Fréttablaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 82
26 1. júní 2008 SUNNUDAGUR sport@frettabladid.is > Ekki skorað meira í tólf ár Ekki hafa verið skoruð fleiri mörk í fyrstu fjórum umferðum úrvalsdeildar karla í tólf ár, eða síðan sumarið 1996. Alls hafa verið skoruð 77 mörk í fyrstu 24 leikjunum í sumar, eða 3,21 mörk í leik. Sumarið 1996 komu 3,55 mörk að meðaltali í fyrstu fjórum umferðunum. Einnig var skorað meira í upphafi móts 1993 (3,25) og 1978 (3,25) en þetta er fjórða marka- hæsta byrjun á mótinu síðan deildin innihélt fyrst tíu lið árið 1977. Fimmta umferð Landsbankadeildar karla hefst í dag með þremur leikjum. Þróttur og Keflavík mætast á Valbjarnarvelli, Fjölnir og Breiða- blik spila á Fjölnisvelli og á Akranesi tekur ÍA á móti Fylki. Forkeppni Ólympíuleikanna: Ísland-Pólland 28-34 (12-15) Mörk Íslands (skot): Snorri Steinn Guðjónsson 7/3 (14/5), Arnór Atlason 6 (9), Guðjón Valur Sigurðsson 5 (8), Ólafur Stefánsson 5/1 (14/2), Róbert Gunnarsson 3 (4), Alexander Petersson 2 (5), Vignir Svavarsson (1). Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 0 (5, 0%), Hreiðar Levý Guðmundsson 17 (46/x, 37%) Hraðaupphlaup: 6 (Alexander 2, Arnór 2, Guð- jón Valur, Snorri Steinn). Fiskuð víti: 7 (Róbert 3, Ólafur 2, Guðjón, Vignir). Utan vallar: 6 mínútur Mörk Póllands (skot): Karol Bielecki 7 (10), Grzegorz Tkaczyk 5 (8), Michal Jurecki 4 (5), Tomasz Tluczynski 4/3 (5/3), Marcin Lijewski 4 (7), Bartosz Jurecki 3 (6), Mariusz Jurasik 3 (7), Krzysztof Lijewski 2 (2), Artur Siodmiak 1 (1), Rafal Glinski 1 (2). Varin skot: Slawomir Szmal 25/3 (47/6, 53%), Marcin Wichary 0 (6/1, 0%). Hraðaupphlaup: 4. Utan vallar: 12 mínútur Svíþjóð-Argentína 33-21 (17-7) STAÐAN: Svíþjóð 2 1 1 0 55-43 3 Pólland 2 1 1 0 56-50 3 Ísland 2 1 0 1 64-61 2 Argentína 2 0 0 2 48-69 0 Hinir riðlarnir: RIÐILL 2 Í PARÍS, FRAKKLANDI Frakkland-Spánn 28-24 (16-13) Túnis-Noregur 30-30 (18-17) STAÐAN: Frakkland 2 2 0 0 62-49 4 Spánn 2 1 0 1 57-59 2 Noregur 2 0 1 1 61-63 1 Túnis 2 0 1 1 55-64 1 RIÐILL 3 Í ZADAR, KRÓATÍU Japan-Alsír 38-27 (20-14) Króatía-Rússland 26-24 (15-12) STAÐAN: Króatía 2 2 0 0 63-46 4 Rússland 2 1 0 1 63-38 2 Japan 2 1 0 1 60-64 2 Alsír 2 0 0 2 39-77 0 TÖLFRÆÐIN HANDBOLTI Ísland mætir Svíum í enn einum úrslitaleiknum í dag. Jafntefli fleytir Svíum á Ólympíu- leikana og því dugir ekkert nema sigur. Ísland fékk tækifærin til þess að leggja Pólverja í gær, nýtti þau ekki og tapaði að lokum með sex mörkum, 34-28. Það var hreint út sagt rosalega stemning í Hala Stulecia-höllinni í gær. Um 6.400 áhorfendur troð- fylltu þetta glæsilega hús og sköp- uðu slíkan hávaða að erfitt var að heyra í sjálfum sér. Guðmundur landsliðsþjálfari var staðráðinn í því að koma Pól- verjum úr jafnvægi með því spila 3-2-1 vörn sem og að keyra hraða miðju í andlitið á þeim. Það gekk ekki sem skyldi framan af því Pól- verjar skoruðu nánast að vild í upphafi leiks. Þeir komust í 4-0 og augljóslega skrekkur í okkar mönnum. Vörnin var ekki að virka, markvarsla lítil sem engin og ekki nægur hraður í sókninni. Fyrsta íslenska markið kom ekki fyrr en eftir 7 mínútur. Ekki bætti úr skák fyrir íslenska liðið að það klúðraði tveim vítaköstum á fyrstu 12 mínútum leiksins. Smám saman fór samt mesti skrekkurinn af strákunum og þeir unnu sig hægt og rólega inn í leik- inn. Þegar 18 mínútur voru liðnar náði Ísland muninum niður í eitt mark, 8-7. Í stöðunni 10-8 misstu Pólverjar mann af velli og strák- arnir í dauðafæri að jafna leikinn. Það