa og starfa
á Austurlandi: www.austurat.is
Starfsöryggi
Atvinna er óvíða tryggari en í álverum. Framleiðslan er jöfn allt árið
um kring. Fjarðaál leggur einnig mjög mikið upp úr öryggi og vinnu-
vernd í álverinu.
Vinnutími
Unnið er á 12 tíma vöktum, að meðaltali 15,2 vaktir í mánuði.
Vaktafyrirkomulagið gefur möguleika á bæði góðum frítíma og
aukavöktum.
Launakjör
Föst heildarlaun nýrra framleiðslustarfsmanna á vöktum eru
um 310.000 kr. á mánuði að meðaltali. Inn í þá tölu reiknast
desemberuppbót, orlofsuppbót og 15% frammistöðuávinningur.
Fríðindi
Fjarðaál býður starfsmönnum akstur til og frá vinnu.
Starfsmenn fá máltíð á hverri vakt.
Starfsþróun
Stöðug þjálfun og fræðsla skipa veigamikinn sess hjá Fjarðaáli.
Gert er ráð fyrir að hluta vinnutímans verji starfsmenn utan
hefðbundinna starfsstöðva sinna.
Fjölbreytni
Framleiðslustörfin eru afar fjölbreytt og til lengri tíma er lögð áhersla
á fjölhæfni og hreyfanleika starfsmanna í framleiðsluteymum.
Velferðarþjónusta
Starfsmenn hafa aðgang að fjölþættri velferðarþjónustu Heilsu-
verndarstöðvarinnar. Í fyrirtækinu eru starfandi hjúkrunarfræðingar
og læknir er á staðnum tvisvar í viku. Fjarðaál styrkir einnig líkams-
rækt starfsmanna.
Verðmætasköpun
Fjarðaál er stærsta útflutningsfyrirtæki landsins. Fyrirtækið framleiðir
meðal annars álvíra sem notaðir eru í háspennustrengi.
Austurland
Austurland er ört vaxandi þjónustusvæði sem býður upp á
margvíslega búsetukosti í öflugum sveitarfélögum. Möguleikar á
útivist eru einstakir í fallegri náttúru.
Flutningsaðstoð
Fjarðaál aðstoðar þá sem flytjast inn á skilgreint atvinnusóknarsvæði
úr meira en 100 kílómetra fjarlægð. Flutningur og fasteignaskipti eiga
að vera starfsmönnum kostnaðarlaus.
Raf- og véliðnaðarmenn
Við leitum að faglærðum raf- og véliðnaðarmönnum til að sinna
margvíslegu viðhaldi í hátæknivæddu umhverfi. Allir starfsmenn
fyrirtækisins taka þátt í að tryggja áreiðanleika tækja og viðhaldi er
stýrt í samræmi við raunverulegt ástand þeirra. Unnið er í teymum og
verkefni hvers iðnaðarmanns eru fjölbreytt. Á vinnusvæðinu eru
meðal annars afkastamesta rafveita á landinu, hátæknivædd skaut-
smiðja, sjálfvirkt flutningskerfi fyrir hráefni, tölvustýrð rafgreining-
arker, öflug loft- og vatnshreinsivirki, fullkomin álvírasteypa og
farartæki af ýmsum stærðum og gerðum. Mikið er lagt upp úr
starfsþróun og símenntun iðnaðarmanna.
Verkefnastjóri í mannauðsteymi
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi í starf verkefnastjóra i
mannauðsteymi Alcoa Fjarðaáls. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á
sviði mannauðsmála. Það kallar á mikil samskipti við starfsmenn
fyrirtækisins og krefst hæfni til að leiða vinnuhópa. Viðkomandi þarf
að hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða reynslu á sviði
mannauðsmála.
Um eins árs ráðningu er að ræða með möguleika á framtíðarstarfi.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Við ætlum að ráða fleiri framleiðslustarfsmenn á vaktir
í kerskála, skautsmiðju og steypuskála. Framleiðslustörf í álveri
Fjarðaáls við Reyðarfjörð eru tækifæri til að tryggja góða framtíð.
Umsóknarfrestur fyrir öll störfin er til og með 2. júní