Fréttablaðið - 25.05.2008, Síða 43
ATVINNA
SUNNUDAGUR 25. maí 2008 2719
Menntasvið
Næsta vetur vantar okkur í Grandaskóla.
Umsjónarkennara í 5. -6. bekk
Umsjónarkennara á yngra stigi - kjörið tækifæri fyrir fólk sem
vill vinna í teymiskennslu í skemmtilegu starfsumhverfi .
Sundkennara í hlutastarf.
Stuðningsfulltrúa, meginverkefni er vinna með nemendum
undir verkstjórn kennara.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um störf við
skólann.
Nánari upplýsingar gefa Börkur skólastjóri borkur@grandaskoli.
is og Inga aðstoðarskólastjóri inga@grandaskoli.is , sími 411-
7120
Grandaskóli stendur við sjávarsíðuna í vesturbæ Reykjavíkur.
Nemendur eru um 290 talsins í 1. - 7. bekk og við skólann
starfa um 50 starfsmenn. Mikill stöðugleiki hefur verið í starfs-
mannahaldi skólans og í hópnum ríkir fagmennska, metnaður
og góður andi. Skólinn er vel búinn tækjum og hafa allir kenn-
arar skólans fartölvu til afnota.
Sterk hefð er fyrir list- og verkgreinakennslu í skólanum og
hlaut skólinn Hvatningarverðlaun Menntaráðs Reykjavíkur vorið
2007 fyrir tónlistaruppeldi.
Áhersla er lögð á skapandi skólastarf og sveigjanlega starfs-
hætti m.a. til að koma til móts við einstaklingsmun nemenda.
Í yngri deild skólans, 1. - 4. bekk, er áhersla á teymiskennslu.
Tveir umsjónarkennarar vinna með hvern árgang, ýmist sem
heild eða í mismunandi hópum.
Í eldri deild skólans, 5. - 7. bekk, er hefðbundin bekkjarskipting
en áhersla lögð á samvinnu árganga og sveigjanlega starfs-
hætti.
Nánari upplýsingar um skólastarfi ð er að fi nna á heimasíðu
skólans www.grandaskoli.is
Viltu vinna með okkur ?
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is/storf Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi
borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Leikskólasvið
Laus er staða leikskólastjóra í leikskólanum
Holtaborg, Sólheimum 21.
Holtaborg er þriggja deilda leikskóli.
Í leikskólanum Holtaborg er leikurinn í fyrirrúmi, einnig er
unnið með könnunarleikinn og könnunaraðferðina.
Reykjavíkurborg leggur áherslu á að leikskólar móti hver sína
sérstöðu og hafi faglegt og fjárhagslegt sjálfstæði.
Meginverkefni leikskólastjóra eru:
• Að vera faglegur leiðtogi og stjórna daglegri starfsemi í
leikskólanum
• Að bera ábyrgð á rekstri og starfsmannamálum leikskólans
• Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir aðalsnámskrá leikskóla
og skólanámskrá leikskólans
• Að bera ábyrgð á framkvæmd og mati á starfi nu sem fram
fer í leikskólanum
• Að bera ábyrgð á upplýsingjagjöf og samstarfi við foreldra/
forráðamenn
Menntunar og færnikröfur:
• Leikskólakennaramenntun er áskilin
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar, uppeldis- og/eða
menntunarfræða er æskileg
• Stjórnunarhæfi leikar og reynsla af stjórnun
• Þekking á rekstri og tölvukunnátta
• Góð skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður í starfi
• Lipurð í mannlegum samskiptum
Upplýsingar veita Hildur Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri
Leikskólaskrifstofu, hildur.skarphedinsdottir@reykjavik.is og
Ingunn Gísladóttir, starfsmannastjóri ingunn.gisladottir@
reykjavik.is. Sími Leikskólasviðs er 411-7000.
Umsóknum fylgi yfi rlit yfi r nám og störf. Umsóknir skulu
berast Leikskólasviði Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 1, 101
Reykjavík eða www.leikskolar.is -störf í boði.
Umsóknarfrestur er til 9. júní nk.
Laun eru skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og
Félags leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um laus störf á Leikskólasviði er að fi nna á
www.leikskolar.is
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag
sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar,
4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Leikskólastjóri Holtaborg
Vilt þú taka þátt í spennandi uppbyggingu hjá
nútíma hugsjónafyrirtæki? Við bjóðum upp á gott
vinnuumhverfi, samkeppnishæf laun og bónusa fyrir
rétta aðila í ört vaxandi fyrirtæki.
Sölumaður í hlutastarf á
norðurlandi
Hæfniskröfur:
● Reynsla og hæfni í mannlegum samskiptum.
● Reynsla af sölustörfum skilyrði.
Landsins mesta úrval af lífrænt ræktuðum afurðum.
Lagerstarfsmaður
fullt starf og sumarafleysingar
Hæfniskröfur:
● Stundvísi.
● Heiðarleiki og nákvæmni.
Yggdrasill var stofnað árið 1986 og var tilgangurinn með
stofnun félagsins að selja lífrænt ræktaðar matvörur og aðrar
vörur af bestu fáanlegu gæðum. Félagið hefur öll árin haldið
þessu markmiði sínu.
Vilt þú taka þátt í spennandi uppbyggingu hjá
nútíma hugsjónafyrirtæki? Við bjóðum upp á gott
vinnuumhverfi , samkeppnishæf laun og bónusa fyrir
rétta aðila í ört vaxandi fyrirtæki.
Lagerstarfsmaður fullt starf
Hæfniskröfur:
• St ndvísi.
• Heiðarleiki og nákvæmni.
Sölumaður í hlutastarf Norðurland og Austurland
Hæfniskröfur:
• Reyn la og hæfni í mannlegum
samskiptum.
• Reynsla af sölustörfum skilyrði.
Umsóknir óskast se dar á netfangið
yggdr sill@yggdrasill.is fy ir 8.Jún .k.
Yggdrasill markaðsleiðandi fyrirtæki með lífrænt ræktaðar vörur.
Auglýsingasími
– Mest lesið