nýttu þeir engan veginn og lentu undir 12-8. Pólverjar misstu mann af velli í þrígang í fyrri hálf- leik og íslenska liðið náði engan veginn að nýta sér það sem var blóðugt. Snorri Steinn dró vagninn í sókninni lengstum og skoraði mik- ilvæg mörk. Arnór var einnig ákveðinn og Ólafur vann sig vel í leikinn. Hreiðar tók nokkra bolta þegar leið á hálfleikinn og það hjálpaði liðinu að ná muninum aftur í 3 mörk fyrir hlé, 12-15. Strákarnir byrjuðu síðari hálf- leik með látum, skoruðu tvö fyrstu mörkin, minnkuðu muninn í eitt mark, 15-14, og voru þess utan manni fleiri. Í stað þess að láta kné fylgja kviði gaf liðið eftir og tap- aði leikkaflanum 2-0. Ekki í fyrsta skipti sem liðið fór illa með væn- lega stöðu og þessi kafli í raun táknrænn fyrir gang leiksins. Leikurinn fór jafnvel þarna. Eltingarleikurinn hélt áfram allan hálfleikinn. Munurinn var ávallt 2-4 mörk og aldrei náði Ísland að brjóta múrinn og jafna. Undir lokin hristu Pólverjarnir strákana af sér og lönduðu sætum sigri og fögnuðu um leið farmiðan- um á Ólympíuleikana. Vörnin var talsvert betri í síðari hálfleik og Hreiðar varði oft á tíðum frábærlega. Arnór átti magn- aðan leik, skoraði og lagði upp og Snorri stýrði liðinu eins og hers- höfðingi. Meira framlag vantaði þó sárlega frá fyrirliðanum. Einnig munaði mikið um að ekki gekk að ná Guðjóni Val inn í leikinn. Í raun gengu hraðaupphlaupin ekkert í leiknum og munar um minna. Ef við bætum svo við klúðr- uðum vítum og einstökum klaufa- skap manni fleiri þá er ekki skrítið að liðið tapaði. Það fékk svo sann- arlega tækifærin til að ná yfir- höndinni í leiknum og hafa sigur en klúðraði öllum tækifærunum. Baráttan var engu að síður til fyr- irmyndar og vonandi er nóg bens- ín á tanknum fyrir enn eitt stríðið gegn Svíum. Leikur hinna glötuðu tækifæra Ísland þarf að vinna Svía í hreinum úrslitaleik í dag um laust sæti á Ólympíuleikunum. Ísland tapaði fyrir Póllandi, 34-28, í hörkuleik þar sem strákarnir fóru oft illa að ráði sínu. GÓÐ MARKVARSLA Hreiðar Levý Guðmundsson varði mjög vel í íslenska markinu og var einbeittur eins og sjá má á þessari mynd. Á myndinni fyrir neðan sést stemningin í stúkunni sem var engu lík hjá Pólverjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC UNDANKEPPNI ÓL HENRY BIRGIR GUNNARSSON skrifar frá Póllandi henry@frettabladid.is HANDBOLTI „Það féll ekki með okkur í dag. Við klúðruðum of mikið af dauðafærum til þess að klára leikinn. Við náðum ekki því sem við ætluðum okkur í fyrri hálfleik að ná hraðaupphlaupum. Það eru nokkur atriði sem skilja á milli,“ sagði Guðmundur Guð- mundsson landsliðsþjálfari. Vorum að spila við sterkt lið „Mér fannst við ekki tapa þessu á vörninni. Sóknin klikkaði á köfl- um, ekki síst þegar við erum manni fleiri. Það eru menn í lið- inu sem eiga meira inni. Það má ekki gleyma því að við vorum að spila við mjög sterkt lið en auð- vitað erum við hundsvekktir,“ sagði Guðmundur sem ætlar ekki að dvelja of lengi við þennan leik enda stríðið ekki tapað. Hreiðar Guðmundsson átti magnaðan leik í markinu og varði oft og tíðum stórkostlega. „Við vorum inni í leiknum allan tímann og vantaði oft bara herslu- muninn. Það djöfluðust allir eins og vitleysingar og við þurfum ekkert að skammast okkar fyrir frammistöðuna því menn eru að leggja sig fram,“ sagði Hreiðar sem sagðist hafa notið þess að spila í stemningunni í gær. Fáránlega flott stemning „Það var geggjað. Þetta var fáránlega flott stemning og það er einstakt að spila í svona umhverfi