Fréttablaðið - 01.06.2008, Qupperneq 2
2 1. júní 2008 SUNNUDAGUR
BRASILÍA Stjórnvöld í Brasilíu
greindu nýlega frá því að fundist
hefði áður óþekktur ættbálkur
manna við landamæri Brasilíu og
Perú. Fólkið í ættbálknum hefur
aldrei komist í kynni við nútíma-
menningu og brást illa við þegar
flogið var yfir þorp þeirra.
Meira en helming þeirra hundr-
að ættbálka sem aldrei hafa kom-
ist í kynni við nútímamenningu er
að finna á þeim slóðum sem fólkið
býr. Þrátt fyrir að fólki í þessum
ættbálki fari fjölgandi eru flestir
ættbálkar á svæðinu í útrýming-
arhættu þar sem stöðugt er gengið
á frumskóginn sem þeir lifa í.
Sjúkdómar eru fólkinu í þessum
afskekktu ættbálkum einnig
hættulegir. Jafnvel kvef hefur
valdið dauða hjá sumum þeirra
sem hafa átt samskipti við fólk
utan ættbálkanna þar sem ónæm-
iskerfi þeirra þekkir ekki marga
af algengustu sjúkdómunum.
Myndir af ættbálknum náðust
þegar flogið var yfir eitt af afvikn-
ustu svæðum Amazon-frum-
skógarins. - ovd
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri var dæmdur í árs fangelsi
og sviptur ökuréttindum í fjögur
ár fyrir manndráp af gáleysi í
Héraðsdómi Reykjaness á
fimmtudag.
Maðurinn var fundinn sekur
um að hafa með glæfralegum
akstri valdið dauða tveggja og
alvarlegum áverkum á tveimur
öðrum í desember 2006. Hann
hafði ekið of hratt í slæmri færð
og reynt að taka fram úr vörubíl
með þeim afleiðingum að hann
keyrði á bíl sem kom úr gagn-
stæðri átt. Í dómnum segir að
maðurinn hafi sýnt stórfellt og
vítavert gáleysi. - sgj
Mannskæður glæfraakstur:
Ökumaður í
eins árs fangelsi
TRÚFÉLÖG Búddistafélag Íslands vill fá lóð undir taí-
lenskt búddahof í Hádegismóum við Rauðavatn.
Páll Júlíusson sem rekur málið fyrir búddista segir
í bréfi sem hann sendi í fyrra til Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar, þáverandi borgarstjóra, að frumkvæði
og fjármögnun búddamusteris á Íslandi væri í umsjá
auðkýfingsins Dr. Prasert Prasathong Osoth. Sá eigi
meðal annars Bangkok Airways og starfi að málinu
fyrir hönd Galayani Vadhana prinsessu sem sé systir
konungsins í Taílandi.
Páll segir að hann hafi verið viðstaddur þrjár kon-
uglegar móttökur sem og móttökur hjá æðstu búdda-
munkum Taílands. Þar hafi komið fram mikil hrifn-
ing á því að reisa búddamusteri á Íslandi.
„Í umræðum mínum við þess æðstu menn búddista
í heiminum kom greinilega fram að mikið yrði ferð-
ast til Íslands svo fólk gæti sagt að það hefði komið í
nyrsta búddahof í heiminum,“ útskýrir Páll í bréfi til
borgarstjóra og minnir á að á undanförnum áratug
hafi fjöldi Taílendinga, Víetnama, Kínverja og fólks
frá öðrum löndum búddisma margfaldast á Íslandi.
Þá kemur fram í bréfi Páls að hofið í Hádegismóum
verði nefnt í höfuðið á Galayani prinsessu. „Því fylg-
ir að sjálfsögðu ýmis heiður og gjafir frá konungs-
fjölskyldunni þegar musterið verður tilbúið,“ skrifar
Páll og leggur áherslu á að tækifæri felist í samstarfi
við auðkýfinginn Dr. Prasert.
„Hann er tilbúinn í viðræður um ýmsa samvinnu í
heilbrigðismálum. Hann er nýbúinn að skrifa undir
samning við Svíakonung og heilbrigðiskerfið þar
varðandi hitabeltissjúkdóma. Töluvert veit hann um
byggingu flugvalla, ef við erum að fara að flytja
Reykjavíkurflugvöll,“ bendir Páll á.
