Fréttablaðið - 01.06.2008, Side 72

Fréttablaðið - 01.06.2008, Side 72
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög JÚNÍ 2008 UPPÁHALDSVEITINGASTAÐUR- INN? Þegar gesti ber að garði og ég vil góða steik sem hentar fátækum námsmönnum er gott að fara á Joe’s á Newbury. HVAR ER BEST AÐ FÁ SER ÖL? Sjálfur drekk ég ekki en ég veit að félagar mínir hafa það alltaf gott á Daisy’s en það er svona lókal staður þar sem allir þekkj- ast. Svona Cheers-stemmning. FLOTTASTI BARINN? Það er flottur bar á toppnum á Prudent- ial-turninum. Þar er oft lifandi djasstónlist og svo er útsýni yfir alla borgina. BESTU GÖTURNAR TIL AÐ KAUPA FÖT? Newbury er besta gatan og góðar búðir leynast á henni og á götunum í kring. Stærstu H&M-búðina er að finna á Washington Street og það bregst eiginlega ekki að ég heyri í Íslendingum þegar ég kíki í þá búð. Svo er gaman að fara á Harvard Square líka. BESTI STAÐURINN EFTIR KLUKKAN TVÖ AÐ NÓTTU? Þar sem öllum stöðum er lokað klukkan tvö er rosalega vinsælt að fara bara heim að sofa. Ég og Pétur Óskar búum saman og höfum við stundum dottið í eina góða spólu eftir gleðina, þannig að ég mæli með því. RÓMANTÍSKASTI GÖNGUTÚR- INN? Charles Street í Beacon Hill er falleg gata og svo er gaman að fara að kvöldi til á Hanover Street í ítalska hverfinu. HEIMA- MAÐURINN Boston JÓN RAGNAR JÓNSSON Þú ferð ekki í sumarfrí án... STÓRRA SÓLGLERAUGNA. Flottar brillur fullkomna hvaða fatnað sem er. Þessi fjólubláu eru frá Dior og fást í Gleraugnasmiðjunni. FALLEGRA SANDALA. Þessir dásamlegu gylltu gyðjuskór eru frá miumiu og fást hjá Sævari Karli. VANDAÐRAR FERÐATÖSKU. Töskurnar frá Rimowa eru handhægar og smart og fást í Kis- unni, Laugavegi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.