þar sem allir eru á móti manni. Pólverjarnir mega nú samt eiga það að þeir voru kurt- eisir,“ sagði Hreiðar og brosti. Hreiðar varði 17 skot í gær og mörg þeirra úr algjörum dauða- færum. – hbg Landsliðsþjálfarinn og markvörðurinn svekktir eftir tap gegn Pólverjum: Töpuðum þessu ekki á vörninni VONBRIGÐI Guðmundur Guðmunds- son landsliðsþjálfari hugsi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC HANDBOLTI „Við erum inni í leiknum allan tímann og þetta er eðlilega svekkjandi. Mér fannst dauðafærin fella okkur en sóknin var samt í góðu lagi. Ég held að vandamálið liggi frekar í vörninni en í sókninni,“ sagði Arnór Atlason sem átti sannkallaðan stórleik í gær. „Ég er ánægður með að fá að spila og ég var bara að gera það sem ég tel mig gera best. Nýt þess virkilega að vera með. Það var líka frábært að spila í svona leik með slíkum hávaða. Ég óttast ekkert að mæta Svíum og vona að það sé komið að okkur að vinna. Ég er að spila með þrem leik- mönnum Svía og það verður gaman að berja aðeins á þeim,“ sagði Arnór að lokum. - hbg Arnór Atlason átti stórleik: Óttast ekki Sví- ana í dag FRÁBÆR Arnór Atlason lék mjög vel í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC HANDBOLTI „Það er ekki spurning að við förum með þetta sjálfir. Fengum tækifærin en klúðrum því og erum því að elta allan leikinn,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson ókátur en hann átti flottan leik í gær og skoraði mikilvæg mörk ásamt því að stýra sóknarleiknum. „Það var gríðarlega dýrt að klúðra alltaf manni fleiri. Við stóðumst ekki þessa prófraun en það er annar úrslitaleikur fram undan. Það er ekki hægt að dvelja lengi við þetta en við eigum annað tækifæri eftir.“ - hbg Snorri Steinn Guðjónsson: Stóðumst ekki prófraunina SNORRI STEINN Skoraði sjö mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC Þau voru þung skrefin hjá Ólafi Stefánssyni lands- liðsfyrirliða eftir leik. Hann var eðlilega svekktur með tapið og hann var einnig mjög ósáttur við eigin frammistöðu í leiknum. „Ég tek mikið á mig enda get ég spilað miklu betur. Ég verð að koma mér í gírinn fyrir Svíana,” sagði Ólaf- ur svekktur en hann sá samt ekki bara svart. „Það var margt gott í þessum leik hjá okkur. Við vorum aftur á móti klaufar. Vörnin var þokkaleg og flott markvarsla hjá Hreiðari. Sóknin líka í ágætis- standi lengstum. Við vorum í bullandi séns í þessum leik og áttum í fullu tré við andstæðinginn. Hlutir duttu ekki með okkur en við trúðum því allan tímann að við gætum stolið leiknum. Nú er bara að hrista þetta af sér og mæta brjálaður í Svíaleikinn,” sagði Ólafur en hann var líkt og aðrir svekktur með hversu illa liðinu gengur að spila manni fleiri. „Ég tek það líka á mig. Ég á að stjórna þeirri stöðu og það gekk ekki nógu vel.” Línumaður- inn Róbert Gunnarsson var einnig svekktur, hann barðist hetjulega í sókninni og var stokkbólginn við úlnliðinn eftir átökin. „Við lendum undir strax í upphafi og við erum alltaf að elta. Svo þegar við erum að ná þeim þá gerist eitthvað sem kemur í veg fyrir að við náum þeim. Hvað það var get ég ekki útskýrt núna,” sagði Róbert. „Við þekkjum það að mæta Svíum í úrslitaleik og það er bannað að svekkja sig of mikið á þessu. Við eigum vel að geta lagt Svíana en þá þurfum við að nýta færin okkar. Þetta var synd í dag því Hreiðar var frábær.” ÓLAFUR STEFÁNSSON: FYRIRLIÐINN AÐ VONUM SVEKKTUR Í LEIKSLOK EFTIR TAPIÐ Í GÆR: Ég á að geta spilað miklu betur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.