Forsvarsmaður búddista ítrekar að auk Íslands
hafi komið til álita að reisa hofið í Danmörku eða
Sviss. Heiðurinn hafi fallið Íslandi í skaut. „Svo ég
held að við verðum að koma til móts og sýna þeim þá
virðingu að finna góða staðsetningu fyrir það,“ segir
í bréfi Páls.
Hofið verður byggt í hefðbundnum taílenskum stíl
og mun Vífill Magnússon arkitekt halda utan um þann
hluta málsins er snýr að skipulagsyfirvöldum í
Reykjavík. Vífill segir í samtali við Fréttablaðið að til
séu frumuppdrættir að hofinu en að ekki sé tímabært
að birta þá opinberlega þar sem málið sé á viðkvæmu
vinnslustigi.
Tillögu um að veita búddistum vilyrði fyrir lóðinni
var frestað í borgarráði á fimmtudag.
gar@frettabladid.is
Taílenskt búddahof
rísi í Hádegismóum
Búddistar með liðsinni taílensks milljarðamærings vilja hof á Hólmsheiði. Þeir
segja straum ferðamanna munu fylgja hofinu. Auðkýfingurinn sé til viðræðu
um samstarf í heilbrigðismálum og geti gefið góð ráð um Reykjavíkurflugvöll.
BÚDDAHOF Vilja reisa taílenskt búddahof við Rauðavatn í
sama stíl og þetta glæsilega hof í Bangkok í Taílandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÁGENGUR EN BLÍÐUR
ÓÐUR TIL ÁSTARINNAR
KONA FER TIL LÆKNIS EFTIR RAY KLUUN
Metsölubók um
sársaukafullt efni
„Ógleymanleg saga um hugrekki,
vanmátt og ástina.“
– Cosmopolitan
Þýðandi: Jóna Dóra Óskarsdóttir
SELDIST Í YFIR600.000 EINTÖKUMÍ HOLLANDI
Katrín, hvað er að frétta úr
Guantánamo?
„Condi segir allt með friði og ró.“
Alþingi hefur fordæmt meðferð fanga
í Guantánamo-búðum Bandaríkjahers.
Katrín Jakobsdóttir, þingmaður VG, flutti
tillöguna. Condoleezza Rice, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi álykt-
unina og sagði engin mannréttindabrot
framin í búðunum.
Áður óþekktur ættbálkur finnst við landamæri Brasilíu og Perú:
Vörðust flugvélinni með spjótum
LÖGREGLUMÁL Tveggja og hálfs árs drengur og maður
á sjötugsaldri voru fluttir með mikil brunasár á
slysadeild Landspítalans eftir sprengingu í húsbíl í
Grindavík um klukkan tíu á föstudagskvöldið.
Maðurinn er afi drengsins og voru þeir tveir í bíln-
um þegar sprengingin varð en mikill eldur kviknaði í
bílnum í kjölfar hennar.
Drengurinn liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild
Landspítalans og er honum haldið sofandi í öndunar-
vél. Er hann mikið brenndur, einkum á höfði og hönd-
um. Maðurinn brenndist einnig töluvert en hann er
ekki eins alvarlega slasaður og drengurinn.
Björgunarsveitarmönnum úr Grindavík hafði tek-
ist að slökkva eldinn í bílnum áður en slökkvilið kom
á vettvang. Þrír björgunarsveitarmenn voru fluttir
á sjúkrahús til aðhlynningar hjá lækni með snert af
reykeitrun. Bíllinn sem er af gerðinni Ford Econoline
eyðilagðist í brunanum.
Málið er í rannsókn hjá rannsóknardeild lögregl-
unnar á Suðurnesjum en grunur leikur á að spreng-
ingin hafi orðið út frá gaskútum í bílnum. - ovd
Ungur drengur þungt haldinn eftir sprengingu út frá gaskútum í húsbíl í Grindavík:
Haldið sofandi í öndunarvél
ELDUR Í BÍLNUM Mikill eldur blossaði upp í bílnum í kjölfar
sprengingarinnar. MYND/HREINN SVERRISSON
Mikið yrði ferðast til Íslands svo fólk gæti
sagt að það hefði komið í nyrsta búddahof í
heiminum.“
PÁLL JÚLÍUSSON
TALSMAÐUR BÚDDISTA Á ÍSLANDI Bílar skemmdir
Fjórir unglingar voru handteknir fyrir
utan 800 Bar á Selfossi í fyrrakvöld.
