Fréttablaðið - 02.06.2008, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 02.06.2008, Blaðsíða 28
 2. JÚNÍ 2008 MÁNUDAGUR8 ● fréttablaðið ● híbýli - baðherbergi Fallegt baðherbergi og vel skipulagt veitir heimilisfólki mikil þægindi. Guðrún Davíðsdóttir ákvað því að gera upp gamalt baðherbergi frá grunni. Flesta dreymir um að eiga notalegt bað- herbergi þar sem hægt er að láta líða úr sér í sturtunni eða baðinu og þar sem góð aðstaða er fyrir alla umhirðu líkam- ans. Þegar Guðrún og fjölskylda keyptu sér íbúð var ákveðið að ráðast í stórfram- kvæmdir á baðherberginu sem hafði mátt muna sinn fífil fegri. „Baðið var upprunalegt frá því húsið var byggt árið 1958 og það var pínulítið en forstofan við hlið baðherbergisins fremur stór. Við ákváðum því að minnka forstof- una sem nemur sturtuklefanum,“ útskýr- ir Guðrún. Uppröðun var ekki breytt fyrir utan sturtuna. „Við færðum bara pípurn- ar fyrir vatnið og það var ekkert mál. Þá leigir maður einfaldlega tæki í Byko sem herðir saman pípurnar,“ segir Guðrún og bætir við: „Það var þó aðeins meira mál með niðurfallið því það þarf að vera halli en við vorum svo heppin að upprunalega niðurfallið var þar sem sturtan er núna, við náðum því að bora okkur inn í það.“ Bræð- ur Guðrúnar aðstoðuðu hana dyggilega við breytingarnar og kom sér einstaklega vel að einn þeirra er smiður. „Jens bróðir minn á nú heiðurinn af þessu öllu,“ segir Guðrún kímin. Breytingar af þessu tagi kosta alltaf sitt og þrátt fyrir að Guðrún hafi gerst hagsýn húsmóðir og þrætt allar útsölur bæjarins var kostnaðurinn þegar upp er staðið tölu- verður. „Þetta safnast saman en þegar öllu er á botninn hvolft var þetta líklega um helmingi ódýrara en ef við hefðum keypt allt fullu verði og fengið alla þjónustu. Við gættum þess að fá vanan pípulagn- ingamann til að sýna okkur hvað þyrfti að gera og svo kom hann í lokin og tengdi allt saman. Einnig hjálpaði vanur maður okkur að flísaleggja,“ segir Guðrún og leggur áherslu á að mikilvægt sé að hafa grund- vallaratriði eins og pípulagnir í lagi. Eins og sjá má heppnaðist baðherbergið prýðilega og er Guðrún hæstánægð. „Mig langaði að hughrifin minntu á grænt te, bambus og Balí og valdi til dæmis flísarn- ar með það í huga. Þetta er því mjög huggu- legt svona þar til allt fyllist af óhreinum handklæðum,“ segir Guðrún glettin. - hs Nærandi fyrir líkama og sál Guðrúnu er margt til lista lagt og vílaði ekki fyrir sér að endurgera baðherbergi frá grunni. Hún naut þó dyggrar aðstoðar fjölskyldu og fagmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Guðrún gætti þess að útbúa innskot fyrir hillur í sturtuna svo að nóg pláss væri fyrir brúsa með hársápu og öðru. Þetta er góð leið til að útbúa smekklega hirslu sem lítið fer fyrir. Gott pláss er í skúffunum undir vaskinum en síðan er á dagskránni að bæta inn skápum. Smáatriðin skipta líka máli og hér gefur að líta afar smekkleg tannburstaglös sem auðvelt er að þrífa undan þar sem þau eru föst við vegginn. Hver hlutur er valinn með ákveðna tilfinningu í huga. Sápupumpan og -diskurinn minna á hafið bláa hafið sem hæfir vel upplifun af ströndinni. Gamla baðkarið var múrað inn í húsið áður en veggirnir voru reistir í kring. Bora þurfti inn í vegginn til að losa baðkarið og það var ekki plata undir því heldur bara hrá steypan. Einnig hefði verið ómögulegt að koma baðinu út um dyrnar en þar sem veggurinn var brotinn niður fyrir sturtuna hafðist það þannig. MYND/GUÐRÚN DAVÍÐSDÓTTIR Baðherbergi á daginn, súlustaður á kvöldin? Þegar veggurinn var brotinn kom í ljós pípa í miðjum veggnum. Þá fór hugmynd Guðrúnar um sturtu- klefa fyrir lítið. Jens bróðir hennar stakk þá upp á að gera sturtu sem gengið væri inn í og setja vegg fyrir. MYND/NJÖRÐUR FYRIR Markmiðið var að ná fram einhvers konar róandi spa-stemn- ingu. Það tókst prýðilega en flísarnar minna á dúnmjúkar, ljósar strendur og eru fylgihlutir og skraut í takt við þemað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.