Fjórmenningarnir eru grunaðir um að
hafa unnið skemmdarverk á nokkrum
vörubílum sem stóðu fyrir utan krána.
Málið telst upplýst.
LÖGREGLUFRÉTTIR
RAUÐIR OG ÓGNANDI Fólkið brást við innrás myndatökumanna með því að beina
spjótum sínum og örvum að flugvélinni. NORDICPHOTOS/AFP
JAPAN Lögregla í Japan handtók á
fimmtudag 58 ára gamla heimilis-
lausa konu sem hafði búið í
fataskáp í húsi ókunnugs manns í
heilt ár.
Manninn fór að gruna eitthvað
þegar matur hvarf úr eldhúsinu
hans yfir nokkurra mánaða
tímabil. Hann setti því upp
öryggismyndavélar í húsinu sem
náðu myndum af boðflennunni.
Þegar lögreglan kom á staðinn
sáust engin merki um innbrot.
Lögreglan opnaði loks skápinn
og fann konuna þar í hnipri. Hún
hafði komið sér vel fyrir með
dýnu og fór í sturtu þegar
maðurinn var ekki heima. - sgj
Bjó í fataskáp manns í ár:
Japanskur skáp-
búi handtekinn
LÖGREGLUMÁL Lögreglumenn
björguðu manni úr brennandi
íbúð í Grindavík í gærmorgun.
Nágrannar mannsins höfðu gert
lögreglu viðvart um að reyk-
skynjari gæfi frá sér hljóð.
Þegar lögreglumenn komu á
staðinn var mikill reykur í
íbúðinni og sáu þeir manninn
sofandi í stofunni. Brugðu þeir á
það ráð að brjóta rúðu í svalahurð
og komu manninum í kjölfarið út
undir bert loft. Maðurinn, sem að
sögn lögreglu var ölvaður, var
fluttur á sjúkrahús til skoðunar.
Tildrög brunans eru þau að
maðurinn hafði sofnað út frá
eldamennsku og fylltist íbúðin af
reyk. Slökkviliðsmenn reykræstu
íbúðina en ekki urðu miklar
skemmdir á íbúðinni. - kka
Sofnaði við eldamennskuna:
Bjargað úr
brennandi íbúð
SLYS Litla stúlkan sem slasaðist
alvarlega þegar hún féll af
sexhjóli í liðinni viku er að sögn
læknis á ágætum batavegi.
Stúlkan er laus úr öndunarvél og
hefur verið útskrifuð af gjör-
gæsludeild Landspítalans.
Slysið varð í Reynishverfi,
vestan við Vík, þegar stúlkan var
á ferð á með móður sinni á
sexhjóli. Hún hlaut mikil meiðsli
á höfði þegar sexhjólið hafnaði
utan vegarslóða og valt niður
brekku. - ovd
Hjólaslys í Reynishverfi:
Litla stúlkan
er á batavegi
BANDARÍKIN Bandarískur lýta-
læknir sætir gagnrýni fyrir
að gefa út barnabókina „Fal-
lega mamma mín“ sem fjallar
um brjóstastækkanir, fitusog og
aðrar lýtaaðgerðir.
Dr. Michael Salzhauer, fimm
barna faðir, skrifaði bókina til að
útskýra lýtaaðgerðir fyrir börn-
um, svo að þau verði ekki fyrir
áfalli ef foreldrar þeirra láta
flikka upp á útlitið.
Bókin fjallar um litla stelpu
sem á mömmu sem undirgengst
stórfelldar fegrunaraðgerðir.
Móðirin segir henni frá öllu ferl-
inu og litríkar myndskreytingar
sýna afraksturinn. - sgj
„Fallega mamma mín“:
Barnabók um
brjóstastækkun
FALLEGA MAMMA MÍN Gagnrýnendur
segja barnabókina stuðla að útlitsdýrk-
un meðal barna.
SPURNING DAGSINS